Morgunblaðið - 01.09.2011, Qupperneq 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2011
Hljómsveitin Júdas leikur á Ránni annað
kvöld, 2. september, á Ljósanótt í Reykja-
nesbæ. Júdas kemur enn fram í sinni upp-
runalegu mynd og skipuð þeim Finnboga
Kjartanssyni, Hrólfi Gunnarssyni, Magnúsi
Kjartanssyni og Vigni Bergmann. Hljóm-
sveitin leikur lög frá gullárum hljómsveit-
arinnar, að því er fram kemur í tilkynningu.
Þar segir jafnframt að á tónleikum hljóm-
sveitarinnar í fyrra á Ljósanótt hafi verið
troðfullt og færri komist að en vildu. „Hljóm-
ur og lagaval hljómsveitarinnar var lofaður
mjög og hittust margir af þeim sem stunduðu
böllin með hljómsveitinni á sínum tíma í
fyrsta skipti aftur í áratugi, en út á það geng-
ur hátíðin að hluta,“ segir ennfremur.
Tónleikarnir hefjast kl. 23 og verða miðar
seldir við inngang Ráarinnar. Miðaverð er kr.
1.500.
Júdas á Ránni á Ljósa-
nótt í Reykjanesbæ
Hljómsveitin Varsjárbandalagið heldur
tónleika á kaffihúsinu Café Haiti við Reykja-
víkurhöfn 3. september nk. kl. 21.30. Varsjár-
bandalagið mun flytja tónlist af ýmsu tagi;
balkan, klezmer, popp og rokk með tilrauna-
kenndu ívafi, eins og því er lýst í tilkynningu
vegna viðburðarins. Varsjárbandalagið gaf
nýverið út fyrstu hljómplötu sína, The Russi-
an Bride.
Í bandalaginu eru Magnús Pálsson, Karl
James Pestka, Jón Torfi Arason, Sigríður
Ásta Árnadóttir, Hallur Guðmundsson og
Steingrímur Guðmundsson.
Varsjárbandalagið
leikur á Café Haiti
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Söngvaskáldið Hörður Torfason heldur sína 35.
hausttónleika, hvorki meira né minna, í Borg-
arleikhúsinu núna á föstudagskvöldið. Þetta er
jafnframt í 20. sinn sem þessir árlegu tónleikar
eru haldnir í því húsi. Án þess að hafa kafað
rækilega ofan í þau mál hlýtur að láta nærri að
tónleikaröð þessi sé einsdæmi, að ekki hafi fallið
út ár í allan þennan tíma. Tónleikarnir byrjuðu
látleysislega á sínum tíma; tvær, kannski þrjár
manneskjur viðstaddar, en þegar á leið fóru
tónleikarnir að hlaða utan á sig. Hörður rifjaði
eitt sinn upp í samtali við greinarhöfund að eitt
sinn hefði hann látið sér nægja að halda tónleika
í afmælisveislu hjá Einari Má rithöfundi og voru
þeir félagar þá staddir úti í Kaupmannahöfn.
Að leggja sig í líma
Hörður hefur lagt sig í líma við það allan
þennan tíma að gera hverja og eina tónleika sér-
staka. Stundum hafa sérstök skáld verið tekin
fyrir, Steinn Steinarr, Halldór Laxness og Tóm-
as Guðmundsson t.a.m. Eitt sinn lék Hörður sér
að grímuhugtakinu og stundum fær hann vini
sína upp á svið, Sáðmenn söngvanna eins og
Hörður kallar það.
„Ég verð líklega að koma með staf eða hækju
núna,“ segir Hörður og hlær við þegar blaða-
maður vekur máls á langlífi tónleikaraðarinnar.
En hvað hafa þessir tónleikar gefið Herði í
gegnum tíðina.
„Vel spurt,“ segir hann hugsi og gefur sér
rúman tíma til svara
„Þegar ég var 31 árs var búið að taka mig úr
umferð á landinu sem listamann. Ég fór í kjöl-
farið að ydda blýantinn og hugsa rækilega um
stöðu listamannsins, til hvers hann er og hvað
honum ber að gera. Ég komst að þeirri nið-
urstöðu að mér er ætlað að halda úti umræðu, til
þess er ég að starfa sem listamaður. Það geri ég
í gegnum starfið og nýti til þess menntun mína
og hæfileika. Ég sest niður og skapa söngva og
sögur og ferðast svo um með hljóðfærið einn –
nokkurs konar eins manns leikhús – og reyni að
vekja samfélag mitt til umhugsunar. Reyni að
koma af stað hugsunum, að einstaklingar t.d.
láti ekki fámennan hóp fólks fara illa með sig.
Þjóðfélagið er bara ég og þú. Þú ert samfélagið,
það er ekkert án þín.
Eitthvert gen
Sem listamaður er ég aldrei flokksbundinn,
ég er ekki tengdur neinum trúarhópum eða
stjórnmálaöflum, ég þjóna listinni einni,“ heldur
Hörður áfram. „Það er oft erfitt að standa einn í
þessari baráttu og stundum þarf ég að staldra
við og hörfa inn á við. Er ég heill heilsu? En
þetta er greinilega eitthvert gen í mér og ég er
fastur fyrir í þessari afstöðu minni.“
– Finnst þér þessi áhersla á samfélagslega
ábyrgð vera að minnka hjá listamönnum? Er
þetta viðhorf mögulega að deyja út með þinni
kynslóð?
„Þetta hefur minnkað mikið, því miður, og þá
sérstaklega innan tónlistarinnar,“ svarar Hörð-
ur, nánast mæðulega. Hann kveður fast að.
„Margir búa sér til „front“, en orðin eru inn-
antóm. Þeir fylgja þeim ekki eftir. Þegar maður
gægist á bak við eru þetta peningavélar, sem
spýta út tónlist svo hægt sé að geðjast fólki. Og
það er svosem í lagi, þetta er þeirra líf. Vanda-
málið er það að velmegunarástand svæfir, menn
dofna andlega. Svo verða þeir alveg brjálaðir
þegar allt er tekið frá þeim. Það er annaðhvort í
ökkla eða eyra.“
– Hvaða þema verður svo í ár?
„Ég ætla að leggja áherslu á einfaldleikann,
hafa þetta naumhyggjulegt. Ein rödd, einn
maður, eitt hljóðfæri. Ég hef alltaf nýtt mér
þennan einfaldleika í mínu lífi; á meðan sumir
skrifa dagbækur skrifa ég söngva. Ef eitthvað
liggur á mér þá sem ég um það vísu. Og þegar
maður glímir við orðin, kljáist við tungumálið þá
myndast rytmi sem svo verður að lagi.“
Morgunblaðið/Kristinn
Hugleiðingar „Þú ert samfélagið, það er ekkert án þín,“ segir Hörður Torfason m.a. þegar hann veltir fyrir sér skyldum listamanna.
Hið hugumprúða haust
Hörður Torfason heldur sína 35. hausttónleika í Borgarleikhúsinu á
morgun, föstudag Þetta er í 20. sinn sem þeir fara fram í því leikhúsi
Miðasalan er á Midi.is eða hjá Borgarleikhús-
inu.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Í kvöld mun Skjárinn kynna til sög-
unnar Skjár einn Netfrelsi, þjónustu
við áskrifendur sem er viðbót við þá
sem fyrir er því hægt er að horfa á
valda íslenska þætti á vef Skjásins.
Nú verður hins vegar hægt að horfa
á flesta þætti Skjásins, innlenda sem
erlenda.
Þjónustan verður vígð í kvöld í
dagskrárteiti Skjásins í Íslensku óp-
erunni og munu áskrifendur í kjöl-
farið geta horft á flesta þætti stöðv-
arinnar á netinu, eftir að þeir hafa
verið sýndir á sjónvarpsstöðinni.
Áskrifandinn streymir þættinum til
sín og verður hægt að horfa á þætti
Skjás eins í tveimur tölvum sam-
tímis. Með öðrum orðum geta tveir á
sama heimili horft á þætti stöðv-
arinnar á netinu.
Páll Vignir Jónsson, yfirmaður
tæknideildar á Skjánum, bendir á að
hægt sé að notfæra sér Netfrelsi
hvar sem er svo lengi sem netteng-
ing er til staðar; í bústaðnum, í
vinnunni eða í farsímanum. „Þetta
er ekki allt efnið sem við sýnum,
þetta eru okkar bestu þættir og
flestallir þættirnir en þetta eru ekki
bíómyndir eða spjallþættir,“ segir
Páll um framboðið.
Þróunin erlendis
Páll segir kannanir og mælingar
hafa sýnt að sjónvarpsáhorf fari
minnkandi hér á landi. „Aftur á móti
hefur frelsið hjá okkur sprungið,
fólk er að horfa á sjónvarpsþættina
þegar því hentar og þá sjónvarps-
þætti sem það vill þegar það hentar,
það vill ekki endilega láta stjórna
sér. Þetta er þetta konsept að vera
sinn eigin dagskrárstjóri og við
sjáum að þetta er þróunin, þetta er
líka þróunin erlendis og við fylgj-
umst náið með því. Við höfum alltaf
vilja vera leiðandi í tækniþróun og
teljum okkur vera það,“ segir Páll.
Páll segir að fólk sé mikið að horfa á
sjónvarpsefni á netinu og verið sé að
svara því kalli á Skjánum.
Meðal þeirra erlendu þátta sem
hægt verður að horfa á á Netfrelsi
eru The Borgias, Being Erica, CSI:
New York, Parenthood, One Tree
Hill og Running Wilde.
Netfrelsi Skjámynd af nýjung Skjásins, Skjá einum Netfrelsi. Fyrsti þáttur The Borgias í spilun.
Áskrifendur gerast dagskrárstjórar
Skjár einn Netfrelsi hleypt af stokk-
unum í kvöld Bestu þættirnir sýndir