Morgunblaðið - 09.04.2011, Qupperneq 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
Elsku amma
mín. Ég man þegar
ég og Steinar vinur minn heim-
sóttum þig oft og mörgum sinn-
um. Okkur þótti gaman að
heimsækja þig því þú varst allt-
af svo góð við okkur. Þú gafst
okkur kex og ís. Ég man líka
þegar við fórum saman á kaffi-
hús og þegar við skoðuðum
steinasafnið þitt og töluðum um
steinasafn Petru.
Lítill sveinn á leyndardómum
lífs og dauða kann ei skil:
hann vill bara eins og áður
ömmu sinnar komast til,
hann vill fá að hjúfra sig að
hennar brjósti sætt og rótt.
Amma er dáin – amma finnur
augasteininn sinn í nótt.
Lítill drengur leggst á koddann
– lokar sinni þreyttu brá
uns í draumi er hann staddur
ömmu sinni góðu hjá.
Amma brosir – amma kyssir
undurblítt á kollinn hans.
breiðist ást af öðrum heimi
yfir beð hins litla manns.
(Jóhannes úr Kötlum)
Lifi minning þín.
Bjarki Freyr
Blomsterberg.
Pálína
Magnúsdóttir
✝ Pálína Magn-úsdóttir var
fædd á Ísafirði 25.
júní 1926. Hún lést
á Landspítalanum í
Fossvogi 1. apríl
2011.
Útför Pálínu fór
fram frá Fossvogs-
kirkju 8. apríl 2011.
Um það leyti
sem lóan kom
sunnan yfir sæinn
kvöddu æðri mátt-
arvöld móðursyst-
ur mína og vin,
Pálínu Magnús-
dóttur, á sinn fund.
Hún andaðist á
Borgarspítalanum
1. apríl sl.
Palla, eins og
hún var jafnan
kölluð, var í meðallagi há, fín-
gerð og nett og alltaf vel til
höfð. Raunar fannst mér þegar
ég, smápattinn, heimsótti þær
mæðgur, í Hafnarfjörð, um
miðja síðustu öld, Karítas
ömmu mína, Pöllu og Öldu
Steinu fóstursystur hennar, að
lífið snerist um það að lakka
neglur og púðra sig. Gítarinn
var þá aldrei langt undan og
Palla hafði afar næmt söng-
eyra. Oft léku þau saman hún
og Einar bróðir hennar sem
spilaði á munnhörpu og var
náttúrutalent á það hljóðfæri.
Einnig söng Palla mikið í kór-
um, síðast í Kór aldraðra.
Palla var mikil hannyrða-
kona og naut sín við þau verk.
Hún var djörf og lét ekki bil-
bug á sér finna þó blési á móti.
Fræg er sagan þegar hún fór
austur á firði á áttræðisafmæli
sínu og fór í kajakróður, þó
með fylgdarsvein sér til halds
og trausts. Geri aðrir betur.
Margt gat kætt hana og hún
hafði magnaðan hlátur ef svo
bar undir. En hún gat líka ver-
ið þung á bárunni ef svo stóð á.
Þrautseigja, kjarkur, framtaks-
semi og dugnaður voru eigin-
leikar hennar. Því þurfti hún
oft á að halda en sérstaklega
þegar hún greindist með berkla
á yngri árum en lífsgleði henn-
ar og lífsþróttur hjálpaði henni
alla tíð að lifa með afleiðingum
þess.
Sagnfræði var Pöllu í blóð
borin og var hún sískrifandi
eitthvað um menn og málefni.
Ef bréfsefni vantaði var bara
skrifað á næsta umslag. Einnig
hafði hún mikinn áhuga á ætt-
fræði og það verk sem mun
halda nafni hennar á lofti um
ókomna tíð er samantekt henn-
ar á ættfræðiritinu Pálsætt á
Ströndum (Yngri Pálsætt). Hún
er aðalhöfundur þess rits ásamt
Þorsteini M. Jónssyni. Ritið er
í þrem bindum og þar eru
skráðir með upplýsingum
14.400 einstaklingar. Þar er
fólk af öllum stéttum, milli
fjalls og fjöru og litríkt mann-
líf. Þetta var ómæld vinna sem
hún lagði á sig að afla upplýs-
inga um fólk og fá af þeim
myndir. Þvældist um landið á
bíl og hitti ættingja til að fá
upplýsingar og myndir. Þetta
var fyrir tilkomu tölvunnar og
var allt handskrifað eða vél-
ritað á spjöld og safnað saman í
spjaldskrá. Fyrir þetta er
þakkað.
Nú er Pálína horfinn til feðra
sinna. Ég og fjölskylda mín
sendum hennar nánustu sam-
úðar- og saknaðarkveðjur.
Þorsteinn H. Gunnarsson.
Að kveðja góða konu er ekki
sársaukalaust. Palla, eins og
ég kallaði þig alltaf, þú varst
hálfsystir pabba míns og við
urðum nágrannakonur árið
1969, þá einstæðar mæður og
hélst vinátta okkar þó svo þú
flyttir úr hverfinu. Það kom
enginn að tómum kofunum hjá
þér. Þú varst víðlesin, hafðir
réttlátar skoðanir og algjör
kraftaverkakona, Palla mín.
Þú fæddist á Ísafirði og ólst
upp við fátækt eins og almúga-
fólk mátti búast við á þeim
tíma en það var ekki það
versta. Aðeins fjórtán ára
veiktist þú alvarlega af berkl-
um og það átti eftir að setja
svip sinn á þig allt þitt líf. Þú
varst á Vífilstöðum og Krist-
neshæli þar sem þér var varla
hugað líf. Þú varst afskaplega
trúuð kona og sem barn
gekkst þú til herra Sigurgeirs
Sigurðssonar biskups sem átti
að ferma þig á Ísafirði. Þú
mættir alltaf og kunnir allt ut-
anbókar. En svo gerðist það
að þú varst ekki á Ísafirði á
fermingardaginn og það sárn-
aði þér og þú grést oft í ein-
rúmi vegna þess. Fjörutíu og
átta árum síðar fórst þú á
biskupsskrifstofu og sagðir
herra Pétri Sigurgeirssyni er-
indi þitt en hann var sonur
Sigurgeirs sem átti að ferma
þig. Hann sagði þér að það
væri aldrei of seint að fermast.
Það var fjallað um fermingu
þína í DV í apríl 1987 því þú
varst sextug það sama ár. Þú
bauðst mér að vera viðstödd
ásamt fleira skyldfólki. Þú
fermdist ein í Dómkirkjunni
klædd hvítum kyrtli með hvíta
hanska og hvíta sálmabók og
þú sagðir seinna að þér hefði
fundist þú verða bara 12 ára á
ný og þungu fargi var af þér
létt. Trúuð kraftaverkakona,
hugsaði ég. Þú geislaðir af
gleði. Þú vannst í bókabúð og
líkaði það mjög vel meðan þú
hafðir heilsu til. Oft varst þú
slæm fyrir hjartanu og því
voru spítalaferðir tíðar. Ég
man að þú tókst að þér mikla
vinnu í samvinnu við ættfræði-
stofu Þorsteins Jónssonar,
þegar þú skráðir Pálsættina
okkar sem við erum svo stolt
af. Hún kom út árið 1991 í
þremur bindum. Það var þér
að þakka Palla mín. Hugur og
hönd unnu vel saman. Þraut-
seiga þín að verki. Á áttatíu
ára afmælisdaginn þinn skellt-
ir þú þér með flugvél austur á
Seyðisfjörð í kajakferð. Sigl-
ingin var yndisleg og mjög
skemmtileg, sagðir þú. Þú
naust þess að ferðast og fræð-
ast um nýja staði. Palla mín,
þú reyndir margt á langri ævi
en varst alltaf svo dugleg og
hugrökk. Far þú í friði, friður
Guðs þig blessi. Hafðu þökk
fyrir allt og allt.
Laufey Erla.
Mín kæra föðursystir Pálína
Magnúsdóttir eða Palla frænka
eins og ég kallaði hana alltaf er
í dag borin til hinstu hvílu. Eft-
ir sig skilur hún spor fallegrar,
ótrúlega hlýrrar og atorkumik-
illar konu.
Ég var svo heppin að eiga
hana að, en hún var eina teng-
ingin mín við föðurfólkið mitt
eftir að foreldrar mínir skildu
þegar ég var fjögurra ára.
Hún hringdi alltaf reglulega
til að heyra hvernig mér og
fjölskyldu minni vegnaði. Um
hugann fljúga hlýjar minning-
ar. Ein af mínum góðu minn-
ingum er þegar Palla frænka
kom og heimsótti okkur til Sví-
þjóðar. Hún hafði verið á söng-
ferðalagi með kórnum sínum
um Evrópu og kom að henni
lokinni með lestinni frá Noregi
til að eyða með okkur nokkrum
dögum. Við sátum langt fram
eftir á kvöldin og ég naut þess
að heyra frásagnir hennar af
föðurfólkinu mínu. Við fórum
síðan í lok heimsóknarinnar yf-
ir til Danmerkur til Öldu
frænku. Hvorug okkar hafði
keyrt þessa leið áður og höfð-
um við mikið gaman af, ég
keyrði og hún var á kortinu og
svo sungum við hástöfum. Það
var ekki að spyrja að því að
ferðin gekk eins og í sögu enda
frábær kortalesari mér við hlið.
Stundirnar áttu eftir að
verða miklu fleiri eftir að við
fluttum til Íslands 2003. Við
hittumst reglulega og áttum
góðar stundir saman yfir kaffi-
bolla eða smá bæjarferð af og
til.
Sem dæmi um kjarnakonuna
hana Pöllu frænku er þegar
hún varð áttræð þá fór hún
austur á Seyðisfjörð. Þar eyddi
hún nokkrum dögum, spjallaði
við fólk og keyrði um sveitina
og skoðaði sig um. Meðal þess
sem hún tók sér fyrir hendur
var að skella sér á kanó og
fannst henni það ótrúlega gam-
an. Hreint ótrúleg kona sem
mér þótti svo óendanlega vænt
um.
Elsku Palla mín, það er þér
að þakka að við sem eftir lifum
og niðjar okkar geta rakið ætt-
ir sínar, því eftir þig skilur þú
þrjár fallegar ættfræðibækur
um Pálsætt á Ströndum sem
voru gefnar út 1991.
Takk fyrir allar góðu stund-
irnar, kæra frænka, þín verður
sárt saknað.
Hver minning dýrmæt perla að
liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf,
sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu
að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Frændfólki mínu Herði og
Katý sendi ég mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur og einnig
yndislegum dætrum Katýar.
Guð veri með ykkur.
Petrína S. Einarsdóttir
(Peta frænka).
Í dag kveðjum
við góða vinkonu.
Það er margt sem fer í gegnum
hugann þegar við lítum yfir far-
inn veg, leiðir okkar lágu saman
í Austurbæjarskólanum. Dísa
var seintekin og ekki allra svo
við vorum afar lánsamar að til-
heyra þeim hópi að vera vinkon-
ur hennar því hún reyndist
sönn og góð vinkona, hún var
framúrskarandi samviskusöm,
hjartahlý, réttsýn og einlæg.
Eitt af því sem okkur er
minnisstætt voru tímarnir í
skólanum sem börn, Dísa átti
oft til að fá hláturkast og gat
engan veginn hætt að hlæja og
einu sinni sem oftar tísti í Dísu
sem endaði með því að allur
bekkurinn var í hláturskasti,
þegar kennarinn var orðinn
rauður af reiði þá vorum við
ekki í góðum málum en þetta
lýsir Dísu vel.
Við áttum margt sameigin-
legt, við völdum allar listabraut-
ina, á tímabili vorum saman
með vinnustofu og var það ynd-
islegur tími. Dísa var fjölhæf
listakona, málaði málverk,
þæfði ull og mótaði úr leir.
Undir það síðasta var hún orðin
blind og mikið þjáð en sköp-
unarþráin var svo mikil að þótt
hún hafi ekki getað málað þá
hélt hún áfram að móta í leir.
Við áttum yndislegar stundir
heima hjá þeim hjónum, við
Þórdís
Hjörvarsdóttir
✝ Þórdís Hjörv-arsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 15.
desember 1957.
Hún lést 31. mars
2011.
Útför Þórdísar
fór fram frá Foss-
vogskirkju 8. apríl
2011.
kölluðum þessar
stundir dekurkvöld
hjá Gumma og
Dísu. Gummi eldaði
handa okkur góðan
mat enda gæða-
kokkur, síðan lág-
um við í sófanum
allar þrjár og
ræddum það sem
okkur var hugleikið
hverju sinni.
En Dísa var ekki
ein í þessari baráttu, Gummi
var frábær eiginmaður, hann
stóð eins og klettur við hlið
hennar ásamt yndislegri fjöl-
skyldu, við eigum eftir að sakna
þessara stunda með þeim.
Við þökkum Dísu fyrir allar
þær góðu stundir og samfylgd-
ina í gegnum árin sem voru allt
of fá.
Til er spakmæli sem segir að
þeir sem guðirnir elska deyi
ungir. Það er fátækleg huggun
fyrir ættingja og vini sem
syrgja. Sársaukinn og söknuð-
urinn er meiri en svo að því
verði breytt með fáeinum orð-
um. Góðar minningar, sam-
heldni og trú á endurfundi er
það sem best huggar, eykur
bjartsýni og vekur von um betri
daga og líðan.
Elsku fjölskylda, megi Guð
styrkja ykkur og varðveita í
ykkar miklu sorg.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Æskuvinkonur,
Olga Dagmar Erlend-
sóttir og Ólöf Jóna
Guðmundsdóttir.
Í dag fylgjum við elskulegri
vinkonu, Þórdísi Hjörvarsdótt-
ur, til grafar. Flest höfum við
þekkt hana frá því að hún
kynntist Gumma sínum, 16 ára
gömul, en þeirra samband varð
að hjónabandi og á milli okkar
allra voru órjúfanleg vináttu-
bönd.
Það var aldrei lognmolla í
kringum Dísu. Hún var ákveðin,
hress, skapandi og góð mann-
eskja. Hún var fylgin sér og
staðráðin í að gera vel í hverju
því sem hún tók sér fyrir hend-
ur. Og það gerði hún.
Börn Guðmundar og Dísu
eru Sigríður Ólöf, eða Sirrý og
Óskar. Þetta fallega unga fólk
hefur svo sannarlega veitt gleði
inn í líf foreldra sinna.
Dísa var ákaflega félagslynd,
lífsglöð og góður gestgjafi. Við
skemmtum okkur mikið saman,
fórum í útilegur með krakka-
skarann margar verslunar-
mannahelgar, í sumarbústaða-
ferðir, í leikhús, í matarboð og
fermingarveislur og ekki má
gleyma að nefna árlega þrett-
ándagleði hjá Dísu og Gumma.
Það er sárt að kveðja konu
sem ætti að vera í blóma lífsins.
Dísa var sammála Tómasi
Guðmundssyni um að tilvera
okkar væri undarlegt ferðalag
og að við værum gestir hér á
Hótel jörð. Staðreyndin er sú
að hún kunni að njóta lífsins,
rétt eins og góðrar ferðar. Hún
hafði að leiðarljósi það sem allt
of oft vill gleymast. Lífið snýst
ekki um endastöðina, heldur á
að njóta þess frá upphafi til
enda.
Það er oft talað um að lifa í
„núinu“ og að okkar mati var
Dísa sérfræðingur í því. Vissu-
lega leið henni oft illa, var sár
og kvalin, en hún lagði samt
aldrei árar í bát. Nokkuð sem
við hin getum lært af.
Dísa var alla tíð ákaflega list-
ræn; mikilhæfur listmálari,
ákaflega flink prjónakona,
handverkskona og fagurkeri.
Og hún málaði þar til sjónin gaf
sig. Guðmundur stóð hjá henni
og aðstoðaði hana eftir föngum,
til að hún gæti haldið áfram.
Hans framlag hefur verið óeig-
ingjarnt í þessum veikindum og
þekking hans á sjúkdómnum er
mikil. Þau gáfust aldrei upp.
Þegar Dísa missti sjónina sl.
haust fór hún að leira og þæfa
ull af miklu kappi og naut síðan
aðstoðar dóttur sinnar og móð-
ur við fráganginn. Eftir hana
liggja óteljandi listaverk sem
bera henni fagurt vitni.
Við „stelpurnar“ stofnuðum
saumaklúbbinn Sexurnar í apríl
1995 og klúbbarnir hafa alltaf
skipað stóran sess í okkar lífi.
Síðasti klúbbur var haldinn 15.
mars heima hjá Dísu og
Gumma. Þá var mikið af vin-
konu okkar dregið, en við nut-
um þess að borða saman og hún
lagði áherslu á að allir sýndu
velvild og gæsku.
Sexurnar komu óvænt í
heimsókn til Dísu á fimmtugs-
afmælinu hennar fyrir rúmum 3
árum. Úr varð einstaklega
skemmtileg stund, en nokkrar
limrur voru settar á blað í til-
efni dagsins. Síðasta línan er
svona: „Um framtíð mun ljós
þitt lýsa.“ Þau orð eiga svo
sannarlega vel við núna.
Saga Dísu er einstök og hún
bjó vel að því að hafa gott fólk í
kringum sig; Guðmund, Sirrý
og Óskar, tengdabörn, barna-
börn, systkini og móður. Þeirra
missir er mikill og við vottum
þeim okkar dýpstu samúð.
Við þökkum þér samfylgdina,
elsku Dísa.
Guðfinna, Birgir,
Sigurbjörg, Guðni,
María, Tómas, Rann-
veig, Sólveig og Óskar.
Það er svo erfitt að trúa því
að hún Dísa vinkona okkar sé
horfin á braut æðri máttar-
valda.
Dísa mín, þú varst besta, fal-
legasta og umhyggjusamasta
manneskja sem við þekktum.
Þú varst alltaf tilbúin að styðja
og gefa góð ráð. Aldrei kvart-
aðir þú heldur barðist fram á
síðasta dag.
Birnu langar sérstaklega að
þakka þér fyrir tímabilið þegar
við bjuggum öll í sama stiga-
gangi í Vesturberginu, þar sem
þið hjónin reyndust okkur
Hörpu einstaklega vel.
Þótt við höfum ekki mikið
umgengist síðastliðin ár, þá var
alltaf sterk tenging á milli okk-
ar og við erum þakklátar fyrir
þann tíma sem við áttum sam-
an.
Við hugsum til þín, elsku
Dísa, með sorg í hjörtum okkar
og hugsum til fjölskyldu þinnar
sem á um sárt að binda. Elsku
Gummi, Sirrý, Óskar og ynd-
islegu barnabörnin tvö, guð gefi
ykkur styrk til að takast á við
þennan mikla missi.
Birna og Ragnheiður
Andrea.
Þegar ég hugsa um hvers-
dagshetjur, þá verður mér oft
hugsað til fjölskyldu Sirrýjar
vinkonu minnar. Sérstaklega
verður mér hugsað til Dísu,
mömmu hennar, sem var sönn
hversdagshetja. Á síðustu árum
hefur hún barist á hetjulegan
hátt við erfiðan sjúkdóm og
sýnt ótrúlegan styrk, sem mað-
ur skildi varla. Orðið uppgjöf
var svo sannarlega aftast í
hennar orðabók. Ótal oft kom
hún öllum á óvart með því að
stíga upp eftir erfiða kafla bar-
áttunnar við meinið og tókst að
njóta lífsins eins vel og mögu-
legt var hverju sinni. Ég er full-
viss um að baráttustyrkur
hennar spratt af ást Dísu á fjöl-
skyldu sinni og því að hún vildi
öðru fremur sjá afkomendur
sína og Gumma vaxa og dafna.
Hún Dísa hlúði vel að sínu fólki
og sást það til að mynda vel á
sambandi þeirra Sirrýjar, sem
var einstaklega náið og fallegt.
Þetta var óvelkomið og
ósanngjarnt verkefni sem lagt
var upp í hendurnar á Dísu og
Gumma, sem og allri fjölskyld-
unni. Í gegnum þessar miklu
raunir hefur Gummi sýnt ótrú-
lega staðfestu og tryggð og
staðið sem óbrigðull klettur við
hlið Dísu. Að hafa slíkan félaga
í gegnum lífið er ómetanlegt.
Dísa var mikill listamaður í
sér og stundaði hún meðal ann-
ars metnaðarfulla listmálun
þrátt fyrir mikil veikindi, en
málverkin eftir hana bera góðan
vott um hæfileika hennar. Nú
þegar Dísa hefur kvatt sitja eft-
ir ástvinir hennar og syrgja, en
með söknuð og harm í hjarta er
gott að hugga sig við góðu
minningarnar og fallegu lista-
verkin sem hún skildi eftir sig.
Fyrir þann fjársjóð ber að
þakka. Ég vil votta elsku bestu
Sirrý minni, Gumma, Óskari og
fjölskyldunni allri mína innileg-
ustu samúð.
Inga Dröfn.
Við erum þakklát fyrir þær
stundir sem við áttum með þér
og munum varðveita minningu
þína í huga okkar. Eftirminni-
leg eru jólaboðin í Vesturberg-
inu og allar góðu stundirnar
sem við áttum þegar við vorum
að þæfa, spjalla og hlusta á tón-
list, þú ert hetjan okkar.
Elsku Gummi, Sirrý, Árni,
Óskar, Auður og börn, amma og
Kalli, og aðrir ástvinir Dísu.
Vottum ykkur öllum samúð
og biðjum Guð að styrkja ykkur
og blessa.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta
skalt.
(V. Briem)
Ástarkveðja,
Þröstur, Sigrún og
fjölskylda.