Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Ísland gerir kröfu um tak-
markaða stjórn fiskveiða
Sjávarútvegsráðherra vill að utanríkisráðherra leiðrétti frétt ESB-þings
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Evrópuþingið segir mikilvægt í
tengslum við aðildarumsókn Íslands
að Evrópusambandinu að Ísland að-
lagi fiskveiðistjórnina að lögum Evr-
ópusambandsins en bendir á að Ís-
land hafi lýst því yfir að stjórn
sjávarútvegsmála verði að einhverju
leyti áfram á Íslandi.
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra segir að þetta
sé rangt. Fullveldisréttindi Íslands
sé grundvallaratriði og honum finnst
ástæða til þess að utanríkisráðherra
leiðrétti frétt Evrópuþingsins um
málið.
Evrópuþingið sendi frá sér frétta-
tilkynningu um málið í fyrradag. Jón
Bjarnason segir að hún komi veru-
lega á óvart og sé ekki í neinu sam-
ræmi við þau skilyrði sem Alþingi og
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytið hafi sett í viðræðum um þessi
mál. „Það er algerlega ljóst að þær
viðræður sem nú fara fram við Evr-
ópusambandið eiga að taka mið af
því skilyrta umboði sem Alþingi gaf
framkvæmdavaldinu í þessu efni en
þar er einmitt lögð sérstök áhersla á
að Ísland fari áfram og ætíð með fullt
forræði eigin fiskveiðilögsögu, for-
svar í samningum um deilistofna og
áfram verði fjárfestingar erlendra
aðila í sjávarútvegi takmarkaðar,“
segir sjávarútvegsráðherra. „Full-
veldisréttindi Íslands varðandi efna-
hagslögsöguna eru algert grundvall-
aratriði í þessum samningaviðræð-
um.
Það er því mjög alvarlegt að Evr-
ópusambandið gefi nú út yfirlýsingu
sem lætur að því liggja að Ísland geri
aðeins kröfu um einhver takmörkuð
yfirráð yfir stjórn fiskveiða og lög-
sögunni eða „some control“ eins og
það er orðað í fréttinni.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stjórn fiskveiða Evrópuþingið seg-
ir að Ísland geri aðeins kröfu um
takmörkuð yfirráð yfir lögsögunni.
Fulltrúar á flokksþingi Framsóknar-
flokksins munu í dag greiða atkvæði
um ályktun þess efnis að viðræðu-
ferlið við ESB verði stöðvað þegar í
stað. Áður en flokksþingið hófst
sagði í drögum að ályktun um utan-
ríkismál að Framsóknarflokkurinn
teldi hag lands og þjóðar best borgið
utan ESB. Í gærkvöldi lagði Ingi
Björn Árnason, flokksþingsfulltrúi
úr Skagafirði sem situr í utanríkis-
málanefnd þingsins, til þessa viðbót
við drögin. Greidd verða atkvæði um
tillöguna klukkan tvö í dag.
Í drögum að ályktun um sjávarút-
vegsmál segir að Framsóknarflokk-
urinn hafni uppboðs- og fyrningar-
leiðinni sem fiskveiðistjórnunartæki.
Úthlutun veiði-
leyfa eigi hins
vegar að verða
þannig að skil-
greindir verði
tveir pottar. Ann-
ar gangi út á nýt-
ingarsamninga
til 20-25 ára á
grunni aflahlut-
deildar á hvern
bát. Samningarn-
ir verði á milli ríkis og íslenskra aðila
með búsetu hér á landi síðustu fimm
ár hið minnsta. Hinn potturinn inni-
haldi veiðileyfi til fiskvinnslu, ferða-
þjónustu, nýsköpunar og strand-
veiða. onundur@mbl.is
Viðræðum við
ESB verði hætt
Lagt til að framsóknarmenn hafni
uppboðs- og fyrningarleið í sjávarútvegi
Þing Fjölmenni á
flokksþingi í gær.
„Getum við vin-
samlegast fengið
þorskinn okkar
til baka,“ skrifar
lesandi á vef
breska blaðsins
Guardian, í tilefni
af baráttugrein
Evu Joly, þing-
manns á Evrópu-
þinginu og fyrrv.
aðstoðarmanns sérstaks saksókn-
ara, gegn Icesave-kröfunni á Ísland.
Annar lesandi tekur í sama streng
en báðir skrifa undir gælunöfnum,
líkt og svo margir lesendur blaðsins.
„Látið okkur hafa peninginn eða við
gerum innrás.“
Gráðugir sparifjáreigendur
Hátt í 290 höfðu gert athugasemd-
ir við grein Joly á vef blaðsins á tí-
unda tímanum í gærkvöldi og mæltu
44 með grein síðari álitsgjafans.
Fjöldi álitsgjafa tekur hins vegar
málstað Íslands. Kemst einn þeirra
svo að orði: „Fégráðugir innistæðu-
eigendur leituðu eftir óraunsæjum
innlánsvöxtum. Látum þá taka af-
leiðingum gjörða sinna.“
Í þriðja hópnum er að finna álits-
gjafa sem erfitt er að ráða í í hvorn
flokkinn falla. Skrifar einn þeirra,
lesandi sem kallar sig „herra Jón“,
að kosningin snúist í raun um aðild
Íslands að Evrópusambandinu.
Mikil við-
brögð við
grein Joly
Eva Joly
Lesendur Guardian
tjá sig um Icesave
Kosningavaka verður á frétta-
vef Morgunblaðsins, mbl.is, í
kvöld og fram eftir nóttu. At-
kvæðatölur verða birtar jafn-
óðum og þær berast.
Í dag verður fylgst með þjóð-
aratkvæðagreiðslunni um Ice-
save á mbl.is. Þeim sem vilja
koma ábendingum á framfæri
er bent á síma 669 1200 og
tölvupóst netfrett@mbl.is.
Kosninga-
vakt á mbl.is
Keflavíkurkonur urðu í gærkvöld Íslandsmeistarar kvenna í körfubolta í
fjórtánda skipti. Þær lögðu nágranna sína úr Njarðvík, 61:51, í þriðja úr-
slitaleik erkifjendanna og unnu þar með einvígið á sannfærandi hátt, 3:0.
Fyrri tveir sigrarnir voru þó mjög naumir en í gærkvöld var Keflavíkur-
liðið með undirtökin allan tímann og í leikslok var fögnuðurinn að vonum
mikill. » Íþróttir
Keflavíkurkonur Íslandsmeistarar í 14. sinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjármálaráðuneytið hefur ekki farið
að þeirri ósk úrskurðarnefndar um
upplýsingamál að ráðuneytið taki
ákvörðun um hvernig það svari beiðni
Morgunblaðsins um upplýsingar um
kostnað við samninganefnd í Icesave-
deilunni. Nefndin óskaði eftir því að
beiðni Morgunblaðsins yrði afgreidd
efnislega og ákvörðun birt blaða-
manni Morgunblaðsins eigi síðar en
klukkan 16 í gær, föstudag. Engin
slík ákvörðun barst.
Morgunblaðið óskaði 21. febrúar
eftir allítarlegum upplýsingum um
kostnað við samninganefndina sem
samdi um nýjustu Icesave-samn-
ingana. Þeirri ósk var hafnað og sagt
að ekki lægju fyrir upplýsingar um
heildarkostnað og þangað til yrðu
engar tölur birtar. Enginn rökstuðn-
ingur fylgdi með synjuninni. Bréf úr-
skurðarnefndarinnar er dagsett 4.
apríl, áður en Steingrímur J. Sigfús-
son fjármálaráðherra veitti svar við
hluta af þeirri fyrirspurn sem Morg-
unblaðið beindi til ráðuneytisins.
Fór ekki að
tilmælum
nefndarinnar
1. prentun uppseld
2. prentun komin í verslanir