Morgunblaðið - 09.04.2011, Side 14
„Stórkostleg tækifæri gengu úr
greipum Íslendinga á síðustu tveim-
ur árum en eftir standa þó ómæld
tækifæri framtíðarinnar. Þeim má
ekki glata og ekkert er því til fyr-
irstöðu að hefja nú framsókn á ný
með íslenska baráttuandann að
vopni. Okkur skortir ekkert nema
stjórnvöld sem hafa viljann, getuna
og kjarkinn til að nýta tækifærin,“
sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokksins,
við upphaf flokksþings í gær.
Hann gagnrýndi ríkisstjórnina
harðlega við upphaf flokksþings
Framsóknarflokksins í gær.
„Stjórnvöld eiga að stuðla að sam-
kennd, framtakssemi, heilbrigði og
öllu því sem gerir líf okkar og sam-
félagið betra. En núverandi stjórn-
völd líta á sig sem byltingarstjórn og
byltingarstjórn þrífst ekki án óvina
og ógna. Þess vegna er alið á tor-
tryggni, reiði og hræðslu. Þeim mun
verr sem gengur að fást við vandann
þeim mun meiri verður þörfin fyrir
að kenna öðrum um. En stærsti
glæpur valdhafans og þeirra sem að
meira eða minna leyti ráða umræðu í
samfélaginu er sá að draga úr trú
þjóðarinnar á sjálfa sig,“ sagði Sig-
mundur Davíð.
Hann sagði nauðsynlegt að skýra
betur afstöðu Framsóknarflokksins
til aðildar að Evrópusambandinu.
Þörf á meiri umræðu
„Í ljósi reynslunnar hefðum við
þurft að ræða meira um það hvort
við vildum vera þátttakendur í því
sem Evrópusambandið snýst um
fremur en hvaða breytingar við vild-
um gera á því. Ef í aðild að Evrópu-
sambandinu felst eftirgjöf óskoraðra
yfirráða yfir auðlindum erum við
væntanlega nánast öll sammála um
að það henti ekki Íslandi,“ sagði Sig-
mundur Davíð.
Misstum af stórkost-
legum tækifærum
Skýra þarf betur afstöðu Framsóknarflokksins til ESB
Morgunblaðið/RAX
Formaðurinn Sigmundur Davíð: „Ef í aðild að Evrópusambandinu felst eftirgjöf óskoraðra yfirráða yfir auðlindum
erum við væntanlega nánast öll sammála um að það henti ekki Íslandi.“
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Þeir sem hafa áhyggjur af ákvörð-
unum EFTA-dómstólsins um
meinta mismunun Íslendinga gagn-
vart útlendingum eiga að hafna Ice-
save-samningnum að mati Reimars
Péturssonar, hæstaréttarlögmanns.
Er það vegna þess að fyrir
EFTA-dómstólnum er nú þegar mál
þar sem tekist er á um lögmæti
gjaldeyrishafta, sem Hæstiréttur
dæmdi að skyldi sent þangað í febr-
úar síðastliðnum.
„Ríkið á að skila greinargerð eftir
nokkrar vikur og von er á dómi á
næstu mánuðum. Ef EFTA-dóm-
stóllinn dæmir að gjaldeyrishöftin
standist ekki EES-samninginn mun
krónan veikjast um tugi prósenta
vegna þess að krónueignir útlend-
inga að fjárhæð um 450 milljarðar
færu þá á hreyfingu. Afleiðing þess
yrði sú að Icesave-samningarnir – ef
samþykktir væru – myndu reynast
óviðráðanlegir,“ segir Reimar.
Hann segir að málið fyrir EFTA-
dómstólnum um gjaldeyrishöftin
muni snúast um reglu EES-samn-
ingsins um frjálsa fjármagnsflutn-
inga og þá mismunun sem gjaldeyr-
isreglurnar gera á innlendum
aðilum og útlendum. „Sú mismunun
er fólgin í því að útlendir aðilar
mega ekki nota krónurnar sínar –
ekki einu sinni til að kaupa sér ís –
meðan Íslendingar mega það. Það
er til muna auðveldara að rökstyðja
ólögmæti þessarar mismununar en
þeirrar sem var gerð á innlendum
og erlendum útibúum í aðgerðunum
2008.“
Gizur Bergsteinsson, hæstarétt-
arlögmaður og lögmaður Seðlabank-
ans í málinu sem um ræðir, segir
Reimar hins vegar ganga of langt í
ályktunum sínum og segir að gjald-
eyrishöftin í heild sinni séu ekki
undir í málinu.
„EES-samningurinn gerir ráð
fyrir því að setja megi takmarkanir
á flæði fjármagns undir ákveðnum
kringumstæðum og spurningin, sem
EFTA-dómstóllinn er beðinn að
svara, er ekki sú hvort gjaldeyr-
ishöftin sjálf séu í samræmi við
ákvæði EES, heldur er dómstóllinn
beðinn að taka afstöðu til þess hvort
veita hefði átt tilteknum einstaklingi
undanþágu frá höftum svo hann
gæti flutt krónur inn í landið frá út-
löndum.“
Gizur segist ekki geta sagt til um
lagaleg áhrif niðurstöðu dómstóls-
ins, hver sem hún verður. „Það fer
til dæmis eftir því hvaða forsendur
hann gefur sér, en ég held að menn
séu að ganga ansi langt þegar þeir
segja að gjaldeyrishöftin í heild
sinni séu í hættu.“
Framtíð hafta
gæti ráðist hjá
EFTA-dómi
Ógilding hafta kollvarpar Icesave
Morgunblaðið/Sverrir
Höft Málið snýst um hvort Íslend-
ingur hefði átt að fá að flytja krónur
til landsins frá Bretlandi.
Vigdís Hauksdóttir þingmaður býð-
ur sig ekki fram til varaformanns á
flokksþingi Framsóknarflokksins
sem fram fer um helgina. Hún til-
kynnti þetta í gær. Enginn hefur
lýst yfir mótframboði gegn sitjandi
formanni og varaformanni, Sig-
mundi Davíð Gunnlaugssyni og
Birki Jóni Jónssyni. Kosið er í dag.
„Við erum með tiltölulega ný-
kjörna forystu, því það var end-
urnýjað alveg á síðasta flokksþingi.
Þau hafa setið í tvö ár þannig að
þetta er nú fyrst og fremst kannski
að ég vilji gefa þessari forystu tæki-
færi til að vinna sig upp í fylgi og
sanna sig betur,“ segir Vigdís. Hún
segir þó að fjölmargt hafi mælt með
framboði, svo sem kynjasjónarmið
og það að klára endurnýjun foryst-
unnar. Mörg þung mál séu í þinginu
og mikilvægara fyrir þingmenn að
vinna að því að landa þeim en að
standa í harðri kosningabaráttu.
Ekki slagur um vara-
formannsembættið
Vigdís fer ekki fram gegn Birki Jóni
Birkir Jón
Jónsson
Vigdís
Hauksdóttir
PÁSKATILBOÐ
Gisting kr. 4.000,- pr. Mann í uppábúnu rúmi*
*miðað við að gist sé í lágmark 3 nætur
Pöntunarsími 467 1506
Siglufjörður
fjallabyggð