Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Frábært kjólaúrval yfir 120 tegundir Nýjar vörur Verð 8.900 kr. Margir litir Sendum í póstkröfu Bæjarlind 6, sími 554 7030 Opið laugard. kl. 10-16 Eddufelli 2, sími 557 1730 Opið laugard. kl. 10-14 www.rita.is www.gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar ÚRVAL AF SUMARBOLUM Laugavegi 84 • sími 551 0756 Sjá sýnisho rn á www.l axdal.i s Laugavegi 63 • S: 551 4422 GLÆSILEGUR FERÐAFATNAÐUR vattjakkar - vesti - gallabuxur - bolir www.birkiaska.is Birkilauf- Betulic Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. ÚR BÆJARLÍFINU Óli Már Aronsson Hella Knattspyrnufélag Rangæinga (KFR) stóð fyrir mikilli knatt- spyrnuhátíð á íþróttavellinum á Hellu í vikunni. Allir yngri flokkar félagsins, sem nær yfir alla Rang- árvallasýslu, máttu mæta hjá knatt- spyrnuþjálfurum KFR í ýmiss kon- ar knattþrautir. Hátt í 100 krakkar nýttu sér þetta og stunduðu bolta- íþróttir af miklum krafti síðdegis og síðan var útigrillað og haldin pylsu- veisla í boði SS. Þar tóku ungmenn- in hraustlega til matar síns.    Annar knattspyrnuviðburður tók við um kvöldið á Helluvellinum þar sem KFR tók á móti HK í fyrstu umferð Valitor-bikarkeppn- innar í meistaraflokki. HK spilar í fyrstu deild, en KFR í þeirri þriðju, þannig að um frekar ójafnan leik var að ræða, sem lauk með sigri HK 4-1. Að sögn formanns KFR hafa hans menn aldrei spilað á móti sterkara liði og höfðu þeir ómælda ánægju af þessari viðureign þrátt fyrir tapið.    KFR er ungt félag á landsvísu, stofnað 1997 af hópi manna sem taldi brýna þörf á að samræma knattspyrnuiðkun í Rangárþingi, en hún hafði farið fram áður í nokkrum minni ungmennafélögum. Mikil gróska er í starfi félagsins og er æft og keppt í 10 flokkum auk meist- araflokks. Sú nýlunda var tekin upp á síðasta ári að hefja samstarf við ÍBV í Vestmannaeyjum, bæði með æfingum og keppnisliðum í yngri flokkum. Hefur það gefist vel og styrkt starfið. Þess má geta að Dagný Brynjarsdóttir, landsliðs- kona í knattspyrnu, ólst upp á Hellu og kemur úr KFR.    Slysavarnarfélagið Lands- björg (SL) er núna um helgina með landsþing sitt á Hellu, en það er haldið á 2ja ára fresti. Á þinginu sitja á fjórða hundrað fulltrúar. Sig- urgeir Guðmundsson, meðlimur Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu, sem hefur verið formaður SL síð- astliðin 6 ár, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku. Aðeins einn hafði boðið sig fram til for- manns þegar framboðsfresti lauk og verður hann sjálfkjörinn. Það er Hörður Már Harðarson, fyrrver- andi formaður Hjálparsveitar skáta í Garðabæ.    Björgunarleikar fara fram í ná- grenni Hellu til hliðar við landsþing SL eins og venja hefur verið á und- anförnum landsþingum. Þetta er keppni 4-6 manna liða í sjö krefj- andi þrautum sem reyna á fjölþætta hæfni björgunarsveitarmanna í meðal annars skyndihjálp, klifri, björgunaraðgerðum úr bílum og byggingum auk þess að koma fólki yfir ár og fossa með meira. Þinginu lýkur síðan með árshátíð Lands- bjargar í íþróttahúsinu á Hellu, þar sem reiknað er með um 600 manna hátíð.    Nú hillir undir að áframhald verði á vinnu við svokallaða tengi- byggingu við Suðurlandsveg 1-3 í miðbæ Hellu. Samþykkt hefur verið að aðliggjandi fasteignir báðum megin við nýju bygginguna renni inn í hlutafélagið sem nýtt hlutafé og styrkir það stöðu verkefnisins allverulega. Ef þessi leið hefði ekki verið farin, þá hefði félagið um ný- bygginguna orðið gjaldþrota sam- kvæmt bókun meirihluta hrepps- nefndar Rangárþings ytra.    Á Facebooksíðu kom inn sú frétt í dag að „Besta útihátíðin 2011“ verði haldin á Gadd- staðaflötum við Hellu, 8.–10. júlí nk., en hún var haldin í Galtalæk í fyrra. Það þykir nokkur viðburður að hljómsveitin Quarashi ætlar að koma þar fram. Quarashi hætti árið 2005 og hafði þá starfað í átta ár. Quarashi spilaði einmitt á Töðu- gjöldum á Gaddstaðaflötum í ágúst 1999 þegar undirritaður var fram- kvæmdastjóri Töðugjalda, áður en hún fór að spila víða um heim. Hljómsveitin áformar ekki að spila nema í þetta eina skipti í ár.    Á Helluvaði, sem er býli rétt norðan við Hellu, hefur verið tekinn upp sá skemmtilegi siður und- anfarin ár að hafa opið hús daginn sem kúnum er hleypt út á vorin. Þessi dagur er í dag, laugardaginn 14. maí og verður kúnum hleypt út kl. 13:30. Þarna má einnig sjá ný- borin lömb o.fl. tengt búinu. Bænd- urnir Ari Árnason og Anna María Kristjánsdóttir bjóða gestum og gangandi sem koma í heimsókn upp á góðgjörðir í tilefni dagsins. Mikil gróska í knattspyrn- unni hjá Rangæingum Morgunblaðið/ Óli Már Aronsson Svangir Knattspyrnukapparnir höfðu góða lyst á pylsum eftir þrautirnar. Fjölmenningardagur Reykjavík- urborgar verður haldinn hátíðlegur í dag, laugardaginn 14. maí. Mark- miðið með hátíðahöldunum er að fagna þeirri fjölbreyttu menningu sem borgarsamfélagið býður upp á. Dagurinn er skipulagður af mann- réttindaskrifstofu Reykjavík- urborgar í samstarfi við samtökin Samhljómur menningarheima. Alls koma 50 manns að framkvæmdinni á einn eða annan hátt Jón Gnarr borgarstjóri setur há- tíðina við Hallgrímskirkju klukkan 13.00. Að setningu lokinni fer fjöl- þjóðleg skrúðganga af stað og verð- ur gengið frá Hallgrímskirkju niður að Ráðhúsi Reykjavíkur. Í kjölfarið verður haldin fjölþjóðleg hátíð í Ráð- húsinu þar sem boðið verður upp á fjölbreytta og lifandi skemmti- dagskrá. Í Iðnó verður fjölþjóðlegur markaður þar sem kynntar verða vörur og handverk. Meðal atriða má nefna dansatriði frá Perú, Búlgaríu, og Taílandi. Auk þess mun barnakór frá Litháen syngja nokkur lög og pólskur söng- og danshópur mun leika listir sínar. „Fjölmenningardagurinn hefur öðl- ast fastan sess í hugum borgarbúa og er ávallt vel sóttur af íbúum. Enda gefst einstakt tækifæri til að sýna sig og sjá aðra og kynnast framandi menningu og matargerð,“ segir í tilkynningu frá borginni. Nánar á www.reykjavik.is. Skrúðganga á fjöl- menningardegi Morgunblaðið/Golli Litríkt Fjölbreytni ríkir alltaf þegar fjölmenningardagar eru haldnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.