Morgunblaðið - 14.05.2011, Síða 10

Morgunblaðið - 14.05.2011, Síða 10
Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Nokkuð umdeilt var íhaust þegar tilkynntvar að Egill „Gillzeneg-ger“ Einarsson yrði meðhöfundur að símaskránni í ár og sitt sýndist hverjum. Guðrún María Guðmundsdóttir hefur verið ritstjóri símaskrárinnar síðan 2005. Hún var afskaplega ánægð með samstarfið við Egil en hann fékk Evrópumeistarana úr Gerplu til að vera með sér. „Hann er með kápuna og tíu blaðsíður aftast þar sem eru æf- ingar með símaskránni. Egill og fimleikastelpurnar í Gerplu sýna hvernig nýta má símaskrána til að gera líkamsræktaræfingar og koma sér í form,“ segir Guðrún María. Símaskráin er um 2 kg að þyngd og ætti því að nýtast vel sem lóð. „Við erum ánægð með samstarfið við Egil, það gekk of- boðslega vel og útkoman varð eins og við lögðum upp með í haust,“ segir Guðrún María. En hvers vegna þetta þema, hreysti og húmor? „Hugleikur [Dagsson] var hjá okkur 2007 og 2008 með teiknimyndaseríu. Við lögðumst yfir það í haust hvað við ætluðum að gera í ár og þessi hugmynd kom upp og okkur fannst hún mjög skemmtileg. Það er alltaf verið að tala um að þjóðin sé að þyngjast og fólk vill vera heilbrigðara. Við veltum fyrir okk- ur hvað við gætum gert til að hjálpa fólki og símaskráin er mjög handhæg til að nota í æfingar.“ Má borða símaskrána Sumir segja að það sé úrelt að gefa út símaskrá í papp- Nýtist sem 2 kg lóð Símaskráin 2011 kemur út í dag. Þema hennar að þessu sinni er hreysti og húmor og eru tíu síður lagðar undir líkamsræktaræfingar sem hægt er að nýta símaskrána í. Rúmlega 420.000 símanúmer eru í skránni. Morgunblaðið/Sigurgeir S Með eintak Guðrún María Guðmundsdóttir ritstjóri með nýju Símaskrána sem kemur út í dag. Þema hennar er hreysti og húmor. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011 Vefsíðan www.failbook.com Failbook Hvað ritar þú á Fésbókina? Skondið af Facebook Það getur margt skemmtilegt og skondið birst á hinni frægu Facebook. Vefsíðan Failbook.com er, eins og nafnið gefur til kynna, grín-samsafn af Facebook. Þar eru birtar skemmti- legar eða áhugaverðar stöðufærslur hjá Facebook-notendum með at- hugasemdum. Einnig er stundum fjallað um eitthvert æði sem gengur á Facebook eða annað sem tengist síð- unni vinsælu. Fólk getur verið snið- ugt, orðheppið eða óheppið á Facebo- ok og um það má lesa á Failbook sér til skemmtunar. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Ég byrjaði bara að málaIngólfsfjall og þessarmyndir eru ást mín áfjallinu og fólkinu undir því.“ Svo mælir Andrés Sigmunds- son, bakarameistari og listmálari. Nú stendur yfir á Hótel Selfossi sýning á fjörutíu vatnslitamyndum eftir hann sem eru eingöngu af Ing- ólfsfjalli. „Myndirnar eru frá ýmsum sjónarhornum og árstíðum, en ég hef unnið að þeim undanfarin þrjú ár,“ segir Andrés. Spurður hvað hafi heillað hann svo við fjallið svarar Andrés að það hafi tekið sig dálítið langan tíma að átta sig á því. „Frá því ég var strákur er ég búinn að vera á þessu svæði; Eyrarbakka, Selfossi, Gríms- nesi og víðar og hef alltaf verið að horfa á fjallið án þess í raun og veru að átta mig á því hvað mér þótti óskaplega vænt um það. Svo bara allt í einu kviknaði þessi ást á því. Ingólfsfjall er svo yndislegt fjall og það hefur svo mismunandi liti. Í Grímsnesi er þetta orðið allt annað fjall en þegar keyrt er framhjá því í Ölfusinu. Þá koma Fjallamyndir Andrés við eitt verka sinna af Ingólfsfjalli. Ástin á fjallinu og fólkinu undir því Á myndlistarsýningunni Óður til fjallsins, sem nú stendur yfir á Hótel Sel- fossi, má sjá fjörutíu vatnslitamyndir af Ing- ólfsfjalli. Myndirnar mál- aði Andrés Sigmundsson bakarameistari. Hann ann fjallinu heitt. Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. 11–17, sunnud. 12–17 Síðasta sýningarhelgi Jökull Snær Þórðarson Listamannaspjall laugardag og sunnudag kl. 14–16 Vefuppboð nr. 4 – bókauppboð Fyrsta vefuppboð Gallerís Foldar á bókum hefst laugard. 14. maí í samstarfi við Bókina Klapparstíg Vefuppboð nr. 5 – antíkuppboð Fyrsta vefuppboð Gallerís Foldar á antík hefst laugard. 21. maí í samstarfi við Antíkbúðina Hafnarfirði VM-FÉLAG VÉLSTJÓRA OG MÁLMTÆKNIMANNA Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - 575 9800 - www.vm.is Nýgerður kjarasamningur VM-Félag vélstjóra og málmtæknimanna heldur kynningarfundi vegna kjarasamnings VM og SA á almenna markaðnum. Önnur mál. Þriðjudaginn 17. maí Selfoss, kl. 20 á Hótel Selfoss. Miðvikudagur 18. maí Akureyri, kl. 20 á Skipagötu 14, 4 hæð. Fimmtudagur 19. maí Reyðarfjörður, kl. 20 á Hótel Reyðarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.