Morgunblaðið - 09.04.2011, Page 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
✝ Einar Árnasonfæddist að
Eyjarhólum í Mýr-
dal 18. mars 1925.
Hann lést 22. mars
síðastliðinn á
Landspítala,
Landakoti.
Foreldrar Ein-
ars voru Margrét
Sæmundsdóttir frá
Lágafelli í A-
Landeyjum og
Árni Einarsson frá Miðey í
sömu sveit. Systur Einars eru
Guðrún og Helga Maggý.
Einar kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Huldu Sig-
urlásdóttur, 8. maí 1948.
Foreldrar hennar voru
Aðalheiður Gísladóttir frá
Langagerði í Hvolhreppi og
Sigurlás Þorleifsson frá Mið-
húsum í sömu sveit. Börn Ein-
ars og Huldu eru: 1) Margrét
bankastarfsmaður, f. 1948,
gift Helga Kristóferssyni, f.
1949. Börn þeirra eru Guðrún,
f. 1968, Kristófer,
f. 1970 og Einar,
f. 1974. 2) Árni
lögfræðingur, f.
1951. 3) Að-
alheiður kennari,
f. 1953, gift Björg-
vini Sigurðssyni, f.
1951. Börn þeirra
eru Hulda, f. 1976,
Einar, f. 1982 og
Linda, f. 1990.
Langafabörnin eru
10.
Eftir að Einar lauk meist-
araprófi í rafvirkjun árið 1947
starfaði hann hjá Kaupfélagi
Rangæinga í rúm 30 ár og síð-
an við eigið fyrirtæki frá 1980
þar til hann lét af störfum 82
ára að aldri. Einar og Hulda
stofnuðu heimili sitt að Vall-
arbraut 8 á Hvolsvelli og
bjuggu þar í rúm 60 ár.
Einar var jarðsunginn í
kyrrþey frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði fimmtudaginn 31.
mars síðastliðinn.
Elsku Einar minn.
Hjartans þakkir fyrir öll árin
okkar saman, allar góðu stund-
irnar og minningarnar. Guð
geymi þig.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Ástarkveðja.
Þín
Hulda.
Einar minn. Það var fyrir ein-
um 40 árum að ég tengdist inn í
fjölskylduna. Mér var vel tekið
bæði af þér og Huldu. Þið hafið
reynst mér vel í alla staði. Við
vorum alltaf miklir mátar og
aldrei bar skugga á okkar sam-
skipti. Þú varst einstakt ljúf-
menni.
Þegar ég kynntist þér varstu
störfum hlaðinn, sast í hrepps-
nefnd, sást um rafmagnsverk-
stæði KR á Hvolsvelli og sauma-
stofuna að auki. Þú kvartaðir
aldrei, þetta virtist vera hið
minnsta mál í þínum huga. Þeg-
ar þú stofnaðir síðan þitt eigið
fyrirtæki kom vel í ljós dugn-
aður þinn og hæfileiki við
stjórnun. Þú byggðir upp mynd-
arfyrirtæki á skömmum tíma
sem þú rakst þar til þú lést af
störfum 82 ára að aldri.
Það var alltaf notalegt að
koma til ykkar Huldu á Vallar-
brautina enda héldum við þar jól
og áramót í meira en 20 ár sam-
fellt. Þær voru ófáar ferðirnar
sem við fórum saman innan-
lands og utan. Við vorum varla
komnir á áfangastað þegar farið
var að kanna gönguleiðir. Það
þurfti eitthvað að hafa fyrir
stafni í fríinu. Þetta voru ljúfar
stundir sem gott er að minnast.
Það var mín gæfa að eiga
slíka tengdaforeldra sem sýndu
börnum mínum þá alúð og hlýju
sem þið gerðuð, því verð ég æv-
inlega þakklátur.
Hulda mín, megir þú öðlast
styrk til að sigrast á sorginni.
Þakka samfylgdina, Einar
minn.
Þinn tengdasonur og vinur,
Björgvin.
Einar minn, nú sit ég hér og
hugsa um liðna tíma og allar
þær góðu stundir sem við höfum
átt saman síðastliðin 45 ár. Betri
tengdaföður hefði ég ekki getað
átt.
Af mörgu er að taka þegar
minningarnar eru kallaðar
fram. Allar skemmtilegu ferð-
irnar okkar til útlanda standa þó
upp úr. Voru þær ekki síður
skemmtilegar fyrir okkur en
þig, enda varstu mjög fróður um
marga þá staði sem við áttum
leið um. Þú varst ávallt reiðubú-
inn að rétta hjálparhönd ef á
þurfti að halda og aldrei sá mað-
ur þig skipta skapi. Annað eins
jafnaðargeð er vandfundið og er
það eftirsóknarverður eigin-
leiki.
Ég þakka þér samfylgdina öll
árin og ég veit að þú ert nú á
góðum stað. Við munum hittast
síðar og ferðast saman.
Þinn tengdasonur,
Helgi.
Elsku afi minn.
Þín er sárt saknað og enginn
getur fyllt þitt skarð. Nú standa
minningarnar einar eftir og ég
þakka fyrir að við skyldum fá
þennan tíma saman.
Það var alltaf svo gott að
koma í sveitina til ykkar ömmu
og hafa það notalegt og kúra á
Vallarbrautinni. Þá kíktum við
oft í Prjónaver og þótti okkur
Einari bróður alltaf jafn gaman
að bruna hvort með annað í ull-
arkörfunum.
Það var alltaf sama róin yfir
þér enda var alltaf gaman að
segja þér fréttir úr boltanum og
skólanum því þú hlustaðir vel og
hafðir alltaf áhuga á því sem
maður hafði að segja. Þú hafðir
gaman af að ferðast og við fór-
um í ófá ferðalögin saman. Ég
gleymi ekki Akureyrarferðinni
þegar þú kenndir mér minn
fyrsta kapal en ömmu fannst
hann nú heldur einfaldur, enda
gekk hann alltaf upp.
Þá áttum við það sameigin-
legt að elska sólina og ísinn,
enda undum við okkur vel á
ströndum Mallorca með eitt
stórt bananasplitt. Okkar
stærsta ferð saman var þó reis-
an okkar um Þýskaland og ná-
grannalönd og verður hún
ógleymanleg.
Þú varst dugnaðarforkur, við
vinnu sem annað, og sýndir það
til hins síðasta hve hjarta þitt
var sterkt eins og það var stórt
og hlýtt. Fallegasti engillinn
vakir nú yfir okkur.
Hver minning dýrmæt perla að
liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf,
sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu
að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Sé þig seinna, afi minn.
Þín
Linda.
Þær verða ekki fleiri ferðirn-
ar okkar saman austur í sveit-
ina. Það var ósjaldan sem þú
komst við í Hafnarfirði til að
kippa mér með austur þegar þú
skrappst í bæinn með voð og þá
héldum við af stað til baka með
fullan bílinn af bandi. Á leiðinni
var spjallað um heima og geima
enda varst þú ávallt með skyn-
samlegar lausnir á öllum málum
og skýr svör. Svo var auðvitað
nauðsynlegt að kunna skil á öll-
um bæjum, fjöllum og minnstu
lækjarsprænum á leiðinni.
Þegar austur var komið var
oft farið upp í Prjónaver sem þú
sinntir af mikilli vinnusemi og
hélst gangandi þrátt fyrir erf-
iðar aðstæður. Þú kenndir mér
að pressa, ýfa og svo var nú
nauðsynlegt að sauma aðeins
líka.
Á svölum sumarkvöldum var
gott að sitja í gróðurhúsinu sem
þú hélst sérstaklega upp á því
þar var alltaf heitt og gott að
vera eftir sólríka sumardaga.
Elsku afi, ég þakka þér fyrir
þann stuðning og hvatningu sem
þú hefur sýnt okkur fjölskyld-
unni í gegnum árin en þú hefur
alltaf haft mikinn velvilja og
metnað fyrir okkar hönd. Ég
sakna þinnar rólegu og þægi-
legu nærveru og verð ævinlega
þakklát fyrir þann tíma sem við
náðum að verja saman.
Þín
Hulda.
Elsku afi. Manni hlýnar um
hjartaræturnar að setjast niður
og hugsa til þín á meðan þessi
orð eru skrifuð. Við minnumst
þín sérstaklega fyrir það hversu
hlýr og góður maður þú varst.
Ekta afi sem skammaði aldrei.
Alveg einstakur maður með al-
veg einstakt hjartalag og jafn-
aðargeð. Enda varstu elskaður
og dáður af fjölskyldunni sem
sást best á því hvað þú varst um-
kringdur þínum nánustu, dag og
nótt síðustu dagana allt til leið-
arenda. Það eru ekki allir sem
geta státað af því að vinna fram
á níræðisaldurinn og þykja erf-
itt að hætta. Enda ljóst að þér
þótti afar vænt um fyrirtækið
sem og starfsfólkið sem hjá þér
starfaði.
Við minnumst allra ferðanna í
sveitina til afa og ömmu og voru
jólin í sérstöku uppáhaldi hjá
okkur systkinum því þá hittist
stórfjölskyldan og fagnaði þess-
ari hátíð saman. Afi var dugleg-
ur við að fara með okkur í bíl-
túra þegar við fengum að vera á
Hvolsvelli, þá var keyrt um
sveitirnar og okkur sýnt það
markverðasta.
Afi og amma voru stolt af
sveitinni sinni og höfðu gaman
af því að sýna okkur æskuslóð-
irnar og við krakkarnir höfðum
gaman af því að fræðast um
hvernig lífið var í sveitinni á
þeirra tímum. Sumrin voru líka
skemmtileg á Vallarbrautinni
enda höfðu amma og afi stóran
og fallegan garð allt í kringum
húsið þar sem við gátum ærslast
allan daginn og jafnvel langt
fram á kvöld ef veður leyfði.
Það var heiður að fá að fylgja
þér síðustu sporin en miklu
meira að fá að njóta þess að eiga
þig fyrir afa, afa Einar á Hvols-
velli.
Guðrún, Kristófer og Einar.
Fyrir 25 árum stofnaði ég fyr-
irtækið Saga í Þýskalandi. Til-
gangurinn var að selja íslenskar
ullarvörur í heildsölu á þeim
markaði. Í kringum 1990 höfðu
feðgarnir Einar og Árni sam-
band við mig og óskuðu eftir við-
ræðum um sölu á ullarfatnaði
framleiddum af Prjónaveri.
Prjónaver var lítið fjölskyldu-
fyrirtæki sem fram að þessu
hafði nánast eingöngu verið
undirverktaki fyrir stór útflutn-
ingsfyrirtæki, því var nær engin
reynsla fyrir hendi hvað snerti
framleiðslu á eigin hönnun.
Á þessum tíma var nánast
enginn ullarvöruframleiðandi á
Íslandi með heildstæða vörulínu
sem hentaði þýska markaðnum.
Við urðum því að kaupa smá-
skammta á ýmsum stöðum. Á
þessum tíma var Einar kominn
hátt á sjötugsaldur en það
hindraði hann ekki í að takast á
við verkefnið. Hann hóf sam-
starf við Steinunni Bergsteins-
dóttur sem hafði mikla reynslu í
að hanna flíkur úr íslenskri ull.
Út úr samstarfi þeirra kom fata-
lína sem fékk frábærar mót-
tökur og seldist í þýskum póst-
sendingarlistum í þúsundatali.
Hin seinni ár hannaði listakonan
Guðrún Gunnarsdóttir flíkurnar
fyrir Prjónaver með sama ár-
angri.
Einar rak fyrirtækið af ein-
stakri ljúfmennsku eins og ein-
kennandi var fyrir hann. Hélst
honum því mjög vel á starfsfólki
sem vildi allt fyrir hann gera.
Samviskusemi og vinnusemi var
þar í fyrirrúmi undir stjórn Þór-
unnar verkstjóra og Helga
prjónameistara. Þau bæði voru
Huldu og Einari mjög kær og
alltaf tilbúin að aðstoða þau
hjónin ef á þurfti að halda.
Sjálfur var Einar hörkudug-
legur og féll sjaldan verk úr
hendi. Hann sótti nánast öll að-
föng sjálfur og fór oftast sjálfur
með vörusendingarnar á höfn-
ina í Reykjavík. Á tímabili þegar
mest var að gera á fyrstu árum
samstarfs okkar varð líka að
prjóna á nóttunni. Einar fór þá
út í verksmiðju um miðja nótt til
að tryggja að vélarnar gætu
haldið stöðugt áfram. Til að
leysa þau mál til frambúðar
keypti hann síðan fleiri prjóna-
vélar.
Margar ferðirnar fór ég með
Einari milli Reykjavíkur og
Hvolsvallar. Í þessum ferðum
spjölluðum við mikið saman.
Mér fannst gagnlegt að heyra
skoðanir Einars í þjóðmálum
enda lá hann ekki á þeim. Það
sem ég kunni best við í fari Ein-
ars var hve lítið merkilegur
hann var með sig. Hann kom
alltaf til dyranna eins og hann
var klæddur. Allt sem hann
sagði stóð eins og stafur á bók.
Hann passaði mjög vel upp á
alla afgreiðslutíma og man ég
ekki eftir einni einustu sendingu
Einar Árnason
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, mágkona,
amma, langamma og langalangamma,
HREFNA VILHELMÍNA
BJÖRGVINSDÓTTIR,
Svínaskálahlíð 11,
Eskifirði,
sem lést laugardaginn 2. apríl, verður jarð-
sungin frá Eskifjarðarkirkju mánudaginn 11. apríl kl. 14.00.
Guðmundur Björgvin Stefánsson, Dóra D. Böðvarsdóttir,
Viktor Stefánsson,
Stefán Ingvar Stefánsson, Gunnhildur Björk Jóhannsdóttir,
María Hjálmarsdóttir,
Sverrir Vilbergsson, Elín Þorsteinsdóttir,
Haraldur Benediktsson, Brynja Halldórsdóttir,
Ingvar Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
dóttir og amma,
ELÍNÓRA HJÖRDÍS HARÐARDÓTTIR,
Böggvisbraut 10,
Dalvík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 5. apríl.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 14. apríl kl. 10.30.
Innilegar þakkir til Heimahlynningar á Akureyri fyrir góða
umönnun og einnig til Krabbameinsfélags Akureyrar.
Pétur Þ. Stefánsson,
Berglind Pétursdóttir, Örvar Þór Sveinsson,
Hörður Pétursson, Johanna Engström,
María Rakel Pétursdóttir, Guðmundur Helgason,
Hörður Gíslason, Sigurbjörg Edda Óskarsdóttir
og ömmubörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ALFREÐ KRISTJÁNSSON,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést föstudaginn 1. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða fyrir einstaka umönnun
og hlýju.
Kristín Alfreðsdóttir, Högni Reynisson,
Jón Alfreðsson, Kristín Nielsen,
Anna Alfreðsdóttir, Gísli Kvaran,
Sigríður Alla Alfreðsdóttir, Gissur Þór Ágústsson,
Aðalbjörg Alfreðsdóttir, Haukur Þórisson
og afabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi,
ÓLAFUR ÓSKAR HALLDÓRSSON,
Hraunbæ 128,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
mánudaginn 11. apríl kl. 13.00.
Sylvía Kristín Ólafsdóttir, Kjartan Björgvinsson,
Astrid Helene Ólafsdóttir, Lasse Eriksen,
Grete Sjursen, Stig Sjursen,
Sigurður Óskar Halldórsson, Ester Tryggvadóttir,
Sigríður Halldórsdóttir, Brynjólfur Guðbjörnsson,
Hrafnhildur Halldórsdóttir, Oddur Gunnarsson,
Bjarni Halldórsson, Erna Böðvarsdóttir,
Ásrún Laila Awad
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
BRYNHILDUR INGIBJÖRG
VILHJÁLMSDÓTTIR
frá Brandaskarði,
til heimilis á Árnastíg 8,
Grindavík,
andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 7. apríl.
Útförin verður auglýst síðar.
Sigurður Vilhelm Garðarsson,
Vilhjálmur Sigurðsson, Helena Reykjalín Jónsdóttir,
Jens Sigurðsson,
Garðar Hallur Sigurðsson, Þóra Kristín Sigvaldadóttir,
Jóhanna Harpa Sigurðardóttir, Kristján Steingrímsson,
Hjalti Páll Sigurðsson, Unnur Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
BIRNU MATTHILDAR EIRÍKSDÓTTUR,
áður til heimilis í Lindasíðu 4,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks í Víðihlíð fyrir góða umönnun.
Reynir Viðarsson, Anna Margrét Björnsdóttir,
Björk Viðarsdóttir, Valdimar Freysson,
Gígja Viðarsdóttir,
Harpa Viðarsdóttir, Þorvaldur Jónsson,
Ruth Viðarsdóttir, Teitur Birgisson,
ömmu- og langömmubörn.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800