Morgunblaðið - 09.04.2011, Side 22

Morgunblaðið - 09.04.2011, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011 Miyako Þórðarson, Yoko Arai og Yayoi Shimomura eru japanskar konur sem hafa búið á Íslandi ára- tugum saman. Þær vildu gera eitt- hvað til að hjálpa löndum sínum í Japan og höfðu því samband við Póstinn um að aðstoða sig. Í sam- starfi við Póstinn vilja þær hvetja landsmenn til að leggja hamfara- svæðum Japans lið en í apríl verð- ur ókeypis að senda hlífðarfatnað úr íslenskri ull til Japan. Þær voru búnar að hugsa lengi hvernig þær gætu lagt sitt af mörkum og komust að því að erf- itt er að senda hjálpargögn á þau svæði sem verst urðu úti. Þær fengu upplýsingar um það að mik- il þörf er á hlífðarfatnaði og byrj- uðu þær því að hekla og prjóna úr íslensku ullinni. Miyako, Yoko og Yayoi eru búnar að fá í lið með sér fjölmarga aðila hér innan- lands. Þær óska eftir hlífðarfatn- aði úr íslenskri ull eins og peys- um, vettlingum, sokkum, húfum og treflum. Ef fólk hefur áhuga á að taka þátt er um að gera að senda póst á netfangið hjalp- umjapan@postur.is. Óska eftir hlífðarfatnaði úr íslenskri ull til að senda til hamfarasvæðanna í Japan Næstu daga mun Pósturinn senda bréf á flest heimili landsins fyrir utan fjölbýlishús eða um 55 þúsund heimili þar sem tilkynnt verður að frá 15. maí nk. verða aðeins afhentar send- ingar sem stílaðar eru á þá sem merktir eru á lúgu eða póstkassa heimilisins. Þessi vinnu- regla hefur ávallt verið viðhöfð til íbúa fjöl- býlishúsa. Pósturinn vill með þessu tryggja að allir landsmenn fái eingöngu þann póst sem þeim er ætlaður. „Margir þekkja það áreiti og fyrirhöfn sem hlýst af því að fá ann- arra manna póst inn á sitt heimili og einnig ef póstur berst ekki til réttra að- ila. Því er mikilvægt að allir íbúar heimilisins séu vel merktir til að póstur berist til þeirra og sé ekki endursendur til sendanda,“ segir í frétt frá Póst- inum. Póstinum berast reglulega kvartanir vegna missendinga. Ein af mörgum ástæðum er sú að margir fá póst fyrrverandi húseiganda sem gleymt hefur að tilkynna flutning. Sá misskilningur er algengur að nóg sé að tilkynna ein- göngu flutning til Þjóðskrár, einnig þarf að senda tilkynningu til Póstsins. Sendingar bara afhentar skráðum íbúum Reykjavíkurborg býður út verkefni fyrir yfir 200 milljónir á næstu dög- um. Borgarráð samþykkti á fimmtudag framkvæmdaáætlanir við endurgerð og endurbætur 11 grunnskólalóða í Reykjavík fyrir 100 milljónir og við sex leik- skólalóðir fyrir 35 milljónir. Einnig var samþykkt áætlun fyr- ir 70 milljónir til framkvæmda sem auka umferðaröryggi með áherslu á endurbætur vegna vástaða og gönguleiða skólabarna. Allar þessar framkvæmdir eru í samræmi við fjárhagsáætlun árs- ins, en með samþykkt borgarráðs er gefið grænt ljós á að bjóða verk- in út. Þessi verk verða að mestu leyti unnin í sumar. Morgunblaðið/Eggert Bjóða út verk fyrir 200 milljónir króna á skólalóðum Laugardaginn 9. apríl kl. 9 til 15,30 verður haldin í Sólborg á Akureyri árleg vorráðstefna miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Að þessu sinni verður umfjöllunarefnið framsækni í kennslu og leiðir að árangursríku námi með virkri þátttöku nem- enda. Leitast verður við að varpa ljósi á hvaða skilyrði í skóla stuðla að slíku skólastarfi og er efni ráðstefn- unnar sniðið að leikskólum, grunnskólum og fram- haldsskólum. Aðalfyrirlesarar verða: Monika Vinterek dósent við Háskólann í Umeå í Svíþjóð, Rósa Kristín Júlíusdóttir lektor við Háskólann á Akureyri og Ágúst Ólason aðstoðarskólastjóri Norðlingaskóla í Reykjavík Auk aðalfyrirlestra verða málstofur þar sem reifuð verða ýmis mál er lúta að framsækni í kennslu og virku námi. Vorráðstefna um framsækni í kennslu Alls hafa safnast um 18,5 milljónir króna í söfnun Rauða kross Íslands sem munu renna beint til hjálpar- starfs Rauða krossins í Japan. Framlag íslenskra stjórnvalda nem- ur 10 milljónum króna, en almenn- ingur hefur lagt fram um 8,5 millj- ónir króna. Enn er tekið á móti framlögum í söfnunarsíma Rauða krossins, 904 1500. Þegar hringt er í númerið bætast 1500 krónur við næsta símreikning. Einnig er hægt að styrkja neyðaraðstoð Rauða krossins með því að greiða inn á bankareikning 0342, hb. 26, reikn. 12, kt. 530269-2649. Söfnun enn í gangi Björg í bú hönnunarstofa hefur sett á markað kerti sem geta „hjálpað fólki að brenna burt Icesave- vandann á ljúfri kvöldstund,“ eins og segir í tilkynningu. Kertin fást í öllum Icesave-litunum og „á þeim öllum hefur Icesave grafið sig inn í kertin eins og það hefur grafið sig inn í þjóðarsálina að undanförnu“. Þau eru til sölu í Kirsuberjatrénu, Vesturgötu 4 og Melabúðinni. Icesave-kerti STUTT ÚR BÆJARLÍFINU Karl Ásgeir Sigurgeirsson Hvammstanga Ungmennafélagið Grettir í Mið- firði hefur í vetur sýnt gaman- leikritið Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan, í leikstjórn Jó- hönnu Friðriku Sæmundsdóttur. Leikarar eru sex og skila sínum hlutverkum vel í bráðsmellinni sýn- ingu. Aðalleikarinn hefur þrjár flug- freyjur í takinu, en skipulagið rask- ast með tilkomu hljóðfrárrar þotu. Ánægjulegt er að finna þann kraft sem liggur í áhugasömum ein- staklingum sem sameinast í verkefni sem þessu. Takk fyrir góða skemmt- un. Sýningar verða aftur í páskavik- unni.    Sparisjóður Keflavíkur sam- einaðist Landsbanka Íslands þann 7. mars, en ein starfsstöð hans er á Hvammstanga, áður Sparisjóður Húnaþings og Stranda. Landsbank- inn gerir ekki ráð fyrir breytingum á bankaþjónustu í héraðinu með þess- ari yfirtöku, skv. tilkynningu sem viðskiptavinir hafa fengið bréflega. Einnig halda starfsmenn sínum störfum og lofað er persónulegri þjónustu í anda sparisjóðsins. Engin niðurstaða er komin í málefni stofn- fjáreigenda sparisjóðsins, en fjöldi héraðsbúa skuldar háar fjárhæðir frá þeim viðskiptum og eru þeir ósáttir við stöðu mála.    Söngvarakeppni 2011 er í Fé- lagsheimili Hvammstanga nú um helgina. Þetta er árviss atburður og koma þar fram tugir söngvara, sem etja kappi um hylli áhorfenda og dómara. Hljómsveit heimamanna leikur undir. Eflaust verður hús- fyllir og keppnin hin besta skemmt- un. Sambærileg keppni er einnig ár- lega á vegum Grunnskóla Húnaþings vestra og nýtur mikilla vinsælda.    Vorslátrun sláturhúss SKVH var 5. apríl. Slátrað var 1440 kind- um, þar af 766 dilkum, sem vógu 14,9 kg í meðalvigt. Afkoma sláturhúss- ins á síðasta ári var allgóð. Á aðal- fundi sauðfjárbænda í Húnaþingi vestra var tilkynnt að sláturhúsið mundi greiða 8 króna uppbót á inn- lagt magn í síðustu sláturtíð. Horfur eru á verðhækkun innleggs á þessu ári, enda mun ekki af veita í hækk- uðu verðlagi á aðföngum bænda.    Mikil starfsemi hefur verið í vetur í Hvammstangahöllinni, sem er reiðhöll héraðsins. Má nefna afar skemmtilega sýningu hrossa eig- enda um síðustu helgi. Aðalleikarinn með þrjár flugfreyjur í takinu Morgunblaðið/ Karl Ásgeir Sigurgeirsson Leikararnir Gísli, Þórarinn, Guðrún, Hrafnhildur, Guðbjörg og Ingibjörg sem leika í gamanleikritinu Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan. Laugardagur til lista Í dag milli kl. 13.30 – 14.30 munu þeir Pétur Ármannsson og Ólafur Gíslason fjalla um Hörð Ágústsson, listmálara og fræðimann í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Jafnframt verða verk Harðar úr einkaeign til sýnis. Sýningin verður opin alla virka daga kl. 11.00 – 15.30 og á laugardögum kl. 12.00 – 17.00 í apríl. Verið velkomin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.