Morgunblaðið - 09.09.2011, Page 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
3 5
2 4
3 6 8 7
5 4 7
8 7 6 3
1
8 5 4
3 1 2 6
6 8
7 9 5
5 6 1 7
8 9
7 3
1 2
5 2 7 6
9 5 6
8 2
5 9 6 3 7
9
8 7 5
6 2 4 8
2 7 4
6
5 1 3
8 3
2 3
1 9 5 4
1 8 2 6 4 3 7 9 5
9 5 6 7 2 8 4 1 3
4 7 3 1 5 9 2 6 8
5 9 7 8 6 2 1 3 4
2 6 1 3 7 4 8 5 9
3 4 8 9 1 5 6 7 2
7 3 4 2 9 6 5 8 1
6 2 9 5 8 1 3 4 7
8 1 5 4 3 7 9 2 6
1 2 3 5 7 8 6 9 4
9 5 7 4 6 1 2 3 8
6 4 8 9 2 3 7 5 1
3 6 2 1 9 7 4 8 5
4 8 1 3 5 6 9 7 2
7 9 5 2 8 4 1 6 3
2 3 6 7 4 5 8 1 9
5 7 9 8 1 2 3 4 6
8 1 4 6 3 9 5 2 7
4 6 1 5 3 7 8 2 9
2 7 8 1 4 9 5 3 6
5 3 9 8 6 2 4 7 1
8 2 6 7 5 3 9 1 4
3 1 4 2 9 8 6 5 7
9 5 7 4 1 6 2 8 3
1 9 2 3 8 4 7 6 5
7 4 5 6 2 1 3 9 8
6 8 3 9 7 5 1 4 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 9. september,
252. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Á þeim degi skulu leif-
arnar af Ísrael og þeir af Jakobs húsi,
sem af komast, eigi framar reiða sig á
þann sem sló þá, heldur munu þeir
með trúfestu reiða sig á Drottin, Hinn
heilaga í Ísrael. (Jesaja 10, 20.)
Víkverji vill hafa hlutina einfalda oger ekki fyrir að flækja málin. Í
hans huga er sími til þess að tala í en
hvorki til þess að taka myndir né vísa
veginn. Sjónvarp er til þess að horfa á
fyrirfram ákveðna dagskrá en ekki til
þess að tengja við önnur tæki. En hjá
því verður víst ekki komist og því situr
Víkverji í súpunni.
x x x
Það verður að viðurkennast að Vík-verji botnar ekkert í öllum leiðsl-
unum sem tengjast sjónvarpinu með
einum eða öðrum hætti og reynir því
að halda sig frá þeim af bestu getu.
Á dögunum slökknaði allt í einu á
sjónvarpi Víkverja. Hann slökkti á
tækinu, kveikti aftur en allt kom fyrir
ekki. Engin kom myndin og ekkert
hljóðið. Heimasætan gekk strax í mál-
ið og sá að ekkert ljós var á myndlykl-
inum. Hún hringdi í þjónustuver Sím-
ans og eftir nokkra bið fékk hún
samband. Starfsmaðurinn var allur af
vilja gerður og reyndi að leysa vand-
ann, án árangurs. Þegar fram kom að
hugsanlega þyrfti að greiða fyrir þjón-
ustuna yrði maður sendur á staðinn
rétti dóttirin Víkverja símann og hann
endurtók það sem hún hafði sagt.
Starfsmaðurinn spurði hvort mynd-
lykillinn væri ekki örugglega tengdur
við rafmagn. Víkverji leit yfir snúr-
urnar og sagði að allt væri sem fyrr en
sagðist reyndar ekki sjá neina teng-
ingu í rafmagnið. Maðurinn sagði að
það gæti ekki verið og við nánari at-
hugun tók Víkverji eftir lausri snúru á
gólfinu innan um allar tengdu snúr-
urnar. Hún var þegar tengd við mynd-
lykilinn en ekkert gerðist. Þá sagðist
maðurinn ætla að senda sérfræðing til
þess að skoða málið nánar.
x x x
Kona frá Símanum kom daginn eft-ir og var ekki lengi að leysa mál-
ið. Rafmagnssnúran var tengd við
myndlykilinn á vitlausum stað. Sem
betur fer var Víkverji í vinnunni og
þurfti því ekki að horfa framan í kon-
una en hefur getað horft á sjónvarpið
áfallalaust síðan. Þökk sé skjótum við-
brögðum Símans og sérfræðingum
þar á bæ. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 viðbragðsfljótur,
8 land, 9 skoðun, 10 munir,
11 köngull, 13 bind saman,
15 auðbrotin, 18 hryggð, 21
reyfi, 22 matskeið, 23 fýla,
24 þolanlegur.
Lóðrétt | 2 bitur kuldi, 3
grasgeiri, 4 samþykk, 5
eyddur, 6 veik, 7 varmi, 12
sekt, 14 stök, 15 sæti, 16
kófdrukkni, 17 vissu, 18
gamla, 19 flöt, 20 heimili.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 virkt, 4 gráða, 7 keyra, 8 tregt, 9 fát, 11 róar, 13 Ægir,
14 áleit, 15 garn, 17 tákn, 20 ótt, 22 fliss, 23 ertan, 24 reiði, 25
trana.
Lóðrétt 1 vikur, 2 reyta, 3 traf, 4 gott, 5 ágeng, 6 aftur, 10 áheit,
12 Rán, 13 ætt, 15 gæfur, 16 reipi, 18 áætla, 19 nenna, 20 óski,
21 tekt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Létt verk. V-NS.
Norður
♠ÁK93
♥ÁD3
♦DG
♣KG75
Vestur Austur
♠G764 ♠1082
♥K ♥10764
♦ÁK75 ♦82
♣Á862 ♣D943
Suður
♠D5
♥G9852
♦109643
♣10
Suður spilar 4♥.
„Þetta verður létt verk, makker
minn – ég er með helminginn af punkt-
unum.“ Norður doblaði tígulopnun
vesturs, fékk veikt svar á 1♥, krafði þá
með 2♦, fékk aftur dauflegt svar á 2♥,
en stökk samt í 4♥. Vörn vesturs var
einbeitt: ♦Á-K og ♣Á, síðan þriðji tíg-
ullinn. „Hef ég tíma til að fá mér kaffi?“
Norður yfirgaf borðið og hugur suð-
urs leitaði ósjálfrátt til bókar Svíans
Jannerstens um einu vonina (Enda
chansen). Blankur kóngur í trompi var
skilyrði, en það var ekki nóg. Líka yrði
að byggja upp trompbragð á austur.
Eftir nokkra íhugun glitti suður í von:
hann trompaði með ♥D, henti tígli í
♣K og stakk lauf. Spilaði hjarta á ás-
ann, svínaði ♥8, tók þrjá efstu í spaða
og …
Norður var kominn aftur með kleinu
í munninum: „Er ég of seinn?“
9. september 1926
Alhvítt var að morgni dags í
Reykjavík. Ekki er vitað að
snjó hafi fest þar fyrr að
hausti.
9. september 1954
Með reglugerð um sölu og
veitingar áfengis voru „bann-
aðar allar vínveitingar á mið-
vikudögum“ en heimilt var þó
að veita borðvín með mat.
Bann þetta gilti í marga ára-
tugi.
9. september 1955
Söngkvartettinn Delta
Rhythm Boys hélt söng-
skemmtun í Austurbæjarbíói í
Reykjavík við mikla hrifningu.
Lokalagið var Vögguvísa eftir
Emil Thoroddsen og ætlaði
fagnaðarlátum aldrei að linna.
9. september 2005
Fáskrúðsfjarðargöng voru
formlega tekin í notkun. Þau
styttu leiðina milli Fáskrúðs-
fjarðar og Reyðarfjarðar um
30 kílómetra.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
„Ef einhver slæðist inn þá verður honum ekkert
vísað út, það verður áreiðanlega heitt á könnunni.
Annars eru mestu hátíðarhöldin afstaðin,“ segir
Örnólfur Thorlacius, fv. rektor MH, sem fagnar 80
ára afmæli sínu í dag. Örnólfur hefur um nokk-
urra ára skeið verið búsettur á dvalarheimilinu
Grund ásamt eiginkonu sinni, Rannveigu
Tryggvadóttur, sem verður 85 ára síðar á árinu.
Móðir Örnólfs; Áslaug Thorlacius, er einnig á
Grund, og verður 100 ára í ár.
„Það er búið að taka dálítið forskot á sæluna,“
segir Örnólfur en synir hans héldu honum hóf í
vikunni þegar stórfjölskyldan var að mestu leyti öll stödd á landinu
sama daginn. Örnólfur segist eiga góðar stundir á Grund, þar sé öfl-
ugt félagsstarf, góður aðgangur að læknisþjónustu og jafnframt gott
næði til skrifta og lesturs góðra bóka.
„Ég hef allt við höndina sem ég þarf og get unnið við það sem ég
vil,“ segir Örnólfur sem sest enn við skriftir um sín hugðarefni og
fræðasvið. Hann vonast til að geta átt náðugan dag í dag en er alveg
undir það búinn að afmælissöngurinn verði sunginn á Grund, enda er
það ekki á hverjum degi sem menn verða áttræðir! bjb@mbl.is
Örnólfur Thorlacius, fv. rektor MH, 80 ára
Forskot var tekið á sæluna
Nýirborgarar
Reykjavík Baldur Leó fæddist
28. júní kl. 5.07. Hann vó 3.990
g og var 54 cm langur. For-
eldrar hans eru Emilía Rós
Sigfúsdóttir og Atli Rafn
Björnsson.
Flóðogfjara
9. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.32 3,2 10.42 0,9 16.55 3,7 23.11 0,8 6.33 20.18
Ísafjörður 0.39 0,6 6.39 1,8 12.46 0,6 18.55 2,1 6.34 20.28
Siglufjörður 2.34 0,4 9.09 1,2 14.51 0,6 20.59 1,4 6.16 20.11
Djúpivogur 1.27 1,7 7.38 0,6 14.11 2,0 20.17 0,7 6.02 19.49
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Hratt flýgur stund þegar gaman er en
það er alltaf hyggilegt að hægja á og gera sér
glögga grein fyrir ástandinu. Reyndu að
höfða til þess góða í litla prakkaranum.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert öruggari og jarðbundnari en
venjulega. Stolt þitt og keppnisskap gætu
knúið þig til óraunhæfra skuldbindinga.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú gætir ruglað saman minni og
stærri forgangsmálum. En kvíddu engu,
sömu sögu er að segja um marga í dag.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þetta er rétti tíminn til að fá smáróm-
antík inn í lífið og gera það skemmtilegra.
Farðu í frí með ástinni þinni, þú þarft þó ekki
að fara langt.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert forvitnin uppmáluð í dag. Sýndu
stórlyndi og réttu fram sáttahönd. Þú ert á
góðri leið með að finna svar við áleitinni
spurningu.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Allt þarf að rækta í lífinu og það á
einnig við um rómantíkina. Einhver setur þér
stólinn fyrir dyrnar og þú ert ekki sátt/ur.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hvíldin er mikilvægari en þú gerir þér
grein fyrir. Hugsið ekki um allt sem þið eigið
eftir ógert. Ekki láta áhyggjur annarra hafa
svo mikil áhrif á þig.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Reyndu að halda öllu í sem
bestu jafnvægi svo þú eigir betra með að
ráða fram úr þeim vandamálum, sem banka
upp á. Þú ert full/ur orku.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er út í hött að þú hafir ekki
sett þér nein markmið í lífinu. Reyndu að láta
sem ekkert sé þó að þér sé brugðið.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Gættu þess að tala tæpitungu-
laust svo enginn þurfi að fara í grafgötur um
hvað það er sem þú vilt. Helgaðu þig gömlu
takmarki upp á nýtt.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú hefur fengið hugmynd sem vel
er þess virði að markaðssetja. Láttu aðra ekki
hrekja þig af leið, þótt þeir hafi hátt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Atriði sem hafa verið þér ókunn koma
upp á yfirborðið. Hvort sem þér líkar betur
eða verr skaltu reyna að fá góða heildarmynd
af eignum þínum og skuldum.
Stjörnuspá
Bolli A. Ólafs-
son verður 85
ára hinn 12. sept-
ember. Af því til-
efni verður opið
hús fyrir vini og
vandamenn í
Gullsmiðju
Ófeigs, Skóla-
vörðustíg 5, sunnudaginn 11. sept-
ember kl. 15- 17.
85 ára
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. Bg5 dxe4
5. Rxe4 Be7 6. Bxf6 Bxf6 7. Rf3 0-0 8.
Dd2 b6 9. 0-0-0 Bb7 10. Bd3 Rd7 11.
Df4 c5 12. dxc5 bxc5 13. c3 Db6 14. Bc4
Hab8 15. Hd2 Da5 16. Rxf6+ Rxf6 17.
Re5 Bd5 18. f3 Hb7 19. g4 Hfb8 20.
Hhd1 h6 21. h4 Dc7 22. g5 Rh5 23. De3
Rg3 24. Bxd5 exd5 25. f4 Rf5 26. Dh3
Rd6 27. gxh6 Da5 28. a3
Staðan kom upp í opnum flokki
heimsmeistaramóts 20 ára og yngri
sem lauk fyrir skömmu í Chennai á
Indlandi. Bandaríski stórmeistarinn
Ray Robson (2.560) hafði svart gegn
heimamanninum S Nitin (2.360). 28. …
Hxb2! 29. Hxb2 Dxa3 30. Rd3 Rc4 31.
Dg3 Dxc3+ og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.