Morgunblaðið - 09.09.2011, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Að frumkvæði hverfisráðs Árbæj-
ar, hverfisráðs Breiðholts og Orku-
veitu Reykjavíkur verður efnt til
íbúasamráðsfundar um Elliðaárdal-
inn laugardaginn 10. september í
félagsheimili OR í Elliðaárdal kl.
11:00. Fundurinn er kynntur undir
yfirskriftinni „Síðasti dalurinn í
bænum“.
Netspor mun hafa umsjón með
fundinum sem verður í formi svo-
kallaðs heimskaffis sem byggist
meðal annars á virkri þátttöku
fundarmanna.
Morgunblaðið/Eggert
Dalurinn Lífið í Elliðaárdal er litskrúðugt.
„Síðasti dalurinn
í bænum“
Fjölskylduhjálp Íslands á Reykja-
nesi hefur flutt í stærra og betra
húsnæði í Grófinni 10 C þar í bæ.
Húsnæðið, sem tekið hefur verið á
leigu, er 150 fm að stærð og aðbún-
aður er hinn besti að mati tals-
manna Fjölskylduhjálparinnar. Út-
hlutunin er á fimmtudögum frá kl.
16 til 18. „Það voru góðir menn sem
lánuðu okkur endurgjaldslaust hús-
næði í tíu mánuði í Hafnargötu 29 á
Reykjanesi og gerðu okkur þar
með kleift að opna Fjölskylduhjálp
Íslands fyrir Suðurnesin,“ segir í
tilkynningu. Þetta voru Steinþór
Jónsson, Sverrir Sverrisson og
Brynjar Steinarsson, eigendur
eignarhlaldsfélagsins Gullmolans.
Fjölskylduhjálp
flutt í nýtt húsnæði
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavík-
ur, hefur opnað nýja vefsíðu fyrir
Reykjavík Bókmenntaborg
UNESCO á vefslóðinni www.bok-
menntaborgin.is.
Á vefsíðunni er að finna upplýs-
ingar um bókmenntalífið í Reykja-
vík. Þar má m.a. nálgast umsókn
borgarinnar til UNESCO, nýjar
bókmenntagöngur í rafrænu formi
og taka þátt í að færa borgina í orð
í verkefninu OrðUm Reykjavík.
Bókmenntaborgin
Helgi Skúli
Kjartansson,
prófessor við
Kennaradeild
Háskóla Íslands,
fer fyrir göngu
um slóðir
menntunar og
fræðslu í höf-
uðborginni á
morgun.
Gangan hefst
kl. 14.00 við gatnamót Póst-
hússtrætis og Hafnarstrætis þar
sem í fyrsta sinn var reist hús yf-
ir barnaskóla bæjarins. Leiðin
liggur svo um Austurvöll til að
minna á Kvennaskólann og Há-
skóla Íslands því hann starfaði í
Alþingishúsinu áratugum saman.
Næst liggur leiðin í Lækjargöt-
una þar sem Menntaskólinn í
Reykjavík starfar ennþá í sínu
gamla húsi, svo um Fríkirkjuveg
að Miðbæjarskólanum og Kvenna-
skólanum.
Ferðinni lýkur við Kenn-
arahúsið, áður Kennaraskóla Ís-
lands, þar sem einnig starfaði
fyrsta dagheimilið á Íslandi.
Gönguferð um
slóðir menntunar
og fræðslu
Helgi Skúli
Kjartansson
STUTT
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Rífandi gangur hefur verið í Selá í
Vopnafirði í sumar og stórir fiskar
að veiðast. Á mánudaginn var
landaði veiðimaðurinn Thomas
Mahnke 105 cm hæng í Fosshyl.
Að sögn Gísla Ásgeirssonar leið-
sögumanns glímdi Mahnke við
tröllið í rúmlega tvær klukku-
stundir. „Hængurinn var tiltölu-
lega nýgenginn og sprækur eftir
því, enda hafði hann ekki mikið
fyrir því að láta veiðimann og leið-
sögumann elta sig niður flúðir og
strengi en fiskinum var landað á
Fossbreiðu,“ segir Gísli. Fiskurinn
tók „míkrókón“ með krók númer
14 og er stærsti lax sumarsins í
Selá.
Tæplega 100 laxar veiddust í
Selá í síðustu viku á stangirnar sjö
og höfðu 1.820 laxar veiðst á mið-
vikudag. Síðustu daga hefur kóln-
að talsvert á norðausturhorninu og
líklegt að takan róist því eitthvað.
105, 107, 108
Stórlaxafréttir halda áfram að
berast víða að. Í Miðfjarðará fór
veiðin yfir 2.000 laxa í vikunni og
þá veiddust 106 og 102 cm laxar í
Austurá, og einn 100 cm í gær. Að
sögn Rafns Vals Alfreðssonar,
leigutaka árinnar, var síðasta vika
góð en þá veiddust um 150 laxar.
„Í Haffjarðará var veiðin að
sigla í 1.460 laxa og í vikunni
veiddist sá stærsti í sumar, 107 cm
hrygna,“ segir Einar Sigfússon,
annar eigandi árinnar. Þessi
hrygna, sem hann segir hafa verið
„hnöttótta“, veiddist í Sauðhyl og
setti veiðimaðurinn þar í fjóra laxa
í röð.
Mikið af stórbleikju
„Í sumar hafa nokkrir býsna
stórir veiðst í ánni en þessi var 12
til 13 kíló eða 24 til 26 pund,“ seg-
ir Einar. Fram að því hafði stærsti
laxinn í Haffjarðará vegið 23
pund.
„Það er talsvert af stórum laxi í
ánni og mikið af fiski í flestum
hyljum,“ bætir hann við.
Þá veiddist 108 cm hængur í
Hólakvörn í Vatnsdalsá í vikunni,
á afbrigði af Jock Scott númer 12.
Fólk sem veitt hefur í laxveiði-
ám fyrir norðan hefur á síðustu
vikum orðið vart við talsvert mikið
af vænni sjóbleikju, sem virðist
víða hafa gengið seint rétt eins og
laxinn. Í Fljótaá hafa veiðimenn
dásamað bleikjuna í sumar, rétt
eins og í Víðidalsá, og á dögunum
var veiðimaður að eltast við lax í
Hrútafjarðará, en þegar hann fann
stórbleikjutorfur í neðstu hylj-
unum sinnti hann ekki öðru þá
vaktina. „Það var frábær veiði,“
sagði hann og bætti við að bleikj-
urnar hefðu verið sérlega stórar.
Veiðimenn sem voru á silunga-
svæði Vatnsdalsár um miðjan
ágúst sáu af brúnni á þjóðveginum
hvar torfa af stórbleikju synti upp
ána. Enda lentu veiðimenn sem
voru á laxasvæðinu efst í dalnum
nokkrum dögum síðar í silunga-
veislu. Stórbleikjur tóku flugurnar
ekki síst í Bleikjufljóti og Saur-
bæjarhyl; einn fékk sjö á dagparti
og var sú minnsta rúm þrjú pund,
sú stærsta um sex.
Lét veiðimanninn elta
sig niður flúðir og strengi
Stórlaxar veiðast áfram Góð sjóbleikjuveiði í norðlenskum ám
Ljósmynd/Einar Falur
Að viðureigninni lokinni Thomas Mahnke með 105 cm hæng sem hann veiddi í Selá. Glíman tók yfir tvo tíma.
Aflahæstu árnar
Ytri-Rangá og Hólsá (20)
Eystri-Rangá (18)
Norðurá (14)
Miðfjarðará (10)
Blanda (16)
Selá í Vopnafirði (7)
Þverá-Kjarrá (14)
Langá (12)
Haffjarðará (6)
Elliðaárnar (4)
Breiðdalsá (8)
Grímsá og Tunguá (8)
Laxá í Aðaldal (18)
Laxá í Kjós (10)
Laxá í Leirársveit (6)
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Staðan 7. september 2011
Heimild: www.angling.is
Á sama
tíma í fyrra
4.942
4.903
2.215
3.210
2.769
1.903
3.626
1.932
1.855
Veiði lokið
875
1.709
1.365
1.031
1.003
Veiðin
31. ágúst
3.388
3.372
2.068
1.915
1.930
1.726
1.670
1.626
1.360
1.127
902
1.055
925
803
735
3.853
3.696
2.106
2.066
1.970
1.820
1.795
1.750
1.460
1.127*
1.115
1.100
961
848
805
* Veiði lokið
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Störfum í Grindavík fækkar um
200-300 ef stjórnarfrumvarp um
stjórn fiskveiða verður að lögum og
hefur í för með sér 15% skerðingu
aflaheimilda í bænum. Lækkun
tekna og fækkun starfa mun leiða
til um 70 milljóna króna lækkunar á
útsvarstekjum bæjarins. Kemur
þetta fram í umsögn bæjarstjórnar
um frumvarpið.
Bæjarstjórnin leggur til að frum-
varpið, sem nú er til meðferðar á
Alþingi, verði dregið til baka og
reynt að ná sátt um íslenskan sjáv-
arútveg með reglum sem hafi það
að markmiði að styrkja greinina í
heild sinni og skapa hvata til þess
að hámarka verðmæti, draga úr
framleiðslukostnaði og auka þar
arðsemi og tekjur þjóðarbúsins.
Í umsögninni kemur fram að
sjávarútvegsfyrirtækin í Grindavík
skapa um 1.000 bein störf við veið-
ar og vinnslu á Íslandi, sem eru
álíka mörg störf og eru í áliðnaði á
landinu. Varlega áætlað hleypur
fjöldi afleiddra starfa sem sjávar-
útvegur í Grindavík skapar á fleiri
hundruðum.
Störfum í Grindavík
myndi fækka um
200-300
STÓLAR Í ÚRVALI
Á VERDI SEM KEMUR Á ÓVART!
var: 39.900.-
tilbod
verd 44.900.-
verd 29.900.-
nú: 19.900.-
Námskeið
og kynningar
á næstunni
www.alfa.is