Morgunblaðið - 09.04.2011, Qupperneq 36
Ólögmætir vextir á
Icesave-kröfum – og allar
eignir ríkisins undir?
Með Icesave-III er
tekin hrikaleg áhætta,
það hafa hagfræð-
ingar á borð við
Gunnar Tómasson,
Jón Helga Egilsson
og Ólaf Ísleifsson
sýnt fram á og Reim-
ar Pétursson hrl. fært
lagaleg rök fyrir. Hér
verður ekki farið yfir
meginrök máls, held-
ur tvö þungvæg atriði sem hafa
vart komizt í umræðuna, enda ekki
nema tveir dagar síðan upplýst var
um annað þeirra.
3,3% vextir brezka hlutans á Ice-
save-kröfunni eru brot á jafnræð-
isreglum EES-samningsins: Fyrir
utan að höfuðstólskrafan á hendur
ísl. skattborgurum er ólögvarin (og
óheimil skv. ESB-tilskipun 94/19/
EC, að sögn norsks prófessors í
þjóðréttarfræði, Peters Ørebech,
sjá thjodarheidur.blog.is/blog/
thjodarheidur/entry/1087872/), er
Íslendingum mismunað freklega
með kröfu um 3,3% vexti, þar sem
brezk stjórnvöld veittu eigin trygg-
ingasjóði margfalt hagstæðara lán.
31.12. 2008 sendi fjármálaeft-
irlitið brezka (FSA) bönkum bréf
vegna tryggingaiðgjalda
(fsa.gov.uk/pubs/other/fscs_le-
vies.pdf). Þar kemur fram að
FSCS, tryggingasjóður innistæðu-
eigenda í Bretlandi, muni fjár-
magna kostnað sinn með lánum frá
HM Treasury (brezka ríkis-
sjóðnum) á afar hagstæðum kjör-
um, á LIBOR-vöxtum auk 30
punkta álags (0,3%). Lánin eru af-
borganalaus fyrstu þrjú árin (mgr.
16), vextirnir greiddir í 6 mánaða
skömmtum (mgr. 17). LIBOR-
vextir voru 2,38% í des. 2008 og
1,9% í jan. 2009, en hafa hríðlækk-
að, eru nú 0,78%. Skv. þessu var
lán brezka ríkissjóðsins til FSCS á
2,2% vöxtum í upphafi, en nú 1,1%.
Þetta sýnir okkur, að hagfræð-
ingurinn dr. Daniel Gros hafði rétt
fyrir sér að 5,55% vextir á „lán“ til
Tryggingasjóðs innstæðueigenda
(TIF) og (!) til ríkissjóðs okkar
væru gersamlega ólöglegir, eins og
raunar 3,3% vextirnir á Icesave-III
eru líka. (Sjá um þær Gros-
uppljóstranir í nóv.
2009: ’Enn um Icesave-
vexti: Í yfirgangi sín-
um brjóta Bretar lög
um jafnræði í EES:
snuða okkur um (185
til) 270 milljarða fyrstu
sjö árin!’ =
krist.blog.is/blog/krist/
entry/983418/ og hér:
’Það skeikar hundr-
uðum milljarða í Ice-
save-vaxtaútreikn-
ingum
fjármálaráðherrans!’ =
krist.blog.is/blog/krist/
entry/983941/).
Fjármálaráðherra og samninga-
nefndin hafa þannig stöðugt hlunn-
farið þjóðina – ekki staðið vörð um
rétt okkar í þessu frekar en öðru!
Lárus Blöndal hefur heldur ekki
staðið vörð um rétt TIF til að
borga í ísl. krónum (9. gr. laga nr.
98/1999: „Ávallt skal heimilt að
endurgreiða andvirði innstæðu,
verðbréfa eða reiðufjár í íslenskum
krónum, óháð því hvort það hefur í
öndverðu verið í annarri mynt.“)
Aukist greiðslukrafan á hendur
íslenzka ríkinu umfram þá 60 millj-
arða, sem nú (eftir 4-5% gengissig
frá áramótum) er reiknað með út
frá fallvöltum forsendum skila-
nefndar bankans, geta þessir 2,2%
umframvextir, auk gengisáhættu,
orðið meðvirkir í að búa til hrika-
legan spíral gegn okkur í hundraða
milljarða reikningi.
Til hliðsjónar má hafa frétt í
Mbl. 29/3 sl., „Milljarða hagnaður
Breta og Hollendinga“. Þar kemur
fram, að Br. & H. „hafa nú þegar
hagnast um rúma 20 milljarða kr. á
Icesave-samkomulaginu,“ – þeir
hafi „fjármagnað sinn kostnað með
„rúllandi“ útgáfu þriggja mánaða
ríkisvíxla [og] vaxtakostnaður
þeirra frá okt. 2008 til dagsins í
dag numið um 10,8 milljörðum
króna“ en „áfallinn vaxtakostnaður
TIF og þar með ísl. ríkisins á sama
tíma nemur hins vegar um 31,6
milljörðum króna. Mismunurinn er
því um 20,8 milljarðar króna,“ þ.e.
vaxtagróði Br. & H. bara á þessu
tímabili!
Allar ríkiseignir að veði?
Ísl. ríkið afsalar sér friðhelg-
isrétti eigna sinna í ákvæði (’waiver
of sovereign immunity’) í Icesave-
III eins og í fyrri samningum.
Seint í ferlinu var íhugað að hafa
undantekningar frá þessu, enda
höfðu þingmenn o.fl. gert kröfu í
þá átt. Í des. 2010, er samning-
urinn hafði verið tölvuprentaður,
var loksins skrifað inn ákvæði um
að undanskilja þessar ríkiseignir:
náttúruauðlindir, Seðlabankann og
þær stofnanir ríkisins sem það
þurfi á að halda til að starfa sem
fullvalda.
Þetta var gert með þeim hætti
sem sérfræðingurinn Lárus Jóns-
son telur (Mbl. 7. þ.m. bls. 16) að
myndi ekki halda gagnvart dóm-
stólum, einkum þegar dæmt er að
enskum lögum (skv. Icesave-III-
samningnum) í hollenzkum dóm-
stóli sem heldur sitt dómþing í
Englandi. Undantekningar-ákvæðið
var krotað inn á eitt eintak samn-
ingsins án þess að samningarnefnd-
armenn vottuðu það sem sitt
ákvæði, en réttarhefð Breta er
þannig að gerðar eru stífar kröfur
um að allt, sem á sé byggt í samn-
ingum, sé tryggilega vottfest, á
öðru er ekki tekið mark.
Lárus reyndi ítrekað að fá svör
fjármálaráðuneytisins íslenzka og
hins brezka til að fá staðfest, hvort
gögn um þetta mál, sem birt eru á
vefsíðu ráðuneytisins, séu „frumrit
af þeim gögnum sem verða und-
irrituð ef frumvarpið verður sam-
þykkt í þjóðaratkvæði.“ Engin svör
fékk hann, í 3 vikur, þrátt fyrir
ítrekanir til ráðuneytisins, að því
beri að svara erindi hans innan 7
daga skv. upplýsingalögum. Engin
svör hefur hann fengið frá brezka
ráðuneytinu!
Þetta mál er í algeru uppnámi.
Allar eignir ríkisins gætu verið hér
að veði, þ.m.t. vatns- og jarð-
hitaréttindi, fasteignir og jarðir
ríkisins.
Höfnum Icesave!
Eftir Jón Val
Jensson
Jón Valur Jensson
» Bretar brjóta gegn
reglum EES um
mismunun – vextirnir
þrefalt of háir
Höf. er guðfræðingur, prófarkalesari,
form. Þjóðarheiðurs – samtaka gegn
Icesave og félagi í Samstöðu þjóðar
gegn Icesave.
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
Formaður og vara-
formaður Vinstri
grænna hafa sent
flokksfélögum Vinstri
grænna það dap-
urlega ákall að þeir
samþykki að þjóðin
taki á sig Icesave-
samninginn, þetta
óupplýsta bankarán
upp á mörg hundruð
þúsund milljónir. Þar biðja þau
okkur félaga sína að samþykkja að
þeir peningar sem við sættumst á
að inna af hendi til að standa und-
ir velferð okkar fari að stórum
hluta í það háskalega fordæmi að
áföllum af ábyrgðarlausri fjár-
málastarfsemi sé velt yfir á al-
menning. Að öðrum kosti sé
áformum okkar um uppbyggingu
velferðarþjóðfélags stefnt í voða
því framtíð okkar byggist á sam-
þykkt þessa máls.
Það þarf yfirburðavitsmuni til
að koma því heim og saman þann-
ig að venjulegt fólk trúi því að
þjóðin bjargi fjárhag
sínum með því að
taka á sig svimandi
háar og ólögmætar skuldakröfur,
hvað þá að hún leggi með því póli-
tískan grunn að framtíð sinni. Að
Icesave-samningurinn sé orðinn að
óskabarni þjóðarinnar. Óstöð-
ugleiki í fjármálum blasir við nán-
ast hvert sem litið er. Ástand
markaða í heimunum getur því
breyst á svipstundu og aðstæður
okkar Íslendinga einnig. Að sam-
þykkja Icesave-málið er því ekki
einungis röng pólitík, það er stór-
fellt hættuspil þegar haft er í
huga að heilu hagkerfunum í
kringum okkur er meira og minna
haldið uppi af handafli og geta
snarsnúist og hrunið fyr-
irvaralaust. Margnefnt þrotabú
Landsbankans getur því fyr-
irvaralaust orðið verðlaust og
gjaldeyristekjur okkar hrunið. Að
samþykkja samninginn við þessar
aðstæður er því fullkomið glap-
ræði.
Að samþykkja samninginn í því
skyni að greiða okkur leið að
auknu erlendu fjármagni er þó
háskalegra en allt annað og til
þess eins að festa okkur í lánadrif-
inn, falskan sýndarveruleika sem
við höfum fyrir löngu fengið nóg
af, á ekkert skylt við sjálfbæra
hagstjórn og íþyngir velferð okk-
ar. Við skulum því ekki hika við að
fella Icesave-samninginn, með því
komumst við á upphafsreit í því
máli og við skulum síðan krefjast
þess að það verði krufið og að
fullu upplýst. Að semja um þetta
mál áður en það hefur verið gert
kemur ekki til greina. Það má
aldrei gerast. Segjum nei.
Eftir Ámunda
Loftsson » Að sam-þykkja Ice-
save-málið er
ekki einungis
röng pólitík,
það er stórfellt
hættuspil.
Ámundi Loftsson
Höfundur er verktaki og fyrrverandi
sjómaður og bóndi.
Neyðarkallið
Erindi: Íslandsljóð
Sjá, yfir lög og láð
autt og vanrækt horfir himinsólin.
Hér er víst, þó löng sé nótt um jólin,
fleira að vinna
en vefa og spinna,
vel ef að er gáð.
Sofið er til fárs og fremstu nauða.
Flý þó ei. Þú svafst þig ei til dauða.
Þeim, sem vilja
vakna og skilja,
vaxa þúsund ráð.
Höfundur Einar Benediktsson
Kæru Íslendingar
og þingmenn.
Nú er alveg farið
að ganga fram af
öldnum borgara þessa
lands sem man tím-
ana tvenna, man eftir
kreppum og skömmt-
unum eftir-
stríðsáranna, verð-
bólgu og öllu því sem
henni tilheyrir. Nú
orðið er ég ekki mikið
fyrir að lesa fréttir í blöðum því
þær eru farnar að valda mér
óþægindum og leiðindum eftir
sjálftöku stórglæpamanna á Ís-
landi. Það veldur mér hryggð að
ekkert er gert við þessa forkólfa
sem stjórnuðu þessu, stálu og sól-
unduðu fé landsmanna og sparifé
ellilífeyrisþega, lífeyrissjóðum og
öðru því sem saklausir borgarar
þessa lands höfðu safnað með
striti og svita. Nú er svo komið að
við erum farin að veðsetja okkur,
börnin okkar og barnabörnin er-
lendis fyrir þessum skuldum sem
þessir menn stóðu fyrir. Ef þetta
er ekki sala til ánauðar og þræla-
halds þá veit ég ekki hvað nútíma-
þrælahald er. Ekki nóg með það,
heldur er búið og verið að ganga
að heimilum einstaklinga, sundra
fjölskyldum fyrir þessar sömu
glæpastofnanir til að viðhalda
þeim og varðveita.
Ég hef spurt sjálfan mig en
ekki fengið svar, hvers vegna er
verið að bjarga þessum bönkum
og fjárglæframönnum sem áttu
allan þátt í þessum glæpa-
samkundum. Þarna situr sama
fólkið sem olli þessu og ef ekki þá
hefur það verið flutt til með stöðu-
hækkunum innan sama glæpa-
hrings því bankar og fjár-
málastofnanir eiga allt.
Ég settist niður með kunningja
mínum, við vorum að
ræða heimsmálin og
meðal annars þræla-
hald á Íslandi. Talið
barst að þessum 63
þingmönnum sem
sitja við Austurvöll.
Ég bað kunningja
minn að nefna mér þá
þingmenn sem treyst-
andi væri fyrir þjóð-
ina og gætu tekið við
þrotabúinu Íslandi.
Það var ekki einn ein-
asta að finna og fór-
um við yfir þá alla 63.
Þá var næsta að finna þá sem þá
sem næstir kæmu til álita og
dugði fingur annarrar handar til
að telja þá. Vesalingar við Austur-
völl hafa aldrei verið fleiri en eru í
dag frá stofnun lýðveldisins. Mest
eru þetta kjaftaskar og skrumarar
sem þjóðin hefur kosið. Þeir halda
að þeir séu hafnir yfir almenning í
landinu og séu einhverskonar
sjálfstætt þjóðarbrot eða sjálfstæð
eining og skilja ekki í hvers um-
boði þeir eru þarna. Ég vil leggja
til að þessu fólki verði gefið frí og
sent heim á atvinnuleysisbótum
sem það getur lifað á eins og það
ætlar öðrum að gera. Við getum
ráðið í staðinn fólk sem hefur vit
og þor til að stjórna þessu landi.
Kæru landsmenn, nú er komið
að því að þið getið bjargað þjóð-
inni frá þrælahaldi og vonandi
sent þetta fólk sem vill setja ykk-
ur, börnin og barnabörnin í þræla-
hald heim. Kjósið því rétt og segið
nei við þrælahaldi.
Kæru Íslendingar
og þingmenn
Eftir Sigurð
Ben Jóhannsson
»Kæru landsmenn, nú
er komið að því að
þið getið bjargað þjóð-
inni frá þrælahaldi.
Kjósið því rétt og segið
nei við þrælahaldi.
Sigurður Ben
Jóhannsson
Höfundur er ellilífeyrisþegi.
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Vöggusæng
ur
Vöggusett
Póstsendum - nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is