Morgunblaðið - 14.05.2011, Blaðsíða 48
48 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011
Sudoku
Frumstig
4 6 7 9
8 3 1 7
5 1 9 8
3 8 6
4 5
6 1 4 9 5
4 3
5 7
8 6
5
7 1 4 5 6
8 7 4
9
1 7 6
5 9 2
4 6 8
2 1 9 8
7 4
5 8
3 7 4 1
8 2
4 6 3 5
2 5 8
8 6 4 7
1 3 6 2
1 2 5 4 9 8 6 7 3
3 8 6 7 5 2 9 4 1
7 9 4 6 1 3 5 8 2
8 7 9 5 2 1 4 3 6
4 1 3 8 6 7 2 9 5
6 5 2 3 4 9 8 1 7
5 4 8 1 3 6 7 2 9
9 3 7 2 8 5 1 6 4
2 6 1 9 7 4 3 5 8
8 4 5 2 3 6 9 1 7
7 3 1 9 8 4 5 6 2
9 2 6 1 7 5 4 8 3
5 8 3 6 9 2 1 7 4
4 6 9 5 1 7 2 3 8
2 1 7 3 4 8 6 5 9
6 7 4 8 5 9 3 2 1
1 9 2 7 6 3 8 4 5
3 5 8 4 2 1 7 9 6
6 1 3 2 5 8 9 4 7
9 4 2 3 6 7 5 1 8
8 5 7 4 9 1 6 2 3
7 6 5 1 4 2 8 3 9
1 3 8 9 7 5 4 6 2
4 2 9 8 3 6 7 5 1
2 9 1 6 8 4 3 7 5
5 8 4 7 1 3 2 9 6
3 7 6 5 2 9 1 8 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 14. maí,
134. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Enginn er þinn líki,
Drottinn! Mikill ert þú og mikið er
nafn þitt sakir máttar þíns.
(Jeremía 10, 6.)
Víkverji á snjallan síma sem geturhalað niður tónlist, myndum,
myndskeiðum og ýmsum sniðugum
forritum. Víkverja finnst gaman að
fikta í símanum og reyna hvað hann
getur.
x x x
Það besta finnst honum að síminnhugsar hálfpartinn fyrir hann
þegar verið er að senda smáskila-
boð. Orðabók símans les nær hugs-
anir Víkverja og kemur með tillögur
að orðum strax við fyrsta staf. Þetta
flýtir óneitanlega fyrir Víkverja sem
sendir mörg sms á hverjum degi.
x x x
Hins vegar getur þetta sniðugahjálpartæki tekið völdin af
þeim sem ritar skilaboðin. Síminn
skilur t.d. ekki enskuslettur, í það
minnsta ekki allar og geri Víkverji
prentvillu þá kemur síminn með
ýmsar undarlegar uppástungur og
hendir svo einstaka sinnum (viljandi
að því er Víkverji telur) inn kolvit-
lausum orðum.
x x x
Þannig ætlaði Víkverji að skrifafélaga sínum að hann kæmist
ekki á kaffihús því hann þyrfti að
sinna sjúkum hundi. Síminn tók hins
vegar yfir, vildi ekki orðið „jundur“
(sem átti að vera hundur) en skrifaði
þess í stað „ju do“. Í tveimur orðum.
Félagi Víkverja spurði um hæl hvort
þessi kínverski vinur Víkverja, hann
Ju Do, væri mikið veikur? Tæknin er
ólíkindatól.
x x x
Víkverji hallast að því að nú fariað hilla undir að hann fái sam-
þykkt hjá mannanafnanefnd nafnið
Gjaldmiðill.
Alltaf verða þau skrítnari nöfnin
sem nefndin samþykkir og einhvern
veginn finnst Víkverja að nefndin
hljóti að fara að verða óþörf. Fólk
megi þá bara skíra börn sín þeim
nöfnum sem það vill og óskar helst.
Víkverja hefur lengi langað að
skíra son sinn Erlendur Gjaldmiðill.
Hingað til hefur hann þó ekki þorað
að bera nafnið undir nefndina en fer
bráðlega að slá til. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 geðveika, 8 kjökr-
ar, 9 aldna, 10 mánaðar, 11
kaka, 13 gefa frá sér djúp
hljóð, 15 samkomum, 18
náðhús, 21 fiskur, 22 hryssu,
23 að baki, 24 heimska.
Lóðrétt | 2 reiður, 3 marg-
nugga, 4 bleytukrap, 5 los-
um allt úr, 6 ljós á lit, 7 veg-
ur, 12 tala, 14 ylja, 15 klína,
16 glatar, 17 ílátin, 18 skarð,
19 hittir, 20 vitlaus.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 helft, 4 skörp, 7 rúman, 8 ólgan, 9 dýr, 11 nart, 13
ældi, 14 álfur, 15 blær, 17 arða, 20 óra, 22 kolin, 23 líkum, 24
akrar, 25 arður.
Lóðrétt: 1 hýran, 2 lemur, 3 tind, 4 stór, 5 öngul, 6 penni, 10 ýlf-
ur, 12 tár, 13 æra, 15 baksa, 16 ætlar, 18 rokið, 19 aumur, 20 ón-
ar, 21 alda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Orðskviður Ásmundar. V-NS.
Norður
♠6
♥K2
♦652
♣KD65432
Vestur Austur
♠1074 ♠D9
♥ÁG108654 ♥D
♦KG ♦Á10873
♣10 ♣ÁG987
Suður
♠ÁKG8532
♥973
♦D94
♣–
Suður spilar 5♠ doblaða.
Eftir Ásmundi Pálssyni er hafður
orðskviðurinn: „Ef þú heldur að þú sért
í vondum samningi er ómaksins vert að
reyna við annan betri.“
Dálkahöfundur hafði þessa speki að
leiðarljósi í nýliðnu Íslandsmóti. Vestur
vakti á 3♥ og austur lyfti í 4♥. Nú kom
Ásmundur inn á 4♠, á hættu gegn utan.
Hvínandi dobl í austur. Það var og. Um-
ræddur var í norður og rifjaði upp orðs-
kviðinn í huganum. Breytti svo í 5♣.
Austur doblaði varlega, en Ásmundur
hélt tryggð við sjölitinn sinn og sagði
5♠.
Vörnin var of áköf. Út kom ♣10 upp á
kóng, ás og tromp. Ásmundur tók
trompin í þremur umferðum, spilaði síð-
an hjarta. Vestur drap og skipti ótíma-
bært yfir í ♦K og gosa. Einn niður.
Hefðu 4♠ unnist? Óþægileg spurn-
ing.
14. maí 1998
Jóhanna Sigurðardóttir talaði
samfellt í fimm og hálfa
klukkustund í umræðum á Al-
þingi um húsnæðisfrumvarp
og sló þar með eldra met sem
var fimm klukkustundir.
14. maí 2005
Um tvö hundruð manns gengu
á Hvannadalshnúk í Öræfa-
jökli og höfðu þeir aldrei verið
fleiri. Morgunblaðið hafði efir
einum þátttakenda að hóp-
urinn hefði liðast upp á tind-
inn líkt og ormur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Það hefur lengið verið flaggað fyrir mér á afmæl-
isdaginn,“ segir Sigurður Hróarsson, forstöðu-
maður Sögusetursins á Hvolsvelli, en hann er 55 ára
í dag. Hann segist hafa orðið fyrir nokkrum von-
brigðum þegar hann áttaði sig á þeirri tilviljun að
14. maí er einnig fæðingardagur forseta Íslands og
opinber fánadagur.
Sigurður segist aldrei hafa haldið upp á afmælið.
Hann rekur það til endurminningar frá því hann
var sex ára. Foreldrar hans buðu börnum til afmæl-
isveislu en honum fannst svo leiðinlegt að hann hef-
ur ekki talið ástæðu til að halda þeim sið. „Ég læt
yfirleitt lítið fyrir mér fara þennan dag.“ Hann rifjar þó upp grikk sem
samstarfsfólkið gerði honum fyrir fimmtán árum þegar hann var að
hætta sem leikhússtjóri Borgarleikhússins. Hann mætti á boðaðan fund
í leikhúsráði sem reyndist teiti vegna fertugsafmælis hans.
Sögusetrið hýsir Njálusýninguna og lifir Sigurður og hrærist í Njáls-
sögu. Afmælisdeginum mun hann verja á Njáluslóðum þar sem hann fer
góðan hring með hóp kvenna. „Ég get ekki hugsað mér neitt betra,“
segir Sigurður og vonast, þrátt fyrir allt, til að fá tertu hjá eiginkonunni
og dætrunum þegar hann kemur heim. helgi@mbl.is
Sigurður Hróarsson 55 ára í dag
Vill ekki vita af afmælinu
Hlutavelta
Ísabella Ronja
Benediktsdóttir
og Freyja Guð-
rún Mikkels-
dóttir héldu
tombólu fyrir
utan Bónus á
Laugavegi. Þær
söfnuðu 2.923
kr. sem þær
færðu Rauða
krossi Íslands.
Flóðogfjara
14. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.21 3,5 9.43 0,6 15.58 3,6 22.15 0,6 4.17 22.33
Ísafjörður 5.16 1,9 11.48 0,2 18.03 1,9 3.58 23.02
Siglufjörður 1.17 0,2 7.30 1,1 13.49 0,1 20.07 1,2 3.40 22.45
Djúpivogur 0.33 1,9 6.43 0,6 13.04 2,1 19.20 0,5 3.40 22.08
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Talaðu skýrt út um hlutina, þannig að
enginn þurfi að efast um tilgang þinn. Ein-
beittu þér að því að tala um hlutina frekar en
að byrgja þá inni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú hefur lagt hart að þér til að tryggja
fjárhagslegt öryggi þitt og þinna. Hugur þinn
er tilbúinn, hvað heldur aftur af þér?
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er mikið að gera hjá þér í
vinnunni, heima fyrir og í félagslífinu. Talaðu
við fólk sem er á sömu bylgjulengd og lestu
bækur um andleg málefni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Óvænt tækifæri berst upp í hend-
urnar á þér og nú hefur þú enga afsökun fyrir
því að nýta þér það ekki. Hversdagslegir hlut-
ir geta þróast í óvenjulegar áttir.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Gömul vandamál, sem tengjast börnum,
munu koma upp að nýju. Líf í jafnvægi finnst
þér eftirsóknarvert. Festu alla lausa enda.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú verður meðvitaðri um mátt orða
þinna. Framkvæmdu af glæsibrag í stað þess
að fylgja áætlunum eins og vélmenni. Mundu
að sannleikurinn er alltaf sagna bestur.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vertu tilbúinn að aðstoða vin þurfi hann
á stuðningi þínum að halda. Ekki halda áfram
að lofa upp í ermina á þér. Félagslífið hefur
sjaldan verið fjörugra.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er sjálfsagt að þú standir á
rétti þínum og krefjist þess sem er þitt. Maki
þinn á ýmsa góða spretti næstu vikurnar.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ykkur hafa gefist mörg tækifæri
að undanförnu til að kynnast nýjum hlutum
og hitta skemmtilegt fólk. Skyldan kallar svo
þú þarft að gera þitt besta í stöðunni.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Nú er lag að staldra við og athuga
stöðu mála. Vita skaltu að það eru tvær hlið-
ar á öllum málum og báðar eiga rétt á sér.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Vinsældir þínar eru gríðarlegar
um þessar mundir. Móðir þín, eða önnur mik-
ilvæg manneskja í þínu lífi, getur veitt þér
styrk varðandi tiltekið málefni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Nám og ferðalög eru þægileg en
þreytandi. Ástvinur tekur nei ekki gilt og
saman farið þið í besta ferðalag í áraraðir.
Stjörnuspá
Helga Guðrún
Berndsen, fyrr-
verandi stöðv-
arstjóri Pósts og
síma, Skaga-
strönd, til heim-
ilis á Háaleit-
isbraut 17 í
Reykjavík, er
áttræð í dag, 14. maí. Hún verður
að heiman í óvissuferð með fjöl-
skyldu sinni.
80 ára
Ellen Viðar
Pétursson er ní-
ræð í dag, 14.
maí. Hún er fædd
í Álaborg í Dan-
mörku en hefur
búið á Íslandi síð-
an 1948. Ellen
verður að heim-
an á afmælisdaginn.
90 ára
1. c4 g6 2. g3 Bg7 3. Bg2 Rf6 4. Rc3 0-0
5. e3 c6 6. Rge2 d5 7. b3 e5 8. d3 d4 9.
Re4 Rxe4 10. Bxe4 dxe3 11. Bxe3 f5 12.
Bg2 f4 13. gxf4 exf4 14. Rxf4 Bc3+ 15.
Kf1
Staðan kom upp í fyrstu deild Ís-
landsmóts skákfélaga sem lauk fyrir
nokkru í Rimaskóla. Þýski alþjóðlegi
meistarinn Thomas Henrichs (2.507)
hafði svart gegn Hrannari Baldurssyni
(2141). 15. … Be5! 16. Rh3 Bd4 17.
Bxd4 Dxd4 18. f3 Bxh3 19. Bxh3 Ra6
20. Hc1 Rb4 21. Be6+ Kg7 22. De2
Hae8 23. c5 Hxe6! 24. Dxe6 Hxf3+ 25.
Ke2 Df2+ og hvítur gafst upp enda
mát í næsta leik. Landsmótinu í skóla-
skák lýkur á morgun, sunnudaginn 15.
maí. Keppnin er haldin í Síðuskóla á
Akureyri. Nánari upplýsingar um mót-
ið og aðra skákviðburði er að finna á
www.skak.is.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik