Morgunblaðið - 09.09.2011, Síða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Gert var ráð fyrir að Barack Obama Bandaríkja-
forseti flytti mikilvæga ræðu á sameinuðu þingi í
nótt um ráðstafanir í efnahagsmálum. Wall Street
Journal sagði að forsetinn myndi m.a. leggja til
stóraukin framlög til framkvæmda í samgöngu-
málum og öðrum innviðum samfélagsins, einnig
framlengingu á lækkun launatengdra gjalda til að
ýta undir að fleiri störf yrðu sköpuð.
Fréttamaður BBC sagði í gær að svo virtist sem
fjámálamarkaðir hefðu fyrirfram ákveðið að til-
lögur forsetans myndu litlu breyta. Stuðningur við
Boðar ráðstafanir til að skapa störf
Dvínandi stuðningur bandarískra kjósenda við Obama forseta Rick Perry
þjarmar að Mitt Romney á fundi með repúblikönum sem vilja verða forsetaefni
hann hefur aldrei verið minni í
könnunum frá því að hann tók
við embætti. Aðeins 43% eru
sátt við störf hans.
Perry eða Romney
Repúblikanar sem sækjast
eftir að verða forsetaefni á
næsta ári mættust á fundi í
Kaliforníu á miðvikudagskvöld.
Rick Perry, ríkisstjóri í Texas,
þótti standa sig vel, hann hefur
nú forystu í könnunum og varð fundurinn að
mestu slagur milli hans og Mitts Romneys, fyrr-
Rick Perry
verandi ríkisstjóra Massachusetts. Aðrir hurfu í
skuggann. Romney þykir höfða meira til miðju-
manna en hinn hægrisinnaði Perry. Bent er á að
margir repúblikanar sem séu sammála sjónarmið-
um Perrys óttist að hann verði ekki fær um að
höfða til óflokksbundinna kjósenda í sama mæli og
Romney og því fremur velja hinn síðarnefnda.
Perry ítrekaði m.a. harða gagnrýni sem hann
hefur sett fram á almannatryggingarnar sem ungt
fólk legði fé til en fengi aldrei neitt til baka, þetta
minnti á svikamyllu. Þegar Perry var spurður
hvort hann vildi breyta orðalagi sínu hvikaði hann
hvergi. „Kannski er kominn tími til að nota ögr-
andi orðalag í þessu landi,“ svaraði Perry.
Tryggingar kosta mikið
» Hallinn er geigvænlegur og
því vill Perry róttækan upp-
skurð. Sumum hægrimönnum
fannst hann hins vegar fara of-
fari. Hann hefði átt að leggja
áherslu á umbætur, ekki að af-
nema tryggingarnar.
» Kannanir sýna að meira en
helmingur repúblikana vill ekki
miklar breytingar á almanna-
tryggingum og sjúkratrygg-
ingum aldraðra.
Sölumaður heldur á loft gullstykkjum í skart-
gripaverslun í Hydearbad á Indlandi. Spurn eftir gulli
til að fjárfesta í eðalmálminum jókst um 83% í Indlandi
í fyrra og gullverð er nú í hæstu hæðum á alþjóðamörk-
uðum. Vaxandi vantrú á dollara og evru veldur því að
fólk sækist fremur eftir gulli. Efnahags- og framfara-
stofnunin, OECD, spáir nú minnkandi hagvexti í helstu
iðnríkjum heims á næstu mánuðum.
Reuters
Glóandi gull vinsælt á óvissutímum
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Lengi hefur verið vitað að kínversk-
ir leiðtogar láta skipuleggja vand-
lega alla viðburði sem ætlað er að
sýna hve góð og manneskjuleg
tengsl þeir hafi við alþýðu manna.
En að sögn BBC hefur WikiLeaks-
vefurinn nú birt leyniskeyti frá
bandaríska sendiráðinu í Peking
með nákvæmri frásögn af slíkri svið-
setningu. Heimildarmaður sendi-
ráðsmanna er sagður hafa verið Shi
Jing, fyrrverandi flokksleiðtogi í
Gansu-héraði.
Hu Jintao Kínaforseti ákvað að
„líta inn“ hjá fátækum bónda í litlu
þorpi, Daping, og rabba við hann og
fjölskylduna. Heimsóknin varð að
líta út fyrir að vera eins og hver önn-
ur skyndihugmynd, allt fyr-
irvaralaust og frjálslegt. En Shi
sagði að embættismenn í héraðinu
hefðu fengið boð um það 10 dögum
fyrr að „háttsettur“ leiðtogi myndi
koma. Nafnið var ekki nefnt en
þeim datt strax í hug Hu forseti af
því að hann hafði komið til Daping
átta árum fyrr.
Sem dæmi um nákvæmt skipulag
var bóndanum, hinum sjötuga Li
Cai, sagt að hann mætti ekki vera
allt of vel til hafður. Hann mætti
ekki vera nýrakaður, þá liti hann
ekki út eins og venjulegur smábóndi.
Og bannað var að heimili bóndans
yrði dubbað upp með nýtísku raf-
magnstækjum eða húsgögnum.
Sjóðheit olía og matvönd stúlka
Li braut þó gegn þeim fyr-
irmælum, að sögn Shi og fékk sér
ofn og reykháf til þess að geta eldað
frægt hnossgæti af svæðinu, Dingxi-
kartöflur. Li fannst hann ekki geta
sleppt því að auglýsa kartöfluna með
því að láta sjálfan Hu snæða réttinn
frammi fyrir sjónvarpsvélunum.
Margs var að gæta. Æltlunin var
að Hu tæki þátt í að elda með bónd-
anum snúnar hveitilengjur sem eru
steiktar í sjóðandi olíu á pönnu. En
ef brennheit olían skvettist nú á Hu?
„Lausnin var að hita olíuna aðeins
upp í 70% af venjulegu hitastigi og
láta forsetann fá óvenjulanga mat-
prjóna,“ segir í skeytinu.
Gott skipulag dugar ekki alltaf.
Hu bauð nefnilega litlu barnabarni
Lis kartöflu en hún tjáði leiðtoga
hinna 13000 milljóna Kínverja að
hún væri orðin „hundleið á að borða
þær“. Að lokum tókst að telja hana á
að borða kartöfluna og það mynd-
skeið var notað í sjónvarpsfrétt um
heimsóknina.
„Orðin alveg hundleið
á að borða þær“
Lítil stúlka ógnaði þrautskipulagðri heimsókn Hu forseta
Íbúar borgarinnar Jaroslavl í Rússlandi syrgja nú víðfrægt íshokkílið sitt,
Lokomotív Jaroslavl en flestir liðsmenn þess fórust þegar Jak-42-farþega-
þota hrapaði í Túnosna, eina af þverám Volgu, á miðvikudag, hér er verið að
rannsaka brakið. Einn leikmaður komst lífs af. Forseti Rússlands, Dímítrí
Medvedev, gagnrýndi í gær flugöryggismál í landinu og krafðist þess að ít-
arleg rannsókn yrði gerð á slysinu sem varð 43 mönnum að bana. „Ég hef
gefið rannsóknarnefndinni og ríkisstjórninni skipun um að rannsaka málið í
þaula,“ sagði Medvedev eftir að hafa lagt rósavönd í grennd við slysstaðinn.
„Þetta er afar slæmt ástand og röð flugslysa sem urðu í sumar sannar það.
Við getum ekki haldið svona áfram.“ Ef ekki sé hægt að framleiða traustar
flugvélar í landinu verði að kaupa vélar annars staðar.
Jaroslavl-búar syrgja
íshokkíleikmennina sína
Reuters
Svíar á aldrinum 20-25 ára eru upp
til hópa orðnir svo kveifarlegir að
þeir fara strax á bráðadeild spítala
ef eitthvað amar að, segir í Afton-
bladet. Blaðið segir að starfsmenn
heilbrigðismála vilji nú láta rann-
saka hvort ungmenni íþyngi kerfinu
að ástæðulausu og geri erfiðara en
ella fyrir aldraða, sem raunverulega
þurfi hjálp, að komast að.
Elaine Bergquist, sem er þrítug
og hefur skrifað bækur um árekstra
kynslóðanna, segir foreldra unga
fólksins hafa kennt því að notfæra
sér öll réttindi, það borgi hvort sem
er fyrir þetta með sköttum. Allt eigi
að vera leysanlegt með því að ýta á
lyklaborð. Kynslóðin hennar líti
ávallt á sínar eigin kenndir og þarfir
sem þær mikilvægustu í heiminum.
Bent Christen-
sen, yfirmaður
háskólasjúkra-
hússins á Skáni,
talar líka um
„McDonalds-
áhrifin“, unga
fólkið sé orðið
vant því að fara
bara rétt fyrir
hornið til að full-
nægja öllum kröf-
um sínum í skyndi.
„Langmesta aukningin hefur orð-
ið meðal 20-25 ára gamals fólks,“
segir Hans Friberg, læknir á bráða-
deild spítalans í Lundi. „Þetta er
kvef, óþægindi í hálsi og óljós ein-
kenni um vandamál sem geta verið
af sál-líkamlegum toga.“ kjon@mbl.is
Kynslóð kveifanna
íþyngir spítölunum
Aumingja ég!
Leiðtogar Kína nútímans gera sér
grein fyrir valdi og áhrifum fjöl-
miðlanna og eru um margt ger-
ólíkir hinni þumbaralegu
ímynd sem komm-
únistaleiðtogar fortíð-
arinnar höfðu. Hu
Jintao hefur t.d.
ávallt lagt mikið
upp úr því að
rækta þá ímynd
að hann hlusti á
skoðanir almennra Kínverja.
Wen Jiabao forsætisráðherra
hefur einnig notað tækifærið til að
sýna á sér mannlegar hliðar þegar
fjölmiðlar hafa verið nærstaddir,
t.d. viknað á viðkvæmum stundum
eins og þegar náttúruhamfarir
hafa riðið yfir. Miklar vangaveltur
hafa líka orðið þegar Wen hefur ýj-
að að skoðanaágreiningi í foryst-
unni. Hefðin er að slík mál séu
ávallt hulin nema allt springi.
Alþýðlega yfirbragðið
ÍMYNDARSMIÐIR LEIÐTOGANNA HAFA NÓG AÐ GERA Í PEKING