Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 14

Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2011 FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Eitt markmiðanna með setningu nýrra fjölmiðlalaga er „að koma á samræmdri löggjöf á vettvangi fjöl- miðlunar óháð því miðlunarformi sem er notað“. Lögin eru því eðlilega um- fangsmikil og víða komið við. Þrátt fyrir hávært ákall hagsmunaaðila, sem menntamálanefnd Alþingis leit- aði til eftir umsögnum, er hins vegar ekki tekið sérstaklega á stöðu Rík- isútvarpsins í lögunum. Minnihluti nefndarinnar gagnrýndi þetta einnig í umfjöllun nefndarinnar. Í harðorðri umsögn Blaðamanna- félagsins frá því í nóvember segir: „Í frumvarpinu er fest í sessi óbreytt staða [RÚV] gagnvart öðrum fjöl- miðlum í landinu, þrátt fyrir að það sé nú fjármagnað með skatttekjum en ekki afnotagjöldum. Engar takmark- anir eru á umfangi þess á auglýsinga- markaði aðrar en þær sem greinir í 5. tl. 64. gr., sem eru litlar sem engar frá því sem nú er. Þetta er óþekkt í ná- grannalöndum okkar og spurning hvort þetta stangist ekki á við jafn- ræðisákvæði. Það er ótækt að tryggja RÚV skatttekjur, en ætla því jafnframt nánast óbreytt hlutverk á auglýsingamarkaði. Það þrengir að öðrum fjölmiðlum í landinu sem þurfa að reka sig á grundvelli afnotagjalda og auglýsingatekna.“ Takmarkanirn- ar sem Blaðamannafélagið vísar til snúa að „vöruinnsetningu“ í dag- skrárliðum sem RÚV framleiðir sjálft, eða efnis sem framleitt er í um- boði þess eða tengdra aðila. Þá er kveðið á um að RÚV skuli lúta lögum um fjölmiðla. Að þessu undanskildu er ekki fjallað sérstaklega um RÚV í lögunum. ESA virt að vettugi Einhverjum kynni að þykja það skjóta skökku við að ekki væri tekið tillit til jafn fyrirferðarmikils miðils og RÚV er við undirbúning þess sem á að vera alltumlykjandi löggjöf um fjölmiðla á Íslandi. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) komst þannig að þeirri niðurstöðu í febrúar að RÚV nyti óeðlilegrar ríkisaðstoðar og fór fram á það við íslensk stjórnvöld að úr yrði bætt ekki síðar en 1. júlí næstkom- andi. Mennta- og menningarmálaráð- herra skipaði fljótlega í kjölfarið nefnd, sem fjalla á um tillögur starfs- hóps um stöðu almannaútvarps og at- hugasemdir ESA. Nefndinni er ætlað að skila tillög- um sínum á formi frumvarps, sem ætlunin er að verði flutt á haustþingi, alllöngu eftir upphaflegan tímafrest ESA. Í athugasemd sem lögfræðingur 365 miðla sendi menntamálanefnd í byrjun apríl er það gagnrýnt harð- lega að í engu skuli brugðist við ákvörðun ESA í lögunum nú. „Það er með ólíkindum að í nefndaráliti meirihlutans nú sé ekkert vikið að ákvörðun Eft- irlitsstofnunar EFTA […] frá því 9. febrúar síðastliðinn. Í ákvörðuninni kemur skýrt fram að það verði í fjöl- miðlalögunum sjálfum að gefa sam- keppni á markaðinum fótfestu, ef koma á í veg fyrir óheilbrigða sam- keppni,“ segir orðrétt í athugasemd- inni. Það að tekið verði á málefnum RÚV í sérlögum sé með öllu óásætt- anlegt sem skýring, „þar sem það [fari] þvert gegn ákvörðun ESA um nauðsyn þess að huga að samkeppn- ismálum í heildarlöggjöf um fjöl- miðlamarkaðinn.“ Harma seinagang vegna RÚV Viðskiptaráð Íslands kveðst í um- sögn sinni lengi hafa verið áhugasamt um rekstrarumhverfi fjölmiðla hér- lendis og þá „sérstaklega skaðleg áhrif Ríkisútvarpsins ohf. þar á.“ Ráðið fagnar tilkomu áðurnefnds ákvæðis um bann við vöruinnsetning- um, en „það er álit ráðsins að augljós rök standi fyrir því að taka alfarið fyrir möguleika RÚV að afla sér tekna með viðskiptaorðsendingum (auglýsingar, kostanir og vöruinn- setningar – hvort heldur til sjónvarps eða útvarps,“ segir í umsögninni. Viðskiptaráð harmar einnig seina- ganginn sem verið hefur á vinnu á vegum mennta- og menningarmála- ráðherra, en starfshópur á vegum hans skilaði af sér tillögum snemma í fyrra. Nú rúmu ári síðar er ástandið enn óbreytt, nefskatturinn jafnhár, en fer hækkandi, og auglýsinga- tekjur einkarekinna fjölmiðla hafa á sama tíma hrapað. Endurskoðuð heildar- lög taka ekki til RÚV  Ný fjölmiðlalög taka ekki tillit til athugasemda hagsmunaaðila eða ESA Eftirlitsstofnun EFTA komst að þeirri niðurstöðu að fjármögnun Ríkis- útvarpsins í formi sérstakrar greiðslu teldist til ríkisaðstoðar sem væri ekki í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og að staða sam- keppnisaðila RÚV væri veikt. Þá er fundið að því hvernig framlög til RÚV eru reiknuð út, með tilliti til þess að um almannaþjónustu sé að ræða. Stjórnvöldum hér á landi var tilkynnt ákvörðunin í bréfi dagsettu 9. febrúar. ’ Íslensk stjórnvöld þurfa að grípa til allra lagalegra, stjórnsýslulegra eða annarra aðgerða sem nauðsynlegar eru til þess að hætta hinni ósamrým- anlegu aðstoð sem fjármögnun Rík- isútvarpsins felur í sér […]. Slíkri að- stoð skal hafa verið hætt hinn 1. apríl 2011. ’ Íslensk stjórnvöld skulu upplýsa stofnunina um þau skref sem tekin verða til þess að afnema aðstoðina eins fljótt og auðið er og ekki síðar en sex vikum frá því ákvörðun þessi er tekin. ’ Stofnunin fer fram á það að íslensk stjórnvöld tryggi það að viðskipti RÚV fylgi almennum markaðslögmálum […]. Þetta felur í sér að RÚV […] hagi fjárfestingu sinni í samræmi við það sem tíðkast í markaðshagkerfi og raski ekki samkeppni gagnvart keppinautum sínum í skjóli opinberrar fjármögnunar. ’ Með þessu er til dæmis átt við að auglýsingasala, sala eða leiga á vörum, styrktarsamningar og aðrir við- skiptagjörningar RÚV miðist við mark- aðsverð. ’ Stofnunin fer fram á það að íslensk stjórnvöld geri viðeigandi ráðstaf- anir í þessa veru í fjölmiðlalögum og tryggi að til staðar séu verkferlar sem tryggi að hægt sé að leggja mat á hugs- anlegar umkvartanir á skilvirkan hátt. Úr ákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um fjármögnun Ríkisútvarpsins. Óréttmætri að- stoð verði hætt Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Að lokinni meðferð menntamálanefndar á milli fyrstu og annarrar umræðu um fjölmiðla- frumvarpið, sagði Skúli Helgason, formaður nefndarinnar, að mikil umræða hefði farið fram um Ríkisútvarpið í umfjölluninni, „ekki síst í máli umsagnaraðilanna“. Fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins í nefndinni gagnrýndu það að löggjöfin skuli ekki taka til Ríkisútvarpsins, sem sé afar fyrirferðarmikið á fjölmiðlamark- aði, sama hvernig á það sé litið. Undirbúningsvinnan farin af stað Skúli sagði, við sama tækifæri, vinnu farna af stað við endurskoðun laganna um Rík- isútvarpið, og að hann ætti frekar von á því að frumvarp þar að lútandi liti dagsins ljós á þessu þingi. Það er ekki ofsögum sagt að undirbúningur sé hafinn, því þegar árið 2009 skipaði mennta- og menningarmálaráðherra starfshóp um almannaútvarp á Íslandi. Verk- efni hópsins var að leggja mat á áhrif breyting- anna sem gerðar voru á Ríkisútvarpinu árið 2007, þegar það var lagt niður og opinbert hlutafélag stofnað um rekstur þess. Þá átti hópurinn að gera tillögur að úrbótum. Frumvarp lagt fram á haustþingi Starfshópurinn skilaði tillögum sínum í byrjun síðasta árs og þær voru kynntar stjórn og stjórnendum RÚV í kjölfarið. Fyrir rétt um mánuði skipaði ráðherra síðan nefnd sem fara á yfir tillögur starfshópsins, og taka jafnframt tillit til athugasemda ESA, sem greint er frá hér á síðunni. Í tilkynningu um stofnun nefnd- arinnar, hverrar formennsku Sigtryggur Magnason, leikskáld, gegnir, sem kom um mánuði eftir að ESA gaf út ákvörðun sína, seg- ir að henni sé ætlað að skila tillögum í formi frumvarps fyrir lok maí. Það verður hins vegar ekki lagt fram fyrr en á haustþingi, að undan- gengnum athugasemdafresti. Rekstrarfyrirkomulagið endurskoðað Á meðal þess sem starfshópurinn lagði til í skýrslu sinni er að rekstrarform Ríkis- útvarpsins verði tekið til skoðunar. Þá sé rétt að festa í lög faglega ábyrgð mennta- og menn- ingarmálaráðherra á Ríkisútvarpinu, en árið 2009 var hlutabréf ríkisins (hið eina í félaginu) flutt þaðan og til fjármálaráðuneytisins. Aukinheldur er það lagt til að dregið verði úr völdum útvarpsstjóra, sem hafi „nánast alræð- isvald varðandi dagskrá, mannaráðningar og stefnumótun“. Nefnd um tillögur starfshóps um RÚV  Fyrirhugað er að frumvarp til endurskoðaðra laga um Ríkisútvarpið verði lagt fram á haustþingi Morgunblaðið/Eggert Skipaði starfshóp Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Í athugasemd 365 miðla er vikið að þeirri ætlan mennta- og menningarmálaráðherra að notfæra sér heimild í útvarps- lögum til þess að setja reglu- gerð sem skyldi fjölmiðla til þess að sýna „mikilsverða við- burði“ í opinni dagskrá. Með þessu sé enn aukið við ósann- gjarnt samkeppnisforskot RÚV á markaði. Ennfremur séu þetta viðbrögð ráðherra við því að RÚV tókst ekki að tryggja sér sýningarrétt frá leikjum á EM í handbolta. Í ákvörðun ESA er komið inn á þetta atriði, og sagt að fjár- styrkur RÚV veiti félaginu for- skot í samkeppni um kaup á hljóð- eða sjónvarpsefni sem hægt sé að selja áfram. Þetta bitni ekki einungis á sam- keppnisaðilum RÚV hér á landi, sem verði að treysta á auglýs- inga- og áskriftartekjur, heldur komi þetta í veg fyrir að aðrir aðilar innan Evrópska efna- hagssvæðisins geti náð fótfestu á íslenskum fjöl- miðlamarkaði. Óeðlilegt SAMKEPPNISFORSKOT Morgunblaðið/Árni SæbergMorgunblaðið/ Jim Smart Morgunblaðið/Heiddi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.