Morgunblaðið - 09.04.2011, Page 28
28 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Harkaleg mótmæli brutust út í
mörgum arabalöndum eftir föstu-
dagsbænir í gær, minnst 23 féllu
þegar öryggissveitarmenn skutu á
mótmælendur í borginni Deraa í
Sýrlandi. Einnig urðu blóðug átök í
Jemen þar sem tveir féllu og efnt
var til fjölmennustu útifunda í
Egyptalandi frá því að Hosni Mub-
arak forseta var steypt. Krafist var
réttarhalda yfir honum. Fundurinn
fór þó friðsamlega fram en þykir
sýna að óánægja
með bráðabirgða-
stjórn herforingj-
anna fari vax-
andi.
„Þetta eru
sterk skilaboð
um að bylting-
unni sé ekki enn
lokið og henni
muni ekki ljúka
fyrr en markmiðum hennar hafi
verið náð,“ sagði Hassan Nafaa,
prófessor og þekktur leiðtogi úr
röðum egypskra umbótasinna.
10.000 manns fóru um götur
Deraa í Sýrlandi, kröfðust umbóta í
landinu og lýðræðis. Kveikt var í
skrifstofu Baath-flokks Bashars al-
Assads forseta og leyniskyttur á
húsaþökum skutu á fólkið. Mótmæli
voru einnig í Homs og einnig höfuð-
borginni Damaskus, þar heyrðust
skothvellir. Öryggissveitarmenn
börðu á fólki við mosku súnníta.
Athygli vakti að mótmæli voru
einnig í Kúrdahéruðum Sýrlands
þótt Assad hafi í vikunni ákveðið að
auka réttindi Kúrda og veita yfir
200.000 þeirra ríkisfang í Sýrlandi.
Blóðug mótmæli í Sýrlandi
Fjölmennustu útifundir í Egyptalandi frá falli Hosnis Mubaraks
Grimmir stjórnendur
» Assad er úr röðum alavíta,
sértrúarflokks meðal múslíma.
Margir múslímar segja alavíta
villutrúarmenn.
» Hafez al-Assad, faðir núver-
andi forseta, barði niður upp-
reisn í borginni Hama 1982,
um 10.000 féllu og borgin var
að mestu jöfnuð við jörðu.
Bashar al-Assad
Börn úr röðum Rómafólks, sígauna, í Búlgaríu taka
þátt í hátíðarhöldum í tilefni alþjóðadags Rómafólks í
gær. Þá er haldið upp á sögu, hefðir og menningu þjóð-
arbrotsins með dansi og tónleikum í mörgum borgum.
8. apríl varð dagur þjóðarbrotsins á fjórða alþjóðafundi
Rómaþjóðarinnar í Serock í Póllandi 1990.
Reuters
Börn í Búlgaríu taka þátt í hátíðarhöldum
Saga og hefðir Rómafólks í öndvegi
Nefnd á vegum Evrópuráðsins,
Moneyval, hyggst fara að tilmælum
Benedikts 16. páfa og láta rannsaka
hvort Páfagarður hafi átt aðild að
peningaþvætti og fjármögnun
hryðjuverka, að sögn Aftenposten.
Umrædd nefnd annast eftirlit
með þessum málum í allri álfunni
en Páfagarður hefur mikil fjár-
málaumsvif þótt ríkið sjálft sé hið
minnsta í heimi.
Páfi mun hafa sótt um það sjálfur
í fyrra að nefndin færi reglulega yf-
ir peningaviðskipti ríkisins eins og
annarra Evrópuráðsríkja, sem eru
alls 47. Verða niðurstöðurnar birt-
ar opinberlega. Moneyval-nefndin
mun hafa náið samráð við embætt-
ismenn Páfagarðs um eftirlitið.
kjon@mbl.is
Páfi lætur Evr-
ópuráðið rannsaka
peningaviðskipti
Dímítrí Medve-
dev Rússlands-
forseti fordæmir
árásir tölvu-
þrjóta á vinsælan
vef, LiveJournal,
sem hýsir meðal
annars blogg for-
setans. Hann hef-
ur bloggað af
kappi undanfarin
tvö ár en netið verður æ mikilvæg-
ara fyrir þá Rússa sem vilja losna
við beina og óbeina ritskoðun.
kjon@mbl.is
Medvedev for-
dæmir tölvuþrjóta
Dmítrí Medvedev
Hayastan Shakarian, 75 ára kona í
Georgíu, er sökuð um að hafa rofið
kapal fyrir netteningar í leit að
verðmætum málmi en segist aldrei
hafa heyrt um fyrirbærið internet.
Hún segist vera saklaus en Shak-
arian gæti hlotið þriggja ára dóm.
Þúsundir heimila misstu netsam-
band í nokkrar stundir.
Shakarian segist hafa verið úti
að safna eldivið, hún sé ekki nógu
sterk til að geta tekið í sundur kap-
alinn. Sonur hennar segir hana
vera skelfingu lostna og gráta mik-
ið vegna málsins. kjon@mbl.is
Öldruð kona skelf-
ingu lostin
Hersveitir Alassane Ouattara, rétt-
kjörins forseta Fílabeinsstrandar-
innar, virðast ekki hafa náð Abidjan
að öllu leyti á sitt vald þótt þeir hafi
umkringt forsetahöllina þar sem
fyrirrennari Ouattara, Laurent
Gbagbo, heldur sig.
Fílabeinsströndin er helsti út-
flytjandi kakóbauna í heimi. Ouatt-
ara hefur hvatt Evrópusambandið
til að aflétta viðskiptaþvingunum en
þær voru settar til að þvinga
Gbagbo til að afsala sér völdum.
Rússar hafa sett spurningar-
merki við afskipti friðargæsluliðs
Sameinuðu þjóðanna í landinu af
átökunum. Herþyrlum á vegum
liðsins var beitt við loftárásir í vik-
unni, varpað var m.a. sprengjum á
vopnabúr manna Gbagbos sem sak-
ar SÞ-menn um að hafa reynt að
myrða sig. kjon@mbl.is
Aflétti refsiaðgerðum
Mönnum Ouatt-
ara mistekst að
handsama Gbagbo
2 km
Átökin á Fílabeinsströndinni
Banco-skógur
COCODY
TREICH-
VILLE
A b i d j a n
Golf Hotel
Aðalstöðvar
Ouattara
Sources: News reports, International Cocoa Organization
Á valdi liðs-
manna Ouattara
Yamoussoukro
Fílabeinsströndin
Abidjan
Bústaður forseta
Vígi Gbagbos þar sem
hann ræður yfir herliði og
gnægð vopna
Forsetahöllin
Þar var barist hart
á fimmtudag
1,000
1,500
2,000
2,500
3,000
3,500
Sendiráð Japans
Franskir hermenn gerðu árás á
herbíla liðsmanna Gbagbos þegar
þeir björguðu sendiherranum á
fimmtudag.
$3,049.11 5. apríl
Gbagbo vill semja um
valdaafsal
$3,392.97 25. mars
Allt að milljón manns hefur
flúið bardagana í Abidjan$3,047.06 3.des.
SÞ lýsa Ouattara
sigurvegara$2,927.45 31. okt.
Fyrri lota forseta-
kosninga
Verð á kakóbaunum
Dollarar á tonn
201120102009200820072006
Minnst tveir létu
lífið í Japan á
fimmtudag þegar
jarðskjálfti upp á
7,1 stig reið yfir
norðausturhluta
landsins og yfir
130 slösuðust.
Rafmagn fór af á
stóru svæði þegar
tvær af þremur
raflínum frá Ona-
gawa-kjarnorkuverinu, norðan við
Sendai, slitnuðu. Um 900.000 heimili
voru enn án rafmagns í gær.
Um var að ræða öflugasta eftir-
skjálftann eftir hamfarirnar 11.
mars og óttast var að Fukushima-
verið hefði skemmst enn frekar.
Risafyrirtækið Toshiba, sem vann
m.a. að hreinsun eftir meng-
unaróhappið í Three Mile Island-
kjarnorkuverinu bandaríska 1979,
mun hafa lagt til að fjórum kjarna-
kljúfum Fukushima verði lokað.
kjon@mbl.is
Aftur mann-
tjón í jarð-
skjálfta
Toshiba vill loka
kjarnakljúfum
Vel varðir Leitað
að líkum í Japan.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Ráðherrar fjármála í ríkjum Evr-
ópusambandsins hófu í gær fund í
Gödöllö í Ungverjalandi og verður
þar fjallað um ósk Portúgala um
mikla efnahagsaðstoð. Heimildar-
menn sögðu að Portúgalar myndu
þurfa um 129 milljarða dollara til að
komast hjá greiðslufalli.
Gert er ráð fyrir að það muni
taka tvær til þrjár vikur að ná sam-
komulagi um lánaskilmálana og slá
því föstu hvaða aðhaldsaðgerðir
Portúgalar verði að sætta sig til að
fá lánið, að sögn Wolfgangs
Schäuble, fjármálaráðherra Þýska-
lands. Munu framkvæmdastjórn
ESB, evrópski seðlabankinn og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn koma að
þeim málum. Ljóst er að Þjóðverjar
munu leggja fram stóran skerf.
Féð verður notað til að greiða af
skammtímalánum Portúgala og
tryggja opinberum stofnunum, sem
annast velferðarþjónustu og horfa
fram á tóma sjóði, nægilegt rekstr-
arfé. Einnig verður hlaupið undir
bagga með bönkum í vanda.
Ráðgast um lán
til Portúgals
Kröfur gerðar um aðhald í rekstri
Reuters
Sjáðu til! Fjármálaráðherrar Þýskalands og Frakklands, Wolfgang
Schäuble og Christine Lagarde, ræðast við á fundinum í Gödöllö í gær.
Skannaðu kóðann
til að lesa það nýj-
asta um átökin.