Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 11
írsformi, hvað finnst Guðrúnu Maríu um það? „Þessi umræða kemur alltaf upp öðru hvoru. Það má ekki bara horfa á þá sem vinna ein- göngu í tölvum. Netið er vissulega víðast hvar en það er fullt af fólki sem enn not- ar prentið og fullt af fólki sem hefur ekki aðgang að tölvum í sínu daglega starfi. Það er líka lög- bundin skylda okkar að gefa símaskrána út ár- lega.“ Símaskráin kom fyrst út árið 1905 og er nú prentuð í 150 þúsund eintökum. Guðrún María segir engar nýjungar í skránni í ár. „Nýjungarnar núna eru Egill og Gerpla. Það er ekkert annað nýtt en við tökum saman bæjar- og menningarhátíðir sem fara fram á árinu og eru framarlega í bókinni. Gulu síðurnar eru uppfullar af alls konar upplýsingum og kortin okkar eru alltaf vin- sæl. Skráin er líka að fullu umhverfisvæn. Hún er í raun þannig að það má borða hana, límið og allt er 100% umhverfisvænt,“ segir Guðrún María að lokum. Hreysti Æf- ing úr Síma- skránni sem heitir Gillz- pressa. Egill Einarsson með fim- leikastúlku úr Gerplu. Útgáfuhátíð Símaskrárinnar verður í dag fyrir framan Hagkaup í Smáralind frá kl. 14. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011 Úrslitakeppni Evróvisjón mun hafa áhrif á helgina hjá Kristínu Birnu Jón- asdóttur, starfsmanni Endurmennt- unar Háskóla Íslands. Kristín Birna er mikill Evróvisjónaðdáandi og er í sér- stökum klúbbi sem hittist á úr- slitakvöldinu ár hvert. „Ég byrja laugardaginn á því að vinna aðeins en svo þarf ég að búa mig fyrir Evróvisjónpartíið sem fer fram um kvöldið hjá vinkonu minni. Þemað er appelsínugult og sumar- legt og þarf ég að kaupa mér eitthvað í takt við það til að fullkomna dress- ið,“ segir Kristín Birna. Þetta er í um tíunda skipti sem hópurinn hittist og segir hún spennuna fyrir keppninni aukast ár frá ári. „Við fylgjumst með atrið- unum, borðum saman og spáum og spekúlerum í þessu. Hver og ein er sinn spekingur og í lok kvöldsins krýnum við Evr- óvisjónsnilling ársins. Síðan er það orðin föst hefð að fara á Pál Óskar á Nasa á eftir og dansa.“ Kristín Birna á erfitt með að spá um sigurvegarann en skýtur á Bretland eða Danmörku. „Ég held að þessi strákabönd verði svolítið heit í ár. En ég spái Íslandi aftur á móti fjórtánda sæti.“ Morgundaginn ætlar Kristín Birna að taka rólega fram undir hádegi. „Svo skelli ég mér austur fyrir fjall í barnaskoðun hjá vinkonu minni sem býr í Rangárþingi.“ Reuters Blue Kristín Birna spáir strákunum frá Bretlandi jafnvel sigri. Appelsínugult Evróvisjónpartí Hvað ætlar þú að gera um helgina? Kristín Birna Jónasdóttir Starfsheitum eða titlum hefur fjölgað gífurlega í símaskránni undanfarin tvö ár eða svo að sögn Guðrúnar Maríu. Sem dæmi um nokkur nýstár- leg starfsheiti í skránni í ár má nefna: Sólstrandargæi Kengúrutemjari Geimverufræðingur Fiskahvíslari Prinsessa Töffari Nokkur nýstár- leg starfsheiti dökkbláir og fjólubláir litir í fjallið og í leysingum á vorin renna marg- ir fossar niður það. Niðri í Flóa er það svo orðið að ljósbláu striki.“ Bakar og málar Ingólfsfjall er stundum kallað bæjarfjall Selfoss. Andrés tengist Selfossi sterkum böndum því hann bjó þar um árabil og starfaði sem bakarameistari hjá Brauðgerð KÁ. Hann rak lengi Magnúsarbakarí í Eyjum en býr í Reykjavík í dag þar sem hann starfar sem bakari. Andrés hefur mundað pens- ilinn frá því að hann var strákur í Vestmannaeyjum. „Í Eyjum var óskaplega öflugur myndlistarskóli undir stjórn Páls Steingrímssonar. Við fengum kennara, til dæmis Vet- urliða Gunnarsson, Barböru og Magnús Árnason og fullt af fólki sem kom til að kenna okkur. Svo ég hef alltaf verið í myndlist, sótt nám- skeið, spáð og spekúlerað,“ segir Andrés. Honum þykir skemmtilegast að hafa þema í myndunum sínum. „Ég átti fermingarafmæli á síðasta ári og af því tilefni málaði ég mynd handa öllum fermingarsystkinunum mínum úr Eyjum, um hundrað tals- ins. Þá tók ég fyrir Þjóðhátíðarljóð og byrjaði bara á einni mynd með setningunni: „Ég veit þú kemur í kvöld til mín“, svo kom næsta mynd; „þó kveðjan væri stutt í gær“. Svo sendi ég öllum ferming- arsystkinunum þessar myndir.“ Ertu búinn að afgreiða Ingólfs- fjall? „Nei, ég elska fjallið. Ég á örugglega eitthvað eftir að halda áfram,“ segir Andrés. Sýningin Óður til fjallsins er á 2. hæð Hótels Selfoss og stendur fram yfir næstu helgi. Um helgina verður Fuglavernd með fuglaskoðun á Álftanesi og tvær fuglaskoðanir við Elliðavatn ásamt því að vera með bás á vormarkaði Skógræktarfélags Reykjavíkur í El- liðaárbænum í dag og á morgun. Markaðurinn er opinn frá kl. 10-18. Boðið verður upp á fuglskoðun báða dagana en lagt verður af stað frá El- liðavatnsbæ stundvíslega kl. 15. Í tilefni af alþjóðlega farfugladeg- inum ætlar Fuglavernd einnig að vera með fuglaskoðun á Álftanesi á morg- un, sunnudag. Lagt verður af stað frá Kasthúsatjörn kl. 13. Munið eftir sjónaukanum. Frekari upplýsingar er að finna á www.fuglavernd.is. Endilega … … fræðist um fuglalífið Morgunblaðið/Ómar Fugl Kría á Álftanesi.  Jón er algengasta karlmanns- nafnið, það er 4.881 Jón skráður í símaskrána.  Guðmundur fylgir fast á eftir með samtals 4.439 einstaklinga.  Guðrún er algengasta kven- mannsnafnið en það er 4.781 kona skráð með þessu nafni.  Anna er í öðru sæti með 3.975 konur.  Það eru um 11% fleiri karl- menn skráðir í símaskrána en konur.  Það eru rúmlega 420.000 símanúmer í skránni.  Fyrsta skráin var 16 blaðsíður og kom út árið 1905, sú nýjasta er 1.560 blaðsíður.  Símaskráin er 106 ára.  Gulu síðurnar hafa komið út síðan 1934.  Símaskráin er 2 kg að þyngd.  Símaskráin er umhverfisvæn.  Nú er hægt að koma sér í form með aðstoð Egils og síma- skrárinnar. Staðreyndir um símaskrána Styrkur til rannsókna á astma og ofnæmi Styrktar- og minningarsjóður Astma- og ofnæmisfélagsins veitir í ár styrk úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að aukinni þekkingu á astma og ofnæmissjúkdómum. Umsóknir um styrk úr sjóðnum skulu hafa borist skrifstofu félagsins fyrir 1. júní næstkomandi. Í umsókninni skulu koma fram ítarlegar upplýsingar um það verkefni sem verið er að vinna að og hvernig það gagnast astma- og ofnæmissjúklingum. Einnig þurfa að fylgja með umsókninni fjárhagsáætlun og upplýsingar um hvort verkefnið hafi hlotið aðra styrki eða hvort sótt hafi verið um aðra styrki. Frekari upplýsingar eru veittar í tölvupósti ao@ao.is Stjórn Styrktar- og minningarsjóðs Astma- og ofnæmisfélagsins. Astma- og ofnæmisfélagið Síðumúla 6 108 Reykjavík. www.ao.is *Bremsuklossar að framan í Volkswagen Golf með vinnu. Eru bremsurnar í lagi? 22.062* Laugavegi 170 -174 • 590 5000 • hekla.is • hekla@hekla.is • Þjónustuverkstæði um land alltTímapantanir í síma 590 5000 og á gvf@hekla.is Das Auto.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.