Morgunblaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 24
Reuters
Hlýnun Búist er við stóraukinni um-
ferð stórskipa um Norður-Íshafið.
Íslendingar fara fyrir hópi norrænna
vísindamanna sem undirbúa rann-
sókn á áhrifum mengunar frá auk-
inni skipaumferð um norðurslóðir á
lífríki sjávar og strandsvæða.
„Við byrjum á að kortleggja stöð-
una eins og hún er, áður en umferðin
verður of mikil, og þá höfum við
möguleikann á að fylgjast með hvort
aukin mengun hefur merkjanleg
áhrif á lífríkið,“ segir Hrönn Ólína
Jörundsdóttir, verkefnisstjóri hjá
Matís, sem stýrir rannsókninni í
samvinnu við Halldór Pálmar Hall-
dórsson, forstöðumann Rannsóknar-
seturs Háskóla Íslands í Sandgerði,
og Jörund Svavarsson, prófessor í
sjávarlíffræði við Háskóla Íslands.
Vísindamenn frá Færeyjum, Noregi,
Danmörku, Grænlandi og Svíþjóð
munu einnig taka þátt en vilyrði hef-
ur fengist um styrk hjá Norrænu
ráðherranefndinni í þrjú ár.
Hrönn Ólína segir að lögð verði
áhersla á að rannsaka efni sem ber-
ast út í náttúruna vegna siglinga og
olíuvinnslu enda segir hún mögulegt
að vistkerfi sem aldrei hefur komist í
snertingu við mengun af þessu tagi
sé viðkvæmara en lífríki á stöðum
þar sem mengun er viðvarandi.
Reiknað er með stóraukinni umferð
stórskipa þegar siglingaleiðin um
Norður-Íshafið opnast vegna hlýn-
unar loftslags, einnig eru áform um
aukna olíuvinnslu á norðurslóðum.
„Aukin mengun vegna umferðar
verður því líklega merkjanleg og
eins eykst til muna hættan á olíu-
slysum,“ segir Hrönn. helgi@mbl.is
Auknar siglingar
skilja eftir slóð
Norrænir vísindamenn undirbúa
rannsókn á áhrifum mengunar á lífríki
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Niðurfallið Vatnshellir í Purkhólahrauni á Snæfellsnesi er ekki síður fal-
legur að vetri en sumri. Grýlukertin setja svip sinn á niðurfallið.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ákveðið hefur verið að bjóða ferðir
í Vatnshelli á Snæfellsnesi alla daga
vikunnar í sumar. Aðgengi að hell-
ingum var lagað síðastliðið sumar.
Fjölgað verður um þrjá landverði
vegna þessa verkefnis og aðgangur
seldur til að standa undir kostnaði.
Fjöldi hella er í hraununum á
Snæfellsnesi. Þegar unnið var að
verndaráætlun fyrir Þjóðgarðinn
Snæfellsjökul kom upp sú hugmynd
að gera einn eða tvo hella þjóð-
garðsins aðgengilega fyrir ferða-
fólk. „Tilgangurinn er að kynna
undur hellanna fyrir almenningi og
vernda aðra hella. Við notum hella-
ferðina einnig til að fræða gesti al-
mennt um náttúruna og nátt-
úruvernd,“ segir Guðbjörg
Gunnarsdóttir þjóðgarðsvörður.
Vatnshellir er í Purhólahrauni,
upp af Malarrifi. Hann komst í al-
faraleið þegar þjóðvegurinn var
lagður þar hjá og síðustu áratugi
hefur talsvert verið farið í hann á
kaðli. Lá hellirinn undir skemmd-
um. Árni B. Stefánsson hellakönn-
uður vakti athygli heimafólks á
þessu.
Guðbjörg segir að tekist hafi
skemmtilegt samstarf við að loka
hellinum en um leið að bæta að-
gengi að honum. Umhverfisstofnun
hafi lagt til efni en frjáls félaga-
samtök heimafólks og einstaklingar
unnið verkið í sjálfboðaliðsvinnu.
Sveitarfélagið og verktaki lögðu
einnig sitt af mörkum.
Spennandi verkefni
„Það myndaðist afar skemmti-
legur hópur í kringum þetta verk-
efni eftir að Árni kynnti þetta á
lionsfundi á Hellissandi. Þetta er
spennandi vinna, ólík öllu öðru sem
við höfum tekist á við,“ segir Þór
Magnússon á Gufuskálum, einn
þeirra heimamanna sem unnið hafa
að verkefninu í Vatnshelli með góð-
um félögum, meðal annars úr
Lionsklúbbi Nesþinga. Hann við-
urkennir að það hafi kostað mun
meiri vinnu en reiknað var með í
upphafi. „Árni B. Stefánsson og
Kristinn Jónasson bæjarstjóri töl-
uðu um að skreppa þangað eina eða
tvær helgar til að hífa moldina upp
úr niðurfallinu í fötum og keyra í
burtu. En þetta var svo mikið að við
fengum þá feðga, Tómas Sigurðs-
son og Svan Tómasson verktaka í
Ólafsvík, til liðs við okkur og það
fóru margar helgar bara í að moka
fjallinu í burtu,“ segir Þór. Þá átti
eftir að byggja hatt á hellinn,
göngustíga og stiga og brautir nið-
ur í hellinn.
Borgar með glöðu geði
Eftir að hellirinn var opnaður í
fyrrasumar fóru landverðir með
hópa niður tvo daga í viku. Margir
komu því að lokuðum dyrum. Gerð
var tilraun til að hafa opið alla daga
í eina viku og var þá stöðugur
straumur.
Þjóðgarðurinn hefur nú ákveðið
að hafa opið alla daga vikunnar í
sumar. Guðbjörg þjóðgarðsvörður
segir að það verði að ráðast af eftir-
spurn hversu margar ferðir verði
farnar á dag. Farið er með fólkið
niður í hópum sem geta heldur ekki
verið of stórir. Þjóðgarðurinn út-
vegar hjálma og höfuðljós.
Í fyrra voru innheimtar 1000
krónur á mann fyrir leiðsögn og
fræðslu. Guðbjörg segir að hækka
þurfi gjaldið til að það standi undir
kostnaði þjóðgarðsins við verkefnið
enda standi til að ráða þremur land-
vörðum fleira í sumar vegna þess.
Ríkið innheimtir almennt ekki
gjald fyrir aðgang að ferða-
mannastöðum og ekki er innheimt
gjald fyrir þátttöku í gönguferðum
eða fræðslu í þjóðgarðinum. Guð-
björg segir að fólki finnist sjálfsagt
að greiða gjald fyrir um klukkutíma
ferð í Vatnshelli enda átti það sig á
því að þjóðgarðurinn er að leggja til
búnað og vinnuafl til að gera það
kleift.
Vatnshellir opinn alla daga
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull innheimtir gjald fyrir aðgang og fræðslu um Vatnshelli
Þrír nýir landverðir verða ráðnir til starfa Aðgangsgjaldið þarf að standa undir kostnaði
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
Purkhólahraun er eitt hella-
auðugasta svæði landsins.
Hátt er til lofts og vítt til
veggja í Vatnshelli sem er
einn af Purkhólahellunum.
Vatnshellir dregur nafn sitt
af því að þar var ávallt hægt
að fá vatn. Bændur á Malar-
rifi ráku kýrnar að hellinum
til að brynna þeim því yfir-
leitt var nægt leysingavatn
að fá vel fram á sumar.
Vatnshellir er yfir 200
metra langur og skiptist í
nokkra hluta. Hellarnir liggja
út frá stóru niðurfalli. Stigi
hefur verið settur í niður-
fallið.
Til norðurs þarf að fara um
þrengsli og þá opnast mikill
salur sem kallaður er Bárðar-
stofa. Nú er verið að lagfæra
leiðina þangað inn.
Til suðurs úr niðurfallinu
er farið inn í hellinn Vætta-
gang. Við enda hans er
hraunfoss niður í gjá sem
liggur þvert á hellinn og nú
er nefnd Iður jarðar. Niður í
hana liggur 11 metra hár
stigi. Lofthæðin í gjánni er sú
sama og í Vættaganginum og
er því um 20 metra hæð þar
sem mest er.
Fjölbreytt landslag er í
hellinum og þar má meðal
annars sjá mörg mismunandi
hraunlög, dropasteina,
kleprasteina og spena.
Í lofti hellisins er bakt-
eríugróður sem líffræðingur
mun rannsaka í sumar.
Hátt til lofts
og vítt til
veggja
PURKHÓLAHRAUN
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Farþegar Icelandair í millilanda-
flugi á fyrsta ársfjórðungi voru 13%
fleiri en á síðasta ári. Sætanýting
hefur aldrei mælst meiri á fyrsta
ársfjórðungi eða 71%. Þá batnar
nýting í leiguflugi töluvert á milli
ára, þetta kemur fram í tilkynningu
frá Icelandair.
Farþegum fækkaði hins vegar
hjá Flugfélagi Íslands og skýrist
það af mun erfiðari veðurskilyrðum
á árinu 2011 en 2010 auk þess sem
flugi til Vestmannaeyja var hætt í
fyrra.
Framlegð samt lakari nú
Þrátt fyrir allt þetta verður
framlegð hjá fyrirtækinu lakari en
á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs.
Skýringin er fyrst og fremst hátt
olíuverð. Bókunarstaða fyrir sum-
armánuðina er góð að því er segir í
tilkynningunni og þróun gjaldmiðla
vegur að einhverju leyti upp á móti
hækkandi olíuverði. Miðað við nú-
verandi forsendur er spá félagsins
um hagnað ársins, fyrir afskriftir,
fjármagnsliði og skatta, óbreytt og
miðar við að hann verði verði 9,5
milljarðar króna. Er þetta haft eftir
Björgólfi Jóhannssyni, forstjóra
Icelandair Group.
Í mars síðastliðnum flugu 96.639
manns með Icelandair, samanborið
við 87.839 í marsmánuði 2010, 13%
fjölgun sem fyrr segir. Hins vegar
var 9% fækkun í seldum hótel-
gistinóttum hjá Icelandair Hotels á
milli marsmánaða 2010 og 2011.
Mikil sætanýting Icelandair