Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 26
Menntun Heiðdís er hjúkrunarfræðingur að mennt. Hún var fyrsti heyrnarlausi einstaklingurinn til að brautskrást frá hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, í febrúar 2009. Hún leggur nú stund á meistaranám í lýðheilsuvís- indum við Háskóla Íslands. Starf Heiðdís starfar sem hjúkrunarfræðingur í Rjóðrinu á Landspítala og á Heilsugæslunni í Glæsibæ, þar sem hún sinnir m.a. heilsugæslu- og hjúkrunarstörfum fyrir döff. Hún segir nauðsynlegt fyrir döff fólk að geta átt eðlileg samskipti um eigin heilsu við heilbrigð- isstarfsfólk. Stundum vilji brenna við í heil- brigðiskerfinu að aðeins sé talin þörf á túlk fyrir döff þegar eitthvað alvarlegt er að. Döff eigi hinsvegar að meta það sjálft hvort þörf sé á túlki eða ekki. , Æska Heiðdís sleit barnsskónum á Þórshöfn. Hún missti heyrnina þegar hún var tveggja mánaða gömul en fékk táknmálið í hendurnar þegar hún var á ellefta ári og segir það hafa verið lykilinn að lífi sínu í dag. Þá tóku foreldrar hennar þá ákvörðun að flytjast búferlum til Reykjavíkur, til að gefa Heiðdísi betra tækifæri á að læra táknmálið og vera hluti af samfélagi döff. Fjölskylda Heiðdís er gift Arnari Ægissyni bifvéla- virkja. Saman eiga þau tvö börn, en von er á því þriðja síðsumars. Hagsmunastarf Heiðdís hefur verið formaður Félags heyrnarlausra síðan árið 2009. Hún á einnig sæti í Norðurlandaráði heyrnarlausra og í Evrópuráði heyrn- arlausra fyrir hönd félagsins. Döff Heiðdís segir að heyrnarleysi þurfi ekki að vera hindrun í lífinu. Sem dæmi má nefna að hún hefur ferðast víða, bæði vegna starfa sinna fyrir félagið en einnig á eigin vegum og fór hún m.a. í bakpokaferðalag um Evrópu og til Ástralíu ásamt vinkonu sinni. Heiðdís er langskólagengin og var brautskráning hennar úr hjúkr- unarfræði ekki aðeins áfangi fyrir hana, heldur einnig mikilvægur áfangi fyrir heyrnarlausa og heyrn- arskerta á Íslandi. Heiðdís segir táknmálið grund- völl menntunar. „Ég hefði aldrei komist í gegnum skólann ef ég hefði ekki táknmálið.“ Heiðdís Dögg Eiríksdóttir Formaðurinn 26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011 meiri erfiðleika, því allir hafa rekið sig á einhverja veggi á sinni vegferð.“ Hún segir að í atvinnulífinu séu líka ýmsar hindranir. „Margir heyrnarlausir sem eru búnir að afla sér menntunar fara út á vinnumarkaðinn og reka sig þar á veggi, vegna þess að þeir eru van- metnir og ekki síst vegna þess að það er ekki ljóst hver á að standa undir kostnaðinum af túlkaþjónustu ef það þarf að hafa samskipti t.d. á starfs- mannafundum. Þetta er atriði sem dregur úr möguleikum okkar til að komast áfram í atvinnulífinu.“ Táknmálið er ekki hækja Þegar kemur að málnotkuninni sjálfri er döff-samfélagið þó ekki laust við kynslóðaskil því rétt eins og í öðrum lifandi málum læðist inn slangur og þróun í táknmálstjáningu sem ekki allir eru einhuga um. Tákn- málið á sínar „málfarslöggur“ rétt eins og íslenskan og umræður um ný- yrðasköpun eru miklar. Heiðdís segir að misskilningur um eðli táknmáls sé enn mikill. „Fólk heldur oft að táknmál sé bara eitt- hvert hjálpartæki sem væri hægt að sleppa og leysa hlutina á annan hátt. En táknmál er ekki hækja heldur fullkomið tungumál með öllum sínum blæbrigðum og fjölbreytileika.“ Þótt lögfesting táknmáls sem móð- urmáls sé stórt skref segir Heiðdís að það verði mikil vinna að fylgja því eft- ir og tryggja að það verði ekki aðeins orð á blaði. Engu að síður bíður döff- samfélagið spennt eftir þessum tíma- mótum. „Það verður margra daga há- tíð. Loksins verðum við viðurkennd sem einstaklingar.“ Döff Íslendingar bíða eftir langþráðri viðurkenningu  Táknmál verður viðurkennt sem móðurmál heyrnarlausra  Mikilvægt fyrir málþroska barna  Döff fólk mætir hindrunum á vinnumarkaði  Misskilningur um eðli táknmáls enn útbreiddur Morgunblaðið/Sigurgeir S Samskipti Táknmál er grundvöllur lífsgæða döff fólks. „Margir segja að án táknmáls væri ekkert líf“,“ segir Heiðdís. Viðurkenningin skipti því miklu. VIÐTAL Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Við erum Íslendingar, en við erum utanveltu í þjóðfélaginu vegna þess að málið okkar er annað. Þess vegna er svo mikilvægt fyrir okkur að fá þessa viðurkenningu á okkur sjálfum og okkar máli frá vöggu til grafar,“ segir Heiðdís Ösp Eiríksdóttir, for- maður Félags heyrnarlausra. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til laga um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að táknmál verði við- urkennt í lögum sem fyrsta mál heyrnarlausra, heyrnarskertra, daufblindra og afkomenda þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tján- ingar og samskipta. Kveðið er á um að hver sá sem hafi þörf fyrir skuli eiga þess kost að læra og nota ís- lenskt táknmál jafnskjótt og máltaka hefst eða heyrnarleysi greinist. Börnin búa að tvítyngi Heiðdís segir það einmitt mik- ilvægt að börn sem þurfi táknmál njóti viðurkenningar frá upphafi svo þau geti tekið út eðlilegan mál- þroska. „Heyrnarskerðing getur verið mismikil en það er ofboðslega mikilvægt að barnið fái táknmál strax. Það býr þá bara að því að hafa tvö mál ef það kemur síðar í ljós að það nær íslenskunni alveg.“ Stundum haldi foreldrar að þeir þurfi að velja hvort málið barnið læri og ákveði að veðja á íslenskuna en sjá til þar til síðar hvort þörf verði á táknmáli. Þá sé hinsvegar hætt við að barnið dragist aftur úr jafn- öldrum sínum þegar fram í sækir og þannig glatist mörg tækifæri. „Börn eiga ekki að þurfa að búa við það að vera í endalausri baráttu við samfélagið frá barnæsku í gegnum unglingsárin við að fá viðurkenningu á því sem þau eru,“ segir Heið- dís. Ekki megi heldur van- meta getu barna til tví- tyngi. Sem dæmi nefnir hún að heyrandi börn sem eiga heyrnarlausa foreldra læri táknmál sem fyrsta mál en ís- lenskan fylgi á eftir án vand- kvæða. Misstu tengsl Réttindabarátta heyrn- arlausra hefur skilað þeim bættri stöðu síðustu ár auk þess sem þekking á heyrn- arleysi og táknmáli hefur auk- ist. Þeir sem komnir eru á efri ár í dag nutu hinsvegar lítilla réttinda lengst ævinnar og segir Heiðdís að margir glími því miður við mikla erfiðleika, m.a. vegna þess að þeir fóru á mis við grunnmenntun. „Þetta fólk getur vantað svo mik- ilvægan grunn, því þegar það fór í gegnum skólakerfið á sínum tíma þá fékk það ekkert mál. Það var al- gjörlega utanveltu, tengslin við sam- félagið voru engin og tengslin við fjölskylduna mjög lítil líka.“ Að- spurð hvort kynslóðaskil hafi orðið í því hvernig heyrnarlausir upplifi sig í samfélaginu segir Heiðdís að að- stæður hafi vissulega breyst en döff einstaklingar rekist enn á hindranir. „Sumir segja að allt sé svo mikið auðveldara fyrir ungu kynslóðina, en unga fólkið í dag er frumkvöðlar því það fer í gegnum langskólanám þar sem það þarf að ryðja braut sem aðrir hafa ekki farið. Ég vil ekki segja hvor hópurinn hefur upplifað 300 Íslendingar eiga sér táknmál sem móðurmál 6000 manns eiga hinsvegar hagsmuna að gæta í döff-samfélaginu miðað við að hver og einn eigi að jafnaði um 20 aðstandendur Hálf öld er liðin síðan Félag heyrnarlausra var stofnað, þann 11. febrúar 1960 1981 var í fyrsta sinn flutt fréttaágrip á táknmáli í sjónvarpi. Nú 30 árum síðar er það enn baráttumál heyrn- arlausra að fá aðgang að fréttaefni Rúv með texta eða túlkun ‹ TÁKNMÁL Á ÍSLANDI › » Orðið döff er íslensk hljóðþýð- ing á enska orðinu deaf, sem þýðir heyrnarlaus, og er notað í samhengi við menningu og samfélag heyrnarlausra. Dæmi um notkun orðsins má t.d. finna á heimasíðu Félags heyrnar- lausra þar sem m.a. má lesa fréttir um döff heilsugæslu, döff nemendur, foreldra döff (foreldra heyrnalausra barna) og táknmálsnámskeið fyrir heyrandi maka döff. Döff kúltúr og döff fólk DÖFF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.