Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2011
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Blúshátíð í Reykjavík 2011 verður
haldin í áttunda sinn dagana 16.-21.
apríl. Að vanda verður mikið um
húllumhæ og heyrði Morgunblaðið í
undrabarninu Marquise Knox, eða
krónprinsinum frá Mississippi eins
og hann hefur stundum verið kall-
aður, en hann er einn þeirra er-
lendu gesta sem heiðra hátíðina
með nærveru sinni. Heldur hann
stórtónleika á Reykjavík Hilton
Nordica miðvikudaginn 20. apríl.
Fæddur 1991
Knox fæddist árið 1991 inn í
mikla tónlistarfjölskyldu. Það var
amma hans sem kenndi honum á
gítar en Knox pikkaði hljóðfærið þó
upp tiltölulega seint, sé tekið mið af
því umhverfi sem hann fæddist inn
í, eða þrettán ára. Hann var hins
vegar fljótur að ná tökum á hljóð-
færinu og hefur nú getið sér gott
orð sem eitt mesta náttúrubarn sem
fram hefur komið í listinni. Fyrstu
plötu sína, Manchild, gaf hann út
sextán ára gamall og hann hefur
komið fram með goðsögnum á borð
við B.B. King og Pinetop heitnum
Perkins, sem var sérlegur vinur
blúshátíðar.
„Af hverju er ég að koma til Ís-
lands?“ segir Knox með hægð.
„Tja … meginástæðan er sú að ég
reyni að spila blúsinn á eins mörg-
um stöðum og ég get. Mér bauðst
þetta og ég stökk óðar á tækifærið.“
Hreimurinn er þykkur hjá þessu
ungmenni frá suðurríkjunum; og
piltur er stóískur. Svarar spurning-
unum kurteislega og án alls oflætis.
-Þú ert af mikilli blúsfjöl-
skyldu …
„Já, ég fæddist inn í blúsinn
mætti segja. Bræður mínir,
amma … það voru allir spilandi öll-
um stundum. Þetta er í blóðinu.“
-Og hvernig þróaðist þetta svo
hjá þér?
„Ég var farinn að spila í St. Louis
og nágrenni þetta 14, 15 ára gamall.
Amma kenndi mér á gítarinn þegar
ég var 13 en ég tók mér svo tíma í
að læra almennilega á þetta sjálfur.
Svo gaf ég út fyrstu plötuna 16 ára.
Þær eru orðnar þrjár talsins og
þetta er farið að ganga ágætlega.
Ég fæ alltaf fleiri og fleiri boð um
að spila.“
Metnaður
-Þar sem þú ert fæddur inn í
blúsinn, finnst þér eins og þú hafir
jafnvel einhverjar skyldur á herð-
um, ábyrgð?
„Ég legg metnað minn í að halda
lífi í þessum blúshefðum og sér-
staklega í þeim blús sem er leikinn í
kringum Mississippi-svæðið.“
-Og hvernig er að hafa leikið með
goðsögnum eins og B.B. King?
„Stórkostlegt. Það er ólýsanlegt
að fá að leika með þeim á sama sviði
og maður fyllist auðmýkt og þakk-
læti.“
Með blúsinn í blóðinu
Krónprinsinn frá Mississippi, Marquise Knox, leikur á Blúshátíð í Reykjavík
sem hefst á morgun Amma hans kenndi honum á gítarinn er hann var 13 ára
Blámi „Ég legg metnað minn í að halda lífi í þessum blúshefðum og sér-
staklega í þeim blús sem er leikinn í kringum Mississippi-svæðið.“
AF FRAMTÍÐINNI
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Undirrituð varð þeirrar ham-ingju aðnjótandi um síðustuhelgi að sjá frumburðinn
fermast borgaralega í Háskólabíói
ásamt fríðum hópi jafnaldra sinna.
Og ef sá hópur endurspeglar það
fólk sem mun byggja Ísland fram
eftir öldinni hef ég ekki minnstu efa-
semdir um að framtíð lands og þjóð-
ar er skínandi björt.
Þarna var sumsé samankominn
helmingur þeirra 176 unglinga sem
fermdust borgaralega þennan dag
og athöfnin var meira og minna
byggð upp af atriðum fermingar-
barnanna sjálfra. Tónlistarmenn af
ýmsum toga tróðu upp, dansarar,
smásagnahöfundar, ljóðalesarar,
uppistandarar með frumsamið efni
og ræðumenn sem skiluðu sínum at-
riðum með miklum glæsibrag og
virtust ekki hika við að koma fram
fyrir þúsund áhorfendur í stærsta
sal Háskólabíós.
Atriðin voru frábær; tónlistinþannig að unun var á að hlýða,
frumsamið uppistand kallaði fram
hverja hlátursrokuna á fætur ann-
arri í salnum og gæsahúð spratt við
að horfa á dans og hlýða á ljóð og
smásögu.
Eina „aðkomuatriðið“ var ræða
Páls Óskars Hjálmtýssonar sem náði
vel eyrum gesta og ekki síst ferm-
ingarbarnanna þar sem hann brýndi
þau til sjálfstæðis í hugsun, ekki síst
gagnvart staðalímyndum sem blasa
við þeim úr fjölmiðlum, kvikmynd-
um, af netinu og allt í kringum þau.
Hreint frábært innlegg frá mikilli
fyrirmynd.
Fermingarfræðslan sjálf var tilfyrirmyndar – börnin ræddu
allt frá samskiptum unglinga og full-
orðinna til mismunandi lífsviðhorfs,
ábyrgðar, hamingju og mannrétt-
inda svo fátt eitt sé nefnt og var ýtt
undir gagnrýna hugsun og að þora
að standa með samvisku sinni.
Þetta var gert á þann hátt að
fermingarbarnið á heimili undirrit-
aðrar var hæstánægt með nám-
skeiðið og vildi ekki fyrir nokkurn
mun missa úr tíma, jafnvel þótt það
kallaði á strætóferð niður í miðbæ
eftir skóla einu sinni í viku um tólf
vikna skeið.
Þetta var flott veganesti fyrir
flotta krakka sem auðvelt er að fyll-
ast stolti yfir.
Kynslóð sem hægt er að vera stolt af
»… börnin rædduallt frá samskiptum
unglinga og fullorðinna
til mismunandi lífs-
viðhorfs, ábyrgðar,
hamingju og mannrétt-
inda …
Ljósmynd/Kristinn Theódórsson
Borgaraleg ferming Börnin tóku við skírteinum til staðfestingar því að þau hafi sótt fermingarnámskeiðið.
Haldnir verða þrennir stór-
tónleikar á Hilton Reykjavík Nor-
dica, þriðjudags-, miðvikudags-
og fimmtudagskvöld. Björgvin
Halldórsson, Páll Rósinkranz &
Blúsmafían leika fyrsta kvöldið,
Marquise Knox á miðvikudeg-
inum og Vasti Jackson & The
Blue Ice band á fimmtudeginum.
Mun fleiri tónleikar verða á dag-
skrá en heildardagskrá má nálg-
ast á Blues.is.
Dagskráin
BLÚSHÁTÍÐ 2011
Það verður mikið stuð á
skemmtistaðnum Faktorý um
helgina. Í kvöld kl. 23 kemur Pétur
Ben fram með hljómsveit sinni og
verður nýtt efni leikið í bland við
eldra. Tónlistarmaðurinn Eberg
verður sérstakur gestur en Pétur
og Eberg eru að leggja lokahönd á
breiðskífu. Kippi kanínus kemur
einnig fram og leikur efni af vænt-
anlegri plötu og mun auk þess leika
á reiknivél í hljómsveit Péturs. Sig-
tryggur Baldursson, Óttar Sæ-
mundsen og Þorbjörn Sigurðsson
munu einnig koma fram. Á morgun
verður svo boðið upp á „Suð-
urríkjatrylling“ með hljómsveit-
unum Brother Grass og Illgresi.
„Ofurhress blúgrasslög, hugljúfir
suðurríkjasálmar, banjósóló,
þvottabalasóló og allt þar á milli“,
eins og því er lýst.
Morgunblaðið/Golli
Pétur Ben, Brother
Grass o.fl. á Faktorý
102 þekktir Íslendingar taka
þátt í smokkaherferð í ár og hafa
verið teknar ljósmyndir af þeim að
bregða á leik með smokka. Svipar
myndunum til mynda sem birtar
voru á veggspjöldum í herferð árið
1986 sem fjöldi þekktra Íslendinga
tók þátt í. Meðal þeirra sem taka
þátt í herferðinni í ár er leikkonan
Nína Dögg Filippusdóttir.
102 Íslendingar minna
á mikilvægi smokksins
til að upplifa
blúsinn í allri
sinni dýrð!
Skannaðu kóðann