Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 34
34 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2011
Sudoku
Frumstig
8 7 2 5
3 2 8 6
4 9 5 8 2
9 6 2 4
7
9 3
8 5
5 7 4
6 4
9 3 7 6 4
7 2 3 6 8
5 9
8 3
2 7 6
6 9 2
3 8 9
4 2
4 8 9
9 6 5
6 7 9 1
1 5
2
3 4 7
5 8 4 9
6
7 8
5 1 8 3 7 9 6 2 4
6 4 2 1 5 8 9 3 7
3 9 7 6 4 2 1 8 5
7 2 3 5 9 6 4 1 8
1 8 5 4 3 7 2 9 6
9 6 4 8 2 1 7 5 3
8 7 6 9 1 3 5 4 2
4 3 1 2 6 5 8 7 9
2 5 9 7 8 4 3 6 1
5 3 2 6 7 4 1 9 8
9 1 7 8 5 2 4 6 3
4 8 6 9 3 1 7 5 2
3 2 4 5 1 8 9 7 6
7 9 1 3 2 6 8 4 5
6 5 8 7 4 9 2 3 1
2 7 5 4 8 3 6 1 9
8 4 9 1 6 5 3 2 7
1 6 3 2 9 7 5 8 4
5 9 3 8 4 2 7 1 6
7 8 1 9 5 6 2 4 3
2 4 6 7 3 1 9 5 8
9 3 2 5 1 8 4 6 7
8 7 4 3 6 9 1 2 5
6 1 5 4 2 7 3 8 9
1 2 9 6 7 5 8 3 4
3 6 8 2 9 4 5 7 1
4 5 7 1 8 3 6 9 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 15. apríl, 105. dagur
ársins 2011
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér
skilja, að ég er í föður mínum og þér í
mér og ég í yður. (Jh. 14, 20.)
Farangurslausir ferðalangar áSpáni eiga alla samúð Víkverja.
Sérstaklega fótboltamenn og kylf-
ingar sem fóru um liðna helgi gagn-
gert í stutta ferð til þess að bæta ár-
angur sinn en hafa misst úr
dýrmætan tíma og jafnvel orðið fyrir
líkamlegum skaða vegna þess að
lánsskór gerðu illt verra.
x x x
Víkverji hefur stundum lent í þvíað koma á áfangastað án farang-
urs en í öllum tilfellum hefur farang-
urinn skilað sér innan sólarhrings eða
svo. Einu sinni fékk Víkverji ekki far-
angur sinn í innanlandsflugi í Banda-
ríkjunum. Víkverji var á leið til Ís-
lands og ætlaði að stoppa í tvo daga í
New York á leiðinni heim. Veðrið var
gott vestra og Víkverji ferðaðist létt,
var bara í stuttbuxum og bol, en pen-
ingaveskið fór óvart með síðbuxunum
í ferðatöskuna. Þegar til New York
var komið var enginn farangurinn og
Víkverji peningalaus, en Icelandair
sá aumur á manninum og kom honum
í næstu vél heim. Þegar til Íslands
var komið var hávaðarok og rigning í
Keflavík, svona eins og á sunnudag-
inn var. Gengið var úr vélinni og inn í
flugstöðina gömlu og þangað kom
Víkverji, blautur inn að skinni, far-
angurslaus og peningalaus, og varð
að sníkja far með rútunni í bæinn. Að
öðru leyti var hann við góða heilsu og
fékk farangurinn daginn eftir.
x x x
ÍVelvakanda í gær er blaðamönn-um og öðrum bent á að rugla ekki
saman tónlistar- og ráðstefnuhúsinu
Hörpu og Tónskóla Hörpunnar.
Fundið er að því að margir tali um
Hörpuna en ekki Hörpu þegar rætt
sé um nýbygginguna og væntanlega
starfsemi þar. Þrátt fyrir þessa að-
finnslu er Víkverji á því að áfram
verði talað um Hörpuna rétt eins og
Perluna og Ráðhúsið. Hins vegar er
honum annt um alla tónskóla og tón-
listarkennslu og þótt margt bendi til
þess að Harpan eigi eftir að reynast
dýrkeyptari en Icesave leggur hann
til að Tónskóli Hörpunnar fái inni í
nýja tónlistarhúsinu án endurgjalds.
Þá fari ekki á milli mála hvar Harpan
sé. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 illmenni, 4 kústur,
7 stafagerð, 8 vindurinn, 9
fjör, 11 friður, 13 skjóta, 14
hefja, 15 málmur, 17 muna
óljóst eftir, 20 hress, 22
pretti, 23 óvættur, 24 gald-
urs, 25 þjónar fyrir altari.
Lóðrétt | 1 rúmin, 2 sjald-
gæf, 3 lélegt, 4 skarn, 5
sekkir, 6 aflaga, 10 hóla-
tröll, 12 vond, 13 spor, 15
skurðar, 16 hugrekki, 18
spilið, 19 sálir, 20 gufu, 21
dægur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skáldlegt, 8 sýpur, 9 nefið, 10 inn, 11 unnur, 13 armar,
15 hængs, 18 kraft, 21 ýsa, 22 látin, 23 plaga, 24 sinnulaus.
Lóðrétt: 2 kápan, 3 lúrir, 4 linna, 5 gæfum, 6 æsku, 7 iður, 12
ugg, 14 rýr, 15 hali, 16 nýtni, 17 sýnin, 18 kapal, 19 ataðu, 20
traf.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 e6 4. g3 dxc4 5.
Bg2 Bd7 6. Re5 Bc6 7. Rxc6 Rxc6 8. 0-0
Dd7 9. e3 0-0-0 10. Rd2 h5 11. Rxc4 h4
12. Da4 hxg3 13. hxg3 Rd5 14. Bd2 Kb8
15. Hfc1 f5 16. Ra5 Rxa5 17. Dxd7
Hxd7 18. Bxa5 Rf6 19. Bc3 Bd6 20. Bf3
g5 21. Kg2 g4 22. Be2 Hh3 23. Bc4
Hdh7 24. Hh1 Re4 25. Bxe6
Staðan kom upp á Evrópumeist-
aramóti einstaklinga sem lauk fyrir
skömmu í Aix-les-Bains í Frakklandi.
Rússneski stórmeistarinn Boris Grac-
hev (2.675) hafði svart gegn alþjóðlega
meistaranum Robert Kreisl (2.394) frá
Austurríki. 25. … Bxg3! 26. Bxf5
Hh2+ 27. Hxh2 Hxh2+ 28. Kg1 Rxf2
29. Be1 Rh3+ 30. Kf1 Bxe1 31. Bxg4
Bb4 og hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Gömul hugmynd.
Norður
♠Á94
♥Á10843
♦G43
♣72
Vestur Austur
♠875 ♠32
♥– ♥DG97652
♦852 ♦7
♣ÁKDG864 ♣1053
Suður
♠KDG106
♥K
♦ÁKD1096
♣9
Suður spilar 6♦.
Þegar franski spilarinn Pierre Jais
(1913-1988) var ungur maður að stíga
sín fyrstu spor í bridsheiminum fékk
hann hugmynd sem margir hafa fengið
síðan. Hann var í vestur og valdi að
passa í byrjun og „hlusta á borðið“.
Norður sagði pass og austur líka, en
síðan vakti suður á 2♣, alkröfu. Jais lét
nú til skarar skríða með stökki í 5♣.
Norður sagði 5G og suður lauk sögnum
með 6♦. Jais átti útspilið og það var þá
sem hugmyndin fæddist. Hann kom út
með lauffjarka.
Lífsreyndir spilarar nútímans hafa
allir prófað að koma út undan þéttum
langlit, en á þessum tíma var slík tækni
ekki á almannavitorði. „Gleymdi“ aust-
ur þá að fara upp með lauftíuna? Nei,
nei, hann hafði rænu á því. En svo spil-
aði hann laufi til baka.
15. apríl 1785
Skálholtsskóli var lagður nið-
ur, samkvæmt konungs-
úrskurði, og ákveðið að flytja
biskupssetur frá Skálholti til
Reykjavíkur.
15. apríl 1803
Reykjavík var gerð að sér-
stöku lögsagnarumdæmi og
Rasmus Frydensberg skip-
aður bæjarfógeti. Hann
gegndi embættinu af rögg-
semi í tíu ár.
15. apríl 1964
Flugvél var lent á Surtsey í
fyrsta sinn. Flugmaður var
Stefán Þór Jónsson en tveir
farþegar voru með í för. „Gos-
ið lá niðri þá stundina,“ sagði í
Tímanum.
15. apríl 1990
Eldur kom upp ofan á amm-
oníaksgeymi Áburðarverk-
smiðjunnar í Gufunesi. Eld-
urinn var fljótlega slökktur en
talið var að mikið hættuástand
hefði skapast. Í kjölfarið
krafðist borgarráð lokunar
verksmiðjunnar.
15. apríl 1990
Afmælisrit til heiðurs Vigdísi
Finnbogadóttur sextugri,
Yrkja, kom út. Ritið varð
grundvöllur Yrkjusjóðs, sem
hefur kostað gróðursetningu
tuga þúsunda trjáplantna ár
hvert.
15. apríl 2007
Aurskriða féll á Sauðárkróki
þegar vatnsstokkur sprakk.
Sjö hús skemmdust. „Hlíðin
rann niður í heilu lagi,“ sagði
á forsíðu Fréttablaðsins.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Þegar vorar og sólin hækkar á lofti má sjá æ fleiri
þeytast um göturnar á hjóli eða þess vegna mót-
orhjóli. Kristín Edwald hrl., formaður Lögfræð-
ingafélags Íslands og einn eigenda Lögmannsstof-
unnar LEX, er einn þessara mótorhjólakappa, en
segist samt fara varlega og nota hjólið sparlega.
Hún er fertug í dag og af því tilefni býður hún fjöl-
skyldu og vinum í veislu í kvöld. „Ég ætla að halda
upp á afmælið,“ segir hún og bætir við að hún
haldi gjarnan upp á stórafmæli. Mótorhjólið hafi
hins vegar verið skyndiákvörðun. „Mér datt í hug
einn daginn að taka prófið, tók það og keypti síðan
hjól. Svo er ég líka með létta bíladellu.“
Það er nóg að gera í vinnunni og félagsstörfunum hjá Kristínu en
störfin hindra ekki fagnaðarfund. „Það er alltaf tími til að hitta fjöl-
skyldu og vini,“ segir hún en bætir við að frítíminn fari einna helst í
að prjóna á sig og börnin tvö og ganga á fjöll ef tími vinnst til. „Ég hef
mjög gaman af því,“ segir hún. Framundan er Lagadagurinn 6. maí,
málstofur um hin og þessi mál sem eru efst á baugi á sviði lögfræð-
innar. Kristín vinnur að undirbúningi ásamt öðrum en segir að lífið
gangi að öðru leyti sinn vanagang. steinthor@mbl.is
Kristín Edwald hrl. er fertug í dag
Þeytist á mótorhjóli
Söfnun
Klara Sif Krist-
insdóttir, Alex-
andra Líf Jóns-
dóttir, Marín
Helgadóttir og
Björg Guðmunds-
dóttir frá Þórs-
höfn söfnuðu
10.076 kr. og
færðu Rauða
krossi Íslands.
Flóðogfjara
15. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.55 3,6 10.19 0,5 16.29 3,6 22.42 0,4 5.57 21.00
Ísafjörður 5.53 1,9 12.25 0,1 18.33 1,9 5.53 21.14
Siglufjörður 1.50 0,2 8.01 1,2 14.26 0,1 20.42 1,2 5.35 20.57
Djúpivogur 1.12 1,9 7.23 0,5 13.37 1,9 19.47 0,4 5.24 20.32
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ýmislegt hefur tekið breytingum
heima fyrir frá því í haust og gert þér erfitt að
ná áttum. Láttu álit annarra ekki stjórna þér.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú hefur mikla þörf fyrir samræður við
aðra, sérstaklega ættingja. Skoðaðu stað-
reyndirnar eins og þær eru.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Fólk er staðráðið í að telja aðra á
sitt band og neitar því að hlusta á nokkrar
mótbárur. Einhver gerir þér gott tilboð.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú getur gefið samferðamönnum þín-
um mikið. Sinntu þér og láttu það ganga fyrir
öðru fyrst um sinn. Þú átt upp á pallborðið
hjá hinu kyninu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Atburðir dagsins hafa ekki djúpa merk-
ingu. Hver er sinnar gæfu smiður. Einhver
gerir þér greiða sem krefst einskis á móti.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur sterka löngun til að gera eitt-
hvað óvenjulegt í dag. Hlustaðu á það sem
aðrir hafa fram að færa og reyndu að nýta
þér það til jákvæðrar uppbyggingar á sem
flestum sviðum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þig skortir ekki nýjar, snjallar og óvenju-
legar hugmyndir í dag. Er það ekki skrýtið
hvernig viðhorf til lífsins getur breyst?
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Hafðu ekki of miklar áhyggjur af
hlutunum. Fari einhver fram úr sér, láttu við-
komandi vita. Láttu allan meting við aðra
lönd og leið og hugsaðu um eigin afkomu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Reyndu að sjá fyrir næsta skref í
starfi þínu því svo kann að fara að þú þurfir
að taka það fyrr en þú ætlar. Paraðu saman
og losaðu þig við óþarfa.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú sérð málin sigla í örugga höfn
og hefur fulla ástæðu til að gleðjast yfir því.
Gættu þess bara að ofmetnast ekki þegar vel
gengur því dramb er falli næst.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Nú er að grípa tækifærið og gera
tilboð í það sem þú hefur lengi haft augastað
á. Vertu á varðbergi gagnvart fagurgala.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Láttu ekki fordóma hafa áhrif á hvern-
ig þú metur tilboð sem þér berast. Allt bless-
ast á endanum. Sveigjanleikinn gerir þér
kleift að ná takmarki þínu.
Stjörnuspá