Morgunblaðið - 09.09.2011, Side 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Skáldsagan Lýtalaus eftirTobbu Marinós er sjálfstættframhald bókarinnar Maka-laus sem kom út í fyrra. Sú
bók seldist vel og voru gerðir sam-
nefndir sjónvarpsþættir eftir henni
sem voru sýndir á Skjá einum síðasta
vetur. Í þáttunum endaði Lilja, að-
alpersónan, fyrir bíl en ekki var það
samt svo í fyrri bókinni. Lýtalaus
hefst á því að Lilja er á leiðinni á
Heilsustofnunina í
Hveragerði í end-
urhæfingu eftir
bílslys. Hún er fúl
og feit en dvölin á
stofnuninni verður
ánægjulegri en
hún á von á. Er
það grunnurinn að
atburðarásinni í
bókinni. Eftir dvöl-
ina í Hveragerði fer hún í heimsókn til
Danmerkur og gengur í gegnum súrt
og sætt með vinum sínum.
Eins og í fyrri bók eru karlmenn,
kynlíf, kokteilar og kalóríur Lilju efst í
huga. Kalóríur og holdafar eru henni
kannski aðeins of ofarlega í huga því
fram yfir miðja bók kemur líkamsfita
eða kalóríufjöldi fyrir á nánast hverri
einustu síðu. Svo mikið er að-
alpersónan látin velta holdafarinu fyr-
ir sér að ég var orðin virkilega fúl yfir
því við lesturinn. Er þetta allt sem
kvenfólk hugsar um og veltir sér upp
úr allan daginn? Hvort þær eru feitar,
hvað þær láta ofan í sig og hvað aðrir
eru grannir? Vissulega hefur Lilja
þyngst í kjölfar sjúkrahúslegu en
„kommon“, þessar holdafarshugsanir
hennar eru bara sjúklegar og setja
söguna á fáránlegt plan. Því ólíkt
Bridget Jones vantar oftast almenni-
lega kaldhæðni í fitutalið. Þegar per-
sóna í bók er látin hugsa um hollustu-
innihald í hverjum einasta bita sem
hún lætur ofan í sig getur manni ekki
annað en þótt hún leiðinleg og vinir
hennar, sem eru gagnteknir af fitu,
líka. Auk þess sem skilaboðin sem
bókin sendir eru: hamingjan felst í
holdafarinu, þ.e að vera grönn.
Konur eiga ekki að fá samviskubit
yfir hverjum einasta bita sem þær
láta ofan í sig, heilbrigt líferni er málið
og það á að krefjast jafnlítillar hugs-
unar og að fara á klósettið. Það leið-
inlegasta sem ég veit er megrunartal
og eins og lesa má út úr þessu fór það
ferlega í taugarnar á mér í bókinni,
skemmdi eiginlega annars fína sögu.
Ég var hrifin af Makalaus og ég er
að mörgu leyti hrifin af þessari bók
líka og hef fulla trú á Tobbu sem rit-
höfundi. Mér finnst reyndar að hún
eigi að einbeita sér að því að skrifa
skáldsögur, gefa sér góðan tíma í það,
og sleppa lífsstílsbókunum. Tobba er
nefnilega fyndin, hefur fínan og ein-
kennandi stíl og hefur allt til að bera
til að skrifa enn betri skvísuskruddu
en þessa. Lýtalaus er betur uppbyggð
og þéttari en Makalaus sem var þó
betri bók efnislega. Söguþráðurinn í
Lýtalaus er samfelldur og rennur vel
en dýptina vantar hins vegar, per-
sónusköpunin er grunn og atburða-
rásin flöt. Tobba býður í þetta skiptið
bara upp á froðuna sem hún fleytti of-
an af sultunni.
Lýtalaus er fljótlesin, oft á tíðum
fyndin og þegar ég horfði framhjá
holdafarshugsunum Lilju gat ég haft
gaman af henni. Tobba ætlar sér aug-
ljóslega að skrifa bók nr. 3 og hlakka
ég til að lesa hana. Vonandi er að Lilja
verði þá komin í þyngd sem hún er
sátt við og geti beint sjónum að öðru
og mikilvægara en fitunni á lærunum
á sér.
Lýtalaus „light“
Lýtalaus bbnnn
Eftir Tobbu Marinós.
JPV gefur út 2011. 250 bls. kilja.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
BÆKUR
Morgunblaðið/Eggert
Tobba Býður bara upp á froðuna
sem hún fleytti ofan af sultunni.
Í kvöld heldur hljómsveitin
Skuggamyndir frá Býsans tónleika
á Café Haiti við Reykjavíkurhöfn.
tónleikarnir eru liður í tónleikaröð
sveitarinnar á Cafe Haiti, en þar
mun hún leika mánaðarlega í vetur.
Hljómsveitin var stofnuð um mitt
síðasta ár og er skipuð þeim Hauki
Gröndal á klarínett, Ásgeiri Ás-
geirssyni á tamboura, bouzouki og
saz, Þorgrími Jónssyni á rafbassa
og Erik Qvick á trommur og slag-
verk.
Tónleikar Skuggamyndir frá Býs-
ans leika á Café Haiti í kvöld.
Tónleikar á
Café Haiti
Danshátíðin Reykjavík Dance
Festival hófst 5. september sl. og
lýkur á sunnudaginn, 11. sept-
ember. 14 ný íslensk dansverk
eru frumsýnd á hátíðinni og jafn
fjölbreytileg og þau eru mörg.
Í kvöld kl. 22 mun fjölþjóðlegi
hópurinn Raven sýna verk sitt
Court 0.9144m í portinu við
Tjarnarbíó og Menningarfélagið
frumsýnir verk sitt Retrograde í
Tjarnarbíói kl. 19. Verkið fylgir
tilraunum tveggja einstaklinga til
að fóta sig við ókunnar aðstæður
og takast á við heiminn eftir að
honum hefur verið umturnað, að
því er fram kemur á vef hátíð-
arinnar. Dansmynd sem unnin
var samhliða verkinu hefur
ferðast víða um heim og unnið til
verðlauna á erlendum hátíðum en
hún verður sýnd í Bíó Paradís í
dag kl. 15. Í kvöld verður einnig
sýnt verk sænsks verðlaunadans-
höfundar, Ölmu Södeberg, Cosas.
Dedication eftir Margréti Söru
Guðjónsdóttur verður sýnt í Kex
hostel kl. 18; Belinda og Gyða
eftir Steinunni Ketilsdóttur og
Sveinbjörgu Þórhallsdóttur í
Tjarnarbíói kl. 20.30 ásamt verk-
inu Vorblótið eftir danshópinn
MyPocket Production. Nánari
upplýsingar um hátíðina og ít-
arlega dagskrá hennar má finna
á vef hátíðarinnar, reykjavik-
dancefestival.is.
Dansinn
dunar í
Reykjavík
Ljósmynd/Bart Grietens
Dans Úr verkinu Court 0.9144m
sem sýnt verður á danshátíð í kvöld.
Zombíljóðin – frumsýning í kvöld
TRYGGÐU ÞÉR SÆTI!
4 sýningar á 11.900 kr.
með leikhúskorti
Allar kvöldsýningar
hefjast kl. 19.30
Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Fullkominn dagur til drauma
Fös 30/9 kl. 20:00
Fös 7/10 kl. 20:00
Sun 9/10 kl. 20:00
Sun 23/10 kl. 20:00
Sun 30/10 kl. 20:00
Sun 6/11 kl. 20:00
Svanurinn (Tjarnarbíó)
Sun 6/11 kl. 14:00
Sun 13/11 kl. 14:00
Sun 20/11 kl. 14:00
Sun 27/11 kl. 14:00
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus
Tjarnarbíó
5272100 | tjarnarbio@leikhopar.is
Dedication
Fös 9/9 kl. 18:00
Reykjavik Dance Festival - Sýnt á Kex Hostel
Nú nú
Lau 10/9 kl. 17:00
Reykjavik Dance Festival - Sýn á Listasafninu, Hafnarhúsið.
The Lost Ballerina
Lau 10/9 kl. 13:30 Lau 10/9 kl. 15:15
Reykjavik Dance Festival - Sýnt á Listasafni Reykjavíkur
Retrograde + Cosas
Fös 9/9 kl. 19:00 Lau 10/9 kl. 19:00
Reykjavik Dance Festival
Court 0.9144m
Fös 9/9 kl. 22:00
Reykjavik Dance Festival
ˆ > a flock of us > ˆ
Lau 10/9 kl. 13:00
Lau 10/9 kl. 14:15
Lau 10/9 kl. 16:00
Reykjavik Dance Festival - Sýnt á Listasafninu, Hafnarhúsinu
Belinda og Gyða + Vorblótið
Fös 9/9 kl. 20:30 Lau 10/9 kl. 20:30
Reykjavik Dance Festival
Tripping North
Lau 10/9 kl. 22:00
Reykjavik Dance Festival
Gróska 2011
Fim 15/9 kl. 19:30
Fös 16/9 kl. 19:30
Lau 17/9 kl. 14:30
Höfundahátíð Félags leikrita og handritshöfunda
Eftir Lokin
Lau 29/10 kl. 20:00
Fim 3/11 kl. 20:00
Lau 5/11 kl. 20:00
Lau 12/11 kl. 20:00
Fim 17/11 kl. 20:00
Fös 18/11 kl. 20:00
Fös 25/11 kl. 20:00
Lau 26/11 kl. 20:00
Fös 2/12 kl. 20:00
Lau 3/12 kl. 20:00
Svanurinn
Sun 6/11 kl. 14:00
Sun 13/11 kl. 14:00
Sun 20/11 kl. 14:00
Sun 27/11 kl. 14:00