Morgunblaðið - 09.09.2011, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 9. S E P T E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 211. tölublað 99. árgangur
létt&laggott
BÖRN OG UPPELDI
LEIKFÖNGIN, LEIKSKÓLARNIR, SKEMMTILEGU
UMMÆLIN OG FLEIRA Í 32 SÍÐNA AUKABLAÐI
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Í drögum að viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar,
sveitarstjórna á Suðurnesjum og HS Orku frá því í
apríl 2011 um fyrirhugaðar breytingar á nýting-
arrétti HS Orku á jarðhita á Reykjanessvæðinu
kemur fram að megintilgangur breytinganna er að
stytta leigutímann.
Þetta kemur fram í þeim gögnum sem fjármála-
ráðuneytið tók saman og varða m.a. samskipti
stjórnvalda við Magma, HS Orku og Norðurál.
Forsvarsmenn Norðuráls telja, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins, að ef niðurstaðan verð-
ur sú að stytta leigutíma jarðvarmans á Reykja-
nesi úr 65 árum í 30 til 35 ár, eins og er markmið
stjórnvalda, samkvæmt ofangreindum gögnum,
feli það í sér mun lakari arðsemi fyrir álverið í
Helguvík.
Samkvæmt samningum sem gerðir voru á sínum
tíma á milli HS Orku og Norðuráls, vegna fyr-
irhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík, tók HS Orka
að sér að leiða orkuöflun fyrir álverið og útvega 350
megawött. Ágreiningur er á milli HS Orku og
Norðuráls um efndir þeirra samninga og þar við
sögu kemur einnig Orkuveita Reykjavíkur. Búist
er við að gerðardómur með heimilisfesti í Svíþjóð
úrskurði í þeim ágreiningi fyrir næstu mánaðamót.
Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag kemur
fram að strax í apríl 2010 sendi Ásgeir Margeirs-
son, fyrir hönd Magma Energy Sweden A.B., drög
að sameiginlegri viljayfirlýsingu iðnaðarráðuneyt-
isins og Magma Energy Sweden A.B. til ráðuneyt-
isins þar sem m.a. sagði: „Aðilar munu … kanna til
þrautar hvort hægt sé að breyta núverandi leigu-
samningum, þannig að samningar verði í samræmi
við ætlun ríkisstjórnarinnar.“
Áhersla á styttri leigutíma
Drög að sameiginlegri viljayfirlýsingu iðnaðarráðuneytisins og Magma Energy
Sweden samin af Magma Styttri leigutími dregur úr arðsemi álvers í Helguvík
MKnúið á um styttingu leigutíma »16-17
Íslenska barnamyndin Algjör Sveppi og töfra-
skápurinn var frumsýnd í gærkvöldi að við-
stöddu fjölmenni. Er það þriðja myndin um
Sveppa og félaga en hinar tvær heita Leitin að
Villa og Dularfulla hótelherbergið.
Aðalleikurum myndarinnar, Sveppa, Villa og
Góa, var vel fagnað af ungum aðdáendum þegar
þeir mættu hressir með strætisvagni á frumsýn-
inguna í Sambíóinu Egilshöll. »40
Morgunblaðið/Eggert
Sveppi, Villi og Gói í strætó á frumsýningu
Steve Coppell,
fyrrverandi
knattspyrnu-
stjóri Reading
og leikmaður
Manchester
United og enska
landsliðsins á ár-
um áður, hefur
mikinn áhuga á
að taka við starfi
landsliðsþjálfara Íslands í knatt-
spyrnu karla. Hann hefur komið
boðum til KSÍ um áhuga sinn
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins og má búast við að rætt
verði við hann áður en langt um
líður.
Sem kunnugt er stýrir Ólafur
Jóhannesson íslenska landsliðinu í
síðasta sinn í leiknum gegn Portú-
gölum í undankeppni EM í Lissa-
bon í næsta mánuði og er leit þeg-
ar hafin að eftirmanni hans.
Svíinn Lars Lägerback hefur ver-
ið orðaður við starfið sem og Írinn
Roy Keane. » Íþróttir
Coppell
vill stýra
landsliðinu
Steve Coppell
Hefur komið boðum
til KSÍ um áhuga sinn
Öll tilskilin leyfi til byggingar Þor-
láksbúðar í Skálholti liggja fyrir, að
sögn talsmanns Þorláksbúðarfélags-
ins, þingmannsins Árna Johnsen.
„Þetta var allt formlega samþykkt
og fengust leyfi fyrir öllum fram-
kvæmdum frá réttum aðilum. Það er
verið að smíða á fullu og gengur
bara vel. Það má alltaf reikna með
skiptum skoðunum, það er bara eðli-
legt, en allt þetta mál hefur verið í
eðlilegum farvegi,“ segir Árni.
Fram hefur komið gagnrýni á fram-
kvæmdina sem þykir m.a. vera til
óþurftar og smekklaus en Þorláks-
búð á að standa við hlið Skálholts-
kirkju. Árni segir Sigurð heitinn
Sigurðarson, vígslubiskup í Skál-
holti, hafa verið forvígismann þess
að Þorláksbúðarfélagið var stofnað.
Endurbyggða Þorláksbúð á að nýta
undir kirkjulegar athafnir og aðrar
samkomur. »6
Endurgerð Þorláksbúðar í Skálholti er um-
deild en öll leyfi til byggingar liggja fyrir
Þorláksbúð Nýbyggingin verður
við hlið Skálholtskirkju.
Steingrímur J.
Sigfússon segir
að aldrei hafi
staðið til og engin
tilraun verið til
þess gerð að hafa
áhrif á við hverja
HS orka myndi
semja um orku-
kaup. Hann hafi á
hinn bóginn rætt
um áhuga á að tryggja hér fjöl-
breytni í atvinnulífinu og að það
væri kostur ef fleiri aðilar gætu
nýtt sér orkuna. Þá hafi hann rætt
við forstjóra Magma Energy um að
Magma myndi aldrei ásælast meira
en 50% í HS orku en ekkert sam-
komulag hefði náðst um það. »13
Reyndi ekki að hafa
áhrif á sölusamninga
Steingrímur J.
Sigfússon
Tímabært er að endurskoða lög
um kaup erlendra aðila utan EES á
fasteignum hér á landi. Sú heimild
sem innanríkisráðherra hefur til að
víkja frá lögunum er óheppilega
víðtæk. Þetta kom fram á fundi
Lögfræðingafélags Íslands í gær.
Þar kom fram að það væri
áhyggjuefni hversu sinnulaust ís-
lenska ríkið væri um jarðeignir sín-
ar. Ennfremur kom fram að mik-
ilvægt væri að greina á milli þess
sem fælist í inntaki eignarráða eig-
anda annars vegar og svo þeirrar
grundvallarspurningar hvort út-
lendingar ættu að geta keypt fast-
eignir hér. »4
Undanþáguheimild
óheppilega víðtæk