Morgunblaðið - 09.04.2011, Side 8
Verðmætamat manna er misjafnteins og annað mat þeirra og lít-
ið við því að gera. Verðmætamat al-
þýðuforingjans Steingríms J. Sigfús-
sonar hefur komið smám saman í
ljós á liðnum miss-
erum og vekur at-
hygli.
ÁAlþingi áfimmtudag
kom enn eitt dæmið
um verðmætamatið
fram, en þá var Steingrímur spurður
um kostnaðinn vegna Icesave III
samninganna, fyrirspurn sem hann
hefur með ósvífnum klækjum og um
langa hríð vikið sér undan að svara.
Ekki fengust heldur skýr svör aðþessu sinni, en þó var upplýs-
andi að heyra lýsingu hans á
greiðslum til innlendra aðila. Hann
sagði erlendu aðilana hafa verið
dýra, en þá innlendu „mjög hóflega“.
Þessir innlendu fengu að sögnSteingríms „mjög hóflegar“
greiðslur sem að vísu námu mörgum
tugum milljóna króna.
Einhverjum kann að þykja þessargreiðslur fyrir hlutastarf í tæpt
ár vera nær því að teljast mjög óhóf-
legar en mjög hóflegar. Sé svo er
það aðeins vegna þess að viðkom-
andi skortir sjónarhorn Steingríms.
Þeir sem efast um að tugir millj-óna fyrir hlutastarf í tæpt ár
séu mjög hófleg greiðsla hafa líklega
ekki þurft að sannfæra sjálfa sig og
aðra um að greiðsla upp á tugi eða
hundruð milljarða fyrir að sam-
þykkja lögleysu sé mjög hófleg
greiðsla.
En þegar menn hafa árum samanreynt að selja Icesave-
samninga virkar allt annað mjög
hóflegt í samanburðinum.
Steingrímur J.
Sigfússon
„Mjög hóflegur“
Steingrímur
STAKSTEINAR
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta er bara gaman,“ segir
knapinn Halldór Guðjónsson, en
hann sigraði örugglega á Nátt-
hrafni frá Dallandi í ístöltinu
„Þeir allra sterkustu“, sem fór
fram í Skautahöllinni í Laugardal
um liðna helgi. Þetta var jafn-
framt þriðja árið í röð sem þeir
sigra í keppninni. „Það er ekki oft
sem það gerist,“ segir meistarinn
lítillátur.
Náttfari er 12 vetra og hefur
verið í umsjá Halldórs alla tíð, en
hann hefur tamið hann í átta ár.
„Ég nánast bjó hann til,“ segir
Halldór og vísar til þess að hann
hafi ásamt eigandanum leitt hryss-
una undir graðhestinn á sínum
tíma og síðan byrjað að temja
hestinn ungan. „Mér fannst hann
efnilegur og skemmtilegur og hélt
áfram með hann,“ segir Halldór
og bætir við að aðalatriðið sé að
hafa trú á því sem maður geri,
vera rólegur og bíða eftir því að
hesturinn geti framkvæmt það
sem hann þurfi að gera í svona
keppni. Sé haldið rétt á spöðunum
sé uppskeran góð.
Tamningarmiðstöð í Svíþjóð
Félagarnir fengu 9,07 í einkunn
í forkeppni og 9,22 í úrslitum.
Halldór segir það mjög góðan ár-
angur, sérstaklega í forkeppninni.
Hann flutti til Svíþjóðar í haust
sem leið og rekur tamningastöð í
Uddevalla skammt fyrir norðan
Gautaborg. Vegna reiðkennslu
hefur Halldór komið til Íslands
mánaðarlega og notað tímann til
þess að sinna Nátthrafni. Hann
hafi ákveðið að fara í keppnina og
sjái ekki eftir því. „Þetta er mjög
góður árangur,“ segir hann.
Eru enn í sérflokki í ístöltinu
Halldór Guðjónsson og Nátthrafn
þeir allra sterkustu þriðja árið í röð
Ljósmynd/Dagur Brynjólfsson
Meistarar Halldór Guðjónsson á Nátthrafni sýnir listir sínar.
Fjárfestar
- góð fjárfesting
Íslenskt fyrirtæki með umboð fyrir einstaka vöru á öllum
norðurlöndum vill selja 20% hlut (20 milljónir).
Hluturinn selst í einu lagi eða í hlutum. Hlutverk
fyrirtækisins er að gera umboðssamninga við öfluga
dreifingaraðila í viðkomandi landi.
Varan er einstök og fellur fullkomlega inn í vörulínu
væntanlegra umboðsaðila.
Ávinningurinn er verulegur þar sem hluti veltunar í hverju
landi fyrir sig rennur til fyrirtækisins.
Áhugasamir eru beðnir um að senda nafn og síma á
box@mbl.is merkt:
ávinningur 2012 fyrir 9. apríl.
Öllum fyrirspurnum verður svarað.
Erindi: Íslandsljóð
Þú býrð við lagarband,-
Bjargarlaus við frægu fiskisviðin,
Fangasmár, þótt komist verði á miðin,
en gefur eigi
á góðum degi,
gjálpi sær við land.
Vissirðu, hvað Frakkinn fékk til hlutar?
Fleytan er of smá, sá guli er utar.
Hve skal lengi
dorga, drengir,
dáðulaus upp við sand?
Höfundur Einar Benediktsson
Veður víða um heim 8.4., kl. 18.00
Reykjavík 9 rigning
Bolungarvík 10 rigning
Akureyri 14 skýjað
Egilsstaðir 12 skýjað
Kirkjubæjarkl. 7 alskýjað
Nuuk -8 léttskýjað
Þórshöfn 10 þoka
Ósló 12 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 léttskýjað
Stokkhólmur 11 skúrir
Helsinki 3 skýjað
Lúxemborg 18 heiðskírt
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 13 heiðskírt
Glasgow 13 léttskýjað
London 21 heiðskírt
París 20 heiðskírt
Amsterdam 12 heiðskírt
Hamborg 10 skýjað
Berlín 15 skýjað
Vín 17 skýjað
Moskva 2 skúrir
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 27 heiðskírt
Barcelona 17 heiðskírt
Mallorca 21 heiðskírt
Róm 21 heiðskírt
Aþena 17 skýjað
Winnipeg 3 alskýjað
Montreal 7 léttskýjað
New York 8 heiðskírt
Chicago 7 þoka
Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:18 20:42
ÍSAFJÖRÐUR 6:16 20:54
SIGLUFJÖRÐUR 5:59 20:37
DJÚPIVOGUR 5:46 20:13