Morgunblaðið - 14.05.2011, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 14.05.2011, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011 ● Hagnaður HS Orku á fyrsta fjórðungi ársins nam 2.231 milljón króna sam- anborið við 1.190 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Lesa má úr reikningnum, að bætt af- koma stafi aðallega af hækkun á álaf- leiðum. Rekstrartekjur félagsins námu 1.953 milljónum króna, samanborið við 1.812 milljónir króna á sama tíma í fyrra. HS Orka hagnast á hækkun afleiða HS Orka Hagnaðist um 2,2 milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins. Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Tvö nágrannaríki Íslands hafa ekki orðið fyrir jafn miklum skaða og önnur vegna hinnar al- þjóðlegu efnahagsniðursveiflu í kjölfar fjár- málakreppunnar sem brast á með fullum þunga haustið 2008. Eftir viðvarandi hagvöxt um árabil lenti kanadíska hagkerfið í stuttu samdráttarskeiði en er komið á hagvaxtar- brautina á ný. Frammistaða sænska hagkerf- isins hefur einnig verið eftirtektarverð: Hag- vöxtur var í kringum 5% í fyrra og búist er við svipuðum vexti í ár. Bandaríska blaðið The Wall Street Journal hefur sagt þessa frammi- stöðu sænska hagkerfisins vera hina glæsileg- ustu sem hægt sé að finna meðal evrópskra hagkerfa í kjölfar hinnar alþjóðlegu efnahags- kreppu. Af þessu tilefni efndi RSE, rannsóknarmið- stöð um samfélags- og efnahagsmál, til mál- stofu um efnahagslega velgengi Kanada og Svíþjóðar í gær. Framsögumenn voru þeir Fred McMahon, varaforseti alþjóðlegra rann- sókna hjá Fraser-stofnuninni í Kanada, og sænski stjórnmálafræðingurinn og rithöfund- urinn Fredrik Segerfeldt. Fram kom í máli beggja framsögumanna að lykilinn að efnahagsframmistöðu ríkjanna tveggja um þessar mundir væri að finna í þeim efnahagsumbótum sem ráðist var í um miðjan tíunda áratug nýliðinnar aldar. McMahon benti á að aðhald í ríkisrekstrinum í Kanada samhliða auknu frjálsræði á markaði og skattalækkunum hefði lagt grunninn að upp- gangi síðasta áratuginn. Vakti hann athygli á því að það ferli sem hófst við efnahagsumbæt- ur á tíunda áratugnum hafi ekki mótast af hinu hefðbundna pólitíska litrófi: Vinstrimenn við stjórn hefðu í jafnmiklum mæli lagt áherslu á minnkun ríkisútgjalda og hagfelldara skatta- umhverfi og hægri menn. Sem kunnugt er hafa kanadískir bankar að mestu sloppið við að taka á sig skelli vegna eitraðra veða og vafasamra fjármálagerninga. Þessi staðreynd rímar vel við það sem kom fram í framsögu McMahons um að frjálsræði á markaði væri ekki beinlínis háð magni og um- fangi lagasetningar, heldur fyrst og fremst skilvirkni hennar. Sænska velferðarkerfið goðsögn Segerfeldt sagði í framsögu sinni að sænska hagkerfið sem frummynd hins norræna vel- ferðarkerfis væri í raun og veru goðsögn. Víð- tækar efnahagsumbætur undanfarin ár hefðu gert sænska hagkerfið eitt hið markaðsdrif- nasta og samkeppnishæfasta í heiminum og góðan árangur mætti þakka þeim aðgerðum. Þrátt fyrir að skattar væru háir í Svíþjóð miðað við mörg önnur ríki væri eignarétturinn og frelsi til athafna kirfilega tryggt af stjórnvöld- um. Auk þess hefur núverandi ríkisstjórn gengið langt í lækkunum bæði á fyrirtækjas- köttum og sköttum á lægstu tekjuhópana. Se- gerfeldt sagði að þegar saga Svíþjóðar væri skoðuð kæmi í ljós að grunnurinn að velmegun og auðlegðinni hefði verið lagður á hundrað ára tímabili fram til ársins 1970 sem hafi einkennst af frjálsum viðskiptum og athafnafrelsi. Það hefði ekki verið fyrr en á áttunda áratugnum sem sænska ríkið hefði orðið mjög yfirgrips- mikið í afskiptum sínum af hagkerfinu, með slævandi áhrifum á hagvöxt. Lært af Svíum og Kanadamönnum Reuters Svíþjóð Sænskir skattgreiðendur njóta vorsins við Kungsträdgården.  Ráðstefna RSE um efnahagslega velgengni í Kanada og Svíþjóð  Hagkerfi beggja landa stóð af sér fjármálakreppuna  Frjálsræði lykillinn  Sænska hagkerfið eitt það kraftmesta um þessar mundir ● Heildarvelta debetkorta í apríl jókst um 8,2% frá sama mánuði 2010, en kreditkortavelta jókst um 13,5% frá apríl 2010, samkvæmt tölum frá Seðla- bankanum. Aukin kortavelta í apríl Landsframleiðsla í Þýskalandi jókst um 1,5% á fyrstu þremur mánuðum ársins, miðað við síðasta fjórðung ársins 2010. Þýsk þjóðarframleiðsla hefur nú náð því hámarki sem hún náði fyrir efnahagskreppuna í heiminum, í byrjun ársins 2008. Vöxtur í öðrum ríkjum Norður- Evrópu var einnig nokkur á fyrsta fjórðungi: 1% í Frakklandi og svip- aður í Austurríki, svo dæmi sé nefnt. Sömu sögu er hins vegar ekki að segja af þjóðum í syðri hluta álfunnar. Á Spáni mældist hagvöxtur 0,3% og á Ítalíu var hann 0,1%. Verg landsframleiðsla dróst saman um 0,7% í Portúgal. G-ið í skammstöfuninni PIIGS, sem gjarnan er notuð yfir skuldsettustu evruríkin, Grikkland, óx hins vegar um 0,8%, eftir að hafa dregist mjög saman næstu fjóra fjórðunga á und- an. Á öllu samanlögðu evrusvæðinu mældist 0,8% hagvöxtur á fyrsta fjórðungi. Þá var verg landsframleiðsla í Bretlandi óbreytt á fjórðungnum. ivarpall@mbl.is 1,5% hag- vöxtur í Þýskalandi Fram kom á ráðstefnunni Virkjum karla og konur sem Félag kvenna í atvinnurekstri stóð fyrir í gær að konur eru í miklum minnihluta þeg- ar kemur að æðstu stjórnendum þrjúhundruð stærstu fyrirtækja landsins. Ráðstefnan var framhaldsráð- stefna annarrar slíkrar sem haldin var í fyrra og á rætur að rekja til samnings sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Creditinfo og fulltrúar allra stjórnmálaflokka skrifuðu undir 2009, um að auka hlutdeild kvenna í atvinnulífinu. Samkvæmt könnun Creditinfo eru aðeins 24 konur meðal framkvæmda- stjóra í 300 stærstu fyrirtækjunum. Hinsvegar er 291 karlkyns fram- kvæmdastjóri. Hlutur kvenna er einnig rýr þegar kemur að setu í stjórnum stærstu fyrirtækja landsins. Ríflega þúsund karlar sitja í stjórnum þessara fyrir- tækja og á sama tíma sitja 196 konur í viðkomandi stjórnum. Hlutfall kvenna er hinsvegar stærra þegar kemur að varamönnum í stjórnum: 388 karlar eru varamenn í stjórnum stærstu fyrirtækja landsins og eru 123 konur varamenn. Konur í miklum minnihluta  Fleiri karlar í stjórn 300 stærstu fyrirtækja Íslands Morgunblaðið/Kristinn Fjölmenni Kvennafrídagur 2010. Fagfjárfestasjóðurinn Auður I, sem er í vörslu Auðar Capital, og fjárfestirinn Kjartan Örn Ólafs- son hafa gert tilboð í 10% eign- arhlut í Eignarhaldsfélaginu Fjarskipti hf. sem á og rekur Vodafone á Íslandi. Stjórn Eignarhaldsfélagsins Fjarskipta hf. hefur samþykkt kauptilboðið. Kaupendurnir greiða fyrir eignarhlutinn með eign sinni í fjarskiptafélaginu Tali, sem er að fullu í þeirra eigu. Stefnt er að því að sameina félögin í kjölfarið. Tilboðið er með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakann- ana. Í tilkynningu segir að sameinað fyrirtæki verði vel í stakk búið til að koma til móts við kröfur neyt- enda um hagkvæma og góða fjar- skiptaþjónustu. „Markmið Auðar I er að taka þátt í að byggja upp öflugt fjarskiptafélag sem mögu- legt er að skrá á hlutabréfamark- að í framtíðinni.“ Stefnt að sameiningu Tals og Vodafone Morgunblaðið/Heiddi Tal Tilboðið er háð samþykki Sam- keppniseftirlitsins.                                        !"# $% " &'( )* '$* ++,-,. +./-0. ++.-11 2+-32/ 20-.1/ +.-+3/ +23-21 +-,+.. +.2-,1 +/4-5 ++,-15 +./-54 ++3-+2 2+-33 20-343 +.-2,3 +23-/4 +-,223 +.4-0+ +/4-3/ 2+.-342. ++5-02 +./-3. ++3-,1 22-05, 20-33. +.-402 +23-33 +-,21 +.4-55 +/,-,2 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Hagnaður Haga nam 1.093 millj- ónum króna á síðasta rekstrarári, sem lauk í mars, samanborið við 44 milljóna króna hagnað árið á und- an. Rekstrartekjur rekstrarársins námu 66.700 milljónum króna. Hagnaður fyrir afskriftir, fjár- magnsliði og skatta (EBITDA) nam 4.384 milljónum króna. Heildareignir samstæðunnar námu 21.830 milljónum í lok tíma- bilsins og eigið fé 3.612 milljónum. Eiginfjárhlutfall félagsins var 16,5% í lok tímabilsins en skuldir nema rúmum 18 milljörðum króna. Fram kemur í tilkynningu frá Högum að lánasamningur félags- ins, sem gerður var í október 2009, kveði á um gjalddaga í október 2011, með tveimur framlengingar- heimildum til allt að 24 mánaða í senn. Samið hafi verið um fram- lengingu til október 2012, með frekari framlengingarheimildum eins og kveður á í samningnum. 1,1 milljarðs hagnaður Haga á rekstrarárinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.