Morgunblaðið - 15.04.2011, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Sigríður Friðjónsdóttir, vararíkis-
saksóknari og saksóknari Alþingis í
málinu gegn Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, segir að
vonast sé til þess að hægt verði að
senda landsdómi málið öðrum hvor-
um megin við páskana. Hún og hinir
tveir starfsmenn embættisins séu
búin að afgreiða tölvupóstana en séu
nú að vinna í skýrslum rannsóknar-
nefndar Alþingis sem fara þurfi yfir.
„Það er kannski orðið hæpið að
þetta náist fyrir páska,“ segir Sigríð-
ur. „Þær eru alls um 3.700 blaðsíð-
urnar í skýrslunum, við ætlum að
vinsa úr það sem máli skiptir og það
tekur sinn tíma.
Stundum er fyrir hendi skýrsla
um mann og hún er yfir 100 síður en
það sem okkur varðar er bara tvær
til þrjár síður. Við erum að vinna í
þessu núna.“
Hún segir að vel hafi verið haldið
utan um öll gögnin, verið sé að
skanna þau og skýra og þetta sé heil-
mikil handavinna. Öll undirbúnings-
vinna fyrir málið þurfi að vera mjög
vönduð áður en gögnin séu fjölfölduð
handa 15-menningunum sem skipa
landsdóm auk sækjanda og verj-
anda. Ef villur fyndust yrði dýrt að
fjölfalda gögnin á ný.
Þegar Sigríður telur málið vera
fullrannsakað sendir hún ákæruna
til forseta landsdóms. Forsetinn þarf
síðan að gefa út stefnu og birta með
fyrirvara, minnst þrjár vikur þurfa
að líða eftir birtinguna áður en málið
er þingfest.
Skipunartími núverandi dómara í
landsdómi rennur út í maí. Til þess
að komast hjá því að Alþingi kjósi
aftur í dóminn, sem væri afar hæpið,
varla eðlilegt að kærandi geti sjálfur
valið dómendur, þarf að setja lög um
að skipunartíminn framlengist, þ.e.
núverandi landsdómur klári málið.
Tillagan hefur ekki enn verið af-
greidd á þingi.
Ákæra varla fyrir páska
Sigríður Friðjónsdóttir segir að nú sé farið yfir skýrslur rannsóknarnefndar
Alþingi hefur ekki enn afgreitt lög um nauðsynlegar breytingar á landsdómi
Morgunblaðið/Kristinn
Allir mættir Landsdómur kemur saman á fyrsta fundi í sögu landsins.
Sólfellið var á miðvikudag flutt á framtíðar-
stað sinn við Suðurbugtina í gömlu höfninni í
Reykjavík.
Húsið, sem áður stóð á athafnasvæði Strætó
á Kirkjusandi, var endurbyggt á slippsvæðinu
og því ekki langt að fara með það. Nokkur
vinna er þó eftir við að ganga frá húsinu að
utan, reisa viðbyggingu og innrétta. Minja-
vernd ehf. á húsið og hefur unnið að fram-
kvæmdum við það.
Nú styttist í að framkvæmdir hefjist við nýj-
ar flotbryggjur í Suður- og Norðurbugt en
einnig verður komið fyrir nýrri flotbryggju á
Akranesi. Að auki verður aðstaða skútueig-
enda í Austurbugt bætt, en miklar fram-
kvæmdir hafa staðið yfir á lóð Hörpu og
næsta nágrenni.
sisi@mbl.is
Sólfellið komið á sinn stað
Morgunblaðið/Kristinn
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist ekki hafa
fengið neina ósk frá sjávarútvegsráðuneytinu eða öðrum
um að leiðrétta fréttilkynningu sem Evrópuþingið sendi
frá sér. Hann hafi ekki einu sinni séð þetta plagg.
Þar sagði m.a. að Íslendingar áskildu sér í aðildarvið-
ræðum að stjórn sjávarútvegsmála yrði „að hluta til“ hér
á landi ef þjóðin gengi í Evrópusambandið. Jón Bjarna-
son sjávarútvegsráðherra mótmælti í liðinni viku fullyrð-
ingunni í tilkynningu Evrópuþingsins og sagði ljóst að Ís-
lendingar krefðust þess að hafa áfram full yfirráð sjálfir í
þessum efnum.
„Sjálfur hef ég nú ekki lagt það í vana minn að elta ólar
við fréttatilkynningar, þarna geta einhverjum blaðafull-
trúa hafa verið mislagðar hendur,“ segir Össur. „Þegar
ég hef rætt við Evrópusambandið, m.a. á fyrstu ríkjaráð-
stefnunni þar sem ég flutti ræðu sem birt var opinber-
lega, er mjög fast haldið á sjónarmiðum Íslendinga.
Hvergi er hvikað frá meirihlutaáliti utanríkismálanefnd-
ar Alþingis.“ kjon@mbl.is
Haldið fast á sjónarmiðum
Íslands í ESB-viðræðum
Morgunblaðið/RAX
Afli Lögð er áhersla á að Íslendingar stýri sjálfir fisk-
veiðum sínum ef þeir ganga í Evrópusambandið.
Össur telur villu hafa slæðst
í tilkynningu um sjávarútveg
Fallegar
gjafaumbúðir
Hentar öllum
Gildir hvar sem er
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
Gjafakortið sem
gildir alls staðar
Þú velur upphæðina en viðtakandinn velur gjöfina.
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Opinbera hlutafélagið Isavia ætlar
að áfrýja dómi sem fyrirtækið hlaut
vegna framkomu fyrirtækisins í
garð konu
sem kvart-
aði undan
kynferðis-
legri áreitni
yfirmanns
síns. Í gær gáfu vitni í málinu
skýrslu fyrir Héraðsdómi Reykja-
ness og ætlar Isavia að leggja þá
vitnisburði fram með öðrum máls-
gögnum til Hæstaréttar.
Dómsmálið beinist ekki að yfir-
manninum sem áreitti konuna kyn-
ferðislega í vinnuferð í sumarbú-
stað, skv. niðurstöðu dómsins,
heldur að Isavia. Var fyrirtækið
m.a. dæmt fyrir að starf konunnar
hefði ítrekað verið rýrt að henni for-
spurðri, eftir að hún lagði fram
kvörtunina. Þá hefði Isavia brotið
gegn skyldum sínum sem vinnuveit-
andi.
Konan sem fyrir áreitinu varð gaf
skýrslu fyrir héraðdómi þegar málið
var þar til meðferðar í byrjun árs en
Isavia kallaði hvorki yfirmann kon-
unnar né annan mann sem var í bú-
staðnum fyrir dóminn.
Isavia byggði þó málsvörn sína
m.a. á því að yfirmaðurinn hefði
ekki sýnt af sér kynferðislegt áreiti í
garð konunnar. Maðurinn hefði
kannast við háttsemina sem hún
lýsti en neitað að í henni hefði falist
kynferðislegt áreiti.
Neitaði að ákvörðun lægi fyrir
Dómurinn var kveðinn upp 9.
febrúar. Af og til frá því dómurinn
féll hefur Morgunblaðið spurt upp-
lýsingafulltrúa Isavia, Hjördísi Guð-
mundsdóttur, hvort ákvörðun hafi
verið tekin um áfrýjun en þar til í
gær var því neitað. Síðast var Hjör-
dís spurð að þessu í tölvupósti í
fyrradag, miðvikudaginn 13. apríl. Í
tölvupósti frá Hjördísi sama dag
segir hún að fyrirtækið hafi ekki
tekið ákvörðun um áfrýjunina og
vísaði hún til þess að fyrirtækið
hefði þrjá mánuði frá dómsupp-
kvaðningu til þess.
Vitnamálið var á dagskrá degi eft-
ir að Hjördís gaf þessi svör eða í
gær, 14. apríl. Í samtali við Morg-
unblaðið í gær sagði Hjördís að
Isavia hefði tekið ákvörðun um að
áfrýja málinu. Hún var spurð um
hvenær sú ákvörðun hefði verið tek-
in en hún svaraði því ekki.
Isavia
ætlar að
áfrýja
Yfirmaður ekki
kallaður fyrir dóm