Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 11
lítið í einu, aðeins 5 hespur saman.
Það gerir bandið aðeins meira fá-
gæti. Ég lagðist í biblíur kvenna fyrri
tíma til að læra jurtalitun. Það var
svolítil vinna að gaufast í gegnum
þær en síðasta sumar kom út bók á
mannamáli um jurtalitun, Foldar-
skart í ull og fat, eftir Þorgerði Hlöð-
versdóttur og Sigrúnu Helgadóttur.
Þar eru góðar leiðbeiningar og búið
að minnka eiturskammtana.“
Góðir nágrannar
Stundum vantar Guðrúnu meira
magn af jurtum til litunar og þá er
gott að eiga góða nágranna. „Ég er
til dæmis með helling af rabarbara í
mínum garði, en fólk er líka mjög al-
mennilegt við að leyfa mér að stinga
upp garðinn hjá sér til að ná mér í
fleiri slíkar rætur. Ég sendi tölvu-
póst á staðarnetið á Hvanneyri og
spurði hvort fólk væri að fara að
grisja rabarbarann hjá sér og ég
fékk margar hjólbörur af frábærri
rabarbararót. Hvanneyringar eru
einstaklega jákvæðir gagnvart minni
jurtalitun, þeir hafa bæði gefið mér
stóra potta og hleypt mér í garðana
sína til að nálgast jurtir.“
Guðrún hefur safnað kúahlandi
úti í Hvanneyrarfjósi og látið það
standa svo það verði að keytu. „Ég
hef látið fjallagrasalitað band liggja í
keytunni í nokkrar vikur en þannig
fékkst kúahlands-rauður í gamla
daga eða íslenskur hárauði var það
líka nefnt. Slík vinnsla er mikið sull
og lyktar illa og vinnan við að elta
beljurassa í lausagöngufjósi er tíma-
frek en úr verður fagur, rauður lit-
ur.“
En stundum þarf að leita út fyr-
ir garða og fjós til að ná í litarefni
„Ég get farið út í garð hjá mér og
sótt mér bæði rabarbarablöð og rab-
arbararót, njóla, fífíl, lúpínu, skóg-
arkerfil og fleira, en ég þarf að fara
lengra í burtu til að tína fjallagrös og
litunarskóf sem gefur fallegan brún-
rauðan lit. Maður þarf svolítið að
þjálfa augað til að finna þessa skóf
því hún vex á steinum. En það þarf
ekki endilega að fara langt, það er
fullt af litunarjurtum sem hægt er að
finna í görðum og húsasundum í 101
Reykjavík.“
Guðrún keypti ull frá bænum
Hesti, sauðfjárræktarbúi landbún-
aðarháskólans, þvoði hana og sendi
til Belgíu og þar verður hún kembd
og spunnin á þrjá mismunandi vegu.
„Þetta verður sérunnið íslenskt band
sem verður mjög mjúkt, því þetta er
væn meðferð þar sem fitan er látin
halda sér og mýktin. Ég ætla að lita
eitthvað af þessu en líka selja eitt-
hvað af henni hvítri. Möguleikarnir
eru óendanlegir að leika sér með ís-
lensku ullina og íslensku jurtirnar.“
Guðrún fær stundum til sín
hópa af konum, saumaklúbba, sem fá
að kíkja í pottana þegar hún litar og
hún segir þeim frá jurtalituninni.
„Það er svo gaman að hitta fólk með
sama áhugamál,“ segir Guðrún sem
prjónar mikið af hyrnum, axlaslám,
til að prófa litina sína. „Það er nóg að
gera, ég þekki ekki hugtakið dauður
tími, mig vantar fleiri tíma í sólar-
hringinn. Þetta er allt svo skemmti-
legt.“
Verður fallegra Eftir skolun og vindingu er bandið hengt upp með lóðum.
dauður tími
Guðrún selur jurtalitaða garnið
sitt heima hjá sér og í Ullarselinu á
Hvanneyri. Einng er hægt að nálg-
ast það á Facebook: Hespa
„Ég ætla á flóamarkað í dag sem
verður á Eiðistorgi frá klukkan ellefu
til fimm,“ segir Inga Björk Sólnes
sem er ein þeirra fjögurra kvenna
sem hafa skipulagt markaðinn.
„Þarna verður allt milli himins og
jarðar; handverk, kompudót, veit-
ingar, matvörur, skrautmunir, hlutir
til gagns eða prýði. Okkur sem skipu-
leggjum þetta langaði að blása nýju
lífi í Eiðistorgið því það er upplagður
staður fyrir svona markað. Þetta er
tilraun til að gera torgið skemmti-
legt. Hver sem er getur komið með
hvað sem er til að selja, við hvetjum
alla sem vettlingi geta valdið til að
mæta, hvort sem er til að selja eða
kaupa,“ segir Inga Björk sem ætlar
sjálf að selja angóru-ullarsokka og
arm- og legghlífar.
„Það er gaman að koma saman og
hitta fólk og ég á von á góðri stemn-
ingu. Rauða ljónið ætlar að sjá um að
heitt verði á könnunni í allan dag og
býður líka upp á pítsusneiðar til sölu.
Svo verður þarna kökubasar og KR-
stúlkur ætla að selja lakkrís og ýmsar
KR-vörur, KR-servíettur, KR-brúsa og
KR- íþróttatöskur.“
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Mæðgur Inga ásamt dóttur sinni Sigríði Maríu sem er í 4. flokki kvenna í KR í
knattspyrnu og ætlar að selja KR-vörur á markaðnum ásamt stöllum sínum.
Inga Björk ætlar á flóamarkað
Gaman Frá flóamarkaði í fyrra.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
Mjaðurt (Filipendula ulmaria)
gefur gulan lit en ef litað er
með rótunum fæst brún-
bleikleitur litur.
Njóli (Rumex longifolius) gef-
ur gulan lit en drapplitaðan ef
ræturnar eru notaðar.
Möðrurót (Galium sp) gefur
fallega rauðan lit.
Fjallagrös (Cetraria
islandica) gefa drappaðan lit
en ef bandið er skolað með
salmíaki kemur fallega mildgulur litur. Ef band sem litað hefur verið
með fjallagrösum er lagt í keytu í nokkurn tíma kemur rauður litur.
Birkilauf (Betula pubescens) gefur bjartan og hreingulan lit.
Lúpína (Lupinus nootkatensis) gefur sterkgrænan lit úr blöðunum en
úr blómunum má fá æpandi grænan lit ef mikið er notað.
Beitilyng (Calluna vulgaris) fallegur gulur eftir sex tíma suðu.
NOKKUR DÆMI UM HVAÐA LIT JURTIR GEFA
Íslenskar litunarjurtir
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS
FERÐAÆVINTÝRI
Í FERMINGARGJÖF
Silva ferðasjónaukar
10X25 vandaðir, léttir
og handhægir.
Verð: 7.990 kr.
Polar FT4 púlsmælir
Tilvalið fyrir þá sem vilja púlsmæli
með innbyggðu æfingakerfi.
Innbyggt armbandsúr.
Vatnshelt allt að 30 m.
Fermingartilboð: 15.990 kr.
Garmin eTrex Legend HCx
Handhægt GPS-tæki.
Möguleiki að bæta Íslandskorti í tækið.
Verð fyrir 39.990 kr.
Fermingartilboð 29.990 kr.
Íslandskortið kostar 18.990 kr. aukalega. ÍSLE
N
S
K
A
/S
IA
IS
/U
T
I
54
21
2
03
/1
1