Morgunblaðið - 09.09.2011, Qupperneq 2
Bátarnir
» Stór hluti muna Byggða-
safnsins á Görðum tengist sjó-
mennsku.
» Kútter Sigurfari er án efa
einn veglegasti gripur safnsins
en hann stendur úti á safna-
svæðinu ásamt vélbátunum
sex sem hafa orðið fyrir
skemmdum.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Sex gamlir vélbátar sem standa á
útisvæðinu við Byggðasafnið í
Görðum á Akranesi hafa orðið fyrir
miklum skemmdum í sumar af
manna völdum. Jón Allansson,
forstöðumaður Byggðasafnsins á
Akranesi, segir málið grafalvarlegt
enda tengjast bátarnir sögu svæð-
isins og eru í eigu byggðasafnsins.
„Þetta eru sex gamlir vélbátar
sem standa óvarðir úti hjá okkur og
eru hálfgert leiksvæði fyrir krakka.
Það var brotið stýrishús á einum og
lunning á að minnsta kosti tveimur
bátum í sumar. Um leið og sá skaði
var skeður var eins og það væri
gefið skotleyfi á það sem eftir var,“
segir Jón. Ekki er vitað hverjir
skemmdu bátana og málið hefur
ekki verið kært til lögreglu.
Ekki að gerast í fyrsta skipti
Bátarnir verða lagfærðir bráð-
lega enda eru þeir verðmætir. Jón
segir þá þó ekki vera alveg ein-
staka, það séu hugsanlega til ein-
hver fleiri eintök. „Einn bátanna er
smíðaður í Hvallátrum, einn á Snæ-
fellsnesi, annar á Siglufirði og þrír
hér á Akranesi. Sá elsti er smíð-
aður í kringum 1954. Ásamt þeim
stendur Kútter Sigurfari óvarinn á
útisvæðinu.“
Jón segir þetta ekki vera í fyrsta
skipti sem bátar á svæðinu eru
skemmdir. „Þetta gerist alltaf af og
til. Það er hægt að gera þetta í
skjóli myrkurs og það eru alltaf
skemmd epli innan um. Það er
stundum eins og það megi skemma
báta á þurru landi og ef það eru
komnar skemmdir þá megi halda
áfram að eyðileggja þá.“
Spurður hvort eigi að grípa til
aðgerða til að sporna við þessu seg-
ir Jón að það sé ýmislegt í skoðun.
„Það gæti hugsanlega þurft að
girða svæðið af en þetta er stórt
svæði og það yrði kostnaðarsamt.
En við hugum frekar að öðrum
áformum áður en við gerum það,
hugsanlega meiri vöktun.“
Vélbátarnir sem standa úti heita
Bjarmi SH 207, Smári SI 35, Síldin
AK 88, Draupnir BA 40, Sigursæll
AK 87 og Sæljón AK 24.
Ljósmynd/Hilmar Sigvaldason
Smári SI 35 Stýrishúsið hefur verið mölbrotið á Smára sem var smíðaður á Siglufirði árið 1957 af Kristjáni Sigurðssyni bátasmið.
Skemmdir í skjóli myrkurs
Sex gamlir vélbátar sem standa óvarðir úti á safnasvæðinu á Akranesi voru
skemmdir í sumar Brotið stýrishús á einum og lunning á tveimur bátum
Ljósmynd/Hilmar Sigvaldason
Bjarmi SH 207 Smíðaður árið 1961 og gefinn Byggðasafni Akraness árið 1993. Lunningin hefur verið rifin af.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Reykjavík gerð-
ist nýlega félagi
í samtökunum
Icorn, en í því
felst að borgin
verður skjólborg
rithöfunda, sem
ekki er vært í
heimalandi sínu
vegna ofsókna.
Fyrsti rithöfund-
urinn er væntanlegur til landsins í
haust. Ekki er hægt að gefa upp
nafn hans vegna hugsanlegra of-
sókna sem hann gæti sætt vegna
þessa. „Það er mikilvægt að það
spyrjist ekki út hver þetta er, því
þetta fólk er ofsótt í heimalandi
sínu,“ segir S. Björn Blöndal, að-
stoðarmaður borgarstjóra.
Á vefsíðu Icorn er listi yfir rit-
höfunda sem hafa fengið skjól í
ýmsum löndum. Þeirra á meðal er
jemenski rithöfundurinn Mansur
Rajih, sem undanfarin 13 ár hefur
verið búsettur í Noregi, en áður
hafði hann verið í fangelsi í 15 ár
vegna skoðana sinna.
S. Björn segir að rithöfundinum
verði komið fyrir í íbúð og hann
fái peninga til að framfleyta sér.
„Það þarf líka að gera fólki kleift
að skila einhverju til baka til sam-
félagsins. En það mikilvægasta í
þessu öllu saman er að við erum að
bjarga mannslífi,“ segir S. Björn.
Nafn ofsótts rit-
höfundar ekki
gefið upp strax
S. Björn Blöndal
Tveir menn stálu bíl konu sem brá
sér inn á bensínstöð við Borgartún
um miðjan dag í gær. Þeir bökkuðu
á tvo bíla sem voru við bensínstöð-
ina og stórskemmdu bílinn. Þeir
hlupu á brott, en snarráðir vegfar-
endur stöðvuðu þá og afhentu lög-
reglu eftir að hafa beitt svokallaðri
borgaralegri handtöku.
Málið var tilkynnt lögreglu um
klukkan fjögur í gær.
Lögreglan kom fljótlega og tók
mennina í sína vörslu. Þeir voru
undir miklum áhrifum vímugjafa.
Þeir voru vistaðir í fangaklefa og
til stóð að yfirheyra þá nú í morg-
unsárið.
Vegfarendur hand-
tóku bílþjófa
Ljósmynd/Reynir
Tjón Bíllinn stórskemmdist.
Fjórir erlendir ferðamenn voru sl. þriðjudag látnir greiða
sektir vegna utanvegaaksturs á Sprengisandi. Brotin voru
framin í umdæmi lögreglunnar á Húsavík, sem rannsakaði
málið og sendi það því næst lögreglunni á Seyðisfirði til af-
greiðslu, þar sem ferðamennirnir voru á förum úr landi með
Norrænu. Að sögn Sigurðar Brynjólfssonar, yfirlögregluþjóns
á Húsavík, óku ferðamennirnir á mótorhjólum á mörgum
stöðum um mela fyrir utan merktan veg á Dyngjufjallaleið,
milli Öskju og Nýjadals. Landverðir urðu þeirra varir, gripu í
taumana og gerðu lögreglu viðvart. Tóku þeir ljósmyndir af
ummerkjunum eftir utanvegaaksturinn. Þótt ferðamennirnir
hafi ekki valdið miklum gróðurskemmdum með akstri sínum
geta hjólförin sést lengi á svæðinu. Samanlögð upphæð sekt-
anna sem mönnunum var gert að greiða var tvö hundruð þús-
und krónur.
Óku víða utan
vega og voru
gripnir við iðjuna
Ljósmynd/Landverðir
Sektaðir Fjórum mótorhjólum var ekið víða utan vega. Sektirnar námu um 200.000 kr.
Landverðir gripu í taumana
Ekkert bendir til þess að fjár-
framlagi ríkisins til Kvikmynda-
skóla Íslands hafi verið varið til
óskyldrar starfsemi eða fjármunir
hafi runnið með óeðlilegum hætti
út úr rekstri skólans. Rekja má
fjárhagsvanda skólans til þess að
nemendum var fjölgað langt um-
fram viðmið þess styrktarsamnings
sem í gildi var á milli skólans og
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins. Kemur þetta fram í minn-
isblaði sem Ríkisendurskoðun sendi
til mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins í gær.
Ráðuneytið hafði áður óskað eft-
ir því að Ríkisendurskoðun gerði
athugun á ráðstöfun framlags úr
ríkissjóði vegna kvikmyndanáms til
skólans á undanförnum árum. Í til-
kynningu frá ráðuneytinu segir að
niðurstaðan breyti engu um mat
ráðuneytisins á rekstrarhæfi skól-
ans og að niðurstaðan sé að skólinn
geti ekki uppfyllt skilyrði við-
urkenningar um rekstrarhæfi.
Skólinn nýtti fjár-
framlag ríkisins rétt