Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ RíkisstjórnJóhönnuSigurð- ardóttur hefur sýnt óvenjulega einbeittan vilja til að veita sem allra minnstar upplýsingar. Fjöl- miðlar reka sig iðulega á þetta og hið sama á við um alþing- ismenn, en báðir þessir aðilar eiga þó, hvor með sínum hætti, að stuðla að því að ríkisstjórn landsins sé veitt aðhald. Til þess þurfa þeir eðli máls sam- kvæmt að geta aflað upplýs- inga um störf ríkisstjórn- arinnar. Ríkisstjórnin lítur hins vegar á upplýsingar um störf sín sem sitt einkamál og þvælist fyrir eins og nokkur kostur er þegar spurningum er beint til hennar. Alræmt var til dæmis þegar Jóhanna Sigurðardóttir fékk fyrirspurnir um kostnað ráðu- neyta við aðkeypta þjónustu, ráðgjöf og sérverkefni. Svör ráðherrans við þeim fyr- irspurnum voru svo ófullnægj- andi að forsætisnefnd Alþingis beindi fyrirspurn um málið til Ríkisendurskoðunar. Við- brögð forsætisráðherra voru þau að senda Ríkisend- urskoðun bréf með „leiðbein- ingum“ um það hvernig fyr- irspurninni skyldi svarað. Ríkisendurskoðun hafði aldrei fyrr fengið slíkt leiðbeining- arbréf frá ráðherra. Nú hefur þessi sami ráð- herra fengið tvær fyrirspurnir frá Vigdísi Hauksdóttur al- þingismanni. Önnur fyr- irspurnin lýtur að utanlands- ferðum starfsmanna og embættismanna í stjórn- arráðinu og kostnaði við þess- ar ferðir. Hin fyrirspurnin hljóðar svo: „Hversu margir eru starfandi á verktakasamn- ingum í Stjórn- arráðinu, sund- urgreint eftir ráðuneytum?“ Jóhanna Sigurð- ardóttir, sem í eina tíð taldi sjálfsagt að hún sem þingmaður gæti aflað upplýsinga frá rík- isstjórn, kýs að svara ekki þessum spurningum. Þess í stað fjallar hún í löngu máli um þingsköp og reglur um fyr- irspurnir, og klykkir svo út með því að forsætisráðuneytið hafi undanfarið átt „samskipti við skrifstofu Alþingis um vinnslu umfangsmikilla fyr- irspurna og framtíðarfyr- irkomulag að því leyti innan Stjórnarráðs Íslands“. Svarið sé „sett fram í ljósi þeirra samskipta og frekari sam- skipta sem skrifstofa Alþingis hefur átt við alla ráðuneyt- isstjóra innan Stjórnarráðsins um þetta sama efni. Æskilegt er að framangreind álitamál verði tekin til ítarlegrar um- fjöllunar í tengslum við yf- irstandandi endurskoðun á þingsköpum.“ Jóhanna Sigurðardóttir, sem segist leiða ríkisstjórn gagnsæis, neitar sem sagt að veita upplýsingar með þeim rökum að ráðuneytið hafi átt í viðræðum við skrifstofu Al- þingis um hvernig svara eigi spurningum í framtíðinni. Vilj- inn til að veita upplýsingar er með öðrum orðum enginn en viljinn til að víkja sér undan því að svara er mikill. Þegar forsætisráðherra kemur sér ítrekað undan því að svara spurningum, sér- staklega spurningum um verktaka og sérfræðikostnað í Stjórnarráðinu hlýtur að bæt- ast við ein lítil spurning: Hvað hefur ráðherrann að fela? Pukrið í ráðuneyti Jóhönnu Sigurð- ardóttur ætlar eng- an endi að taka} Hvað hefur forsætis- ráðherra að fela? Jóhanna Sigurð-ardóttir for- sætisráðherra fékk á Alþingi í fyrradag einfalda fyrirspurn frá Einar K. Guðfinnssyni al- þingismanni: „Telur hæst- virtur forsætisráðherra að úrskurður kærunefndar [um að forsætisráðherra hafi brot- ið lög með ráðningu í starf skrifstofustjóra] hafi verið rangur og hún hafi ekki brotið lög?“ Þá spurði þingmaðurinn að því hvernig forsætisráð- herra dytti í hug, ef hún teldi sig ekki hafa brotið lög, að greiða skaðabæt- ur án þess að hafa látið reyna á málið fyrir dómstólum. Skemmst er frá því að segja að forsætisráðherra svaraði ekki þessum einföldu spurningum frekar en öðrum sem að henni er beint. Það er þess vegna al- veg óljóst hvort hún telur sig hafa brotið jafnréttislög og á hvaða forsendum hún hefur beðið ríkislögmann um að leita sátta í málinu. Þetta er eins og annað sem snýr að störfum forsætisráðherra, leyndarmál. Jafnréttismálin eru líka leyndarmál forsætisráðherra} Leyndarmál forsætisráðherra K nattspyrna er einstaklega heillandi íþrótt. Íslandsmótið sem nú er hafið, hið 100. í röð- inni, fór fjörlega af stað – að minnsta kosti ef miðað er við árstíma og litbrigði þeirra valla sem eru lif- andi! – og sem áður fylgir því einstök stemn- ing þegar flautað er til leiks. Stundum er kalt á vellinum, stundum blæs hressilega, stundum eru leikirnir lítið fyrir augað. Samt alltaf skemmtilegt, að minnsta kosti í minningunni. Og ekki bara á Íslandi. Frostkalt febrúarkvöld í Scunthorpe, segja Englendingar gjarnan þegar þarf að lýsa lítt kræsilegum aðstæðum. Hér heima gæti það verið norðan rok og haglél! Samt leggja menn leið sína aftur og aftur á völlinn, meira að segja í leiðinlegu veðri. Fara bara í þykka úlpu. Og það góða við fótboltann er að hans nýtur maður ekki einvörðungu á vellinum, frekar en annarra greina. Þökk sé sjónvarpinu, einkum og sér í lagi. Nördum eins og mér finnst líka næstum því jafn gaman að lesa skemmtilega knattspyrnubók og að fara á völlinn. Mér áskotnaðist í gær sú nýjasta á markaðnum og strax við fyrstu skoðun lifnaði yfir mér. Sigmundur Ó. Steinarsson er ótrúlegur maður. Hann hóf störf sem íþróttafréttamaður fyrir fjórum áratugum, hefur frá upphafi sýnt starfinu ótrúlegan áhuga og fylgst grannt með öllum greinum. Hann er sprelllifandi sagna- brunnur og gagnabanki og hefur greinilega gefið sér góðan tíma síðustu misseri til þess að safna enn í sarpinn. Hann starfaði fyrst á Tímanum, síðan á Vísi og DV og loks lengi á Morgunblaðinu. Einhverjum finnst ég örugglega bullandi vanhæfur til þess að meta verk SOS en það verður þá bara að hafa það. Ég stenst ekki mátið að óska þessum fyrrverandi samstarfs- manni til hamingju með bókina góðu. Hef þó einungis farið yfir hana á hundavaði en séð nóg til að brosa breitt, og er strax farinn að hlakka til haustsins þegar síðara bindið kem- ur út. Bókin er mikið fyrir augað; lífleg og skemmtilega sett upp eins og Sigmundar er von og vísa. Kort Guðmundar Ó. Ingvars- sonar, vinar okkar of samherja til margra ára á Mogganum, setja skemmtilegan svip á bókina. Fyrirsögnina hér að ofan fékk ég lánaða úr bók Sig- mundar þar sem hann vitnar í Skagamanninn Rikka Jóns. „Strákar, upp með fjörið!“ kallaði Ríkharður gjarnan á sínum tíma og þá fór Skagaliðið í gang. Enn er kallað á stráka í boltaleik úti um allan heim og ekki af síðri krafti á stelpur hin síðar ár, sem betur fer. Þar sem Sigmundur er, þar er sannarlega fjör, eins og vel kemur fram í bókinni. Það var vel til fundið hjá Knattspyrnusambandi Íslands að fá Sigmund Ó. Stein- arsson til verksins. Í stuttu máli: Þetta er æðisleg bók! skapti@mbl.is Skapti Hallgrímsson Pistill „Strákar, upp með fjörið!“ STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson baldura@mbl.is Á kreppuárinu 2010 fluttust 2.988 erlendir ríkisborgarar til Ís- lands. Ríflega fjórð- ungur, eða 812, kom frá Póllandi en næstflestir, eða 251, frá Litháen. Séu þjóðerni og þjóðar- framleiðsla á mann, eins og hún er áætluð af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fyrir árið 2010, borin saman kemur í ljós að aðeins 12,6% aðfluttra er- lendra ríkisborgara á liðnu ári, eða 376, koma frá ríkjum þar sem þjóð- arframleiðsla á mann er meiri. Yfirgnæfandi meirihluti, eða 87,4%, kemur frá því frá ríkjum þar sem þjóðartekjurnar eru minni. Skal tekið fram að í þeim hópi eru Þjóðverjar, Bretar, Frakkar, Spánverjar og Danir, en samanlagt komu 560 frá þessum löndum. Lítill munur á ríkjunum Litlu munar á þjóðartekjum á mann á Íslandi, Þýskalandi, Bret- landi, Frakklandi og Danmörku. Á Spáni eru meðaltekjurnar hins vegar rétt tæplega 30.000 bandaríkjadalir og því um 4.000 dölum minni en í Frakklandi, sem er neðst á blaði af hinum löndunum fjórum. Fjármála- og gengishrunið hef- ur átt sinn þátt í því að meðaltekj- urnar á Íslandi hafa farið lækkandi. Þrátt fyrir það er Ísland í 16. sæti á ofangreindum lista. Þar sem aðeins munar 1.400 dölum á Íslandi og Taív- an, sem er í 20. sæti, gæti verið stutt í að Ísland yrði ekki lengur í hópi efstu ríkja hvað þjóðartekjur á mann snerti. Meðaltekjur á mann hér eru engu að síður verulega hærri en í fyrrverandi austantjaldsríkjunum, ríkjunum sem bjuggu við áætlunar- búskap svo áratugum skipti áður en Sovétblokkin liðaðist í sundur. Ætla má að þetta eigi sinn þátt í áhuga fólks frá þessum ríkjum á að freista gæfunnar á Íslandi. Fjöldi Litháa til landsins Verður hér staldrað við erlenda ríkisborgara frá 13 ríkjum Austur- Evrópu en gögnin eru fengin af vef Hagstofu Íslands. Hefur ítarleg skipting eftir þjóðerni fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins ekki verið gerð aðgengileg en í þeim tölum sem fyrir liggja kemur fram að fyrstu þrjá mánuði ársins fluttust hingað 170 Pólverjar og 45 Litháar, af alls 640 aðfluttum erlendum innflytjendum. Fluttust því 982 Pólverjar til landsins frá janúar 2010 til marsloka 2011 en til samanburðar stóð íbúatala Seyðisfjarðar í 706 á síðasta ári, að því er fram kemur á vef Hagstof- unnar. Sé fjölda Litháa sem hingað hafa flust á sama tímabili bætt við er heildartala erlendra innflytjenda frá ríkjunum tveimur 1.278. Það eru fleiri en bjuggu í sveitarfélaginu Vog- um í fyrra, alls 1.206, samkvæmt mannfjöldaskrá Hagstofunnar. Norðurlöndin í minnihluta Eins og sjá má á kortinu hér fyr- ir ofan komu samtals 1.334 frá fyrr- um austantjaldsríkjunum 13 í fyrra, eða 18,5 sinnum fleiri en fluttust hingað frá Danmörku í fyrra, svo dæmi sé tekið. Sé fjöldi aðfluttra er- lendra ríkisborgara frá Dan- mörku (72), Svíþjóð (68), Noregi (42), Finnlandi (32) og Fær- eyjum (22) lagður saman, alls 236 erlendir ríkisborg- arar, kemur í ljós að 5,7 sinnum fleiri koma frá Austur-Evrópuríkjunum 13. Skal þess getið að lokum að nokkur ríkjanna 13 eru ný- sjálfstæð eða hétu áður annað. Langflestir aðfluttra frá fátækari ríkjum Innflytjendur og þjóðartekjur upprunalanda Katar 88,559 10.162.145 0 Lúxemborg 81,383 9.338.699 2 Singapúr 56,522 6.485.900 0 Noregur 52,013 5.968.492 42 Brúnei 48,892 5.610.357 0 Sam.arab.furst. 48,821 5.602.210 0 Bandaríkin 47,284 5.425.839 132 Hong Kong 45,736 5.248.206 0 Sviss 41,663 4.780.829 13 Holland 40,765 4.677.784 28 Ástralía 39,699 4.555.460 7 Austurríki 39,634 4.548.001 28 Kanada 39,057 4.481.791 45 Írland 38,550 4.423.613 11 Svíþjóð 38,031 4.364.057 68 Kúveit 37,849 4.343.173 0 Ísland 36,621 4.202.260 Samtals aðfluttir erlendir ríkisborgarar 376 Heildarfjöldi aðfluttra 2988 Hlutfall ofangreindra landa af heildarfj. 12,60% í USD *á genginu 114.75 Aðflutt. erl. ríkisb. 2010Land Þjóðartekjur Í ISK* Fjöldi aðfluttra frá ríkjum A-Evrópu Albanía 1 Bosn.&Herseg. 5 Búlgaría 2 Eistland 29 Króatía 1 Lettland 111 Litháen 251 Pólland 812 Rúmenía 21 Slóvakía 27 Slóvenía 5 Tékkland 38 Ungverjaland 31 Samtals 1334 Hlutfall af heildarfjölda aðfluttra: 44,65% Samkvæmt lista AGS var þjóðarframleiðsla á mann í Póll- andi rétt tæplega 19.000 bandaríkjadalir í fyrra, eða sem svarar um 2,18 milljónum króna. Talan er litlu lægri fyrir Ung- verjaland, Eistland og Litháen. Þjóðarframleiðsla á mann er hins vegar mun minni í Lett- landi eða 14.460 dalir. Þá er hún um 12.850 dalir á mann í Búlg- aríu, 11.860 dalir í Rúmeníu, 7.780 dalir í Bosníu og Hersegó- vínu og um 300 dölum lægri í Albaníu. Þjóðarframleiðslan er hins vegar meiri sé henni skipt niður á íbúafjöldann í Tékklandi (24.870), Slóvakíu (22.129), Ungverjalandi (18.740) Króatíu (17.680). Má af þessu sjá að Búlgaría, Rúmenía og Bosnía og Her- segóvína skera sig nokkuð úr í þessu efni, þótt Lettar séu raunar ekki mikið ofar í tekjustiganum. Tekjurnar eru hærri hér ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.