Morgunblaðið - 09.09.2011, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Ég átti einn fund með Ross Beaty.
Það kom í framhaldi af því að ég
fór að skoða það hvort hægt væri
að slá skjaldborg um innlent eign-
arhald og forræði á þessu fyrirtæki
eftir því sem hægt væri,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon, fjármála-
ráðherra, um fund sem hann átti
með Ross Beaty, forstjóra Magma
Energy í ágúst árið 2009.
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu í gær var meðal annars
rætt um það á fundinum að Magma
Energy gæti eignast allt að 50%
hlut í HS Orku og að HS Orka
myndi ennfremur leita leiða til þess
að auka fjölbreytileika í viðskipta-
mannahópi sínum sem aftur hefði í
för með sér að fyrirtækið hefði
ekki getað útvegað næga orku til
fyrirhugaðs álvers Norðuráls í
Helguvík.
Minnisblað ráðuneytisins
Í umfjöllun Morgunblaðsins er
meðal annars vitnað í minnisblað
úr fjármálaráðuneytinu dagsett 12.
mars 2010 um fund með Ásgeiri
Margeirssyni, fulltrúa Magma
Energy á Íslandi. Fundinn sátu
fyrir hönd ráðuneytisins Guðmund-
ur Árnason, núverandi ráðuneyt-
isstjóri þess, og Egill Tryggvason.
Fram kemur í minnisblaðinu að
ákveðin óvissa ríki um framhald
fjárfestinga fyrirtækisins, annars
vegar þar sem nefnd um erlendar
fjárfestingar hafi ekki skilað nið-
urstöðu og hins vegar vegna þess
að Íslandsbanki vildi fá staðfest-
ingu á því „samkomulagi“ sem fjár-
málaráðherra og Ross Beaty hefðu
gert með sér um að Magma
Energy mætti eiga allt að 50% hlut
í HS Orku á móti innlendum að-
ilum.
Einungis þreifingar
Steingrímur segir að rangt sé
„að þarna hafi verið gert eitthvert
samkomulag. Það var ekki, það
náðist aldrei niðurstaða í það mál.
En það er rétt að þarna áttu sér
stað ákveðnar þreifingar í þessa
veru“. Hann segir að kannað hafi
verið hvort Magma Energy hafi
verið reiðubúið til þess að gefa yf-
irlýsingu um að þeir myndu aldrei
ásælast meirihluta í HS Orku en að
það hafi síðan strandað af ýmsum
ástæðum. Á þessum tíma hafi enn-
fremur verið í gangi athugun á því
hvort hægt væri að mynda inn-
lendan eigendahóp þar sem ríki,
sveitarfélög og hugsanlega lífeyr-
issjóðir tækju höndum saman.
Munnleg samskipti
Steingrímur segir að þetta hafi
komið til meðal annars vegna þess
að Ross Beaty hafi lýst því yfir
sjálfur að hann hefði engan áhuga
á að ná yfirráðum í HS Orku. Í
bréfi til Steingríms 2. september
2009 segir Beaty að hann geri sér
grein fyrir því að Steingrímur vilji
ekki að Magma Energy eignist
meira en 50% í HS Orku og að
hann muni virða það. Síðar gerðist
það hins vegar að Magma Energy
eignaðist 98,53% í HS Orku. Að-
spurður vildi Steingrímur þó ekki
segja að Beaty hefði með því geng-
ið á bak orða sinna um að virða
50% mörkin þar sem engin nið-
urstaða hefði orðið í því máli. „Það
varð aldrei samkomulag um neitt
og aldrei skrifað undir nokkurn
skapaðan hlut. Þetta voru bara
munnleg samskipti.“
„Varðandi það í hvað síðan
orkunni er ráðstafað þá var aldrei
rætt um að það ætti að binda það á
einhvern hátt í samkomulag eða
gera neitt með það,“ segir Stein-
grímur um áhersluna á fjölbreyttan
viðskiptamannahóp HS Orku.
„Hins vegar ræddum við á almenn-
um nótum um þessi orkumál og ég
útlistaði þá áherslu okkar að við
hefðum auðvitað áhuga á því að
auka fjölbreytni hér í atvinnnulíf-
inu og sæjum það sem kost ef fleiri
aðilar kæmu að notkun á orkunni,
að það ykist fjölbreytnin í kaup-
endahópnum. [...] En það stóð aldr-
ei til og var engin tilraun gerð til
þess að hafa áhrif á það við hverja
HS Orka væri í sjálfu sér að semja.
Enda ekki á okkar borði. Það eru
auðvitað viðskiptalegar ákvarðan-
ir,“ segir Steingrímur.
Steingrímur segist ekki
hafa samið við Beaty
Morgunblaðið/Heiddi
Fundur Ross Beaty, forstjóri Magma Energy, á fundi með Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra í ágúst árið 2009. Á fundinum var m.a. rætt um að
Magma Energy gæti eignast allt að 50% hlut í HS Orku og að HS Orka myndi leita leiða til þess að auka fjölbreytileika í viðskiptamannahópi sínum.
Fjallað er um samkomulag Steingríms og Beaty í minnisblaði frá ráðuneytinu
Þakkir Bréf Ross Beaty, forstjóra Magma Energy, til Steingríms J. Sigfús-
sonar fjármálaráðherra þar sem hann þakkar fyrir fund þeirra.
„Þetta sýnir svo ekki verður um
villst að það er engin alvara á
bakvið öll stóru orðin um viljann
til að styðja við
atvinnu-
uppbyggingu á
Suðurnesj-
unum,“ segir
Bjarni Bene-
diktsson, for-
maður Sjálf-
stæðisflokksins,
um framgöngu
ríkisstjórn-
arinnar vegna
framkvæmda við
álver Norðuráls
í Helguvík.
Hann segir að
það dugi ekki að
vera með sýnd-
arfundi í rík-
isstjórn þegar
hugur fylgi ekki
máli.
Alvarlegt og
kemur ekki á
óvart
„Ef satt reynist þá er þetta
mjög alvarlegt og kemur svo sem
ekki á óvart miðað við hvernig
vinstri-grænir hafa talað alla tíð
gegn atvinnuuppbyggingu í álveri
í Helguvík,“ sagði Ragnheiður El-
ín Árnadóttir, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi,
í samtali við mbl. sjónvarp í gær.
Sagðist hún vilja sjá þau gögn
sem vísað var í í umfjöllun Morg-
unblaðsins í gær um málefni
Magma Energy og HS Orku en
stjórnarandstöðuþingmenn fóru
fram á það í umræðum á Alþingi
í gær að þingmenn fengju aðgang
að gögnunum.
„Á sama tíma og skrifað er
undir fjárfestingasamning við
Norðurál, þar sem ríkisstjórn
heitir því að gera allt sem í henn-
ar valdi stendur og er á hennar
færi til þess að greiða fyrir þess-
ari fjárfestingu, að í öðru her-
bergi í sama húsi hafi verið plott-
að um það að orkan eigi ekkert
að fara í þetta verkefni heldur
eitthvert annað. Og það er það
sem gerir þetta mjög alvarlegt ef
satt reynist,“ sagði Ragnheiður.
Sýnir að engin
alvara er á bakvið
stóru orðin
Bjarni
Benediktsson
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
„Ég hef lengi
verið á þeirri
skoðun að það sé
eitthvað hulið
sem heldur þessu
máli í gíslingu og
haldið því fram
að það sé pólitísk
fyrirstaða. Ekki
endilega eitt-
hvert óleyst
vandamál heldur
fremur yfirlýsingar ríkisstjórn-
arinnar, þá ekki síst umhverf-
isráðherra og að einhverju leyti
ráðherra fjármála, sem geri það
að verkum að stjórnkerfið virki
eins og það virkar í þessum efn-
um,“ segir Sigurður Ingi Jóhanns-
son, þingmaður Framsókn-
arflokksins í Suðurkjördæmi, um
fyrirhugað álver Norðuráls í
Helguvík á Reykjanesi. Hann seg-
ir að ólíklegt sé að af þessu verk-
efni verði fyrr en þessari pólitísku
fyrirstöðu létti.
Sigurður leggur áherslu á nauð-
syn þess að atburðarásin í kring-
um málið allt verði upplýst. „Síð-
an er hægt að fara út í
vangaveltur um það hvernig fólk
geti haldið því fram ár eftir ár að
hér verði hagvöxtur á sama tíma
og það er ljóst að stjórnvöld hafa
verið með einum eða öðrum hætti
að bregða fæti fyrir Helguvík sem
átti að vera aðaleimreiðin í hag-
vextinum. Það er alveg ljóst að
orð og gerðir fara þarna ekki
saman.“
Brugðu fæti fyrir
framkvæmdir
í Helguvík
Sigurður Ingi
Jóhannsson