Morgunblaðið - 09.04.2011, Page 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 2011
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Tónlistarhátíðin Reykjavik Music
Mess fer í gang næsta föstudag og
verður mikið um dýrðir, innlendar
jafnt sem erlendar sveitir munu
þá svipta upp tónleikum um borg
og bý. „Stærsta“ nafnið er óneit-
anlega Deerhunter, nýrokksveit
frá Bandaríkjunum sem hefur sótt
í sig veðrið hægt en örugglega síð-
ustu árin, er farin að gára meg-
instrauminn. Söngspíran, hin
sjarmerandi Bradford Cox, er
ólíkindatól mikið og virðist lítt
ráða við sig á opinberum vett-
vangi, sveiflast úr ægigleði yfir í
hatrammar blammeringar.
Tónlistarbiblíurnar fylgjast því
grannt með sveitinni en það sem
hefur heillað umfram allt er tón-
listin, sem er stórglæsileg og kom
besta dæmið um það út í fyrra, í
líki plötunnar Halcyon Digest.
Morgunblaðið spjallaði við trymbil
sveitarinnar, Moses Archuleta,
sem stofnaði sveitina ásamt Cox
en vænlegast þótti að halda hon-
um sem lengst frá símtólinu.
Margslungið
– Þetta er búið að ganga
skrambi vel hjá ykkur síðustu
ár …
„Já, og það er betra þegar þetta
gerist jafnt og þétt …“
– Ertu smeykur um að þið séuð
orðnir of vinsælir?
„Nei en þetta er auðvitað snúið.
mann langar til að geta lifað af
þessu og þá fylgja stundum vissar
fórnir. En ég er bara þakklátur …
að fá greitt fyrir að skapa. “
- Hún er mjög mismunandi,
áferðin á plötunum ykkar …
„Já, okkur langar ekki til að
vera staðnaðir. Ég ætlaði að segja
„leiðinlegir“ en það er ekki orðið.
Það er gott fyrir aðdáendur að
geta gengið að sveit sem er að
þróast og þroskast og er að reyna
eitthvað nýtt.“
– Margir vilja þó hafa þetta
þveröfugt, að hljómsveitin geri
góða plötu „eins og síðast.“
„Já, þetta er sókn í eitthvert ör-
yggi. Ég er frekar til í að gera lé-
lega plötu sem tekur sénsa en
góða plötu sem hallar sér að ör-
ygginu.“
– Cox er út allt, þið hinir meira
til baka. Er þetta jafnvægi sem
gengur upp?
„Já. Bradford er bara svona.
Talar og talar og er yfirlýsinga-
glaður. Með taugakerfið utan á
sér. Við hinir erum meira til baka
og feimnir. Menn ganga inn í mis-
munandi hlutverk í hljómsveitum
og rata í einhverjar rullur. En oft
er þetta margslungnara en það
sem sést út á við.“
Áhættan er bensín
Spjallað við trymbil Deerhunter
Spilar á Reykjavik Music Mess
Uppgangur Deerhunter. Moses vinur okkar Archuleta er annar frá hægri.
reykjavikmusicmess.com
Gengið Liðsmenn Sirkús Íslands ætla að sýna fram á að sirkus er fyrir alla, börn, konur og karla.
Öfugt Óneitanlega sérkennilegt.
Gjarðalist XXXmeralda í stuði.
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Sirkus Íslands hefur um nokkurt skeið sett
upp vinsælar fjölskyldusýningar. Nú er
komið að því að skemmta fullorðna fólkinu
með kabarettgjörningum með burlesque-
bragði.
Morgunblaðið
ræddi bréfleiðis við
Freyu West, banda-
rískan burlesque-
listamann sem mun
taka þátt í sýn-
ingunni.
– Af hverju burlesque?
„Ég komst fyrst í kynni við þetta í Chi-
cago fyrir sex árum. Ég fór í læri til Mich-
elle L’Amour í kjölfarið. Ég fæ kikk út úr
þessu, líkt og strákar fá líklega úr rokk-
inu. Burlesque fyrir mér er fegurð, orka
en einnig þokki og kímnigáfa. Öllu þessu
er rúllað saman í einn öflugan pakka.“
– Nú ertu líka ansi öflugur blaðamaður.
Hvernig fer þetta tvennt saman?
„Mjög vel. Ég er mjög ástríðufull fyrir
skrifum en þegar ég var búin að vinna við
það í svolítinn tíma fannst mér eitthvað
vanta. Og ég komst að því að það var
hreyfing! Og viti menn, þegar ég fór loks-
ins á ið fór sköpunin líka á ið.“
– En af hverju Ísland?
„Maðurinn minn er mikið í goðafræðinni
og við fórum til Íslands í brúðkaupsferð.
Ég eignaðist þá nokkra vini og er komin
aftur. Sem betur fer. Þetta er yndislegt
land!“
Fegurð, orka, þokki
Sirkus Íslands setur upp fullorðinssýningu
Skinnsemi – Fullorðinssirkus á Bakkusi
Hvað!? Liðdís Finnbogadóttir sýnir fram á að liðamót eru engin fyrirstaða. Myndin var tekin 2 sekúndum áður en táin hvarf ofan í.
Freya
West
Morgunblaðið/Árni Sæberg