Morgunblaðið - 09.09.2011, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
BAKSVIÐ
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Ég má alls ekki veikjast,“ segir Ís-
lendingur sem bjó erlendis í eitt ár
en er aftur fluttur heim og nýtur
ekki sjúkratrygginga hérlendis fyrr
en sex mánuðum eftir heimkomuna,
samkvæmt lögum um sjúkratrygg-
ingar. Reyndar sjö mánuðum vegna
þess að það dróst í mánuð að til-
kynna um flutninginn hjá Þjóðskrá.
Viðmælandi Morgunblaðsins, sem
vill ekki láta nafns síns getið, er ís-
lenskur ríkisborgari með langan
starfsaldur hérlendis. Þrátt fyrir
flutninginn hélt hann áfram að vinna
á sama stað sem fyrr, en í hlutastarfi.
Borgaði skatta hérlendis en fékk
engan persónuafslátt vegna þess að
lögheimilið var erlendis.
Viðkomandi fylgdi maka sínum
vegna atvinnu hans í landi utan EES
og varð fjölskyldan að vera með
sama lögheimili. Makinn er tryggður
á vegum atvinnurekanda og fær
læknisþjónustu í starfslandinu.
Hann þarf á hjartalyfjum að halda
og verður að kaupa þau erlendis.
Reyndar samheitalyf og greiðir fyr-
irtækið mismuninn á kostnaðinum
miðað við verðið á Íslandi.
Aukin útgjöld
„Ég vissi ekki að ég þyrfti að
mæta í eigin persónu til Þjóðskrár
og tilkynna heimflutninginn,“ segir
viðmælandinn, sem segist m.a. hafa
framvísað farseðli til staðfestingar á
komunni til landsins en ekki hafi ver-
ið tekið tillit til þess. Reyndar hafi
tveir dagar verið dregnir frá en það
skipti ekki miklu máli.
Viðkomandi Íslendingur segir að
útgjöldin hafi aukist vegna biðarinn-
ar. Tannlækningar fyrir barnið séu
ekki niðurgreiddar, dýrara sé að fara
til heimilislæknis, að ekki sé talað
um sjúkrahússvist. „Ég komst að því
að ég væri ekki í kerfinu þegar ég
þurfti að fara til læknis og í ljós kom
að sjúkratrygging var ekki fyrir
hendi, þar sem ég var ekki í kerf-
inu,“ segir Ís-
lendingurinn og
er allt annað en
ánægður með
kerfið.
„Ég má alls ekki veikjast“
Íslenskur ríkisborgari sem flytur til landsins þarf að bíða í sex mánuði eftir rétti til sjúkratrygginga
Hélt áfram að vinna í hlutastarfi og borgaði skatta á Íslandi en fékk samt ekki persónuafslátt
Morgunblaðið/Júlíus
Greiðsla Sumir þurfa að bíða eftir rétti til sjúkratrygginga í sex mánuði.
Samkvæmt lögum um sjúkra-
tryggingar fellur sjúkratrygging
niður þegar einstaklingur flytur
lögheimili sitt frá Íslandi, en á
því eru þó undantekningar, með-
al annars vegna milliríkjasamn-
inga. Við flutning aftur til lands-
ins öðlast viðkomandi rétt til
sjúkratrygginga að sex mán-
uðum liðnum en undantekingar
eru á þeirri reglu.
Einstaklingar geta verið áfram
sjúkratryggðir þrátt fyrir dvöl,
nám eða atvinnu erlendis. Þetta
á m.a. við um starfsmenn ís-
lenskra sendiráða og alþjóða-
stofnana og friðargæsluliða. Til
þess að halda sjúkratryggingu
þrátt fyrir flutning til útlanda
getur einstaklingur þurft að
sækja um slíkt fyrir brottför.
Heimilt er að veita ótryggðum
einstaklingum undanþágur frá
sex mánaða biðtímanum, m.a.
vegna skilgreindra sjúkdóma og
þegar námsmaður flytur aftur til
Íslands innan sex mánaða frá
námslokum.
Halla Björk Erlendsdóttir,
deildarstjóri hjá heilbrigðisþjón-
ustu Sjúkratrygginga Íslands,
segir að biðtíminn sé til þess að
koma í veg fyrir hugsanlega mis-
notkun kerfisins og milliríkja-
samningar séu gerðir til þess að
tryggja sömu réttindi í viðkom-
andi löndum. Hún bendir á að
samkvæmt íslenskri löggjöf beri
einstaklingum að flytja lögheim-
ili sitt flytji þeir frá Íslandi.
„Hvað Sjúkratryggingar Íslands
varðar er hvert og eitt mál sér-
stakt og hvert tilfelli skoðað sér-
staklega,“ segir hún. Halla Björk
áréttar að einstaklingar ættu að
skoða vel tryggingamál sín áður
en flutt er úr landi en Sjúkra-
tryggingar reyni eftir bestu getu
að aðstoða fólk eigi það hugs-
anlega rétt á undanþágu frá
reglunni. Hún bendir á að þegar
einstaklingar ferðast halda þeir
tryggingaréttindum sínum. Það
eigi við um alla en vert sé að
ítreka að þegar einstaklingar
ákveði að búa í öðru landi beri
þeim að breyta lögheimilisskrán-
ingu sinni. Þegar ellilífeyrisþegar
flytji lögheimili sitt geti þeir aft-
ur á móti flutt með sér áunnin
réttindi á þar til gerðu vottorði.
Hvert mál skoðað sérstaklega
SJÚKRATRYGGINGAR ÍSLANDS
Skrifað var undir samning um stofn-
un Músík Express í gær. Um er að
ræða nýtt samstarfsverkefni Iceland
Express og ÚTÓN, útflutnings-
skrifstofu íslenskrar tónlistar.
Í tilkynningu frá Iceland Express
kemur fram að með stofnun Músík
Express verður íslenskum tónlist-
armönnum auðveldað að koma sér á
framfæri í útlöndum. Samstarf Mús-
ík Express og tónlistarmanna felur í
sér að tónlistarmenn fá flugmiða
sem þeir geta nýtt á alla áfangastaði
Iceland Express og ríflega yfirvigt
til að flytja hljóðfæri og önnur tæki,
samkvæmt sérstökum samstarfs-
samningi. Á móti munu tónlist-
armennirnir geta þess í kynning-
arefni sínu að þeir séu í samstarfi við
Músík Express.
Byrja á Prinspóló
„Fyrsta samstarfsverkefni Músík
Express er við Prinspóló. Hljóm-
sveitin er hugarfóstur Svavars Pét-
urs Eysteinssonar og spratt upp úr
eirðarleysi á Seyðisfirði þar sem
hann hafði ekkert annað að gera en
að sitja og gutla á gítar. Eftir dvöl-
ina á Seyðisfirði fékk hann til liðs við
sig meðlimi úr FM Belfast, Sudden
Weatherchange, Skakkamanage og
Reykjavík! Sveitin sendi frá sér
geisladiskinn Jukk í lok síðasta árs
og fékk hún góðar undirtektir,“ seg-
ir í tilkynningu Iceland Express.
Prinspóló heldur í viku tónleika-
ferðalag um Þýskaland og Pólland
sem hefst í næstu viku.
Morgunblaðið/Sigurgeir S
Skrifa Matthías Imsland, forstjóri Iceland
Express, og Anna Hildur Hildibrandsdóttir,
framkvæmdastjóri ÚTÓN, skrifa undir.
Auðveldara að spila úti með Músík Express
Sparisjóður Norðfjarðar
Sparisjóður Norðfjarðar – söluferli
Fyrirtækjaráðgjöf H.F. Verðbréfa hefur til sölumeðferðar, fyrir hönd stjórnar í umboði stofnfjáreigenda,
allt stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar.
Um Sparisjóð Norðfjarðar
Sparisjóður Norðfjarðar hefur verið starfræktur í yfir 90 ár. Hann hefur sterkar rætur og gegnir mikil-
vægu hlutverki í fjölbreyttu atvinnulífi Fjarðabyggðar og alls Austurlands. Í Fjarðabyggð er blómlegt
atvinnulíf og hátt atvinnustig, þar eru öflug fyrirtæki sem hafa skapað sér sérstöðu í iðnaði, sjávar-
útvegi og ferðaþjónustu.
Aðalafgreiðsla og skrifstofa Sparisjóðs Norðfjarðar er í Neskaupstað en auk þess er rekin afgreiðsla á
Reyðarfirði. Starfsmenn sparisjóðsins eru nú tíu. Rekstur Sparisjóðs Norðfjarðar hefur alla tíð gengið
vel að undanskildu fjárhagslegu tjóni sem sparisjóðurinn varð fyrir samhliða áföllum í íslensku banka-
kerfi haustið 2008.
Á árunum 2009-2010 var fjárhagur sparisjóðsins endurskipulagður með aðkomu ríkisins, Fjarða-
byggðar, fyrirtækja og einstaklinga í Fjarðabyggð. Eftir endurskipulagninguna er stofnfé sparisjóðsins
625,8 m.kr. og stofnfjáreigendur eru 86. Bankasýsla ríkisins fer með hlut ríkissjóðs í sparisjóðnum og
nemur hann 49,5 % af stofnfé sjóðsins. Heildareignir sparisjóðsins voru í lok árs 2010 um 5.223 m.kr.
og eiginfjárhlutfall hans, skv. 84. gr. laga um fjármálafyrirtæki, var 20,3%.
Söluferlið
Frá og með fimmtudeginum 15. september nk. geta áhugasamir fjárfestar nálgast samantekt um
Sparisjóð Norðfjarðar og önnur gögn vegna fyrirhugaðrar sölu hjá H.F. Verðbréfum. Frestur til að
skila inn óskuldbindandi tilboðum er til kl 12:00 þann 29. september n.k. Tilboð skulu berast á
sérstöku formi sem nálgast má hjá H.F. Verðbréfum.
Söluferlið er aðeins opið hæfum fjárfestum, sbr. 9. tölulið 43. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr.
108/2007. Auk þess þurfa fjárfestar að uppfylla tiltekin skilyrði sem gerð er grein fyrir í sölugögnum;
þau lúta einkum að fjárhagslegum styrk og hæfi að öðru leyti til að fara með virkan eignarhlut
í fjármálafyrirtæki.
Fjárfestum er frjálst að bjóða í allan eignarhlut seljanda og/eða hluta hans. Seljandi áskilur sér rétt til
þess að breyta söluferlinu og/eða stöðva það án fyrirvara. Einnig áskilur seljandi sér rétt til að hafna
öllum tilboðum.
Fjárfestar sem vilja taka þátt í söluferlinu geta haft samband við fyrirtækjaráðgjöf H.F. Verðbréfa
í síma 585 1700 eða sent tölvupóst á sparnor@hfv.is.
Drög að viljayfirlýsingu á milli
Sveitarfélagsins Norðurþings og
þýska fyrirtækisins PCC um að
hefja áreiðanleikakönnun vegna
byggingar kísilverksmiðju á Bakka
við Húsavík voru rædd í bæjarráði í
gær. Samþykkt var að fela bæj-
arstjóra að vinna að málinu áfram
en hann mun hitta fulltrúa þýska
fyrirtækisins í dag.
Bergur Elías Ágústsson bæj-
arstjóri segir að við áreið-
anleikakönnun sé safnað saman
ýmsum upplýsingum um mannvirki
fyrirhugaðrar verksmiðju, svo sem
lóð og höfn, og gjald sem greitt er
fyrir þessa þjónustu. PCC hefur
þegar sótt um lóð fyrir verksmiðj-
una og á í viðræðum við Lands-
virkjun um orkukaup.
„Það er ekkert í höfn, við erum
að vinna okkar vinnu og sjáum
hvert það leiðir okkur,“ segir Berg-
ur Elías um stöðu málsins. Hann
hittir fulltrúa PCC á fundi í dag og
vonast til að málin mjakist áfram,
eins og hann tekur til orða.
Fulltrúar sveitarfélaganna í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu og fulltrúar
Landsvirkjunar hittust einnig á
fundi í dag til að fara yfir stöðu og
framkvæmd atvinnuverkefna.
Bergur Elías segir að það geri full-
trúarnir reglulega til allir séu upp-
lýstir um stöðu mála.
Fleiri hafa lýst áhuga á að byggja
upp atvinnufyrirtæki á svæðinu og
kaupa orku, meðal annars Alcoa
sem hefur haft áform um byggingu
álvers á Bakka. Bergur Elías neitar
því að kísilverksmiðjan útiloki
byggingu álvers eða önnur verk-
efni. Næg orka sé á svæðinu og
nægt land.
Undirbúa áreiðanleikakönnun
vegna kísilverksmiðju á Bakka