Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 24

Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2011 Yfir þrjár milljónir spila rugby reglulega í heiminum, karlar, konur og börn á aldrinum 6-60 ára. Leikurinn gerir margskonar kröfur til leikmanna og hentar hann því vel fyrir fólk af öllum stærðum og gerðum. Baráttan um að halda boltanum er eitt af lykileinkennum leiksins. Þessi barátta er gegnumgangandi allan leikinn með það meg- inmarkmið að koma boltanum nær endalínu mótherjans og á endanum ná stigum með því að koma boltanum niður á jörð fyrir aftan endalínu. Það er þó hægt að fá stig með því að sparka bolt- anum milli stanga sem standa upp frá marki auk þess að tvö stig fást við sams- konar spark eftir snertimark. Ekki er þó ætlunin að fara ít- arlega yfir reglur leiksins á þessum vettvangi. Eitt er það sem er rauður þráður í gegnum allar reglur og lög er varða þenn- an leik, en það er ákveðið heið- ursmannasam- komulag sem ein- kennir ekki einungis spilamennskuna, heldur alla um- gjörð í kringum leikinn. Þessu er lýst ágætlega og kannski á örlítið spaugilegan hátt með orðum Henry Blaha „Rugby is a beastly game played by gentlemen; soc- cer is a gentleman’s game played by beasts; football is a beastly game played by beasts.“ Það var árið 1823, að William Webb Ellis gerðist svo djarfur að grípa bolta, í þess tíma afbrigði af fót- boltaleik og hlaupa með hann í mark. Þetta gerðist í bænum Rugby á Englandi og er talið vera upphafið að fjórðu stærstu hópíþrótt í heimi. Leikurinn hef- ur þróast í áranna rás en hefur þó haldið upphaflega anda sínum og hefðum að mestu. Hér á Ís- landi hefur þessi leikur aldrei náð fótfestu, sem sætir furðu þar sem allar nágrannaþjóðir okkar eru virkir þátttakendur í þessari íþrótt og eru virt Norðurlanda- mót haldin reglulega. Fyrir um ári í skugga yfirþyrmandi Ice- save-umræðu hófu nokkrir Ís- lendingar og Bretar að hittast einu sinni í viku að æfa rugby. Fljótlega varð ljóst að áhuginn var þess eðlis að æfingar urðu tvær á viku, auk þess að nokkuð fjölgaði félagsmönnum. Markið var sett hátt og var rugby-lið sent á mót í Kaupmannahöfn í ágúst sl. með ágætum árangri. Unnum við þrjá leiki af sex spil- uðum. Þá varð það ljóst að við ætluðum okkur að koma rugby inn í íslenska íþróttamenningu. Mikill áfangi náðist þegar íþróttin var samþykkt af Íþrótta- sambandi Íslands og er nú Rugby-félag Reykjavíkur innan Íþróttabandalags Reykjavíkur og er því orðið til fyrsta formlega rugby-lið á Íslandi. Árið fram- undan verður enn viðburðaríkara en í fyrra. Rugby-lið frá Phoenix í Bandaríkjunum kemur hingað til lands og verður leikur milli þessara tveggja liða haldinn á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna. Einnig verður farið á mót sam- bærilegt því sem farið var á í fyrra auk annarra viðburða hér á landi. Framtíð rugby á Íslandi er björt og hvet ég alla til að kynna sér íþróttina og fylgjast með framþróun hennar. Uppbygging rugby á Íslandi Eftir Kristin Þór Sigurjónsson »Framtíð rugby á Íslandi er björt og hvet ég alla til að kynna sér íþróttina og fylgjast með framþróun hennar. Kristinn Þór Sigurjónsson Höfundur starfar sem sérfræðingur í viðskiptagreind og er varaformaður í Rugby-félagi Reykjavíkur. Samfylkingin hefur nú tekið þátt í tveim- ur ríkisstjórnum, fyrst með Sjálfstæð- isflokknum og nú með Vinstri grænum. Það voru mistök að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Ég var andvígur aðild Samfylkingar að þeirri ríkisstjórn og skrifaði gegn henni áður en hún var mynduð. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur lýst því yfir, að þátttaka Samfylkingar í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum 2007 hafi verið mistök. En hvað með þá rík- isstjórn sem nú situr, ríkisstjórn Samfylkingar og VG? Er sú rík- isstjórn að öllu leyti eins og stjórn, sem við jafnaðarmenn viljum? Nei, það vantar mikið á, að svo sé. Að vísu verður að viðurkenna, að rík- isstjórnin er mynduð við erfiðari aðstæður en áður hafa þekkst í sögu íslenska lýðveldisins. Fall bankanna haustið 2008 og hrun ís- lensks efnahagslífs í kjölfarið eru aðstæður, sem ekki hafa þekkst áður frá lýðveldisstofnun. En hefur núverandi ríkisstjórn gætt hagsmuna láglaunafólks og lífeyrisþega betur en ríkisstjórn undir forystu Sjálfstæðisflokksins hefði gert? Ég minnist þess, að þegar hrunið varð töldu for- ustumenn Samfylkingarinnar mjög mikilvægt, að Samfylkingin yrði í ríkisstjórn við endurreisn efna- hagslífsins til þess að gæta hags- muna launafólks og þeirra, sem minna mega sín. En mér er til efs, að önnur ríkisstjórn hefði farið verr með lífeyrisþega en núverandi ríkisstjórn hefur gert. Allar kröfur og óskir Landssambands eldri borgara hafa verið hunsaðar af stjórnvöldum. Í félagsmálaráðherratíð Árna Páls Árnasonar var ráðist gegn kjörum eldri borgara og öryrkja með mjög litlum fyrirvara 1. júlí 2009. Tekju- tengingar voru auknar (skerðing tryggingabóta aukin), tekjutrygg- ing skert og greiðslur úr lífeyr- issjóði látnar skerða grunnlífeyri almannatrygginga þannig, að margir lífeyrisþegar misstu sínar bætur frá almannatryggingum (5750 lífeyrislegar urðu fyrir kjaraskerðingu af þessum sökum). Lífeyrir 27780 aldraðra og öryrkja lækkaði vegna skerðingar tekju- tryggingar. Einmitt um sama leyti og ráðist var gegn kjörum aldraðra kom til framkvæmda kauphækkun lág- launafólks en hún hafði engin áhrif á kjör lífeyrisþega. Þeir fengu enga hækkun þrátt fyrir kaup- hækkun launþega. Frá ársbyrjun 2009 til ársloka 2010 hækkuðu laun láglaunafólks um 16% en lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkaði ekki um eina krónu á þessu tímabili. Er það eðlilegt, að ríkisstjórn jafnaðarmanna standi þannig að málum? Ég segi nei. Ég efast um, að íhaldsstjórn hefði komið verr fram við lífeyrisþega. M.ö.o.: Ríkisstjórnin hefur ekki gætt hagsmuna lífeyrisþega nægilega vel. Hagsmuna þeirra, sem njóta lágmarks- framfærsluuppbótar, hefur verið gætt sæmilega. En aðrir lífeyrisþegar hafa verið látnir sitja á hakanum. Þeir hafa mátt sæta kaupmáttarskerðingu. Hópur þeirra lífeyrisþega, sem njóta lág- marksframfærslutryggingar er mjög lítill. Stefnan í skattamálum hefur hins vegar verið mér að skapi. Skattar hafa verið hækkaðir á há- tekjufólki og hjá þeim, sem hafa góðar tekjur en verið lækkaðir eða látnir standa í stað hjá þeim, sem hafa lágar tekjur. Hér fer rík- isstjórn Samfylkingar og VG öðru- vísi að en íhaldsstjórnir fyrri ára. Stjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknar lækkuðu skatta á há- tekjufólki en hækkuðu þá á lág- tekjufólki. Það má því segja, að núverandi stefna í skattamálum hafi verið í anda jafnaðarstefnu. Í stórum dráttum má segja, að rík- isstjórnin hafi staðið vörð um menntakerfið og heilbrigðiskerfið. Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hefur að vísu verið tilfinnanlegur og m.a. leitt til þess að hjúkr- unarrýmum hefur fækkað um 44 á sl. ári. Það gengur í berhögg við stefnu Samfylkingarinnar um fjölgun hjúkrunarrýma. Endurreisn efnahagslífsins hefur gengið nokkuð vel hjá ríkisstjórn- inni. En sennilega hefðu allar rík- isstjórnir staðið svipað að endur- reisninni. Það er einkum í velferðarmálum, sem mismunandi stefna stjórnmálaflokkanna skiptir máli. Vextir hafa stórlækkað og eru stýrivextir Seðlabankans nú komnir niður í 4%.Verðbólgan hef- ur snarlækkað og er nú komin nið- ur fyrir 2%. Mikill árangur hefur náðst í ríkisfjármálum. Halli hefur minnk- að mikið. En það sem verst hefur gengið í viðreisn efnahagslífsins er að vinna gegn atvinnuleysinu. At- vinnuleysið er nú 8,6%. 14000 manns ganga atvinnulaus. Það gengur sorglega hægt að byggja upp nýja atvinnustarfsemi. Á því verður að ráða bót. Samfylkingin hefur villst af leið. Kjörtímabil al- þingis og ríkisstjórnarinnar er hálfnað. Enn getur Samfylkingin bætt úr því sem aflaga hefur farið. Hún getur bætt velferðarkerfið, hækkað lífeyri aldraðra og öryrkja og sýnt, að hún sé sannur jafn- aðarmannaflokkur. Fjármál rík- isins eru nú betri en áætlað hafði verið og við höfum efni á því að bæta velferðarkerfið. Ég er ekki alveg ánægður með Samfylkinguna það sem af er kjörtímabilinu. Mér finnst hún hafa villst af leið. Enn hefi ég þó ekki minnst á stærsta kosningamál Samfylking- arinnar fyrir síðustu þingkosn- ingar, þ.e. kvótamálið, fyrning- arleiðina, sem Samfylkingin lofaði að fara. Ef Samfylkingin stendur ekki við það kosningaloforð getur hún pakkað saman og farið úr stjórn. Er Samfylkingin á réttri leið? Eftir Björgvin Guðmundsson »Enn getur Samfylk- ingin bætt úr því sem aflaga hefur farið. Hún getur bætt velferð- arkerfið, hækkað lífeyri aldraðra og öryrkja. Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur. Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500 www.flis.is • netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið Eyrnalokkagöt sími 551 2725 - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is–– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS MEÐAL EFNIS: Bændaskógrækt Þjóðhagar sem smíða úr skógunum Nytjar úr skógum Sjálfbærni Græn geðrækt – skógar og lýðheilsa Skógaruppeldi í skólastarfi Iðnhönnun og arkitektúr Erfðaefni í skógrækt Landshlutaverkefnin í skógrækt Milljón plöntur Skógræktarfélögin Gróðarstöðvarnar NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 14 miðvikudaginn 20. apríl. SKÓGRÆKT Alþjóðlegt ár skóga 2011SÉ RB LA Ð Morgunblaðið gefur út sérblað um Skógrækt tileinkað Alþjóðlegu ári skóga 2011 föstudaginn 29. apríl. Verkefnið ALÞJÓÐLEGT ÁR SKÓGA leggur okkur Íslendingum til mikilvæga hugmyndafræði og hvatningu þar sem áhersla er lögð sjálfbærni, nýsköpun og vistvæna þróun allra skóglenda. Agnes Erlingsdóttir agnese@mbl.is Sími 569 1146

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.