Morgunblaðið - 09.09.2011, Qupperneq 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
✝ Sigríður Bein-teinsdóttir
fæddist 25. júlí
1913. Hún lést á
hjúkrunardeild V2
á Grund 1. sept-
ember 2011. For-
eldrar hennar voru
Beinteinn Th.
Bjarnason söðla-
smiður, f. 26.2.
1884 í Vogum á
Vatnsleysuströnd,
d. 7.12. 1917 og Ingibjörg Ólafs-
dóttir, f. 5.11. 1884 í Reykjavík,
d. 28.11. 1974. Systkini Sigríðar
voru Ólafur f. 8.10. 1911, d. 2.5.
2008 og Guðrún Theodóra f.
12.10. 1915, d. 11.5. 1999. Eig-
inmaður Sigríðar var Ásgeir
Valur Einarsson veggfóðr-
arameistari, f. 15.8. 1911, d.
25.3. 1988. Foreldrar hans voru
Einar Jónsson f. 15.8. 1868, d.
4.10. 1957 og Gunnvör Sigurð-
ardóttir, f. 4.7. 1877, d. 23.6.
1931.
Ásgeir Valur og Sigríður
gengu í hjónaband 7. október
1933. Synir þeirra eru Bein-
teinn, Einar Gunnar, Ólafur
Már og Valgeir. Beinteinn f.
28.11. 1932. M. Svava J. Mark-
úsdóttir, f. 28.6. 1933, d. 20.1.
2007. Börn: 1) Ásgeir, f. 27.7.
1953. M. Sigurbjörg Bald-
ursdóttir, f. 23.6. 1953, dætur
þeirra eru a) Unnur Þóra, M.
Jean Baptist Pila. Þau eiga tvö
börn. b) Nanna Rún. M. Steindór
G. Steindórsson. c) Arna Sif. 2)
Halldóra, f. 29.7. 1956, Kjell
ánsdóttir, f. 6.4. 1962. Synir
þeirra eru a) Þórir. b) Einar
Gunnar. c) Reynir. d) Brynjar
Örn. 3) Ómar Einarsson, f. 6.4.
1961. M. Halla Magnúsdóttir, f.
2.6. 1967. Börn þeirra eru Hild-
ur og Bjarki. Síðari eiginkona
Einars Gunnars er Sigrún
Hjaltested, f. 8.2. 1936. Ólafur
Már, f. 11.7. 1945, M. Margret
Camilla Hallgrímsson, f. 6.12.
1945. Börn þeirra eru: 1) Thor,
f. 6.5. 1966. M. Hjördís Ýr John-
son, f. 18.12. 1969. Þau skildu.
Börn þeirra eru: a) Tómas Logi,
b) Hinrik Orri. c) Hildigunnur.
2) María Theódóra, f. 18.5. 1968.
M. Vigfús Birgisson, f. 21.2.
1967. Börn þeirra eru: a) Vaka.
b) Anna Camilla. c) Thor Ólafur.
d) Ísak Eldar. Valgeir, f.12.3.
1956. Sambýliskona Hafdís Stef-
ánsdóttir f.03.07.57. Þau skildu.
Sonur þeirra er Valur Rafn, f.
13.5. 1976. Sonur Vals er Eiður
Rafn. Eiginkona Valgeirs er
Þórunn Sigurðardóttir, f. 18.1.
1963. Þau eiga tvo syni. 1) Sig-
urður, f. 16.7. 1994. 2) Egill, f.
7.5. 1996.
Sigríður fæddist í Reykjavík
og bjó fyrstu ár sín í faðmi
stórrar fjölskyldu á Vesturgötu
26b, þangað til hún gifti sig árið
1933. Þá fluttust þau hjónin að
Njálsgötu 69 og síðan að Lang-
holtsvegi 143 árið 1948. Sigríð-
ur lærði á píanó á æskuheimili
sínu og lék á píanó fram á tí-
ræðisaldur. Sigríður lærði hár-
greiðslu og starfaði við þá iðn
alla sína ævi ásamt heim-
ilisstörfum. Hún var um tíma
hárgreiðslukona á Grund en þar
dvaldi hún síðustu æviárin.
Útför Sigríðar Beinteins-
dóttur verður gerð frá Lang-
holtskirkju í dag, 9. september
2011, og hefst athöfnin kl. 11.
Hall, f. 9.8. 1951.
Börn. a) Thomas
Hall. M. Sonja Þor-
steinsdóttir, þau
eiga þrjú börn. b)
Henný María Hall.
M. Jörn Odden.
Þau eiga tvo syni.
c) Tanya Helen. 3)
Einar, f. 30.5. 1959.
M. Jóna Björg
Hannesdóttir, f.
19.1. 1961. Börn: a)
Margrét. M. Guðni M. Krist-
jánsson. Þau eiga þrjú börn. b)
Ásgeir Valur. c) Davíð. 4) Sig-
ríður María, f. 26.7. 1962. Sam-
býliskona Birna María Björns-
dóttir, f. 3.12.74. Börn þeirra
eru Alexandra Líf og Viktor
Beinteinn. 5) Jóhanna f. 12.1.
1964. M. Magnús Thoroddsen, f.
17.8. 1963. Börn: a) Sigrún
Svava. b) Arnar Freyr. c) Hildur
Björk. 6) Markús Þorkell., f.
10.6. 1970. M. Elsa B. Trausta-
dóttir 2.5. 1972. Börn: a) Júlía
Rós. b) Ásdís Fanney. c) Ágúst
Blær. d) Jökull Bjarmi. 7) Berg-
lind Guðrún, f. 11.8. 1976. M.
Haraldur M. Gunnarsson. Sonur
þeirra er Andri Már. Einar
Gunnar, f. 8.6. 1934. M. Guð-
ríður Guðmundsdóttir, f. 20.11.
1931. Þau skildu. Börn: 1) Hann-
es, f. 25.4. 1957. M. Guðrún Sig-
urðardóttir, f. 3.1. 1960. Þau
skildu. Sonur þeirra er Emil
Þór. M. Kendra Faas. Sambýlis-
kona Hannesar er Guðrún
Ólafsdóttir. 2) Örn Einarsson, f.
29.11. 1959. M. Nína Stef-
Pabbi og mamma, Ásgeir Val-
ur Einarsson, d. 25. mars 1988,
Sigríður Beinteinsdóttir, d. 1.
september 2011.
Þið leidduð mig fyrstu sporin
þið reistuð mig þegar ég datt
í mínum ungu augum
þá gátuð þið næstum allt.
Og æskuárin liðu
við bernskubrek og leik,
umvafinn sterku virki,
hönd ykkar sterk og heit
Seinna þið verkin mér kennduð
og hvergi var sparað neitt.
Að sjá fyrir sér og sínum
þið sögðuð „er númer eitt“.
Oft sem fullorðinn maður,
með konu, börn og bú,
ég leitaði til ykkar aftur
í öryggi, skjól og trú
En nú er tíminn kominn,
þú hittir drottin þinn.
Þakka þér fyrir lífið,
elsku mamma mín.
Ólafur Már.
Tilviljun, örlög eða bara lítil
Reykjavík, allavega var ég knús-
uð og kysst þegar ég mætti fyrst
heim með Óla Má, því besta
æskuvinkona Siggu var móður-
systir mín. Margar sögur fékk
ég að heyra um Siggu og Dúdu
(Ágústu) þegar þær voru klippt-
ar og greitt alveg eins og Maja
frænka saumaði á þær eins föt,
eða þegar þær báðar urðu að
passa litlu systur sínar, Sigga
með Gunnu og Dúda með
mömmu mína Lóló. Þær höfðu
baðað sig í sjónum úti á Granda
og fengið hesta hjá afa og farið í
reiðtúr alla leið inn í Laugardal!
Þarna kynntist ég heimili sem
var opið öllum vinum Óla og hve-
nær sem við komum úr bíó eða
bíltúr var eitthvert góðgæti í
boði.
Nokkrum árum seinna giftum
við okkur og fluttum í litlu íbúð-
ina í kjallarann á Langholtsvegi.
Þar stigu börnin okkar, Thor og
María, sín fyrstu ævispor, ann-
aðhvort niðri í kjallara, úti í
garði eða uppi hjá afa og ömmu,
þar sem alltaf var eitthvað að
gerast, bakað, skrúbbað, spilað á
píanó eða hún skrapp út í garð
inn á milli til að tína fulla fötu af
rifsberjum.
Hún var smágerð, dökkhærð,
lagleg, snögg í fasi og sópaði af
henni af lífsgleði og þrótti. Þegar
við fluttum burtu var ég með
gott nesti frá henni af uppskrift-
um og vissi allt um rabba og rifs
og hvernig átti að prjóna sokka.
Nokkrum árum seinna bauðst
okkur að kaupa raðhús vinkonu
Siggu á Langholtsvegi og við
vorum fljót að ákveða okkur og
fluttum í nágrenni við Siggu og
Val. Thor og María voru him-
insæl að geta alltaf kíkt til afa og
ömmu í „drekkitíma“ eða spilað
á spil, meðan við vorum að klára
að vinna.
Örlögin gripu í taumana og
við urðum að selja raðhúsið og
fluttum inn á Langholtsveg.
Þetta var heillaspor því Thor og-
María fengu enn einu sinni að
njóta samvista við afa sinn og
ömmu, og það var þegjandi sam-
komulag okkar Siggu að gera
sem allra best úr aðstæðum. Á
þessum tíma kynntumst við vel,
fórum saman í sund, sultuðum
rabba og rifs, eða bökuðum fyrir
jólin.Gleðidagar voru þegar
Gunna systir og vinkonur Siggu
komu í hárgreiðslu en þá var
mikið talað og hlegið og ég sá
um að hafa kaffið tilbúið. Sigga
og Gunna voru mjög samrýndar
og töluðust við í síma minnst
einu sinni á dag, eða æfðu sig að
spila fjórhent.
Árin liðu og við upplifðum
súrt og sætt saman, en aldrei á
þessum 29 árum fór styggð-
aryrði á milli okkar, sem segir
sína sögu. Elli kerling fór að
gera vart við sig og í tvö ár lagði
ég hárið á Siggu og hjálpaði að
greiða henni, því hún fór aldrei
út fyrir hússins dyr, nema vera
vel til höfð, ekki einu sinni út
með ruslið.
Hún var strangtrúuð, bölvaði
aldrei, talaði vel um alla, las
bænir á hverju kvöldi og sár-
langaði að hitta elskulegan eig-
inmann sinn, Val og Maju,
Gunnu, Óla og mömmu sína.
Umhyggjan og blíðan sem
starfsfólkið á Grund sýndi henni
var öllum ættingjum hennar
mikils virði og eiga þau öll bestu
þakkir fyrir sitt góða og göfuga
starf.
Sigga var stór hluti af mínu
lífi og því kveð ég hana með
þakklæti og bið að góður Guð
verndi hana og taki í faðm sinn
um aldur og ævi. Hvíl í friði.
Camilla.
Um leið og við kveðjum ynd-
islega ömmu okkar, frú Sigríði
Beinteinsdóttur, langar okkur að
minnast hennar með nokkrum
orðum. Sigga amma okkar var
einstök kona og það er með
miklu þakklæti sem við minn-
umst hennar og alls þess sem
hún hefur gefið okkur í gegnum
árin.
Þegar við vorum ungir dreng-
ir þótti okkur alltaf eftirsókn-
arvert að fara til ömmu á Lang-
holtsveginum og þegar foreldrar
okkar fóru til útlanda vildum við
hvergi gista nema hjá henni. Á
Langholtsveginum ríkti mikill
kærleikur og í augum okkar
bræðranna var húsið á Lang-
holtsveginum líka stórt og bauð
upp á mikla möguleika til leikja.
Ekki var garðurinn heldur síðri,
með ævintýralegum snjósköflum
þar sem við lékum okkur gjarn-
an á snjóþotum og fótstignum
vélsleðum.
Hjá ömmu var alltaf mikil tón-
list. Amma spilaði eins og engill
á píanóið og þegar Gunnar
frænka kom í heimsókn og þær
systur léku fjórhent á píanóið, þá
setti okkur hljóða af aðdáun.
Jólin voru mikill uppáhalds-
tími í huga ömmu. Á jólunum var
hefð að allir afkomendur hennar
hittust til að ganga í kringum
jólatréð, syngja og gæða sér á
heimatilbúnum kökum. Amma
spilaði að sjálfsögðu á píanóið og
appelsínukakan hennar eftir-
minnilega var aldrei langt und-
an. Síðustu árin voru afkomend-
urnir orðnir svo margir að
jólaboðin hennar töldu allt upp í
60 manns og ekki annað fært en
að taka upp þann sið að leigja sal
undir jólaboðið.
Sunnudagsheimsóknir til
ömmu á Langholtsveginum voru
einnig vinsælar, enda tók hún
alltaf vel á móti öllum, hafði ein-
staklega gefandi nærveru og
aðdáunarvert var hversu vel hún
fylgdist ávallt með öllu því sem
afkomendurnir höfðust að.
Áhugi hennar á sínu fólki var
einlægur og minnið gott langt
fram eftir aldri.
Þá var ávallt tilhlökkunarefni
að fara í afmælið hennar ömmu á
sumrin, því þá var oft mikil dag-
skrá og fjölmargir tónlistarvið-
burðir þar sem afkomendurnir
sýndu listir sínar hver af öðrum.
Martinus hinn danski spek-
ingur segir í bók sinni Kosmísk
fræðsluerindi II:
Fegursti dauði, sem jarðabúa
getur hlotnast, er eðlilegur elli-
dauði. Þá er hann orðinn þrosk-
aður til andlegs lífs, og þá er
ekkert sem bindur hugsanir
hans við efnisheiminn. … Í hlið-
inu standa dásamlegar, ljómandi
og leiftrandi verur, sem taka á
móti hinum framliðna; fegursta
litskrúð morgun- og kvöldhimins
bregður birtu á hið undurfagra
umhverfi, og hinn nýkomni verð-
ur þess vís, að þær verur, sem
líktust englum við fyrstu sýn,
eru gamlir vinir og kærir ætt-
ingjar sem hann eða hún hefur
þekkt ef til vill í mörgum jarð-
lífum. Yfir öllu þessu hljómar
fögur tónlist og innan við hliðið
kemur í ljós undursamlegt
landslag, svo langt sem augað
eygir. Þar eru skógar og vötn
ríkulegur jurtagarður og fjöldi
fugla, og söngur þeirra stígur til
himins og blandast hinni him-
inbornu tónlist. Gamli deyjandi
jarðarbúinn er orðinn geislandi
engill.
Það er ánægjulegt til þess að
hugsa að svona hafi móttökurnar
e.t.v. verið þegar elskuleg amma
okkar yfirgaf þessa jarðvist.
Blessuð sé ævinlega minning frú
Sigríðar Beinteinsdóttur, ömmu
á Langó.
Hannes, Örn, Ómar og
fjölskyldur.
Hún amma er dáin. Þessi
setning inniheldur fjögur orð en
þau eru stór og þrungin sorg en
jafnframt fögnuði yfir ævi sem
gaf mörgum mikið. Undanfarin
ár hef ég hugleitt hvenær að því
kæmi að ég þyrfti að segja þessa
setningu upphátt. Hvernig yrði
tilfinningin í líkamanum og hvað
myndi renna gegnum hugann?
Ég hef grátið af trega undan-
farna daga og við lítil minninga-
brot eða orð sem ég vildi hafa yf-
ir eftir henni hef ég kjökrað.
Þrátt fyrir þetta er ég glaður því
tíminn var kominn. Tíminn var
kominn til að kveðja og drífa sig
í kór fyrir handan því að það
hafði hún ekki gert, tónlistar-
konan. Sigríður Beinteinsdóttir
amma mín varð 98 ára gömul.
Allan þann tíma sem ég þekkti
hana var hún ung manneskja al-
veg fram á síðustu misseri. Ein-
hvern tíma á miðjum tíræðis-
aldrinum sagði hún við mig:
„Veistu, mér finnst ég ekki vera
gömul, það er bara þegar ég lít í
spegil að ég man eftir því.“ Hvað
gerði ömmu mína svona unga í
anda, hvað gerði hana að þeirri
manneskju sem hún var, hvað
gerði þessa litlu konu svona
stóra í augum þeirra sem þekktu
hana? Áhrifa hennar mun lengi
gæta hjá þeim sem gaumgæfðu
afstöðu hennar til manna og til
lífsins, þeirra sem vilja taka
hana sér til fyrirmyndar.
Hún amma mín á mikinn þátt
í því hver ég er, því að ég sótti til
hennar andlega næringu öll mín
fullorðinsár. Ég gerði sögur
hennar að tómstundum mínum
og skrifaði frásagnir niður. Ég
sótti andann og félagskapinn til
hennar en af lítillæti hélt hún að
ég væri að koma í kaffi. Það var
ekki síður næring fyrir líkamann
að heimsækja hana. Ertu kom-
inn til að fá bensín? spurði hún.
Já, og hvílíkt bensín fyrir líkam-
ann. Himneskt súrsætt salat
með saltkexi, appelsínuterta sem
var engu lík, skonsuterta með
salati á milli og brauð með
heimalagaðri kæfu. Matar- og
Sigríður
Beinteinsdóttir
✝
STEFÁN JÓNSSON
bóndi
frá Ærlækjarseli í Öxarfirði,
sem lést á sjúkrahúsinu á Húsavík laugar-
daginn 3. september, verður jarðsunginn frá
Skinnastaðakirkju mánudaginn 12. septem-
ber kl. 14.00.
Lína, Gréta, systkini og fjölskyldur þeirra.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁGÚST L. EIÐSSON,
er látinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar-
deildar 3B Hrafnistu Hafnarfirði fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
Jóhanna Ágústsdóttir, Ólafur Hermannsson,
Linda Ágústsdóttir, Jón Þorkelsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir, sonur, bróðir og afi,
JÓN GÍSLI GRÉTARSSON
pípulagningarmeistari,
Snægili 3b,
Akureyri,
lést á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut laugardaginn 3. september.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn
12. september kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Anna Kristín Guðjónsdóttir,
Róbert Freyr Jónsson, Anna Hlín Erlingsdóttir,
Grétar Jónsson,
Edda Björk Viðarsdóttir, Brynjólfur Hjartarson,
Kristín Baldvina Jónsdóttir, Grétar Óttar Gíslason,
Margrét Vala Grétarsdóttir, Jón Gunnar Guðmundsson,
Baldvin Þór Grétarsson, Jóhanna Sigríður Sigurðardóttir,
Kristín Sigrún Grétarsdóttir, Hörður Már Guðmundsson,
Anna María Grétarsdóttir, Erlendur Níels Hermannsson
og afabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín,
DRÍFA KONRÁÐSDÓTTIR,
Grýtubakka 32,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 20. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Ingi Gunnar Benediktsson,
Svala Konráðsdóttir,
Erna Konráðsdóttir, Sveinbjörn Jónsson,
Mjöll Konráðsdóttir, Hauby Kristensen.
✝
Bróðir okkar,
BIRGIR HELGASON
trésmiður,
Skúlagötu 20,
Reykjavík,
andaðist þriðjudaginn 6. september.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valdimar Helgason,
Kristín Helgadóttir.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
SVEINN GUÐMUNDSSON
rafmagnsverkfræðingur,
Aðalstræti 8,
Reykjavík,
lést á lungnadeild Landspítala í Fossvogi
miðvikudaginn 7. september.
Ingrid Guðmundsson,
Sólveig Sveinsdóttir, Thierry Clairiot,
Guðmundur Sveinsson, Arianne Gähwiller,
Sigrún Sveinsdóttir, Yosihiko Iura,
Sveinn Ingi Sveinsson, Sigrún Ásta Gunnlaugsdóttir,
Ríkharður Sveinsson, Jóna Kristjana Halldórsdóttir,
Benedikt Sveinsson, Anna White,
barnabörn og barnabarnabörn.