Morgunblaðið - 09.09.2011, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Þetta var allt formlega samþykkt og
fengust leyfi fyrir öllum fram-
kvæmdum frá réttum aðilum. Það er
verið að smíða á fullu og gengur bara
vel. Það má alltaf reikna með skipt-
um skoðunum, það er bara eðlilegt,
en allt þetta mál hefur verið í eðlileg-
um farvegi og er meira en hálfnað.
Þetta er hluti af sögu Skálholts allt
frá 12. öld og verið að sýna sögunni
og staðnum virðingu,“ segir Árni
Johnsen, þingmaður og talsmaður
Þorláksbúðarfélagsins, sem stofnað
var um endur-
byggingu Þor-
láksbúðar við
Skálholtskirkju.
Fram hefur
komið gagnrýni á
framkvæmdina í
aðsendum grein-
um í Morgun-
blaðinu að und-
anförnu, eftir þá
Þorkel Helgason
stærðfræðing og Eið Guðnason, fv.
sendiherra. Vilja þeir stöðva fram-
kvæmdir og draga jafnframt í efa að
tilskilin leyfi hafi fengist hjá öllum
hlutaðeigandi aðilum.
Þorláksbúð er kennd við Þorlák
helga Þórhallsson, verndardýrling
og biskup í Skálholti á 12. öld, sem
Þorláksmessan er kennd við. Var
Þorláksbúð notuð sem skrúðhús,
geymsla og eftir atvikum kirkja þeg-
ar stóru kirkjurnar brunnu.
Að sögn Árna fóru fram fornleifa-
rannsóknir á Þorláksbúð kringum
1950 á vegum Kristjáns Eldjárns og
verða fornar rústir gerðar sýnilegar í
endurbyggðu húsinu, enda var það
eitt skilyrða Fornleifaverndar.
Endurgerðin er teiknuð af Gunn-
ari Bjarnasyni byggingarmeistara,
sem áður hefur m.a. komið að bygg-
ingu Auðunarstofu á Hólum og kirkj-
unnar á Stöng í Þjórsárdal.
Draumur Skálholtsmanna
Árni segir Sigurð heitinn Sigurð-
arson, vígslubiskup í Skálholti, hafa
verið forvígismann þess að Þorláks-
búðarfélagið var stofnað.
Þetta hafi verið gamall
draumur Sigurðar og
þeirra Skálholtsmanna.
Félagið tók að sér
að koma húsinu
upp og fjármagna
framkvæmdir.
Að því loknu
verður það afhent Skálholtskirkju til
afnota. Er hugmyndin að nota Þor-
láksbúð til kirkjulegra athafna, tón-
leika, fyrirlestra og annarra sam-
koma. Að sögn Árna hefur fjármagn
komið úr ríkissjóði, frá kirkjunni og
einkaaðilum og endanlegur kostn-
aður verði rúmar 20 milljónir króna.
Árni bendir á að stjórn Skálholts
hafi gefið sitt leyfi, sem og kirkjuráð,
fjárhagsráð kirkjunnar, bygging-
arnefnd Bláskógabyggðar og Forn-
leifavernd ríkisins. Engar athuga-
semdir hafi verið gerðar af þessum
aðilum. Einnig hafi fornleifafræð-
ingar gert þarna rannsóknir að
beiðni Fornleifaverndar. Jafnframt
hafi sr. Sigurður heitinn haft sam-
band við Garðar Halldórsson, sem
gætir höfundarréttar erfingja Harð-
ar Bjarnasonar, arkitekts Skálholts-
kirkju.
Hleðsla á veggjum Þorláksbúðar,
sem eru úr torfi og grjóti, hófst vorið
2010 og er nú lokið. Verið er að smíða
sjálft kirkjuskipið, eða tréverkið, úr
sérvöldu timbri að utan og er stefnt á
að koma því fyrir á sínum stað í
næsta mánuði. Af því tilefni verður
efnt til skötuveislu í Skálholti, sem
verður síðbúin veisla tengd Þorláks-
messu á sumri. Vonast Árni svo til að
hægt verði að vígja Þorláksbúð
næsta sumar.
Skiptar skoðanir um
endurgerð Þorláksbúðar
Talsmaður Þorláksbúðarfélagsins segir öll tilskilin leyfi hafa legið fyrir
„Það er óskiljanlegt að yfirvöld í Skálholti skuli hafa leyft mönnum að böðl-
ast áfram með þessa óþurftarframkvæmd á helgum stað,“ ritaði Eiður
Guðnason m.a. í grein sinni sl. þriðjudag um gerð Þorláksbúðar.
Þorkell Helgason vakti athygli á framkvæmdunum í grein í blaðinu 25.
ágúst sl. undir fyrirsögninni „Búngaló að rísa hornskakkt á Skálholts-
kirkju“. Vísaði hann þar til sögu Halldórs Laxness, Kristnihald undir Jökli,
um það sem Umbi hafði eftir biskupi um „höfuðósmíð“ sem risin væri fyrir
vestan á vegum Godman Sýngmann. Sagði Þorkell að slík höfuðósmíð væri
að rísa við Skálholtskirkju. „Smekkleysuna í Skálholti verður að stöðva taf-
arlaust og færa tóftina til fyrra horfs; „megi kirkjuyfirvöldin flytja það af
staðnum“ eins og Halldór Laxness lætur Umba bóka. Godman Sýngmann á
ekkert erindi í Skálholt,“ ritaði Þorkell m.a.
Árni Johnsen segist ekki ætla að svara gagnrýni Þorkels og Eiðs sér-
staklega, að öðru leyti en því að „Þorkell ætti að halda sig við stærðfræði
frekar en að túlka Halldór Laxness. Halldór túlkar alveg nógu vel sjálfur það
sem hann skrifar. Hann [Þorkell] þarf ekkert að leggja fólki orð í munn
hvernig það á að skilja Halldór Laxness. Fólk skilur Halldór Laxness.“
Sr. Kristján Björnsson, sem átti sæti í stjórn Skálholts, segir
öll leyfi hafa legið fyrir áður en hafist var handa og áform
Þorláksbúðarfélagsins fengið viðeigandi kynningu hjá öll-
um sem um málið þurfi að fjalla. Hann segist skilja
það vel að menn hafi á þessu skiptar skoðanir en í
Skálholti þurfi einnig að vera framkvæmdir, eigi
staðurinn ekki að staðna.
Segja Godman Sýngmann
ekkert erindi eiga í Skálholt
VITNA Í NÓBELSSKÁLDIÐ Í GAGNRÝNI SINNI
Teikning af
Þorláksbúð
Árni Johnsen
Þorláksbúð Tölvugerð mynd af Þorláksbúð þar sem hún mun standa við hlið Skálholtskirkju.
Ekki kom fram
krafa á vettvangi
Samfylking-
arinnar áður en
tilskilinn frestur
rann út, um að
fram færi alls-
herjaratkvæða-
greiðsla um for-
mann flokksins
fyrir landsfund-
inn, sem haldinn
verður 21. til 23. október. Skv. lögum
flokksins þarf krafa um formanns-
kosningar að koma fram ekki síðar
en 45 dögum fyrir boðaðan lands-
fund. Sá frestur rann út sl. þriðju-
dag.
Kosningar um forystu Samfylk-
ingarinnar til næstu tveggja ára fara
því fram á landsfundinum sjálfum.
Þær upplýsingar fengust innan
Samfylkingarinnar að ekki hefði
frést af neinum framboðum gegn nú-
verandi forystu. Jóhanna Sigurð-
ardóttir, formaður Samfylking-
arinnar, sagði í viðtali við DV í vor
að hún ætlaði að gefa kost á sér
áfram sem formaður Samfylking-
arinnar. Undirbúningur fyrir lands-
fundinn, sem haldinn verður í
íþróttahúsi Vals á Hlíðarenda, er í
fullum gangi þessa dagana.
omfr@mbl.is
Enginn
krafðist
kosninga
Undirbúningur lands-
fundar í fullum gangi
Jóhanna
Sigurðardóttir
Skuldir Seyðisfjarðarkaupstaðar
höfðu aukist úr 714 millj. kr. árið
2002 í 1.365 millj. kr. árið 2010, eða
nær tvöfaldast. Kemur þetta fram í
nýrri skýrslu um rekstur og stjórn-
skipulag bæjarins sem Haraldur L.
Haraldsson hagfræðingur vann að
beiðni bæjarstjórnarinnar.
Seyðisfjarðarkaupstaður er eitt
skuldsettasta sveitarfélag landsins
m.v. ársreikninga sveitarfélaga
2010. Í skýrslunni segir að sveitarfé-
lagið hafi þurft á sl. ári að ganga á
eigur sínar og taka ný lán til að geta
staðið í skilum með dagleg útgjöld
sín. Í krónum talið voru það fræðslu-
og uppeldismál sem fóru mest fram
úr áætlun, eða 9,6% umfram. Einnig
kemur fram að 59,5% af tekjum
Seyðisfjarðarkaupstaðar fari í
launakostnað.
Skuldsettur
Seyðisfjörður
60% af tekjum í laun
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra gaf í gær út
heimild til íslenska loðnuveiðiskipa
á komandi loðnuvertíð til veiða á
181.269 tonnum af loðnu.
Um er að ræða upphafsheimild
sem er nokkru fyrr á ferðinni nú
en síðasta vetur þar sem ráðgjöf
Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir
komandi vertíð hefur legið fyrir
síðan í júní. Ráðherra tekur mið
af tilmælum Hafrannsóknastofn-
unarinnar þegar aflaheimildir ís-
lenskra skipa eru reiknaðar út frá
helmingi af ráðlögðum upphafs-
kvóta vertíðarinnar sem er
732.000 lestir. Einnig ráðlagði
Hafrannsóknastofnunin að sum-
arveiðar á loðnu yrðu ekki leyfðar.
Með þetta að leiðarljósi var ákveð-
ið að loðnuveiðar í íslenskri fisk-
veiðilögsögu stæðu frá 1. október
2011 til 30. apríl 2012. Einungis
skip sem hafa aflamark í loðnu
geta stundað veiðarnar.
Á síðasta vetri námu loðnuheim-
ildir innan lögsögunnar samtals
325 þúsund tonnum en þar af fóru
um 73 þúsund tonn til erlendra
skipa samkvæmt milliríkjasamn-
ingum. Miðað við þær forsendur
sem nú liggja fyrir er líklegt að
hluti íslenskra skipa af heildinni
verði um hálf milljón tonna.
Varlega áætlað og miðað við
hagstæða samsetningu í bræðslu
aflans, frystingar og hrogna-
vinnslu má reikna með að heild-
arverðmæti úr sjó verði 20 til 30
milljarðar króna, að mati ráðu-
neytisins.
Hafrannsóknastofnunin fór í
loðnumælingar í janúar á þessu
ári. Niðurstöður mælinganna voru
mjög jákvæðar og í framhaldi af
því var loðnukvótinn aukinn um
125 þúsund tonn. sisi@mbl.is
Loðnuveiði hefst í október
Líklegt er að kvóti íslenskra skipa verði um hálf milljón
tonna Aflaverðmæti gæti orðið 20-30 milljarðar króna
Morgunblaðið/Ómar
VEIÐIBÚÐIN ÞÍN Á NETINU
veidimadurinn.is