Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 20
hann. Fyrirtæki í nágrenninu sem
byggja ímynd sína á ferskleika eða
tæru vatni, s.s. Mjólkusamsalan, Öl-
gerðin eða Vífilfell, myndu hugsan-
lega fást til að styðja slíkt verkefni.
Ekki lengur við bakkann
Ofar í Elliðaánum er önnur stífla
en hún myndar Elliðavatn. Orri hefur
ekki hugsað alvarlega um að leggja til
að hún verði einnig opnuð. „Það má
kannski með tímanum skoða hina
stífluna. Þetta er dálítið vandamál úti
um allan heim. Menn stífla á og fram-
leiða rafmagn. Þá verður til risastórt
vatn. Og þá hugsa menn hvort það
væri nú ekki gott að reisa sumarbú-
stað við vatnsbakkann og svo gera
þeir það. Og svo kem ég eftir 50-60 ár
og vill fá að rífa stífluna en þá segja
menn auðvitað: Nei, kemur ekki til
greina. Hér ólst ég upp og svona hef-
ur þetta alltaf verið,“ segir Orri og
brosir breitt.
Eitt slíkt dæmi er við Gudenåen á
Jótlandi. Þar er stífla sem Orri vill
rjúfa en það hefur ekki gengið eftir af
ýmsum ástæðum. „Uffe, vinur minn,
Elleman Jensen [fyrrv. utanríkisráð-
herra Dana] á þarna sumarbústað og
hann sagði við mig: „Orri, aldrei í líf-
inu!“ segir Orri og hlær við.
Nú er bara að sjá hvað borgar-
stjórn Reykjavíkur ákveður að gera.
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Orri Vigfússon, formaður NASF,
Verndarsjóðs villtra laxastofna, segir
að Orkuveita Reykjavíkur taki nú vel
í hugmyndir hans um að opna Árbæj-
arstíflu og leyfa Elliðaánum að flæða
óhindrað niður dalinn. Hann bendir á
að raforkuframleiðslu í virkjuninni
hafi verið hætt og með því að opna
stífluna muni lífríki ánna taka stakka-
skiptum til hins betra og í kjölfarið
muni laxagegnd þar aukast.
Orri vill jafnframt að sett verði upp
sýning í nágrenninu – Leikhús lax-
anna – þar sem mætti m.a. sjá í beinni
útsendingu þegar laxarnir ganga upp
árnar og hrygna. Hann mun brátt
kynna þessar hugmyndir fyrir borg-
arstjóra.
Um 90 ár eru frá því Elliðaárnar
voru virkjaðar og Orri bendir á að
virkjun hafi haft víðtæk áhrif á um-
hverfi og lífríki á vatnasviði þeirra.
Nú sé tækifæri til að bæta búsvæði
laxins og tryggja sjálfbærni stofns-
ins.
Orri, ásamt nokkrum öðrum, er nú
að vinna að tillögum sem m.a. ganga
út á að gerð verði tvö stór göt í Ár-
bæjarstífluna þannig að Elliðaárnar
geti runnið óhindrað eftir sínum
gömlu farvegum. Með því að láta árn-
ar renna óhindrað batni aðstæður
mjög fyrir bitmý en mýið sé lykilfæða
fyrir seiði. Fjölgun mýsins muni þó
ekki valda íbúum í nágrenninu ama.
Slíkt muni bæta mjög aðstæður fyrir
laxaseiðin og fleiri muni verða nægi-
lega sterk til að geta gengið niður
árnar á vorin, fara út í hafið og koma
til baka.
„Við í NASF höfum barist fyrir því
lengi að þessari raforkuframleiðslu
verði hætt. Ég
reyndi að fá fyrr-
verandi meiri-
hlutaflokka í
borginni til þess,
alveg frá 1994. Við
bentum á hversu
raforkufram-
leiðslan færi illa
með lífríkið í ánn-
um og að hætta
henni væri aðalatriðið við að tryggja
sjálfsbærni þess.“ Sveiflur í rennsli
hafi þar að auki verið stórskaðlegar
því stundum hafi hluti ánna þornað
upp. Hann hafi líka bent á að heild-
arkostnaður við rekstur stöðvarinnar
og tilheyrandi vöktun á umhverfinu
hefði kostað mun meira en það sem
fengist hefði fyrir rafmagnið. Allt
kom fyrir ekki.
Orri tekur fram að hann sé sjálf-
stæðismaður en jafnvel hans eigin
flokksfélagar í borgarstjórn hafi ekki
tekið undir hugmyndir hans. „Svo
kemur þessi Besti flokkur og þessi
Haraldur [Flosi Tryggvason, stjórn-
arformaður OR]. Og bingó! Búið!“
segir Orri sem er bjartsýnn á að nú
verði fallist á tillögurnar.
Samhliða þessum framkvæmdum
yrði sett upp sýningaraðstaða við
árnar, Leikhús laxanna, þar sem
fjallað yrði um lífríki ánna og menn-
ingu tengda stangveiði. Hann hefur
þegar rætt við arkitekta, leikmynda-
hönnuði og sérfræðinga í margmiðlun
um að koma slíkri sýningu upp, t.d. í
gamla Rafstöðvarhúsinu. Alls ekki
eigi að reisa nýja byggingu. „Það er
nóg komið af húsum,“ segir
Tækifæri til að opna stífluna
Með því að gera tvö stór göt í Árbæjarstíflu má stórbæta lífríki Elliðaánna Framleiðir ekki rafmagn
Morgunblaðið/Ómar
Veiðiá NASF hefur tekist að fá stíflur opnaðar, t.d. í Normandí í Frakklandi, í ánum Sélune og Sée. Einnig stuðluðu samtökin að því að stífla í ánni Penobscot í Maine-ríki, í Bandaríkjunum, var
rifin. Orri Vigfússon vill að tvö stór göt verði gerð í Árbæjarstíflu, fyrir ofan tvö útfallsrör, svo Elliðaárnar geti runnið eftir sínum gömlu farvegum. Áfram verði hægt að ganga yfir stífluna.
Lón Orri segir að hreinsa þyrfti upp aur og leðju sem hefur safnast fyrir í
miðlunarlóninu við Árbæjarstífluna á undanförnum áratugum, losa um
hrygningarmöl og lagfæra ýmislegt. Kostnaðurinn við slíkt yrði alls ekki
mikill og smávægilegur miðað við ávinninginn.
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
Rafstöðin í Elliðaárdal hefur ekki
verið notuð síðan í lok apríl 2010.
Ástæðan er sú að aðrennslisrör
virkjunarinnar eru orðin léleg og
vart þykir svara kostnaði að gera
við þau, að sögn Eiríks Hjálm-
arssonar, upplýsingafulltrúa Orku-
veitu Reykjavíkur. Endanleg
ákvörðun um framtíð Rafstöðv-
arinnar hafi ekki verið tekin.
Eiríkur segir að innan OR
sé áhugi á að halda virkj-
uninni gangfærri, m.a.
vegna sögulegs gildis
hennar, en ekki séu til
margar svo gamlar raf-
stöðvar sem enn virki fullkomlega.
Hjá OR sjái menn ekki fyrir sér að
raforkuframleiðsla hefjist þar af
fullum krafti aftur og raunar hafi
virkjunin ekki verið látin framleiða
rafmagn með fullum afköstum í
mörg ár. Hugsanlega yrði raf-
stöðin aðeins gangsett til hátíð-
arbrigða eða sem varaaflgjafi ef
með þyrfti.
Vatnið sem áður rann um að-
rennslisrörin hefur í vetur runnið
um yfirfallið á Árbæjarstíflunni.
Tvisvar í mánuði er vatnið þó látið
knýja hverflana, til að halda þeim
liprum og liðugum.
Ekki notuð í tæplega ár
AÐRENNSLISPÍPUR KOMNAR TIL ÁRA SINNA
Rafstöðin í Elliðaárdal
til að lesa um
tillögu Orra.
Skannaðu kóðann
Orri Vigfússon
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
54
33
0
04
/1
1
Lægra
verð
í Lyfju
15%
afsláttur
í apríl af 204 stykkja
Nicotinell Fruit
Verð með afslætti:
2 mg 4.329kr.
4 mg 6.119kr.
Innanríkisráðuneytið flutt í Sölvhólsgötu
Afgreiðsla innanríkisráðuneytisins flyst næstkomandi mánudag,
11. apríl, að Sölvhólsgötu 7 í Reykjavík. Gengið er inn frá
Ingólfsstræti. Afgreiðslutími er sem fyrr 8.30 til 16.
Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340
www.innanrikisraduneyti.is