Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2011
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Efnt verður til uppboðs á samtíma-
myndlist á þriðjudag í næstu viku í
Þjóðmenningarhúsinu til styrktar
Náttúrusjóðnum Auðlind og sýning á
verkunum verður opnuð í i8 galleríi í
dag.
„Það verða boðin upp 38 verk og
eru þau öll á sýningunni,“ segir Börk-
ur Arnarson, sem rekur i8. „Þetta eru
allt listamenn og verk sem við höfum
valið og allir listamennirnir hafa verið
örlátir og gefið verkin til málefnisins.
Sumir þeirra hafa gert þau sér-
staklega fyrir uppboðið, þar á meðal
Lawrence Weiner og Eggert Pét-
ursson.“
Mörg verk sýnd í fyrsta skipti
Verkin eiga það sameiginlegt að
heyra til samtímalistar. „Þegar mað-
ur biður fólk um að gefa verk, þá er
ekki hægt að fara fram á að velja þau
líka. En við vorum fyrst og fremst að
leita að spennandi verkum, sem
tengjast ekkert endilega málefninu.
Þetta snýst fyrst og fremst um vinnu
listamannanna, að þetta séu góð verk
frá þeim öllum og ég held að við get-
um staðið við það.“
Úr þessu verður fjölbreytileg sýn-
ing, enda listamennirnir ólíkir eins og
formin sem þeir vinna með. „Mörg
verkanna hafa aldrei verið sýnd áður,
þar á meðal eftir Magnús Sigurðar-
son, Davíð Örn Halldórsson, Kees
Visser, Katrínu Sigurðardóttur, Roni
Horn, Ragnar Axelsson, Egil Sæ-
björnsson, Darra Lorenzen, Karlottu
Blöndal og Þór Vigfússon. En svo eru
eldri verk í bland, til dæmis eftir
Dieter Roth og Rúrí.“
Þá er á sýningunni lampi sem
hannaður er af Ólafi Elíassyni. „Hann
er ekki í upplagi, heldur framleiddur
af Zumtobel, þýsku ljósafyrirtæki og
nefnist Starbrick. Lampinn hefur
hvorki verið sýndur né seldur hér á
landi áður og Ólafur hefur gefið hann
til uppboðsins. Þetta er dýrt ljós,
kostar hingað komið með flutnings-
gjöldum yfir 600 þúsund, en fyrsta
boð er 350 þúsund. Af því að þetta er
góðgerðaruppboð, þá er ákveðið lág-
marksboð á flestum verkanna.“
Dýrast 1,3 milljónir
Matsverðið er fjölbreytt á verk-
unum sem boðin verða upp í Þjóð-
menningarhúsinu á þriðjudag.
„Ég held að ódýrasta verkið sé
metið á 50 þúsund og fyrsta boð er 30
þúsund, en dýrasta verkið er metið á
1,3 milljónir og fyrsta boð er 600 þús-
und,“ segir Börkur.
Í kynningu segir að þetta sé fyrsta
uppboð til styrktar íslenskri náttúru
og eingöngu boðin upp samtímalist.
Sýningin verður opin frá 13-17 frá
föstudegi til þriðjudag eða fram að
uppboði, sem hefst kl. 18 og er það
Náttúrusjóðurinn Auðlind sem sér
um það. Uppboðsskráin mun liggja
frammi alla dagana.
Samtímalist boðin upp
fyrir íslenska náttúru
38 verk sýnd,
sem boðin verða
upp á þriðjudag
Morgunblaðið/Kristinn
Uppboð Börkur Arnarson við nokkur af verkunum sem verða til sýnis í i8
galleríi og boðin upp á þriðjudag.
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
Kvöldstundmeð Janis Joplin
Lau 30/4 kl. 20:00
Óperudraugurinn
Lau 7/5 kl. 20:00
Draumaraddir norðursins, Stúlknakór Norðurlands vestra og Ópera
Skagafjarðar
Listahátíðin í Reykjavík - Rebbasaga
Lau 28/5 kl. 14:00 Lau 28/5 kl. 17:00
Frönsk barnasýning
Listahátíðin í Reykjavík - Bændur flugust á
Sun 29/5 kl. 20:00
Íslendingasögur í óvæntu ljósi!
Listahátíðin í Reykjavík - Strengur
Mán 30/5 kl. 20:00
Tómas R. Einarsson og Matthías Hemstock
Listahátíðin í Reykjavík - Sex pör
Þri 31/5 kl. 20:00
Frumflutningur sex íslenskra dans- og tónverka
Listahátíðin í Reykjavík - Tony Allen og Sammi
Mið 1/6 kl. 21:00
Tony Allen og Samúel Jón Samúelsson Big Band
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
PERLUPORTIÐ - sprellfjörug óperuskemmtun!
Lau 16/4 kl. 20:00
Hádegistónleikar ungra einsöngvara með Maríusi
Sverrissyni
Þri 19/4 kl. 12:15
Drottningar og draugar á síðustu hádegistónleikum vetrarins!
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið - sýningum lýkur í vor)
Fös 29/4 kl. 20:00 Ö
Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið
Brúðuheimar í Borgarnesi
530 5000 | hildur@bruduheimar.is
GILITRUTT
Sun 17/4 kl. 14:00 Lau 23/4 kl. 14:00
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Náttúrusjóðurinn Auðlind hefur að markmiði að efla
og varðveita náttúruarfinn sem landið geymir og
styrkja endurheimt landgæða með höfuðáherslu á
votlendi. Einnig er það yfirlýst stefna sjóðsins að
leggja haferninum lið.
„Þetta er allt að bresta á og maður er kominn með
léttan fiðring,“ segir Þórólfur Árnason, sem situr í
stjórn Auðlindar og mun stýra uppboðinu. „Ég hef
verið sjónarvottur á fiskmörkuðum og hyggst reyna
að blanda inn skynsemi þaðan með fagmennsku lista-
verkakaupenda að leiðarljósi, þannig að þessi góðu
listaverk verði auðíbjóðanleg og uppboðið skilvirkt í Þjóðmenningarhús-
inu.“
Hann segir að Guðmundur Páll Ólafsson sé frumkvöðullinn að fé-
lagsskapnum, en Vigdís Finnbogadóttir og Salvör Jónsdóttir hafi fljót-
lega komið að starfinu sem hugmyndasmiðir. Nú leggja margir þessu
góða málefni lið, að sögn Þórólfs, allt sé unnið í sjálfboðavinnu og yfir-
byggingin engin.
Vilja varðveita náttúruarfinn
ÁGÓÐI UPPBOÐS RENNUR TIL NÁTTÚRUSJÓÐSINS AUÐLINDAR
Þórólfur Árnason
ÞJÓÐLEIKHÚSI
SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS
Ð
Bjart með köflum (Stóra sviðið)
Fös 15/4 kl. 20:00 3.sýn. Lau 7/5 kl. 20:00 8.sýn. Lau 4/6 kl. 20:00
Lau 16/4 kl. 20:00 4.sýn. Fös 13/5 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00
Fim 28/4 kl. 20:00 5.sýn. Lau 14/5 kl. 16:00
Br.sýn.tími
Fös 10/6 kl. 20:00
Fös 29/4 kl. 20:00 6. sýn. Fim 19/5 kl. 20:00
Fös 6/5 kl. 20:00 7.sýn. Fös 3/6 kl. 20:00
Allt að verða uppselt í apríl og maí. Sýningar í júní komnar í sölu.
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Mið 27/4 kl. 20:00 Fim 5/5 kl. 20:00 Mið 18/5 kl. 20:00
Lau 30/4 kl. 20:00 Mið 11/5 kl. 20:00
Mið 4/5 kl. 20:00 Fim 12/5 kl. 20:00
Fjórar og hálf stjarna í Mbl. I.Þ og DV J.V.J
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Sun 17/4 kl. 14:00 Sun 1/5 kl. 17:00 Sun 15/5 kl. 14:00
Sun 17/4 kl. 17:00 Sun 8/5 kl. 14:00 Sun 22/5 kl. 14:00
Sun 1/5 kl. 14:00 Sun 8/5 kl. 17:00
Fálkaorður og fjör - sýning fyrir alla fjölskylduna!
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Sun 17/4 kl. 15:00 Sun 1/5 kl. 15:00 Síð.sýn.
Yndisleg sýning fyrir yngstu áhorfendurna. Síðasta sýning 1. maí!
Brák (Kúlan)
Fös 15/4 kl. 20:00 Síð.sýn. Fim 12/5 kl. 20:00 Aukasýn. Sun 15/5 kl. 20:00 Aukasýn.
Tvær aukasýningar í maí komnar í sölu!
Hedda Gabler (Kassinn)
Lau 16/4 kl. 20:00 Lau 30/4 kl. 20:00
Sun 17/4 kl. 20:00 Sun 1/5 kl. 20:00 Síð.sýn.
Síðasta sýning 1. maí!
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Sun 17/4 kl. 20:00 Lau 7/5 kl. 19:00 Lau 28/5 kl. 19:00
Fös 29/4 kl. 19:00 Sun 8/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00
Fös 29/4 kl. 22:00 aukasýn Fös 13/5 kl. 19:00 Fös 3/6 kl. 20:00
Lau 30/4 kl. 19:00 Fös 13/5 kl. 22:00 aukasýn Lau 4/6 kl. 20:00
Lau 30/4 kl. 22:00 Sun 15/5 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00
Fim 5/5 kl. 20:00 Fim 19/5 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00
Fös 6/5 kl. 19:00 aukasýn Fös 20/5 kl. 19:00
Tveggja tíma hláturskast...með hléi
Strýhærði Pétur (Litla sviðið)
Sun 17/4 kl. 20:00 7.k Lau 30/4 kl. 20:00 10.k Lau 7/5 kl. 20:00
Fim 28/4 kl. 20:00 8.k Fim 5/5 kl. 20:00
Fös 29/4 kl. 20:00 9.k Fös 6/5 kl. 20:00
Krassandi ruslópera. Áhorfendur standa á sýningunni. Ekki við hæfi ungra barna.
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Mið 20/4 kl. 20:00 forsýn Sun 8/5 kl. 20:00 8.k Sun 29/5 kl. 20:00 17.k
Þri 26/4 kl. 20:00 forsýn Fös 13/5 kl. 20:00 9.k Þri 31/5 kl. 20:00 18.k
Mið 27/4 kl. 20:00 frumsýn Sun 15/5 kl. 20:00 10.k Mið 1/6 kl. 20:00 19.k
Fim 28/4 kl. 20:00 2.k Þri 17/5 kl. 20:00 11.k Fim 2/6 kl. 20:00 20.k
Fös 29/4 kl. 20:00 aukasýn Mið 18/5 kl. 20:00 12.k Fös 3/6 kl. 20:00 21.k
Lau 30/4 kl. 20:00 3.k Fim 19/5 kl. 20:00 aukasýn Lau 4/6 kl. 20:00 22.k
Þri 3/5 kl. 20:00 4.k Fös 20/5 kl. 20:00 13.k Sun 5/6 kl. 20:00
Mið 4/5 kl. 20:00 5.k Sun 22/5 kl. 20:00 14.k Þri 7/6 kl. 20:00
Fim 5/5 kl. 20:00 aukasýn Þri 24/5 kl. 20:00 15.k Mið 8/6 kl. 20:00
Fös 6/5 kl. 20:00 6.k Mið 25/5 kl. 20:00 16.k
Lau 7/5 kl. 20:00 7.k Lau 28/5 kl. 20:00 aukasýn
Samvinnuverkefni Borgarleikhússins og Vesturports
Afinn (Stóra sviðið)
Lau 16/4 kl. 20:00 Fim 28/4 kl. 20:00
Óumflýjanlegt framhald Pabbans
Nýdönsk í nánd (Stóra sviðið)
Fös 15/4 kl. 19:00 Fös 15/4 kl. 22:00
Sáldrandi brjáli sem aldrei fyrr
Eldfærin (Stóra sviðið)
Lau 16/4 kl. 13:00 Sun 17/4 kl. 14:30 Sun 1/5 kl. 13:00
Lau 16/4 kl. 14:30 5.k Lau 30/4 kl. 13:00 Sun 1/5 kl. 14:30
Sun 17/4 kl. 13:00 Lau 30/4 kl. 14:30 Lau 7/5 kl. 13:00
Sögustund með öllum töfrum leikhússins
Nýdönsk á Stóra sviðinu í kvöld!
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Farsæll farsi (Samkomuhúsið)
Lau 16/4 kl. 19:00 15.sýn Fim 21/4 kl. 20:00 16.sýn Lau 23/4 kl. 20:00 17.sýn
Síðustu sýningar
Í sannleika sagt (Samkomuhúsið)
Fös 15/4 kl. 20:00 Ný sýn
Uppistand með Pétri Jóhanni
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur