Morgunblaðið - 14.05.2011, Page 54
Allt að vinna og engu að tapa
Vinir Sjonna stíga á svið í aðalkeppni Evróvisjón í kvöld með lagið Aftur heim
Stemningin góð í hópnum og strákarnir í góðu formi fyrir stóru stundina
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Þá er stóri dagurinn runninn upp
þegar Vinir Sjonna stíga á svið í að-
alkeppni Evróvisjón sem fram fer í
Düsseldorf og flytja lagið Aftur
heim. Íslenski flokkurinn verður
þar í flokki frænda okkar frá Dan-
mörku, Svíþjóð og Finnlandi auk
fleiri Evrópuþjóða en alls keppa 25
þjóðir um hnossið. Hópurinn hefur
verið á ferð og flugi síðustu daga og
nóg verið að gera við undirbúning
og viðtöl. Þegar blaðamaður nær
tali af Matthíasi Matthíassyni,
Matta, um hádegisbil á föstudegi, er
hópurinn staddur í Evróvisjónhöll-
inni og er á leiðinni í fyrsta rennsli
fyrir aðalkeppnina í kvöld.
Stóri dagurinn
„Okkur líst vel á þjóðirnar sem
við mætum og erum bara í góðum
málum. Eins og við hugsum þetta
núna höfum við allt að vinna og
engu að tapa. Við ætlum bara að
njóta þess að vera hérna og allir eru
í góðri stemningu. Við eigum eftir
að skila þessu held ég bara nokkuð
vel frá okkur.
Akkúrat núna er að byrja rennsli
með öllum 25 löndunum og við erum
að rölta í herbergið þar sem við
fáum græjuna í eyrun. Síðan er á
dagskránni að bíða í rúman hálftíma
áður en við verðum leidd niður á
svið. Svo er keppni í kvöld þar sem
dómarar allra þjóðanna dæma út
frá þeirri frammistöðu. Kvöldið í
kvöld er því mikilvægt en á morgun
er svo bara stóri dagurinn,“ segir
Matti.
Aukabirgðir af kjöti
Annað rennsli tekur við í hádeg-
inu í dag en Matti vonaðist til að
hópurinn fengi að hvíla sig aðeins
að því loknu fyrir stóru stundina.
Hópurinn hefur notið mikils
stuðnings að heiman og hefur góð-
um kveðjum rignt yfir þá pilta síð-
ustu daga. „Það hefur verið mikill
stuðningur að heiman sem er geggj-
að. Maður heyrir að verið sé að
kaupa aukabirgðir af kjöti í Nótat-
úni og allt að gerast,“ segir Matti. Á
fimmtudagskvöldið horfði hópurinn
á seinni undanúrslitariðilinn. Var
honum vel fagnað þar af aðdáend-
um og piltarnir fengnir í nokkur
viðtöl. Það hefur því verið nóg að
gera hjá Vinum Sjonna en á mið-
vikudaginn fengu þeir þó kærkom-
inn frídag til að spóka sig um í
borginni og gátu líka haft það nokk-
uð náðugt á fimmtudaginn var.
„Við áttum frábæran dag og héld-
um meðal annars upp á Two Tricky-
afmælið hans Gunna en það eru 10
ár síðan hann var á sviðinu í Kaup-
mannahöfn,“ segir Matti í léttum
dúr og lætur nokkra
brandara falla um fé-
laga sína í hópnum.
Stemningin er
greinilega góð í
hópnum og húm-
orinn hafður í há-
vegum. Nú er
bara að hugsa
hlýtt til strák-
anna okkar
þegar þeir
stíga á
sviðið í
kvöld.
Aðdáendur Þessar gera greinilega ekki upp á milli þjóða og eru í ansi góðum vestum sem líklegast eru heimagerð.
Áfram Ísland Páll Einarsson heldur litríkt Evróvisjónpartý í kvöld.
2010 Lena Meyer-Landrut ÞÝS
2009 Alexander Rybak NOR
2008 Dima Bilan RÚS
2007 Marija Serifovic SER
2006 Lordi FINN
8
9
10
11
14
13
15
16
17
44
25
45
40
37
31
1
2
3
4
49
5
6
7 32
33
41
47
39
18
19
20
21
22
23
24
12
38
46
2627
35
34
28
29
30
42
43
48
36
Írland
Frakkland
Lúxemborg
Bretland
Holland
Svíþjóð
Ísrael
Noregur
SIGURSÆLUSTU ÞJÓÐIRNAR
TÖLFRÆÐI (í þúsundum)
SIGURVEGARAR
SÍÐUSTU FIMM ÁRA
SJÓNVARPSÁHORF
(Úrslit)
GESTIR Á VEF KEPPNINNAR
’08 ’10’09 ’08 ’10’09
73.081
59.792
65.984
88.298 90.820
64.571
Heimild: Evróvisjón
Düsseldorf
Undanúrslit: 10. & 12. maí
Úrslit: 14. maí
Lönd sem eru ekki með í ár
Keppa nú undir nýjum ríkjaheitum
Stofnþjóðirnar 1956
Ljósmynd: Bob Strong, Reuters Grafík: Kinyen Pong/RNGS
Lena
Meyer-
Landrut var
sigurvegari
í fyrra
EVRÓVISJÓN-SÖNGVAKEPPNIN 2011
ÚTBREIÐSLA KEPPNINNAR
Belgía
Frakkland
Þýskaland
Ítalía
Lúxemborg
Holland
Sviss
1
2
3
4
5
6
7
Austurríki
Danmörk
Bretland
Svíþjóð
Mónakó
8
9
10
11
12
Noregur
Finnland
Spánn
Júgóslavía
Portúgal
Írland
13
14
15
-
16
17
Malta
Ísrael
Grikkland
Tyrkland
18
19
20
21
Marokkó
Kýpur
Ísland
22
23
24
Bosnía og Hersegóvína
Króatía
Slóvenía
Eistland
Ungverjaland
Litháen
Pólland
Rúmenía
Rússland
Slóvakía
Makedónía
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
Lettland
Úkraína
Albanía
Andorra
Hvíta-Rússland
Serbía & Svartfjallaland
Búlgaría
Moldóva
Armenía
Tékkland
Georgía
Svartfjallalan
dSerbía
Aserbaídsjan
San Marínó
36
37
38
39
40
-
41
42
43
44
45
46
47
48
49
1950-59
1960-69
1970-79
2000-
1990-99
1980-89 Páll Einarsson er staddur í Part-
íbúðinni að undirbúa Evróvisjón-
partí þegar blaðamaður slær á þráð-
inn til hans. „Mér finnst helst vanta
fána frá öðrum löndum hérna en
annars er úrvalið gott,“ segir Páll.
Hann hefur reynt að halda árlegt
Evróvisjónpartí en fer líka í partí til
vina sem hann segir vera mikla
Evróvisjónfíkla. Eru þá oftast veitt
verðlaun fyrir besta búninginn, að
vera besti stuðningsmaðurinn og
annað slíkt. „Þetta er eitt skemmti-
legasta partí ársins,“ segir Páll sem
hefur verið Evróvisjónaðdáandi síð-
an hann var lítill. „Þegar maður var
lítill krakki þá keyptu mamma og
pabbi kók í gleri og hraun- og æði-
bita og síðan var horft á keppnina,“
rifjar Páll upp. Um 15 manns mæta í
partíið annað kvöld og er skilyrði að
fólk hafi áhuga á keppninni og mæti
tímanlega því húsinu er lokað kl. sjö.
Enda er keppnin þá byrjuð og bann-
að að trufla þá sem fylgjast vel með.
Páll ætlar að skreyta vel en þema
ársins er „Allir litir regnbogans,
gleði og Evrópusambandið“ og von-
ar Páll því að allir mæti skrautlega
klæddir. „Það kom mér á óvart að
Ísland komst áfram sem er auðvitað
gaman því þá verður partíið
skemmtilegra,“ segir Páll sem segist
halda með sínu landi þó að lagið sé
ekki endilega í uppáhaldi.
maria@mbl.is
Húsinu lokað á slaginu sjö
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ 2011
Góð stemning hefur myndast fyrir
Evróvisjónkepnninni á Íslandi síð-
ustu daga, enda kom flestum
mjög á óvart að framlag Ís-
lands skyldi komast
áfram og í dag er
spennan auðvitað í há-
marki. Í líkamsrækt-
arstöðvum hefur
sums staðar verið
sérstök þemavika
þessa vikuna. Þar hefur Evr-
óvisjóntónlist fengið að hljóma á
meðan fólk svitnar og púlar. Það
ætti engum að leiðast að lyfta lóð-
um með Gleðibankanum eða hita
sig vel upp með taktföstu lagi Rus-
lönu, enda virðist framtakið frem-
ur hafa glatt landsmenn en hitt.
Nú er bara að gera sér glaðan dag í
kvöld og halda ærlegt Evróvisjónp-
artý.
Svitnað við Gleðibankann
STEMNING