Morgunblaðið - 09.04.2011, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
Björn Björnsson
Sauðárkrókur | Alexandra Cherny-
shova óperusöngkona hefur búið
ásamt fjölskyldu sinni í Skagafirði,
nánar tiltekið á Hofsósi, síðastliðin
sex ár, en skömmu eftir komu sína
hóf hún rekstur Söngskóla Alex-
öndru og stofnaði stúlknakórinn
Draumaraddir norðursins, kór sem
spannar yfir Norðurland vestra allt
frá Skagafirði og til Vestur-
Húnavatnssýslu.
Í beinu framhaldi af þessu var
stofnuð Ópera Skagafjarðar sem
starfað hefur síðan árið 2006. Óper-
an hefur ráðist í nokkur metn-
aðarfull verkefni með frábærum ár-
angri, og þannig var óperan La
Traviata uppfærð árið 2007 og strax
árið eftir verkið Rigoletto, en síðan
kom söngdagskrá um hið ástsæla
tónskáld Sigvalda Kaldalóns. Hin
góðkunna leikkona Guðrún Ás-
mundsdóttir hefur annast uppsetn-
ingu sýninganna, og einnig skrifaði
hún dagskrána um Sigvalda Kalda-
lóns.
Og enn eru þær vinkonurnar Alex-
andra og Guðrún komnar á fulla
ferð, slá hvergi af, og nú er viðfangs-
efnið Phantom of the Opera, en Guð-
rún hefur skrifað nýja leikgerð þessa
vinsæla verks og mun fyrsta sýning
verða í menningarhúsinu Miðgarði
þann 1. maí næstkomandi, en síðan
verða sýningar í Hofinu á Akureyri
og í Tjarnarbíói í Reykjavík.
Í stuttu spjalli við þær vinkon-
urnar kom berlega fram að hvert
verk er ný áskorun og hindranir sem
alltaf verða einhverjar eru bara til
þess að stíga yfir þær, og það er deg-
inum ljósara að þær beinlínis lifa fyr-
ir listina því að svo gaman er að fást
við þessa hluti.
Leikstjórinn segir: „Það er svo
gaman að fást við þetta, sjáðu hvað-
an fólkið kemur sem er með okkur í
þessu og leggur okkur lið, það er
hvaðanæva af landinu. Tenórinn
kemur frá Hafnarfirði, prímadonnan
úr Reykjavík, mezzosópraninn er úr
Viðvíkursveitinni í Skagafirði, og al-
veg rosalegur barriton kemur frá
Akureyri með tvo nemendur sína
með sér, og svo er það kynngimagn-
aður sópran, ættaður frá Úkraínu en
búsettur á Hofsósi, og svo hefur
gengið til liðs við hópinn ein af
þekktustu leikkonum höfuðstað-
arins, ásamt afbragðs hljóðfæraleik-
urum.“
Og leikstjórinn slær hvergi af.
„Óperukórinn eru þrusuraddir af
Sauðárkróki og svo eru Drauma-
raddir norðursins með í förinni, – og
hvernig er annað hægt, með slíkan
efnivið í höndunum, annað en úr
verði alveg frábær sýning.“
Alexandra og Guðrún Ásmundsdóttir
með nýja útgáfu af Óperudraugnum
Ópera Sýningin er tilþrifamikil. Stór sýning Fjölmargir koma að sýningunni.
„Það er mjög óvenjulegt að menn
skuli vera að rukka fyrir þessu fáu
tonn. Við fórum 44 tonn fram yfir
loðnukvótann og það kostar okkur
1.823 þús. kr.,“ segir Gísli Jónatans-
son, framkvæmdastjóri Loðnuvinnsl-
unnar á Fáskrúðsfirði, um gjaldtöku
sjávarútvegsráðuneytsins vegna um-
framveiði Hoffellsins.
„Við höfum alls ekki farið fram yfir
kvóta á hverju ári. Stundum hefur
þvert á móti vantað upp á að við fyllt-
um veiðikvótann. Það hefur yfirleitt
verið þannig að gengið er á kvótann
næsta ár, ef veitt er umfram. Menn
hafa yfirleitt ekki gengið svona hart
eftir þessu. Þetta eru stór veiðarfæri
og erfitt að veiða kvótann upp á tonn.
Þetta kom okkur því mjög á óvart en
við vitum um níu skip sem fóru fram
úr loðnukvótanum í ár með samtals
494 tonn, eða að meðaltali 55 tonn,“
segir Gísli sem áætlar að Hoffellið
hafi komið með 750 tonn að landi úr
síðasta túrnum. Þá er loðnukvóti út-
gerðarinnar um 5.700 tonn í ár. Jafn-
framt átti Hoffellið eftir 23 tonn af
kvótanum 2010 en 77 tonn 2007.
Aðspurður um gjaldið svarar Ey-
þór Björnsson fiskistofustjóri því til
að á milli átta og níu útgerðir hafi
veitt umfram loðnukvóta í ár. „Gert
er ráð fyrir því í fiskveiðistjórnunar-
lögunum á Íslandi að þeir sem veiða
umfram heimildir greiði andvirðið til
ríkisins. Það á við um allar fiskteg-
undir og engar undanþágur veittar.
Gjöld eru innheimt svari það kostn-
aði. “ baldura@mbl.is
Óvenjuleg
gjaldtaka
Framkvæmda-
stjóri loðnuvinnslu
undrast gjaldtöku
SETJUM SKÝRT FORDÆMI
Í DAG FÁ ÍSLENDINGAR
EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL
AÐ STÖÐVA ÞJÓÐNÝTINGU
EINKASKULDA
SEGJUM SKÝRT NEI
www.andriki.is
Allur kostnaður við starfsemi Andríkis, þar á meðal gerð og birtingu þessarar auglýsingar, er greiddur með frjálsum
framlögum lesenda vefsíðu félagsins, en hvorki frá stofnunum, stjórnmálaflokkum né öðrum hagsmunahópum.