Morgunblaðið - 09.04.2011, Qupperneq 45
MINNINGAR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÞÓRDÍSAR FJELDSTED,
Ferjukoti,
Borgarhreppi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra fyrir góða
þjónustu og umhyggju síðustu árin.
Sigurður Fjeldsted, Thom Lomaín,
Þorkell Fjeldsted, Heba Magnúsdóttir,
Guðrún Fjeldsted, Guðmundur Finnsson,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu mér
samúð og hlýju við fráfall eiginkonu minnar,
JÓHÖNNU BERTU
FRIÐBJARNARDÓTTUR
frá Hellissandi,
Sléttuvegi 11,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks H2 Hrafnistu Reykjavík.
Aðalsteinn Guðmundsson.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HULDU ÞÓRARINSDÓTTUR,
Fögrubrekku 24,
Kópavogi.
Halldór S. Guðmundsson,
Jónas H. Bragason, Guðrún Sólveig Guðmundsdóttir,
Halla Ósk Halldórsdóttir, Geir Atli Zoëga,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar yndislega
sonar, bróður, barnabarns, frænda og vinar,
EINARS TRAUSTA SVEINSSONAR,
Hrafnakletti 8,
Borgarnesi.
Sérstakar þakkir til séra Elínborgar Sturlu-
dóttur fyrir ómetanlegan stuðning og umhyggju sem hún sýndi
okkur.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svanhildur Karlsdóttir, Runólfur Hauksson,
Sveinn Trausti Guðmundsson, Guðný A. Jónsdóttir,
Þórður Helgi Jónsson, Sigríður Jónsdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu,
HELGU KRISTJÁNSDÓTTUR.
Starfsfólki á A3 á Hrafnistu í Reykjavík og
dvalarheimilinu Eir færum við þakkir fyrir
góða umönnun.
Þorsteinn Sigurðsson,
Kristján Helgason,
Sigurður Þórir Þorsteinsson, Hildur Hrönn Oddsdóttir,
Halldór Örn Þorsteinsson, Lilja Björg Sigurjónsdóttir,
Erna Þórey Sigurðardóttir,
Eiður Þorsteinn Sigurðsson,
Alexandra Mist Halldórsdóttir,
Helga Karen Halldórsdóttir,
Emma Sóley Halldórsdóttir.
Með fáum orðum vil ég minn-
ast svila míns og vinar, Ragnars
Valdimarssonar á Akureyri.
Ragnar var þar fæddur og upp-
alinn. Ég hafði ekki lengi rabb-
að við hann þegar ég fann hvað
hann var mikill Akureyringur
og unni heimabæ sínum og
Norðurlandi. Það var bæði
skemmtilegt og fróðlegt að
ræða við Ragnar. Hann var
mikill hug- og verkmaður og var
í fjöldamörg ár verkstjóri raf-
Ragnar
Valdimarsson
✝ Ragnar Valdi-marsson fædd-
ist á Akureyri 10.
febrúar 1935. Hann
andaðist á heimili
sínu að Lindasíðu
29 á Akureyri 31.
mars 2011.
Útför Ragnars
fór fram frá Akur-
eyrarkirkju 7. apríl
2011.
línulagna RARIK á
Eyjafjarðarsvæð-
inu og á Norður-
landi eystra að
Vopnafirði. Í vetr-
arveðrum þegar
raflínur slitna og
staurar brotna
undir ofurþunga ís-
ingar og snjóa eru
þetta erfiðar ferðir
og stundum svaðil-
farir sem viðgerð-
armenn og línumenn fara til
þess að koma aftur á rafmagni
svo að samborgarar og allir
landsmenn fái notið ljóss og yls.
Ég hafði gaman af að fræðast
um norðlenskar sveitir og höf-
uðstað Norðurlands, Akureyri
þegar starf Ragnars bar á
góma. Eitt sinn fórum við
Anika, ásamt Sigrúnu og Ragn-
ari, í Ásbyrgi og Laxárvirkjun
undir leiðsögn Ragnars. Þetta
var skemmtileg og fróðleg ferð.
Ragnar og Sigrún Ragnarsdótt-
ir frá Lokinhömrum í Arnarfirði
felldu ung hugi saman og gengu
í hjónaband árið 1958. Vetrar-
vertíðina 1960, fóru þau, eins og
þá var algengt, á vertíð til Vest-
mannaeyja til þess að koma
undir sig fótunum og eiga fyrir
fyrstu afborgun í eigin íbúð og
unnu þá bæði hjá Ísfélagi Vest-
mannaeyja. Innan við tvítugt
hafði Ragnar verið á vetrarver-
tíð í Eyjum á m/b Suðurey VE
20 með Arnoddi Gunnlaugssyni,
þekktum skipstjóra og útgerð-
armanni í Vestmannaeyjum.
Ragnar var mjög ánægður með
veru sína í Eyjum og plássið á
Suðurey. Hann gaf alltaf öllu
sínu samferðafólki og þeim sem
hann hafði starfað með góð orð
og var umtalsgóður og
skemmtilegur sögumaður sem
kryddaði frásögnina með góðlát-
legri gamansemi.
Þau hjón, Sigrún og Ragnar,
hófu búskap á Akureyri og
komu sér upp myndarlegu rað-
húsi við Dalsgerði 2 f þar sem
þau í fjöldamörg ár áttu sér-
staklega fallegt heimili. Ragnar
Valdimarsson var vinnusamur
og þegar hann hafði náð eft-
irlaunaaldri hjá RARIK hóf
hann störf hjá Rafeyri ehf sem
Jónas, sonur þeirra rekur ásamt
fleirum á Akureyri. Þar hvíldi
ekki á honum sama ábyrgð og
fyrr, en hann var öllu vanur í
sambandi við rafmagn og hafði
frjálsari hendur en áður. Ragn-
ar var ákaflega ánægður og
þakklátur fyrir að hafa fengið
þarna tækifæri til að starfa
áfram og vann fram undir síð-
asta dag hjá Rafeyri, en hann
andaðist að kveldi 31. mars sl.
Eftir að Sigrún og Ragnar
voru orðin ein fluttu þau í fal-
lega íbúð að Lindasíðu 29 á Ak-
ureyri. Eins og alls staðar þar
sem þau hafa búið hefur verið
gott að koma þangað og þau
hjón samhent og gestrisin. Við
Anika og fjölskylda okkar eig-
um margar góðar minningar frá
heimsóknum til þeirra hjóna.
Við skyndilegt fráfall Ragnars
Valdimarssonar þökkum við
góðar stundir og vottum Sig-
rúnu, börnum þeirra og fjöl-
skyldum innilega samúð. Góður
og skemmtilegur samferðamað-
ur er horfinn á braut.
Hann hvíli í Guðs friði.
Guðjón Ármann Eyjólfsson.
✝ Hjálmar Vík-ingur Hjálm-
arsson fæddist á
Akureyri þann 26.
janúar 1940. Hann
lést á Landspít-
alanum í Fossvogi
30. mars 2011 eftir
langvinn veikindi.
Hann var sonur
hjónanna Þórlaug-
ar Gunnlaugs-
dóttur matráðskonu, f. 1903, d.
1977 og Hjálmars Sigmunds-
sonar skipstjóra, f. 1892, d. 1957.
Alsystir hans er Erla Hlín, f.
1933, maki Trausti Bertelsson, f.
1939. Önnur alsystkini Hjálmars
voru Jóna Margrét, f. 1935, d.
1944 og Sigmundur, f. 1937, d.
1996. Hjálmar átti einnig sam-
feðra hálfsystkini, þau hétu
Oddur Vagn, Baldur, Eva, Alfa
og Vilmar. Sammæðra hálfsystir
Hjálmars er Hólmfríður Guð-
mundsdóttir.
Hjálmar kvæntist Valdísi Ósk-
arsdóttur, f. 1943, árið 1966 og
átti með henni tvær dætur: Rósa
Margrét, f. 1967, maki Jón Hall-
dór Björnsson, f. 1967, þeirra
dætur eru Ingibjörg Erla, f. 1993
og Valdís Ósk, f. 1993. Erla Hlín,
f. 1972, maki Davíð Bjarnason, f.
1972, þeirra synir eru Haraldur
Bjarni, f. 1999, Ósk-
ar Víkingur, f. 2004
og Stefán Orri, f.
2005. Eftirlifandi
eiginkona Hjálmars
til tæplega 40 ára
er Anna Andr-
ésdóttir, f. 1938 og
gekk hann börnum
hennar í föðurstað.
Þau eru: Kristín
Björg, f. 1964.
Andrea Berþóra, f. 1966, maki
Ársæll Magnússon, f. 1966 og
synir þeirra eru Magnús, f. 1990
og Hreiðar Ingi, f. 1993. Jón, f.
1967, maki Sigrún Linda Guð-
mundsdóttir, f. 1967. Sonur Jóns
úr fyrra sambandi er Hjálmar
Helgi, f. 1991. Hjálmar ólst upp á
Akureyri, stundaði nám við Hér-
aðsskólann á Laugarvatni og út-
skrifaðist frá Menntaskólanum á
Akureyri. Hann lauk embættis-
prófi í lögfræði frá Háskóla Ís-
lands og starfaði þá hjá borg-
arfógeta. Hugur Hjálmars var
ætíð á sjónum og hvarf hann að
sjómennsku og vann lengst af á
togurum, m.a. á Karlsefni og
Haraldi Kristjánssyni. Hjálmar
var mikill áhugmaður um veiði-
skap, íþróttir og bridge.
Útför Hjálmars fór fram 8.
apríl 2010.
Við Hjálmar kynntumst í MA
haustið 1957, lukum þar námi
vorið 1961 og laganámi í fram-
haldinu. Allan skólatímann var
þráður milli okkar sterkur. Síðan
fór hvor sína leið eins og gengur,
þráðurinn veiktist en slitnaði
aldrei.
Minn gamli, góði vinur, Hjálm-
ar Víkingur! Jarðlífið er sem
vatnið. Af himni það fellur, til
sjávar það rennur, til himins það
lyftist á ný. Hringrásin eilífa. Ef
til vill hittumst við á ný og renn-
um skeiðið saman. Það má vona
og allt ber vonin uppi.
Í dag þakka ég að hafa fyrir
skömmu heimsótt þig á sjúkra-
húsið. Þú lást þar mikið veikur en
samt svo sterkur sem ætíð fyrr.
Kæra Anna, megir þú og allir
aðrir aðstandendur Hjálmars
okkar öðlast styrk í sorginni.
Jón Erlendsson.
Hjálmar Víkingur
Hjálmarsson
Fyrrverandi mágur okkar und-
irritaðra, Idelfonso Ramos Val-
dés, lést síðastliðinn gamlársdag á
sjúkrahúsi í Havana á Kúbu, 74
ára að aldri. Ramos – eins og hann
var kallaður – var kvikmyndaleik-
stjóri að mennt og vann við það
mestalla starfsævi sína, fram á
síðasta ár.
Ramos var kvæntur systur
okkar, Ingibjörgu, í rúman ára-
tug. Þau kynntust er þau voru
bæði við nám á yngri árum í Kvik-
myndaháskólanum í Moskvu og
giftust þar í borg. Þau bjuggu í
Moskvu meðan á námi stóð og
fluttust síðar til Havana, þar sem
sonur þeirra Ernesto Hilmar Ra-
mos fæddist 1975.
Idelfonso Ramos gerði einkum
heimilda- og fræðslukvikmyndir
fyrir ICAIC-kvikmyndastofn-
unina á Kúbu. Ein mynda hans
fjallaði um samskipti Spánverja
og Kúbverja í gegnum tíðina og
var hún tekin í báðum löndunum.
Síðasta mynd hans var nýkomin á
kvikmyndatjöldin í Havana þegar
hann lést. Hún rekur sögu dansins
Idelfonso Ramos
Valdés
✝ Idelfonso Ra-mos Valdés
fæddist í Havana,
höfuðborg Kúbu,
28. september 1936.
Hann nam kvik-
myndagerð í
Moskvu og starfaði
við fag sitt á Kúbu
til æviloka.
Hann lést á
sjúkrahúsi í Havana
31. desember 2010.
á Kúbu og hefur
hlotið mjög jákvæð-
ar viðtökur eins og
margar aðrar mynd-
ir sem hann gerði.
Fjölmargir Ís-
lendingar kynntust
Ramosi, bæði á
námsárunum og síð-
ar í Havana, þar sem
við systkinin hittum
hann bæði – og hann
kom líka þrívegis til
Íslands eftir að þau Inga skildu og
hún kom heim með soninn. Margir
Íslendingar fóru í vinnuferðir til
Kúbu á árunum upp úr 1970 á veg-
um Vináttufélags Íslands og
Kúbu. Unnu hóparnir sjálfboða-
liðastörf, m.a. við húsbyggingar,
og kynntust landi og þjóð. Ramos
hitti marga úr þessum hópum og
veitti oft íslenskum ferðalöngum
aðstoð sína.
Tómas R. Einarsson kontra-
bassaleikari var einn þeirra sem
kynntust Ramosi á Kúbu. Gerði
Ramos myndband þar sem Tómas
og félagar spiluðu á götum Ha-
vana og áhorfendur dönsuðu und-
ir músíkinni af miklu fjöri. Þetta
myndband var sýnt nokkrum
sinnum á RÚV.
Við minnumst Ramosar með
virðingu og þökk fyrir góð kynni
og vottum aðstandendum samúð
okkar: fjölskyldu hans á Kúbu,
Hilmari, dætrum hans og öðrum
vinum Ramosar, þ.á m. Ingu syst-
ur okkar og Kristínu dóttur henn-
ar.
Rannveig Haraldsdóttir,
Þröstur Haraldsson.
Óteljandi fallegar og góðar
minningar á ég um vinkonu mína,
Borghildi frá Bjálmholti. Minn-
ingar sem ég mun alltaf eiga. Ég
var svo heppin að fá að vera í
sveit hjá systkinunum í Bjálm-
holti og það var skemmtilegur og
yndislegur tími. Við máluðum,
föndruðum, spiluðum, lásum,
gerðum krossgátur, ferðuðumst
og spjölluðum mikið saman.
Margar sögur voru sagðar og
brandarar þegar við keyrðum um
túnin í Land Rovernum þegar við
fórum til kinda öll í kremju í
framsætinu en okkur fannst það
betra þó það væri nóg pláss aftur
í. Þú varst með einstakt lag á dýr-
um, enda mikill dýravinur, og
kindurnar, hestarnir og kettirnir
hændust að þér eins og við mann-
fólkið. Þú varst sannur vinur með
hjarta gert úr gulli.
Eftir að Sigurður okkar lést
breyttist ýmislegt en við töluðum
alltaf um að hann væri með okk-
ur. Og vil ég minnast seinustu
jóla sem við áttum saman. Við
ákváðum að halda jólin okkar
Sigga eins og við kölluðum það.
Þá elduðum við birkireykt hangi-
kjöt, eins og þið Siggi gerðuð allt-
af, fórum upp í kirkjugarð með
ljós og skreytingar á leiðin, spil-
uðum, grétum saman, hlógum
saman og yljuðum okkur við ynd-
islegar minningar og við vissum
að Sigurður var alltaf með okkur.
Borghildur Sjöfn
Karlsdóttir
✝ BorghildurSjöfn Karls-
dóttir fæddist í
Bjálmholti í Holtum
12. júní 1937. Hún
lést á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi
við Hringbraut 27.
mars 2011.
Útför Borghild-
ar var gerð frá
Marteins-
tungukirkju í Holt-
um 2. apríl 2011.
Þetta eru minningar
sem ég mun alltaf
hlýja mér við.
Ég er mikið
þakklát að hafa
kynnst þér, Borg-
hildur mín. Við átt-
um yndislegan tíma
saman og þú kennd-
ir mér margt og
gerðir mig að betri
manneskju. Þið
systkinin voruð mér
sem aðrir foreldrar enda er sökn-
uðurinn mikill og Bjálmholtið
tómlegt þó ég viti að þið eruð hjá
mér enn.
Ég kveð þig með miklum sökn-
uði, elsku vinkona. Ég veit að
Sigurður, Minna og allir taka vel
á móti þér.
Takk fyrir allt, elsku engillinn
minn.
Ég sé þig seinna.
Þín vinkona,
Andrea Ösp.
Við viljum kveðja góða vin-
konu og hreint yndislega mann-
eskju, hana Borghildi frá Bjálm-
holti, sem kvaddi þennan heim
allt of fljótt. Hún var okkar stoð
og stytta í rúm 30 ár á Sauma-
stofu Rudólfs og fjölskylduvinur.
Það lék allt í höndunum á Borg-
hildi, alveg sama hvað það var
sem hún tók sér fyrir hendur og
hún var ómissandi persóna og
starfskraftur á vettvangi dags-
ins.
Okkur Stolzunum langar að
senda kveðjur og þakka fyrir vin-
áttu, tryggð og skemmtileg kynni
Ég kveð þig, hugann heillar minn-
ing blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Sólveig. Gustav, Ólafur og
Erla Stolzenwald.