Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 21

Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 21
250 km Heimildir: CIAWorld Factbook, Reuters Árið 2010 nema annað sé tekið fram Íbúafjöldi: 5,3 milljónir Flatarmál: 338.145 ferkm Verðbólga: 1,2% Landsframleiðsla á mann: 4 millj. kr. Hagvöxtur: 3,2% Atvinnuleysi: 8,4% Fjárfestingar:18,7%af landsframleiðslu Opinberar skuldir: 45,4% af landsframl. FINNLAND Í TÖLUM SKIPTING ÞINGSÆTA ÞINGKOSNINGAR Í FINNLANDI Sannir Finnar 6 Kristilegi flokkurinn 7 Vinstrabandalagið 17 Sameiningarflokkurinn 50 SAMSTEYPUSTJÓRNIN STJÓRNARANDSTAÐAN Græni flokkurinn 14 Sænski þjóðarflokkurinn 10 Jafnaðarmannaflokkurinn 45 Miðflokkurinn 51 200 sæti Leiðtogi: Mari Kiviniemi forsætisráðherra Stofnaður: 1906 Leggur áherslu á að viðhalda jöfnuði úti um allt land Vill lækka skatta á fyrirtæki Nýtur mests stuðnings í dreifbýlinu Leiðtogi: Jyrki Katainen fjármálaráðherra Stofnaður: 1918 Vill að lífeyris- aldurinn verði óbreyttur, 63 ár Vill lækka tekjuskatta, hækka fjármagns- tekjuskatt, minnka ríkisútgjöld Leiðtogi: Jutta Urpilainen Stofnaður: 1899 Hafnar lækkun lífeyrisgreiðslna og vill óbreyttan lífeyrisaldur Vill hækka skatta og auka fjárfestingar ríkisins Landið taki meiri þátt í stefnu- mótun ESB LeIðtogi: Timo Soini Stofnaður: 1995 Andvígur aðgerðum til bjargar evrunni Stefnir að því að minnka útgjöld ríkisins Miðflokkurinn Sameiningarfl. (Hægriflokkur) Jafnaðarmanna- flokkurinn Sannir Finnar HELSTU FLOKKAR Eystrasalt Helsinki F I N N L A N D EISTLAND NOREGUR N-skautsbaugur RÚSSLANDSVÍÞJÓÐ He lsi ng jab ot n Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Lítill munur er á fylgi fjögurra stærstu flokka Finnlands samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og útlit er því fyrir að þingkosningarnar þar í landi á sunnudaginn kemur verði mjög tvísýnar. Hægriflokkurinn Kokoomus, eða Sambandsflokkurinn, hefur verið fylgismestur í öllum könnunum sem gerðar hafa verið í Finnlandi síðustu mánuði. Munurinn á fylgi tveggja efstu flokkanna hefur þó oft verið mjög lítill, eða 1-2 prósentustig. Samkvæmt könnun, sem dagblaðið Helsingin Sanomat birti á þriðjudag, ætla 20,2% að kjósa hægriflokkinn Kokoomus, eða Sameiningarflokkinn. Fylgi Jafnaðarmannaflokksins var 18% og Miðflokksins 17,9%. Munur- inn á fylgi þriggja stærstu flokkanna er innan skekkjumarka, að sögn Helsingin Sanomat. Miðflokkurinn var stærsti flokkur- inn í síðustu kosningum, með 23,1%. Sameiningarflokkurinn fékk þá 22,3% og Jafnaðarmannaflokkurinn 21,4%. Mikil fylgisaukning Sannra Finna hefur vakið mesta athygli í kosninga- baráttunni. Fylgi flokksins mældist 16,9% í könnun Helsingin Sanomat, en hann fékk aðeins 4,1% í síðustu kosningum árið 2007. Finnski stjórnmálaskýrandinn Ilkka Ruostetsaari telur líklegast að Sameiningarflokkurinn og Miðflokkurinn myndi nýja ríkisstjórn eftir kosningarnar. Hann telur ólík- legt að Jafnaðarmannaflokkurinn verði í næstu ríkisstjórn nema Mið- flokkurinn gjaldi mikið afhroð. Gangi þetta eftir er líklegt að leið- togi Sambandsflokksins, Jyrki Katai- nen fjármálaráðherra, taki við for- sætisráðherraembættinu af Mari Kiviniemi, leiðtoga Miðflokksins. Stefnir í hnífjöfn úrslit í þingkosningum í Finnlandi  Líklegt að hægriflokkur fari fyrir næstu ríkisstjórn í stað Miðflokksins Reuters Fjórflokkurinn Leiðtogar fjögurra stærstu flokka Finnlands. FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2011 Tvíburar Friðriks krónprins og Maríu prinsessu voru skírðir í Kaup- mannahöfn í gær. Tvíburarnir fengu nöfnin Vincent Frederik Minik Alexander og Josefina Sofia Ivalo Mathilda. Nöfnin Minik og Ivalo eru grænlensk. Tvíburarnir fæddust 8. janúar og eru fjórðu og fimmtu í erfðaröðinni á eftir föður sínum og tveimur systkinum, Kristjáni, sem er fimm ára, og Isabellu, sem verður fjögurra ára í næstu viku. Nær 300 manns voru viðstödd skírnarathöfnina. Foreldr- arnir ganga hér með börnin í Holmens-kirkjuna í Kaupmannahöfn. Reuters Konunglegir tvíburar skírðir Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur stað- fest að hann hyggist ekki bjóða sig fram til endurkjörs þegar núverandi kjörtímabili lýkur árið 2013. Berlusconi segir að áður en hann láti af embætti ætli hann að ljúka við breytingar á dómskerfinu og stjórnarskrá landsins. Neðri deild ítalska þingsins sam- þykkti í fyrradag lagafrumvarp sem ætlað er að hraða dómsmálum á Ítalíu. Samkvæmt frumvarpinu geta réttarhöld aðeins staðið í þrjú ár þegar um er að ræða ákærur sem varða tíu ára fangelsi eða minna. Hægt verður að rétta í tvö ár til við- bótar í málum sem áfrýjað er einu sinni og þrjú og hálft ár í málum sem áfrýjað er tvisvar. Réttarhöld vegna al- varlegri lögbrota geta staðið í allt að tíu ár. Frumvarpið var samþykkt með 314 atkvæðum gegn 296 í neðri deildinni og búist er við að efri deildin sam- þykki það einnig. Evrópusambandið hefur oft gagnrýnt ítalska dómskerfið fyrir að vera of seinvirkt. Ítalskir stjórnarandstæðingar hafa hins vegar lagst gegn breytingunum og segja að markmiðið með þeim sé fyrst og fremst að bjarga forsætisráðherranum. Berlusconi hefur m.a. verið sakaður um að hafa mútað breskum lögfræðingi, David Mills, til að bera ljúgvitni og réttarhöld í því máli hófust árið 2006. Verði frum- varpið að lögum er búist við að réttarhöldin verði stöðvuð. Berlusconi ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri  Umdeilt frumvarp gæti orðið honum til bjargar í dómsmáli Silvio Berlusconi Lögreglan í Óðinsvéum í Danmörku rannsakar nú morð á hjónum sem fundust látin í skógi í gærmorgun. Hjónin höfðu verið skotin til bana og að sögn danskra fjölmiðla eru mörg skotsár á líkunum. Hjónin voru 53 og 49 ára. Börn hjónanna höfðu samband við lögreglu um morguninn þar sem foreldrar þeirra höfðu ekki komið heim eftir að hafa farið í gönguferð kvöldið áður. Leit var skipulögð að hjónunum og fundu leitarhundar þau við reiðstíg í skógi nálægt borginni. Politiken sagði að talið væri að hjónin hefðu verið skotin með skammbyssu. Haft var eftir lögregl- unni að hjónin hefðu aldrei komist í kast við lögin og ekki væri talið að annað þeirra hefði skotið hitt og síðan fyrirfarið sér. Skotvopnið hefur ekki fundist. Þá er ekki vitað hvort verð- mætum hafi verið stolið. Politiken sagði að kylfingar á golf- velli í grennd við skóginn hefðu heyrt skothvelli í gærkvöldi. Hjón myrt á kvöldgöngu í Óðinsvéum Stjórnarflokkur- inn í Rússlandi, Sameinað Rúss- land, hefur lýst yfir stuðningi við framboð Vladím- írs Pútíns for- sætisráðherra í forsetakosn- ingum sem eiga að fara fram á næsta ári. Dmítrí Medvedev forseti sagði á þriðjudag að hann myndi tilkynna fljótlega hvort hann hygðist bjóða sig fram aftur. Pútín sagði daginn eftir að hvorki hann né Medvedev hefðu útilokað forsetaframboð. Báð- ir höfðu þeir sagt að þeir myndu komast að samkomulagi um hvor þeirra byði sig fram til forseta en að undanförnu hafa komið fram vís- bendingar um að kastast hafi í kekki með þeim. Flokkurinn styður Pútín Vladímír Pútín forsætisráðherra Sannir Finnar eru álitnir til vinstri í efnahagsmálum en aðhyllast íhaldssama stefnu í samfélags- málum. Flokkurinn vill takmarka möguleika útlendinga á að flytja búferlum til Finnlands og hefur höfðað til þjóðernissinna. Sannir Finnar eru m.a. taldir njóta mikils stuðnings meðal fólks sem myndi annars ekki kjósa og verkafólks sem hefur orðið fyrir vonbrigðum með Jafnaðarmanna- flokkinn. Mið- og hægriflokkarnir í finnsku ríkisstjórninni hafa varið þátttöku Finnlands í aðstoðinni við Portúgal til að bjarga evrunni en Sannir Finnar og vinstrisinnuðu stjórnarandstöðuflokkarnir hafa lagst gegn aðstoðinni. Til vinstri í efnahagsmálum SANNIR FINNAR HÖFÐA TIL ÞJÓÐERNISSINNA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.