Morgunblaðið - 09.09.2011, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Stofnanirstjórn-málaflokks-
ins Vinstri grænna
hafa margsinnis
ályktað um kaup
erlends fyrirtækis,
Magma, á helstu
orkulindum á Suðurnesjum.
Þær ályktanir voru skýrar.
Flokkurinn, sem er stjórn-
arflokkur, var andvígur því að
hinn erlendi aðili kæmist yfir
auðlindina.
Þingflokkur Vinstri grænna
virtist vilja vera trúr sam-
þykktum annarra æðstu stofn-
ana og fól formanni flokksins
að sjá til þess að ótvíræðum
ályktunum hans yrði fylgt eftir.
Eftir það uggði þingflokkur VG
ekki að sér, svo sem vonlegt er.
Þarna hefði átt að vera svo vel
fyrir séð að ekki yrði betur
gert.
Flokksformaðurinn gegndi
jafnframt embætti fjármála-
ráðherra og ljóst að án atbeina
hans gengi málið ekki fram. En
fjármálaráðherrann lék tveim
skjöldum, rétt eins og í ESB-
málum og Líbíumálum. Frétta-
skýring Agnesar Bragadóttur í
Viðskiptablaði Morgunblaðsins
sýnir hreint ótrúlega fram-
göngu ráðherra ríkisstjórn-
arinnar, tvískinnung þeirra,
pukur og undirmál. Hún sýnir
náin tengsl Össurar Skarphéð-
inssonar við Geysir Green-
forystuna, sem minnir á hlut
Samfylkingar í hneykslis-
málum af yfirstærð, REI-
málum Orkuveitu Reykjavíkur.
Og fréttaskýringin minnir
einnig á þátt Katr-
ínar Júlíusdóttur
iðnaðarráðherra
sem benti hinum
erlenda aðila
Magma á leið til að
fara í kringum ís-
lensk lög með
málamyndagerningi, sem er
ekki aðeins fráleitt heldur frá-
gangssök.
En fyrirferðarmestur er
þáttur Steingríms J. Sigfús-
sonar, sem lætur sér ekki
nægja að fara kirfilega á bak
við flokkssystkini sín og af-
greiða mál sem eru viðkvæm,
jafnvel heilög í þeirra augum,
öll með öfugum formerkjum og
vera í trúnaðar- og launung-
arsamstarfi við hinn erlenda
viðskiptamann um að gera allt
þvert á ályktanir flokksins og
þau orð sem formaðurinn sjálf-
ur hafði viðhaft opinberlega.
Og flokkssystkinin áttu ekki
ein um sárt að binda, því sam-
starfsflokkurinn og Suð-
urnesin, þar sem Steingrímur
hafði tekið þátt í sýndarfundi
ríkisstjórnar um atvinnumál, fá
heldur betur að finna til te-
vatnsins. Því um leið og for-
maður Vinstri grænna bruggar
launráð með viðskiptajöfrinum
Ross Beaty til að hafa sjón-
armið eigin flokks að engu er
hann að leggja sitt af mörkum
við að kippa stoðunum undan
fjárfestingarsamningi, sem
ríkisstjórnin er annar aðilinn
að, um tryggingu á raforku til
álversuppbygginar á Reykja-
nesi. Allt er þetta með miklum
ólíkindum.
Fréttaskýring
Agnesar Bragadótt-
ur sýnir ótrúlega at-
burðarás á bak við
lokuð tjöld}
Með ólíkindum
Núverandiríkisstjórn-
arflokkar voru
mjög rannsókna-
glaðir þegar þeir
settust í ríkis-
stjórn. Þeir virtust
jafnvel telja að þeir gætu haft
í hótunum um að láta rannsaka
þetta og rannsaka hitt. Þeir
hótuðu að láta rannsaka
„Íraksstríðið“. Ekkert varð af
því og nú sjá allir að nauðsyn-
legra er að rannsaka Líbíu-
stríðið, því það stríð valt bein-
línis á atkvæði Íslands ólíkt
hinu.
Þeir hótuðu að láta rann-
saka áratugar gamla einka-
væðingu bankanna, sem þó
hafði verið rannsökuð, en nú
er öllum ljóst að höfuðnauðsyn
er að láta rannsaka einkavæð-
ingu Arion og Íslandsbanka,
sem er öll hulin myrkri og hin
furðulegasta.
Furðulegheitin í kringum
Sjóvá hljóta að þarfnast rann-
sóknar, svo ekki sé talað um
braskið með
Sparisjóð Kefla-
víkur og Sögu.
Svona mætti
lengi telja. En það
rannsóknarefni
sem virðist taka
öllum hinum upplögðu rann-
sóknarefnunum fram er hin
ótrúlega framganga Stein-
gríms J. Sigfússonar og raun-
ar annarra ráðherra í Magma-
málinu og eins með hvaða
hætti menn hafa beitt brögð-
um til að grafa undan fjárfest-
ingarsamningum sem þeir
sjálfir höfðu staðið að.
Núverandi ríkisstjórn hefur
virkjað aldagömul ákvæði um
Landsdóm til að koma höggi á
pólitískan andstæðing sinn.
Það var óráð. En nú verður
ekki aftur snúið. Framan-
greindar rannsóknir eru for-
sendur þess að Alþingi geti
tekið upplýsta ákvörðun um
það hvort ekki hafi skapast
ríkuleg tilefni til að Lands-
dómur láti þau mál til sín taka.
Stjórnsýsla núver-
andi ríkisstjórnar er
í skötulíki og stenst
ekki skoðun}
Áður þörf en nú nauðsyn
F
ramtíð án ellimarka. Fram-
úrstefnuleg formúla. Línur og
hrukkur grynnka, húðin sléttist
og æskuljóminn endurheimtist.
Nýtt árangursríkt vopn í barátt-
unni við ellina. Stinnir og sléttir. Snyrtivöru-
auglýsingar lofa hrukkulausri og spegilsléttri
framtíð, það eina sem þarf að gera er að kaupa
krem í krús.
Textinn í sumum þessara auglýsinga flokk-
ast í besta falli undir skemmtilestur, eða hver
brosir ekki út í annað við að lesa snilldarskrif
á borð við: „Rafhlaðnar agnir breyta vatni í
hópa orkubera sem hámarka hlutverk krems-
ins.“ Líka má skemmta sér yfir þessari lesn-
ingu: „Þegar Bio-Complex smýgur inn í húð-
ina leysist Super-Extract úr læðingi.“
Svo eru það allar fræðilegu auglýsingarnar
þar sem alls kyns tölfræðilegum upplýsingum er slegið
upp. Til dæmis er í einni auglýsingu fullyrt að við notkun
tiltekins krems grennist konur um allt að 2,5 sentimetra
á fjórum vikum. Þetta er auðvelt að skilja, þarna er
væntanlega bara notað málband. En ég skil ekki alveg
hvaða mælikvarði er notaður þegar fullyrt er að um leið
og tiltekið krem sé borið á húðina fari í gang 90% stinn-
ingaráhrif og 76% mýkingaráhrif. Hvernig skyldi þetta
eiginlega vera mælt? Það fýsir mig að fá að vita.
Áhugaverðasta auglýsingin er samt sennilega þar sem
því er lofað að sé krem eitt notað láti árangurinn ekki á
sér standa: 60% minni hrukkur og 80% yngri ásýnd eftir
aðeins eina klukkustund. Sé þessi formúla
heimfærð á rúmlega fertuga konu, þ.e.a.s. að
ásýnd hennar yngist um heil 80% eftir einn
klukkutíma, þýðir það væntanlega að hún líti
út eins og átta ára barn að 60 mínútum liðn-
um. Þetta þykir mér einum of mikið af hinu
góða og þori ekki fyrir mitt litla líf að prófa
þetta. Þetta gæti jú virkað.
Til að skilja sumar af þessum auglýsingum
þyrfti að lágmarki að vera með doktorspróf í
líftæknifræði: „Kremið myndar ljósbrotsáhrif
þannig að hrukkurnar virðast grynnri, lífræn
upptaka kollagens í húðinni margfaldar um-
fang þess allt að níu sinnum þegar það bland-
ast raka húðarinnar.“ Svo má líka fá krem þar
sem „örsmáar einingar úr sjávarkollageni,
sem eru líkastar agnarsmáum svömpum,
þenjast út og sjá húðinni strax fyrir ótrúleg-
um lyftandi áhrifum“. Þetta hljómar óhugnanlega.
Ein allra fyndnasta snyrtivöruauglýsingin er samt lík-
lega um „alhliða líkamsleiðréttandi kremið“, en það á að
vinna stórvirki á hinni illræmdu appelsínuhúð.
Annars á greinarhöfundur krem í dós sem heitir Anti-
Gravity sem á, eins og nafnið bendir til, að vinna gegn
þyngdaraflinu, því ólukkans afli, sem uppgötvaðist þegar
epli féll á höfuð eðlisfræðingsins Isaacs Newtons þar sem
hann lá á meltunni undir tré. Blessaður maðurinn helgaði
ævi sína því að rannsaka þetta afl og nú einbeita snyrti-
vöruframleiðendur sér að því að vinna gegn því. Skyldi
þeim takast það? annalilja@mbl.is
Anna Lilja
Þórisdóttir
Pistill
80% yngri á einni klukkustund
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
M
eirihluti allsherjar-
nefndar Alþingis
leggur til að gerðar
verði ýmsar breyt-
ingar á frumvarpinu
til upplýsingalaga í nefndaráliti og
breytingartillögum við það.
Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa
frumvarpið er Blaðamannafélag Ís-
lands, sem hefur talið það fjölga í
reynd undanþágum frá upplýs-
ingaskyldu hins opinbera, ekki síst
ákvæði um að ekki verði veittur að-
gangur að vinnugögnum.
Meirihluti allsherjarnefndar
kemur til móts við þessa gagnrýni og
leggur til breytingar sem eiga að auka
aðgang almennings og fjölmiðla að
gögnum í stjórnsýslunni.
Ná til fyrirtækja sem eru í 51%
eigu hins opinbera eða meira
Mjög skiptar skoðanir hafa verið
um þá tillögu að upplýsingalögin nái
framvegis líka til fyrirtækja og félaga
sem eru í 75% eigu hins opinbera eða
meira. Meirihluti nefndarinnar leggur
nú til að þetta verði víkkað enn frekar
og miðað við 51% eignarhlut. „Meiri
hlutinn telur að þegar um fyrirtæki í
opinberri eigu sé að ræða eigi upplýs-
ingar um starfsemi þeirra að vera að-
gengilegar fyrir almenning og leggur
því til að gildissviðið verði miðað við
lögaðila sem eru að 51% hluta í eigu
hins opinbera. [...] Meiri hlutinn tekur
fram að í þessu felist ekki sjálfkrafa að
allar upplýsingar sem þessa lögaðila
varða verði aðgengilegar almenningi,“
segir í nefndarálitinu.
Þá er sá fyrirvari settur að vegna
samkeppnishagsmuna verði heimilt að
undanþiggja ýmsar upplýsingar að-
gangsrétti almennings.
Í frumvarpinu eins og það var
upphaflega úr garði gert eru afar um-
deild ákvæði, þar sem talin eru upp
gögn sem verði áfram undanþegin
upplýsingarétti almennings, m.a.
vinnugögn sem skrifuð hafa verið við
undirbúning ákvörðunar o.fl. BÍ gagn-
rýndi þetta harðlega og taldi þarna allt
of víðtæka heimild veitta til að loka
inni vinnugögn.
Meirihluti allsherjarnefndar
leggur nú til að opnað verði á aðgang
að þessum upplýsingum að tilteknum
tíma liðnum. Verði breytingatillög-
urnar lögfestar skal framvegis veita
aðgang að fundargerðum ríkisráðs og
ríkisstjórnar og minnisgreinum frá
slíkum fundum að liðnu einu ári nema
aðrar takmarkanir í lögum komi í veg
fyrir það.
Fram kemur í nefndarálitinu að
ástæða sé til að ganga lengra á fleiri
sviðum en gert er í frumvarpinu og
lagt er til að veittur verði aðgangur að
margvíslegum gögnum sem talin voru
sérstaklega upp í 6. grein að ættu að
vera undanþegin upplýsingarétti eins
og áður segir.
Meirihluti allsherjarnefndar vill
að þessi aðgangur að gögnunum verði
veittur að fjórum árum liðnum frá því
að þau urðu til eða jafnskjótt og „ráð-
stöfun er að fullu lokið“, eins og þar
segir.
Hér er m.a. um að ræða gögn
sem útbúin hafa verið af sveitar-
félögum vegna samskipta við ríkið um
fjárhagsleg málefni þeirra. Bréfa-
skriftir sem átt hafa sér stað við sér-
fróða aðila til afnota í dómsmáli eða við
athugun á því hvort slíkt mál skuli
höfðað. Ennfremur gögn sem ráð-
herra aflar frá sérfróðum aðilum
vegna undirbúnings lagafrumvarpa og
loks á að fást aðgangur að vinnugögn-
um, eins og fyrr segir, en þó ekki fyrr
en að fjórum árum liðnum.
Tekið er þó fram að aðrar tak-
markanir í lögum geti hindrað aðgang
að þessum gögnum og er þar vænt-
anlega einkum átt við upplýsingar um
viðkvæm einkamálefni.
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Allsherjarnefnd vill að frumvarpi til upplýsingalaga verði breytt
til að auka aðgang almennings og fjölmiðla að gögnum í stjórnsýslunni.
Vinnugögn verði
aðgengileg eftir 4 ár
Birta lista yfir öll mál
» Í upphaflegu frumvarpi
sagði að forsætisráðherra
gæti sett fyrirmæli um birt-
ingu gagna og upplýsinga
stjórnvalda á vefsíðum þeirra.
» Meiri hluti allsherjar-
nefndar vill breyta þessu
þannig að listi yfir öll mál og
gögn sem skylt er að skrá í
málaskrár opinberra aðila,
uppruna þeirra og innihald,
skuli vera almenningi aðgengi-
legur.
» Sá fyrirvari er þó hafður á
að ekki megi vega að hags-
munum sem njóta verndar 9.
og 10. greinar um takmarkanir
á upplýsingarétti ef um einka-
málefni einstaklinga er að
ræða eða vegna almannahags-
muna, s.s. vegna öryggis ríkis-
ins o.fl.
» Í nefndarálitinu er því
haldið fram að þessi breyting
leggi mjög ríkar skyldur á
stjórnvöld sem feli í sér gríðar-
lega breytingu í framkvæmd.
Því verði að gefa 6 mánaða að-
lögunartíma að henni.