Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011 Í dag kl. 14:00 verður opnuð sýning á verkum Nicole Pietr- antoni í sal Íslenskrar graf- íkur. Sýningin ber yfirskriftina Know Your Place / Þekktu þinn stað. Pietrantoni hefur dvalið á Ís- landi undanfarið ár sem Ful- bright-styrkþegi. Hún sýnir ný verk sem unnin eru hér en á sýningunni eru grafíkverk og innsetning þar sem listamað- urinn sameinar hefðbundna grafík með stafræn- um miðlum en hún er að skoða samband manns og náttúru með þessum hætti. Sunnudaginn 29. maí kl. 13:00 til 14:00 verður Nicole Pietrantoni með listamannsspjall. Myndlist Nicole Pietrantoni sýnir grafíkverk Nicole Pietrantoni Norski orgelleikarinn Stig Wernø Holter heldur tónleika í Dómkirkjunni í Reykjavík á mánudagskvöld og hefjast tón- leikarnir kl. 20.00. Stig Wernø Holter fæddist í Ósló árið 1953 og lærði við Tón- listarháskóla Noregs og Guðfræðiháskólann í Ósló og í Kaupmannahöfn og Stuttgart. Hann er í dag fyrsti amanuens- is við Griegakademíuna við Há- skólann í Björgvin. Á dagskrá tónleikanna eru verk eftir Johann Sebastian Bach, Egil Hovland, Ludvig Nielsen, Jón Þórarinsson og Sonata in e pro organo eftir Stig Wernø Holter sjálfan. Tónlist Orgeltónleikar í Dómkirkjunni Stig Wernø Holter Kvennakór Suðurnesja heldur vortónleika á mánudag kl. 20:00 í Bíósal Duushúsa í Reykjanesbæ og sunnudag kl. 20:00 í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Á tónleikadagskránni eru meðal annars Flóaperlur, sem eru lög eftir tónskáld úr Flóan- um, Pál Ísólfsson, Sigfús Ein- arsson og Ingólf Þórarinsson, og fleiri íslensk og erlend lög auk dægurlaga, gosp- eltónlistar, söngleikjatónlistar og kirkjulegra verka. Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er söngkonan Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleik- ari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir. Einnig leikur Eiríkur Rafn Stefánsson á trompet. Tónlist Kvennakór Suð- urnesja syngur Páll Ísólfsson Alþjóðleg tónlistarfræðaráðstefna sem ber yfirskriftina Music and Nature verður haldin í Salnum í Kópavogi dagana 18. – 21. maí. Þetta er í fyrsta sinn sem tónlist- arfræðaráðstefna af þessari stærð- argráðu er haldin hér á landi. Aðdragandi ráðstefnunnar er sá að á síðastliðnu ári kom til landsins dr. Annette Kreutziger-Herr til þess að halda fyrirlestur við Listaháskóla Íslands. Í framhaldi af honum kom fram hugmyndin að ráðstefnunni sem nú er haldin. Samstarfsaðilar í þessu verkefni eru Tónlistarháskólinn í Köln, Tón- listarsafn Íslands og Íslensk tón- verkamiðstöð. Auk þess er um sam- starf við Listaháskóla Íslands að ræða, en nemendur hans í tónlist- arfræðum munu geta nýtt sér ráð- stefnuna í námi sínu. Eins og yfirskriftin ber með sér verða tónlist og náttúra í forgrunni hjá fyrirlesurum ráðstefnunnar og samspil þeirra þátta skoðað frá ýmsum hliðum. Fyrirlesarar koma víða að og eiga það sammerkt að vera viðurkenndir fræðimenn. Ríf- lega tuttugu fyrirlestrar verða haldnir sem tengjast yfirskrift ráð- stefnunnar. Ráðstefnan er á ensku og er er öllum opin án endurgjalds. Fræði Annette Kreutziger-Herr. Tónlist og náttúra  Alþjóðleg tónlist- arfræðaráðstefna haldin í Salnum Díana Rós A. Rivera diana@mbl.is Lúðrasveitin Svanur heldur sína árlegu vortónleika í Hörpu á mánudagskvöldið kl. 20.00. Tón- leikarnir verða haldnir í aðalsal hússins, Eldborg, og verður Svanur fyrst íslenskra lúðrasveita til að spila í tónlistarhúsinu sam- kvæmt kynningu frá sveitinni. Stjórnandi sveitarinnar er Brjánn Ingason og meðstjórnandi Hrafn- hildur Ævarsdóttir. Hrafnhildur segir nokkurn taugatitring hafa verið í mann- skapnum þegar æfingar hófust í hinum stóra og mikla Eldborg- arsal. „Það er svo mikilfenglegt að vera þarna inni, þetta var al- veg ótrúlegt,“ segir Hrafnhildur og bætir við að það hafi verið ákveðið skref fyrir hljómsveitina og viðurkenning að fá að halda tónleika í Hörpunni. Fjölbreytt og skemmtilegt Í kynningu um sveitina segir að þrátt fyrir að hafa starfað í 81 ár sé hún í stöðugri þróun og sí- fellt sé leitað leiða við að kynna landsmönnum hljómsveitarmenn- ingu. Hrafnhildur segir að mikið af fólki tengi lúðrasveitir einungis við 1. maí og 17. júní. „Við erum allar, held ég, mjög frábrugðnar því,“ segir Hrafhildur. Hún segir hljómsveitina halda þrenna tónleika á hverju ári auk þess að fara annað hvert ár á lúðrasveitahátíð í Þýskalandi þar sem sveitin kynni land og þjóð. „Þetta er rosalega skemmtilegt. Erlendis er aðeins meiri menning fyrir þessu og jákvæðara viðhorf til lúðrasveita þannig að það er rosalega skemmtilegt að fá að spila úti og kynnast nýju fólki.“ Hrafnhildur segir efnisskrá tón- leikanna vera fjölbreytta og skemmtilega. Sveitin mun flytja verk eftir íslenska og erlenda höf- unda, meðal annars Gustav Holst, John Williams og Veigar Mar- geirsson, og að sögn Hrafhildar mun Svanur frumflytja íslenska verkið Rætur eftir þann síðast- nefnda. „Við hlökkum mikið til að spila, þetta verður alveg frá- bært,“ segir Hrafnhildur að lok- um. Skemmtilegt Lúðrasveitin Svanur æfir fyrir tónleikana í Eldborgarsalnum í Hörpu á mánudagskvöld. Spila ekki bara í skrúðgöngum  Lúðrasveitin Svanur heldur vor- tónleika í Hörpu fyrst lúðrasveita Í dag kl. 16:00 verður opnuð sýning á verkum Magnúsa Helgasonar í Gall- eríi Ágúst. Á sýningunni, sem er með yfirskriftina Guð birtist mér, eru mál- verk og í þeim má finna gler og tré, plast og stundum snæri eða pappír. Magnús stundaði nám í myndlist á árunum 1997 til 2001 í Akademie voor beeldende kunst í Enschede í Hol- landi. Frá því að námi lauk hefur hann fengist við myndlist, ljós- myndun og ópraktíska kvikmynda- gerð og sýnt kvikmyndir við tónlist ýmissa tónlistarmanna og hljóm- sveita, til að mynda Jóhanns Jó- hannssonar, Kiru Kiru og Apparat Organ Quartet, víða um heim, meðal annars í Pompidou-safninu í París, Kiasma í Helsinki, Konunglega lista- safninu í Kaupmannahöfn og Bozar center for fine arts í Belgíu. Hann hefur einnig kennt ópraktíska kvik- myndagerð og hreyfimyndagerð við Listaháskóla Íslands. Hann hefur haldið málverkasýningar hér á landi og ytra. Í kynningu á sýningunni lýsir Magnús listsköpun sinni svo: „Ég er bara lítill listmálari sem hitti Guð á förnum vegi. Hann sagði mér að hagnast á regnboganum og það eina sem mér datt í hug var að mála myndir af regnboganum í nokkrum mismunandi útfærslum. Og þeir eru bara fyrir mig til að hagnast á. Allir hinir skulu fá að borga …“ Listmálari sem hitti Guð á förnum vegi Útfærsla Hvítur regnbogi, eitt verka Magnúsar Helgasonar, á sýningu hans í Galleríi Ágúst sem opnuð verður í dag.  Magnús Helgason sýnir regnboga í Galleríi Ágúst Vortónleikar Kvennakórs Garða- bæjar verða haldnir í Guðríð- arkirkju, Grafarholti, á þriðjudags- kvöld kl. 20:00. Á tónleikunum verða íslensk og bresk kórlög í önd- vegi en auk þess syngja kórkonur í smærri sönghópum, m.a. madrigala frá 16. öld. Stjórnandi kórsins er Ingibjörg Guðjónsdóttir en um hljóðfæraleik sjá þær systur Sólveig Anna Jóns- dóttir á píanó og Herdís Anna Jónsdóttir á lágfiðlu. Ingibjörg seg- ir að tónleikarnir séu lokapunktur starfsársins sem er að ljúka, tólfta starfsárs kórsins. „Það sem er nýtt fyrir okkur er að við syngjum í fyrsta sinn í Guðríðarkirkju, sem er orðin ein vinsælasta tónlistarkirkja landsins og þá sérstaklega fyrir kórsöng. Við erum vissulega að fara langa leið frá Garðabænum, en það er því miður ekkert tónleikahús í Garða- bæ sem hentar fyrir klassískan kórsöng, því miður.“ Í kórnum eru nú þrjátíu konur, en að sögn Ingibjargar hyggjast þær bæta við tíu röddum í haust. Vortónleikar Kvennakórsins  Kvennakór Garðabæjar syngur Vor Kvennakór Garðabæjar syngur í Guðríðarkirkju á þriðjudagskvöld. Ég hef aldrei í lífinu smakkað nautatung- ur en þegar ég les bækurnar þá bókstaflega finn ég ilminn af þeim. 57 »
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.