Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011 Að undanförnu hafa komið fram peningaleg og siðferðileg rök sem lúta að því að hafna kröfum Breta og Hol- lendinga sem gerðar voru í framhaldi af þroti Landsbankans. Flest eru þau rök harla skýr og trúverðug. Engu að síður berst hópur manna af miklum ákafa fyrir því að samþykkja kröfurnar og borga refjalaust það sem upp er sett. Í því samhengi er fullyrt að þrátt fyrir að ríkissjóður taki á sig miklar fjár- hagslegar skuldbindingar verði ef til vill auðveldara að fá meira fé að láni og það hugsanlega á betri kjörum en ella. Sagt er að það eigi bæði við um rík- issjóð og einkafyrirtæki sem rík- issjóður ber þó, enn sem komið er, óumdeilanlega enga ábyrgð á. Þá hef- ur það sjónarmið komið fram að sann- gjarnt sé og réttlátt að ríkissjóður Ís- lands bæti fyrir ævintýri Landsbankans í útlöndum. Varla er að efa að þeir sem vilja skrifa upp á og greiða sem fyrst séu einlæglega sannfærðir um að það sé best, en rökin sem fram koma fyrir málstaðnum eru þess eðlis að menn hljóta að kafa dýpra í von um að skilja hvað gæti legið að baki. Ekki þarf að halda andanum lengi til að sjá að snið- mengi þeirra sem vilja sem ákafast samþykkja og borga og mengis þeirra sem telja sérstakt framfaramál að inn- lima Ísland í Evrópusambandið er stórt. Hætt er við að deila um innistæðu- tryggingar verði sem Þrándur í Götu í þeirri innlimunarvegferð. Auð- velt er að skilja að sjái menn lítinn mun á Evr- ópusambandinu og sæluríki framtíðar sé nokkru fórnandi til að koma Þrándi burt. Þá spyrja aðrir: Er ástæða til að veðsetja ríkissjóð fyrir himinháum upp- hæðum til að liðka fyrir því að Íslendingar og afkomendur þeirra verði þegnar í verðandi her- veldi gömlu evrópsku nýlenduveld- anna? Hér þurfa friðarsinnar eða aðrir sem greina glögglega milli Evrópu- sambandsins og Paradísar varla að hugsa sig lengi um. Í framhaldi af því mættu menn velta fyrir sér hversu viljug hin sömu gömlu nýlenduveldi væru til að taka á sig ábyrgðir á viðskiptaævintýrum einkafyrirtækja í útlöndum langt um- fram árstekjur ríkisins, jafnvel þótt líklegt væri að góður slatti fengist upp í kröfur. Þær vangaveltur ættu heldur ekki að taka langan tíma. Borga friðarsinnar Icesave refjalaust? Eftir Harald Ólafsson » Þá hefur það sjón- armið komið fram að sanngjarnt sé og réttlátt að ríkissjóður bæti fyrir ævintýri Landsbanka... Haraldur Ólafsson Höfundur er prófessor við Háskóla Íslands. Ólíkt hafast þeir að, fyrrum samstarfs- menn, forstjóri Landsvirkjunar (LV) og forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Forstjóri LV lét dragast inn í rukk- unartilraunir Breta- stjórnar þegar hann auglýsti að Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) mundi lána LV á góðum vöxtum ef Moodýs lækkaði ekki lánshæfismat Íslands. En Moodýs er búið að gefa út að lánshæf- ismatið verði lækkað ef Íslend- ingar samþykkja ekki Icesave III! Semsagt: Landsvirkjun fær gott lán ef við samþykkjum Icesave III. Það sem ekki fylgdi sögu hjá forstjóra LV er að LV getur feng- ið mjög góð stofnlán nærri hvar sem er í heiminum á góðum vöxt- um og þarf ekki að undirgangast stjórn- málastefnu ESB og Breta sem vilja gera íslensk auðlindafyr- irtæki háð sér og komast með klærnar í íslenskar auðlindir. EIB er einn af fáum stofnlánabönkum sem rukka Icesave fyrir Breta og Hollendinga. Moodýs, eitt af fyr- irtækjunum í þríok- unarhring lánshæf- ismatsfyrirtækja, gefur út lánshæfismat gegn greiðslu og eru Bretar og Hollendingar meðal bestu viðskiptavina þeirra. Alvöru stofnlánabankar sem vinna af bankafagmennsku reka ekki stjórnmálastarfsemi, þeir taka ekki mark á þríokunarhringnum eftir að hann gaf hæsta mat á gjaldþrota banka fram undir hrun. Faglegir stofnlánabankar lesa aft- ur á móti efnahagsreikning og rekstraráætlanir lántakenda af því að þeir vilja fá lánin greidd. Þetta veit forstjóri OR enda lét hann ekki hafa sig í að samþykkja að OR gæti ekki fengið lán vegna mats Íslands hjá lánshæfismats- fyrirtækjunum. Hann veit hið sanna: Lán fæst ekki nú vegna stöðu OR, það hefur ekkert með lánshæfismatseinkunnir Íslands hjá Moodýs að gera. En LV er öfl- ugt vel statt fyrirtæki og getur fengið góð lán hjá faglegum og sjálfstæðum stofnlánasjóðum víða um lönd og þarf ekki að ganga í hlutverk rukkara Bretastjórnar eða gera sig háð stjórnmálastefnu ESB; það er vont nesti til fram- tíðar að binda trúss sitt við póli- tíska banka. Landsvirkjun hefur hingað til getað haldið sig frá póli- tík. Lækkun á lánshæfiseinkunn Moodýs ef Íslendingar fella Ice- save III yrði fyrirframkeypt rang- mat eins og matið á gjaldþrota bönkunum fyrir hrun. Ef Íslend- ingar fella Icesave III mun láns- hæfið batna, ef þeir aftur á móti samþykkja Icesave III stökkva ábyrgðir ríkissjóðs upp í 400% af fjárlögum og lánshæfi Íslands versnar. Ég legg til að ríkissjóður Ís- lands frelsi forstjóra Lansdvirkj- unar úr rukkarahlutverki EIB og Breta og gefi sínu besta fyrirtæki, Landsvirkjun, vextina sem átti að borga Bretum í vor vegna Icesave III. Það er nóg fyrir Búðarháls- virkjun. Eftir Friðrik Daníelsson » Lækkun á lánshæf- iseinkunn Moodýs ef Íslendingar fella Ice- save III yrði fyrirfram- keypt rangmat eins og matið á gjaldþrota bönkunum fyrir hrun. Friðrik Daníelsson Höfundur er verkfræðingur. Landsvirkjun í Bretarukkun Óskað er eftir 3ja herbergja íbúðum fullbúnum m. húsgögnum og tækjum. Skilyrði að þvottavél og þurrkari sé innan íbúðar, einnig þarf internettenging og sjónvarp m. erlendum sjónvarpsstöðum að vera í boði. Leigutími 1-2 ár. Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn Valdimarsson, Lögg. fasteignasali, s. 695 5520 Traust fyrirtæki óskar eftir íbúðum til leigu Til sölu eða leigu nýlega endurbyggt 1500 m2 iðnaðarhúsnæði í GRINDAVÍK. Húsnæðið er laust strax. Upplýsingar gefur Jón G. Ottósson jgo@stakkavik.is Sími 8939606 TIL SÖLU EÐA LEIGU 1500 m2 Í hinu alþjóðlega bankahruni haustið 2008 kom í ljós að inn- stæðutryggingasjóðir Evrópulanda voru ekki til stórræðanna. Íslenski sjóðurinn sem starfað hafði at- hugasemdalaust í ára- tug samkvæmt til- skipun ESB gat engar innstæður bætt, hvorki í útibúi Landsbankans hér á landi né erlendis. Evrópska inn- stæðutryggingakerfið reyndist öll- um viðskiptavinum Landsbankans gagnslaust. Þaðan fékk enginn krónu. Engum var því mismunað á grundvelli tilskipunar ESB um inn- stæðutryggingar. Bresk stjórnvöld gripu þá einhliða til þess ráðs að bæta allar innstæður á Icesave- reikningum Landsbankans í Bret- landi. Hið sama gerðu stjórnvöld í Hollandi. Stjórnvöld á Íslandi gripu til sömu ráða gagnvart innstæðu- eigendum í útibúum bankans hér á landi, hvort sem þeir höfðu íslenskt eða er- lent ríkisfang. Engin mismunun á grundvelli þjóðernis átti sér stað. Þessar aðgerðir voru utan hins evrópska inn- stæðutryggingakerfis sem reyndist ónýtt er gaf á bátinn. Rík- isstjórnir allra land- anna þriggja gripu til þessara ráða af sjálfs- dáðum og á eigin for- sendum. Með neyðarlögum frá Alþingi var innstæðueigendum veittur forgangur í þrotabú Lands- bankans. Við þrot bankans hefðu Bretar og Hollendingar getað vænst þess að fá 674 milljarða úr innstæðutryggingum samkvæmt til- skipun ESB um lágmarkstrygg- ingu. Neyðarlögin tryggja þeim hins vegar 1175 milljarða sam- kvæmt nýjasta mati á búi Lands- bankans. Forgangur þessi er á kostnað annarra kröfuhafa í Lands- bankann. Meðal þeirra eru Seðla- banki Íslands, Íbúðalánasjóður og íslenskir lífeyrissjóðir og aðrir skuldabréfaeigendur. Íslenskur almenningur, skatt- greiðendur og lífeyrisþegar, hefur því þegar lagt breskum og hol- lenskum innstæðueigendum til hundruð milljarða króna. Hugs- anleg mismunun íslenskra stjórn- valda snýr því fremur að þessum aðilum en innstæðueigendum í Bretlandi og Hollandi. Þegar rætt er um mögulega mismunun í banka- hruninu 2008 hljóta menn hins veg- ar að hugleiða eitt. Bresk stjórnvöld björguðu bresku bönkunum hverj- um á fætur öðrum frá falli. Nema einum. Þau björguðu ekki breska bankanum Kaupthing Singer & Friedlander Ltd. Þvert á móti. Eftir Sigríði Ásthildi Andersen Sigríður Ásthildur Andersen » Íslenskur almenn- ingur, skattgreið- endur og lífeyrisþegar, hefur því þegar lagt breskum og hollenskum innstæðueigendum til hundruð milljarða króna. Höfundur er héraðsdómslögmaður. Engin mismunun FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. ÞORRAGATA 7 3JA HERB. ÍBÚÐ FYRIR ELDRI BORGARA. OPIÐ HÚS Á MORGUN, SUNNUDAG, FRÁ KL. 16-17 Björt og vel skipulögð 108,1 fm íbúð á 2. hæð auk tveggja sér bílastæða í opinni bílageymslu. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, eld- hús, samliggjandi rúmgóðar stofur, sjónvarpsstofu, 1 svefnher- bergi og baðherbergi. Auðvelt er að útbúa svefnherbergi úr sjónvarpsstofu. Um 20 fm svalir til suðurs út af stofum með fal- legu útsýni til sjávar. Gott aðgengi og lyfta. Húsvörður. Verð 36,0 millj. Íbúðin verður til sýnis á morgun, sunnudag, frá kl. 16-17 Íbúð á 2. hæð, merkt 0202. Verið velkomin. Sölumaður verður á staðnum. - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.