Morgunblaðið - 09.09.2011, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Enskur cocker spaniel
Til sölu enskir cocker spaniel hvolpar.
Frábærir fjölskylduhundar. Þeir eru
bólusettir, örmerktir og með ættbók
frá HRFÍ. www.leirdals.is
Frekari upplýsingar í síma 868-9455.
Veitingastaðir
Humarhlaðborð
Humarhlaðborð öll kvöld - tilvalið
fyrir starfsmannahópinn þinn, aðeins
35 mín. frá Rvk.
Veitingastaðurinn Hafið Bláa -
Borðapantanir í síma 483 1000 - Sjá
www.hafidblaa.is
Heilsa
Zero-3 kúrinn
frá Svensson
Besti og þekkt-
asti megrun-
arkúrinn frá
Svensson.
Ekkert sérfæði. 100% jurta-
afurð. Algjörlega öruggur.
Notkunarleiðbeiningar á Ís-
lensku fylgja.
Virkar fljótt.
Sími 566 7580
mán.- fim. Kl. 10-14
www.Belis.is
Geymslur
Húsvagnageymslan Þorlákshöfn
Eigum nokkur laus pláss í vetur.
Upplýsingar í síma 893 3347.
Gónhóll Eyrarbakka
Geymslur og gisting
Geymdu gullin þín í Gónhól.
Uppl., geymsla, s. 771-1936.
Uppl., gisting, s. 771-1940.
Pantanir og skráning
mttp://www.gonholl.is
Sumarhús
ROTÞRÆR OG VATNSGEYMAR
Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir
- réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300
til 50.000 lítra. Lindarbrunnar.
Borgarplast.is
Mosfellsbæ, s. 561 2211.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Málverk
Olíumálverk - örugg fjárfesting
Ef þú vilt fjárfesta í olíumálverki eftir
Ásgrím Jónsson hringdu þá strax í
síma 693 9376.
UMBOÐSSALA
Vantar málverk í umboðssölu.
Lág sölulaun.
Mikið úrval málverka til sölu.
Innrömmun
20% afsláttur
Sérskorin karton 20% afsláttur.
Lennon
Tölusettar og áritaðar eftirprent-
anir eftir John Lennon.
Íslensk grafík
Tolli - Bragi - Jón Reykdal -
Þórður Hall o.fl.
20 - 40% afsláttur.
Gildir til 23. sept.
Opið virka daga kl. 9-18.
föstudaga 9-16.
Síðumúla 34, sími 533 3331
Tómstundir
Plastmódel í miklu úrvali
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is
Finnið okkur á facebook.
Skemmtanir
PARTÍ PARTÍ PARTÍ
Nú er komið að því!
Næstkomandi laugardag 10. sept.
ætla fyrrverandi og núverandi starfs-
menn Lyngáss að hittast í Fram-
heimilinu Safamýri og eiga saman
frábært kvöld. Húsið opnar kl. 19.00,
verð er 4000 kr. með veitingum.
Hvetjum alla til að mæta, skráning er
hafin. Uppl. gefur Halla Jóns.
hallajons@islandia.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Sófi til sölu
Stakur DESIGNER leðursófi til
sölu, Corbushe, dökkbrúnn að lit
og ónotaður.
Tilboð óskast í þennan sófa
angela8819@gmail.com
Fjarstýrðar innanhússþyrlur í
úrvali
Erum með mikið úrval af fjarstýrðum
inni- og útiþyrlum, flugvélum, bátum
og fl. Kíktu á síðuna Tactical.is og
skoðaðu úrvalið. Netlagerinn slf.
Sími 517 8878.
12v ljós - Frábært úrval!
Bjóðum mikið úrval af samtengjan-
legum 12v ljósum úr ryðfríu stáli,
hertu áli og plastefnum. Kíkið inn á
www.gosbrunnar.is og sjáið úrvalið!
Síminn er 695 4220.
RISASÖLUBASAR
Þrastarnes 11, Garðabær
Frá 12 - 2 föstudag 9. og laugardag
10. sept. Sjónvarp 47 ", i mac-tölva,
barnavörur, húsgögn, leðursófasett,
vefnaðarvara. Bæði nýtt og notað.
Frábær verð í boði. Öll tilboð skoðuð.
Verið velkomin!
angela8819@gmail.com
Verslun
Fallegu silfurskeiðarnar
eru smíðaðar í smiðjunni okkar ásamt
borðsilfrinu íslenska. Skeiðarnar
kosta 17.500,- og við getum áletrað
ef vill með stuttum fyrirvara.
ERNA, s. 552 0775, www.erna.is
Óska eftir
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu. Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - s. 551 6488.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is
bílasala
...í bílum erum við sterkir!
☎ 562 1717
Skráðu bílinn
þinn frítt hjá
bilalif.is
Bókhald
Bókhald og reikningsskil
Ársreikningar, bókhald, laun,
ráðgjöf og stofnun félaga.
Reynsla, þekking, traust.
Viðskiptaþjónustan,
Dalvegi 16d, Kópavogi.
vth.is / arni@vth.is / s. 517 0100.
Við bjóðum alla bókhalds-
þjónustu.
Traust og gagnkvæmur trúnaður.
www/fsbokhald.is.
Fyrirtæki og samningar ehf,
Suðurlandsbarut 46,
108 Reykjavík. S. 5526688
Bókhald og rekstrarráðgjöf
Bókhald og uppgjör.
Erlendar bréfaskrftir, innflutningur.
Markaðs- og söluráðgjöf.
Rekstrarráðgjöf.
BETRI REKSTUR, Skógarhlíð 22,
sími 775 0200, www.betrirekstur.is.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Bílar
4X4 - DÍSEL VW TRANSPORTER
DOUBLE CAB
Árgerð 2004, ekinn 169 þ. km, 6
gírar. Tilboðsverð 1.790.000.
Rnr. 243857. Til sýnis og sölu hjá
Bílalíf, Kletthálsi 2, s. 562-1717.
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is
Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is
bílasala
...í bílum erum við sterkir!
☎ 562 1717
Skráðu bílinn
þinn frítt hjá
bilalif.is
TOYOTA RAV 4 VX
Árgerð 2007, ekinn aðeins 56 þ. km,
bensín, sjálfskiptur, einn eigandi,
leður o.fl. Verð 2.980.000.
Rnr. 124367.
Til sýnis og sölu hjá Bílalíf,
Kletthálsi 2, s. 562-1717.
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is
DÍSEL
HYUNDAI SANTA FE 4x4
Árg. 2005, ek. 148 þ. km, sjálfskiptur.
Tilboðsverð 1.990.000, búið að
skipta um tímareim og endurnýja
bremsur. Rnr. 124234.
Til sýnis og sölu hjá Bílalíf,
Kletthálsi 2, s. 562-1717.
Sjá fleiri myndir á www.bilalif.is
Fellihýsi
Ferðavagnageymsla Borgarfirði
Geymum tjaldvagna, fellihýsi,
hjólhýsi, báta og fleira í upphituðu
rými. Gott verð. S. 612-6130.
E-mail solbakki.311@gmail.com.
Það er sárt að missa og of
seint að taka upp þræðina sem
áður virtust óslítanlegir, ekkert
verður eins og áður, tíð og tími
hefir liðið, sorginni fylgir alltaf
tómleiki og eftirsjá.
Nú er of seint að lyfta upp tóli
og spjalla við hana Guðrúnu.
Hennar er sárt saknað eins og
vina okkar sem kvatt hafa þenn-
an heim á örfáum árum og skilið
eftir skörð sem ekki verða fyllt.
Hvíl í friði, Guðrún okkar.
Innilegar samúðarkveðjur til
fjölskyldunnar.
Fyrir hönd vinanna (Grúpp-
unnar),
Ásta S. Hannesdóttir.
Þegar við kveðjum Dúnu föð-
ursystur okkar, eða frú Guðrúnu
eins og faðir okkar kallaði hana
stundum, erum við að kveðja
ókrýnda drottningu föðurfjöl-
skyldunnar. Dúna var aðeins 16
ára gömul þegar móðir hennar
Katrín dó ung frá sex börnum.
Dúna sneri þá til baka frá skóla-
setu á Laugarvatni til að hugsa
um yngri systkini sín og fylla í
skarð móður sinnar. Dúna naut
sérstakrar virðingar í fjölskyld-
unni vegna þessa hlutverks síns,
sem hún sinnti alla tíð með al-
varlegum undirtón, mikilli elsku-
semi, krafti og dugnaði. Dúna
flutti úr sveitinni, fór í hús-
mæðraskóla á Akureyri og lærði
síðar kjólasaum. Hún vann í
Verðlistanum á Laugalæknum
mesta sína starfsævi. Hún giftist
Finnboga Eyjólfssyni, mætum
og lífsglöðum manni, og átti með
honum eina dóttur, Katrínu.
Elstu minningarnar um Dúnu
eru úr Hamrahlíðinni, en þá
bjuggum við í næsta húsi. Þar var
saumaherbergið hennar eins og
ævintýraland, efni í öllum litum,
borðar, rennilásar og tölur eins
og snyrtilega röðuð leikföng.
Við systkinin fengum í gegn
um árin að njóta margra gleði-
stunda með föðurfjölskyldunni.
Hlýja, góð lund, söngelska og
gleði á góðri stund einkennir
Austvaðsholtssystkinin. Dúna
átti líklega stærstan þátt í því að
haldnar voru reglubundnar fjöl-
skyldusamkomur bæði meðal
systkinanna og með stórfjöl-
skyldunni. Frænkurnar af Lækj-
arbotnaættinni þreytast aldrei á
að hittast. Þar er alltaf kátt á
hjalla. Á annan í jólum var alltaf
jólaboð hjá Dúnu og Boga á með-
an fjölskyldan rúmaðist í heima-
húsi. Þar var hefðbundin jólamál-
tíð með öllu tilheyrandi og síðan
kaffi, ekta rjómasúkkulaði og
fullt af girnilegum tertum og
smákökum eins og Dúnu einni
var lagið að baka. Þetta voru ekki
bara venjuleg jólaboð. Boðin voru
í senn jólahátíð og jólaball. Þar
var alltaf dansað í kring um jóla-
tréð, spilað á harmoniku og gítar
og jólalögin sungin. Þetta voru
yndislegar stundir, alltaf gaman.
Dúna með einurð sinni og dugn-
aði gaf okkur þessar gleðistundir
sem voru mikilvægur þáttur í
okkar fjölskylduhefð og uppeldi.
Síðustu sjö árin árin þurfti
Dúna að lifa með gervifót. Þá
sáum við frændsystkinin enn bet-
ur sem fullorðið fólk þann styrk
sem Dúna bjó yfir og hafði ein-
kennt líf hennar. Hún bar mikla
umhyggju fyrir okkur frænd-
systkinunum ef eitthvað bar út af
venjubundnu lífsformi eins og
hennar kynslóð hafði væntingar
til. En sjálfri sér vorkenndi hún
aldrei. Alltaf hélt hún áfram
ótrauð hvað sem út af bar.
Við kveðjum góða frænku, sem
með einurð sinni og dugnaði lét
engar hindranir koma í veg fyrir
að hún gæti stutt við og notið
jafnt litlu fjölskyldu sinnar og
systkina og helst allrar stórfjöl-
skyldunnar. Þannig naut hún lífs-
ins, umvafin sínum nánustu, og
lét engin tækifæri ónotuð til að
taka þátt í söng, dansi og gleði-
stundum sem gaf lífi hennar létt-
an blæ.
Við vottum Katrínu, Oddi,
Guðrúnu og Þorra, systkinunum
og allri fjölskyldunni okkar
dýpstu samúð.
Lilja, Jón Yngvi og
Guðmundur B. Ólafsbörn.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, "Senda inn
minningargrein", valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar