Morgunblaðið - 09.09.2011, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
KÓPAVOGUR Stærð eignarhl.
Nýbýlavegur 2 3118,4 m2
Nýbýlavegur 4 2756,8 m2
Nýbýlavegur 6 1930,2 m2
Nýbýlavegur 8 2405,2 m2
Auðbrekka 3-5 629,0 m2
Auðbrekka 17 310,5 m2
Auðbrekka 19 342,6 m2
Smiðjuvegur 68-70 1421,9 m2
Smiðjuvegur 72 293,8 m2
Vesturvör 30a 1725,1 m2
Skemmuvegur 16 320,0 m2
REYKJANESBÆR Stærð eignarhl.
Njarðarbraut 11a 248,7 m2
Njarðarbraut 17 670,3 m2
Njarðarbraut 19 420,7 m2
Fitjabraut 12 930,1 m2
SELFOSS Stærð eignarhl.
Fossnes 14 1605,6 m2
Austurvegur 60 lóð
Eyrarvegur 33 1345,7 m2
AKUREYRI Stærð eignarhl.
Baldursnes 1 1301,5 m2
Draupnisgata 8 85,2 m2
Eignir þrotabús til sölu
Skiptastjóri þrotabús Bergeyjar fasteignafélags óskar eftir tilboði
í neðangreindar fasteignir eða eignarhluta.
Hægt er að gera tilboð í eignirnar í einu lagi, stakar eða ákveðnar eignir saman.
Skiptastjóri áskilur sér rétt til að meta tilboð og hafna öllum tilboðum.
Krafa er gerð um fjárhagsupplýsingar tilboðsgjafa.
Áhugasamir hafi samband við skiptastjóra, Jón Ármann Guðjónsson hdl., í síma 588-3000 / 895-0646
eða með tölvupósti jon@logborg.is fyrir 20. september 2011.
STUTTAR FRÉTTIR
● Bandaríska fjölmiðlasamsteypan
Turner, sem meðal annars rekur sjón-
varpsstöðvarnar CNN, TNT, TCM og
Cartoon Network, hefur keypt íslenska
framleiðslufyrirtækið Latabæ.
Fyrirtækið hyggst tefla Latabæ fram
sem sínu helsta trompi á markaði fyrir
yngstu áhorfendurna. Latabæjarheimur
á netinu, alþjóðleg fata- og leik-
fangalína, allt er þetta á meðal þess
sem er á teikniborði Turner.
Magnús Scheving verður forstjóri
yfir Latabæ hjá Turner og mun áfram
leika aðalhlutverkið í þáttunum. Fram-
leiðsla nýrra þátta hefst á Íslandi í byrj-
un næsta árs. Fjárfesting Turner nemur
ríflega tveimur og hálfum milljarði
króna og mun skapa hátt í hundrað ný
störf í íslenskum kvikmyndaiðnaði.
Turner kaupir Latabæ
Ívar Páll Jónsson
ivarpall@mbl.is
Verg landsframleiðsla minnkaði um
2,8% að raungildi á öðrum fjórðungi
ársins, miðað við þann fyrsta. Þetta
kom fram í frétt frá Hagstofunni í
gær. Einnig leiddu endurskoðaðar
tölur Hagstofunnar í ljós að sam-
drátturinn á árinu 2010 nam 4%, en
ekki 3,5% eins og fyrri tölur höfðu
gefið til kynna.
Eins og sést á meðfylgjandi skýr-
ingarmynd hefur verg landsfram-
leiðsla því minnkað um 6% frá
fyrsta ársfjórðungi 2009, fyrsta
fjórðungi eftir bankahrun. Hún fór
stöðugt sígandi fram að þriðja árs-
fjórðungi 2010, þegar hún náði lág-
marki á tímabilinu og hafði þá
minnkað um 7,8%. Fram að fyrsta
fjórðungi á þessu ári jókst hún jafnt
og þétt, þar til nú að hún minnkar
sem fyrr segir um 2,8%. Meðaltals-
hagvöxtur hjá ríkjum Efnahags- og
framfarastofnunarinnar, OECD, á
þessum tíma er í kringum 1,8%.
Fjárfesting ekki aukist
Á meðfylgjandi mynd má einnig
sjá þróun fjárfestingar – fjármuna-
myndunar – frá því fyrir hrun, en
fjárfesting er sem kunnugt er und-
irstaða hagvaxtar í framtíðinni. Á
árinu 2008 var hún í kringum 110
milljarða króna á hverjum fjórðungi
og hrundi svo, eins og gefur að
skilja, á fyrsta fjórðungi eftir
bankahrunið, niður í 45 milljarða.
Síðan þá hefur hún dansað um og
yfir 50 milljörðum króna á fjórðungi
og á því langt í land með að ná fyrri
styrk.
2,5% vöxtur á fyrri helmingi
Á fyrri árshelmingi nam hagvöxt-
ur 2,5%, miðað við sama tímabil árið
áður. Einkaneysla jókst um 3,1%,
Samneysla um 0,2%, fjármuna-
myndun um 2,2%. Saman mynda
þessir liðir þjóðarútgjöld og jukust
þau um 5%. Útflutningur vöru og
þjónustu minnkaði hins vegar um
0,5% og innflutningur jókst um 3,7%
og því var aukning landsframleiðslu
minni en þjóðarútgjalda.
Landsframleiðsla minnkar
um 2,8% á öðrum fjórðungi
Samdrátturinn frá fyrsta fjórðungi 2009 nemur 6% 4% samdráttur 2010
Fjármunamyndun
120
100
80
60
40
20
0
100
90
80
70
60
Árstíðaleiðrétt verg landsframleiðsla
ma. kr. á verðlagi 2. fjórðungs 2011 1. ársfjórðungur 2009: 100Heimild: Hagstofa Íslands. Heimild: Hagstofa Íslands.
1. 2. 3. 4. 1. 2. 3. 4. 1. 2. 3. 4. 1. 2.
2008 2009 2010 2011
1. 2. 3. 4.
2009
1. 2. 3. 4.
2010
1. 2.
2011
11
6
10
9 11
3
10
4
45
57 5
8
69
50 5
3
50
55
49
53
10
0,
0
98
,4
97
,1
95
,4
93
,9
92
,2 93
,7
94
,9 69
,7
94
,0
Arion banki vill
koma á fram-
færi, í tilefni
fréttar í Við-
skiptablaði
Morgunblaðsins
í gær um nei-
kvætt sjóð-
streymi bank-
ans á öðrum
fjórðungi ársins, að tvennt verði að
hafa í huga þegar það sé skoðað.
Í fyrsta lagi hafi bankinn reynt
að ávaxta laust fé sitt með kaupum
á skuldabréfum, ríkisins og fyr-
irtækja, í stað þess að láta inn-
greitt laust fé liggja á bankareikn-
ingum. Af þeim sökum hækki
skuldabréfaeign úr 120 milljörðum
króna í 141 milljarð á tímabilinu.
Ef hann hefði ekki gert þetta hefði
jákvæð stærð frá rekstri verið 10-
15 milljarðar.
Í öðru lagi vill bankinn árétta að
lausafjárhlutfall hans í lok annars
fjórðungs var 35%, en um áramótin
var það 25%.
ivarpall@mbl.is
Skulda-
bréfakaup
skýra sjóð-
streymið
Seðlabanki Evrópu er tilbúinn
til að tryggja bönkum á evru-
svæðinu þá greiðslugetu sem
þeir þurfa, að sögn Jean-Claude
Trichet seðlabankastjóra.
„Við erum tilbúnir ... við er-
um mjög áhugasamir um að
veita greiðslugetu,“ sagði Tric-
het á fréttamannafundi sem
bankinn hélt eftir að tilkynnt
var um óbreytta stýrivexti upp
á 1,5%.
Tryggir
„greiðslugetu“
!"# $% " &'( )* '$*
++,-+.
+./-01
++2-0/
3+-4+
3+-/,3
+.-522
+//-31
+-10
+.3-.
+2+-4+
++,-1,
+.1-/0
++4-34
3+-441
3+-1+,
+.-++0
+//-2+
+-1011
+./-/1
+23-+2
3+.-5,+,
++,-43
+.1-.1
++4-2+
3+-./.
3+-14.
+.-+43
+//-0.
+-10..
+./-..
+23-2+
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á