Morgunblaðið - 09.09.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Orðaskipti Bjarna Benedikts-sonar, formanns Sjálfstæð-
isflokksins, og Svandísar Svav-
arsdóttur, umhverfisráðherra
Vinstri grænna, á Alþingi í gær
hljóta að verða formanni Vinstri
grænna umhugsunarefni. Svandís
hefur hingað til
staðið þétt að baki
Steingrími sama
hvaða U-beygjur
hann hefur tekið
með stefnu flokks-
ins í ýmsum málum.
Þegar BjarniBenediktsson
spurði hana út í þá
tvöfeldni sem Stein-
grímur J. hefði sýnt
í málefnum Magma,
HS Orku og bygg-
ingar álvers í
Helguvík treysti
hún sér ekki til að
verja gjörðir formanns síns.
Til að komast hjá því að taka tilvarna fyrir Steingrím greip
Svandís til þess bragðs að veitast að
Morgunblaðinu og sérstaklega að
þeim blaðamanni sem skrifað hafði
fréttaskýringuna. Hún kaus þá leið
að halda því fram að heimildin fyrir
óheilindum Steingríms væri
ótraust.
En þó að lágkúran í málflutningiSvandísar sé alger sýnir hún
vel þann vanda sem Steingrímur er
í eftir að hafa verið afhjúpaður.
Það vill nefnilega svo til að umfjöll-
un Morgunblaðsins byggist á skrif-
legum gögnum frá fjármálaráðu-
neytinu.
Svar Svandísar gerir þess vegnaekkert annað en draga fram
hvílíkt hneyksli málið er fyrir
Steingrím og ríkisstjórnina. Svan-
dís gat ekki gert Steingrími meiri
óleik en að svara eins og hún gerði.
Var það kannski ætlunin?
Bjarni
Benediktsson
Svar Svandísar
STAKSTEINAR
Svandís
Svavarsdóttir
Veður víða um heim 8.9., kl. 18.00
Reykjavík 7 léttskýjað
Bolungarvík 6 skýjað
Akureyri 5 skýjað
Kirkjubæjarkl. 11 léttskýjað
Vestmannaeyjar 8 heiðskírt
Nuuk 7 skúrir
Þórshöfn 11 alskýjað
Ósló 16 léttskýjað
Kaupmannahöfn 15 léttskýjað
Stokkhólmur 15 léttskýjað
Helsinki 13 skýjað
Lúxemborg 15 skýjað
Brussel 13 skýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 18 léttskýjað
París 18 skýjað
Amsterdam 16 skúrir
Hamborg 12 léttskýjað
Berlín 15 skýjað
Vín 18 skýjað
Moskva 12 skúrir
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 33 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 27 léttskýjað
Montreal 21 skýjað
New York 22 heiðskírt
Chicago 21 skýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:33 20:18
ÍSAFJÖRÐUR 6:34 20:28
SIGLUFJÖRÐUR 6:16 20:11
DJÚPIVOGUR 6:02 19:49
Grímur Marínó Steindórsson, listamaður í Kópavogi,
saknar enn fjögurra listaverka sem var stolið fyrir ári,
þann 26. ágúst 2010, daginn eftir að þau voru sett upp.
Listaverkin sem um ræðir voru unnin í ryðfrítt stál.
Urta, kópur og tveir fuglar. Verkin voru fest með
löngum pinnum í fjörugrjót sunnanmegin í fjörunni við
Kársnesbraut.
„Það kom maður til mín og bað mig um að gera verk á
þessa steina sem eru þarna. Ég var nú ekki að flýta mér
meira en það að hann kom tvisvar, þrisvar og þá fór ég
að gera þetta og kláraði málið. Hann hafði fengið heimild
til að setja þetta niður á þessum stöðum, eftir minni
bestu vitund,“ segir Grímur sem segist ekki hafa talað
við neinn nema verkbeiðandann um það.
„Verkin voru staðsett út af Kársnesinu, sunnan megin,
á steinum sem var komið þar fyrir einu eða tveimur ár-
um áður. Það var þá verið að lagfæra fjöruborðið. Sé far-
ið göngustíginn fjöruna og horft til Bessastaða, þá eru
steinarnir í fjörunni, í þá áttina, segir Grímur.
Hann segir ekki hafa verið létt að fjarlægja verkin.
„Það var selur og kópur og svo tveir fuglar. Allt farið.
Það átti ekki að vera hægt að ná þessu upp með góðu
móti, það var lím sett með þessu,“ segir Grímur sem
finnst líklegt að nota hafi þurft tæki til að fjarlægja verk-
in. Grímur var bæjarlistamaður í Kópavogi. „Það er mik-
ið af verkum eftir mig í Kópavoginum og víða um land.
Bæði úti- og innilistaverkum,“ segir Grímur og bætir við
að hann sé nú með sýningu á fjórðu hæð Perlunnar.
Grímur vill gjarnan fá að vita hvort einhver gæti upp-
lýst hvar verkin eru niðurkomin. sigrunrosa@mbl.is
Dularfullur listaverka-
þjófnaður í Kópavogi
Kyrrð Kópurinn var hluti af listaverki Gríms Marínós Steindórssonar. Verkið hvarf úr fjörunni í Kópavogi.
Fjórum málmskúlptúrum stolið úr fjörunni við Kársnes
List Verk Gríms áður en þau voru sett upp í fjöruborð-
inu við Kársnes. Þau voru horfin daginn eftir.
Jón Bjarnason,
sjávarútvegs- og
landbún-
aðarráðherra,
lýsti andstöðu
sinni við hug-
myndir um fjölg-
un aðstoðar-
manna ráðherra í
óundirbúnum
fyrirspurnum á
Alþingi í gærmorgun. Var Jón að
svara fyrirspurn frá Vigdísi Hauks-
dóttur, þingmanni Framsóknar-
flokksins.
Sagði Jón ráðherra vera verk-
stjóra í sínu ráðuneyti og það mætti
ekki búa þannig um hnútana að það
yrði meiri vinna fyrir þá að stýra að-
stoðarmönnum sínum en viðkom-
andi ráðuneytum.
Tilefni fyrirspurnar Vigdísar var
þær breytingar sem allsherjarnefnd
Alþingis vill gera á lögum um
stjórnarráðið sem fela í sér að að-
stoðarmenn ráðherra geti orðið 23 í
allt. Þeir eru nú 10 talsins.
Við sama tækifæri ítrekaði Jón
Bjarnason að hann væri andvígur
áformum í sama frumvarpi að stofna
eitt atvinnuvegaráðuneyti sem
myndi fela það í sér að ráðuneyti
Jóns, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytið, yrði lagt niður.
Komið hefur fram í fréttum að Jó-
hanna Sigurðardóttir leggi mikla
áherslu á þessa breytingu.
Jón vill
ekki fleiri
til aðstoðar
Ítrekar andstöðu
við sameiningu
Jón Bjarnason
Borgarráð hefur samþykkt að flýta
framkvæmdum við Norðlingaskóla.
180 milljónum króna verður varið
til viðbótar í framkvæmdir við skól-
ann umfram það sem áætlað hafði
verið til verksins á þessu ári. Þess
er nú vænst að allt skólahúsnæðið
verði komið í notkun og skólalóð
tilbúin á fyrri hluta árs 2012.
Framkvæmdum flýtt
við Norðlingaskóla