Morgunblaðið - 09.09.2011, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Það er búið að vera skemmti-legt að sjá á síðustu árumhvernig listamenn sem eruhluti af pólitísku rétttrún-
aðarkirkjunni hafa snúist gegn Lars
Von Trier og eru sumir farnir að
hata hann. Hann er ekki búinn að
sýna nýjustu mynd sína þegar klerk-
arnir úr listamannastéttinni eru
farnir að níða hann niður. Samt var
hann þeirra uppáhald fyrir mörgum
árum. Reglan er náttúrlega sú að
ólátabelgir og ólíkindatól fái hrós frá
þeim og þeir lagi síðan gagnrýni sína
og ólæti að óskum rétttrúnaðarins.
Enda halda klerkar rétttrúnaðarins
öllum völdum í menningarheiminum
og allar úthlutunarnefndir eru í
þeirra höndum. En Lars Von Trier
hefur ekki látið að stjórn þeirra né
nokkurs manns. Svo fór á endanum
þegar Lars Von Trier var að kynna
Melancholiu í Cannes að hann fór út
fyrir öll mörk, þannig að jafnvel fólk
sem hlýðir ekki skipunum úr reglu
rétttrúnaðarins ofbauð. Enda hefur
Lars Von Trier hagað sér eins og
siðprúður strákur pólitíska rétttrún-
aðarins í öllum viðtölum síðan þá.
Það er hugsanlega loksins búið að
temja hann.
Mynd hans Melancholia var þegar
farin að fá slæma dóma intelektúela
áður en hún var frumsýnd. Ég var á
frumsýningunni á myndinni í Can-
nes og menn annaðhvort elskuðu
hana eða hötuðu.
Sagan er bæði erfið og auðveld í
senn. Hann brýtur í raun öll lögmál í
uppbyggingu handrits með því að
byggja upp spennu fyrir ýmsum
samskiptum í fyrri hluta mynd-
arinnar sem síðan skipta engu máli í
seinni hluta hennar. Því allt sem
skipti svo miklu máli í fyrri hlut-
anum verður einskis virði þegar í
ljós kemur um miðbik myndarinnar
að risastór hnöttur mun lenda á
plánetunni og tortíma henni og öllu
sem á henni er.
En á vissan hátt fylgir hann
reglum formúlunnar fram að því og
byrjar upp á nýtt í seinni hlutanum.
Myndin virkar eins og tvær sjálf-
stæðar myndir. Báðar eru þær góð-
ar og halda fast í hendur hvor ann-
arrar, gætu ekki án hvor annarar
verið.
Sagan hefst á því að hin þung-
lynda Justine (Kirsten Dunst) er að
fara að giftast Michael nokkrum,
næs og flottum strák. Brúðkaupið er
haldið í glæsilegum kastala og allt
borgað af systur Justine, Claire,
(Charlotte Gainsbourg) og eig-
inmanni hennar, John, (Kiefer Sut-
herland) sem eru moldrík. Pening-
arnir hjá þeim eru ótakmarkaðir
sem og íburðurinn í veislunni. Just-
ine fjarlægist vinnuveitanda sinn,
ættingja og eiginmann og á erfitt
með að halda áhuga á neinu og brúð-
kaupið fer í vaskinn. Hún sekkur svo
djúpt í þunglyndið að hún getur ekki
lengur gengið. Lýsingarnar á þung-
lyndinu eru ákaflega sannfærandi og
lýst af miklu næmi.
Þegar ljóst verður að hnöttur mun
lenda á jörðinni og eyða öllu lífi,
verða allir peningar þeirra Claire og
Johns einskis virði, allar pælingar
þeirra og allt í heiminum. Þunglynd-
isleg viðhorf Justine fá gildi. Þegar
heimsendir nálgast er hún líka sú
eina sem hegðar sér eðlilega og sú
eina sem er undir hann búin.
Myndin skartar miklum stjörnum
en systurnar sem eru í aðal-
hlutverki, þær Dunst og Gainsbourg
leika virkilega vel í erfiðum hlut-
verkum sínum. Þær eru eiginlega
frábærar. Tengslin milli þeirra eru
djúpstæð og maður sér fáar feilnót-
ur.
Lars Von Trier nostrar við leikinn
hjá öllum leikurunum, ekki aðeins
hjá þeim sem eru aðal. Leikarar í
aukahlutverkum sleppa ekki fyrr en
þeir hafa skilað hlutverki sínu með
sannfærandi hætti.
Myndatakan og sjónræni hluti
myndarinnar er frábær og umfram
allt ákaflega melankólískur. Hægt
og hægt þyngdi yfir manni á meðan
maður fylgdist með hægfara tortím-
ingu jarðarinnar. Mjög áhrifarík
mynd og sannfærandi. Þeir sem þola
ekki myndina hafa kallað hana til-
gerðarlega og það má örugglega
segja það. Rétt eins og það má segja
það um öll listaverk ef maður er
þannig stemmdur.
Sjónrænt og leikrænt meistaraverk
Háskólabíó
Melancholia Leikstjóri: Lars Von Trier. Leikarar: Kirs-
ten Dunst, Charlotte Gainsbourg og
Kiefer Sutherland. Þýskaland, Frakk-
land, Ítalía, Danmörk og Svíþjóð, 2011.
136 mín.
BÖRKUR
GUNNARSSON
KVIKMYNDIR
Heimsendir Jörðin á ekki möguleika eins og sést á þessari mynd þegar hún
lendir í vegi fyrir smáhnetti utan úr geimnum. Þá er ekkert hægt að gera.
Með samstarfinu er
hátíska á sviði fata-
hönnunar sýnd við nýjar að-
stæður 41
»
Á sunnudag lýkur sýningu á verkum
frönsku listakonunnar Louise Bour-
geois í Listasafni Íslands. Sýningin,
sem ber yfirskriftina Kona / Femme.
Á sýningunni eru málverk, högg-
myndir, teikningar, grafík og inn-
setningar, frá 1946 til 2008, þar a
meðal innsetning hennar Cell (Black
Days), frá 2006, sem nú er sýnd í
fyrsta sinn.
Á sunnudag kl. 14 verður Halldór
B. Runólfsson, safnstjóri, með leið-
sögn um sýninguna kl. 14.00 og
fjallar þá um samruna lífs og listar
er einkennir verk Bourgeois, tákn-
merkingu og tíðaranda. Hann mun
einnig fjalla um aðra sýningu sem
lýkur á sunnudag, Kjarval, Úr fór-
um Jóns Þorsteinssonar og Eyrúnar
Guðmundsdóttur, en á henni er úr-
val málverka og teikninga eftir Jó-
hannes Sveinsson Kjarval úr safni
Jóns Þorsteinssonar íþróttakennara
og konu hans Eyrúnar Guðmunds-
dóttur. Á sýningunni er lögð áhersla
á kúbíska abstraksjón og fígúrur í
lifandi landi.
Lok Frá sýningu á verkum Louise
Bourgeois í Listasafni Íslands.
Sýningalok
í Listasafni
Síðasta sýning-
arhelgi Konu /
Femme og Kjarvals
Reykjavík Bókmenntaborg
UNESCO stendur fyrir pall-
borðsumræðum á Bók-
menntahátíð á morgun kl.
13.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Leitað verður svara við því
hvaða þýðingu útnefningin hafi
haft fyrir aðrar borgir og hvað
hún muni hafa í för með sér
fyrir Reykjavík.
Þátttakendur í umræðunum
verða Einar Örn Benedikts-
son, Svanhildur Konráðsdóttir, Sjón, Ali Bowden,
og Jane Alger. Þær Bowden Alger fjalla um fram-
kvæmd og þýðingu útnefningarinnar í sínum
heimaborgum.
Bókmenntir
Umræður um
Bókmenntaborg
Svanhildur
Konráðsdóttir
Rósa Sigrún Jónsdóttir opnar
sýningu í Listasal Mosfells-
bæjar í Kjarna, Þverholti 2, í
dag kl. 12.00. Sýningin byggist
á textílinnsetningu og hefur yf-
irskriftina „Svo brothætt, svo
eilíft“. Hún stendur til 1. októ-
ber næstkomandi.
Rósa Sigrún útskrifaðist úr
Listaháskóla Íslands árið 2001
og hefur tekið þátt í samsýn-
ingum og haldið fjölda einka-
sýninga; sýningin nú er fimmtánda einkasýning
hennar. Auk sýningarhalds hefur Rósa Sigrún
kennt myndlist, verið sýningarstjóri og tekið að
sér ýmis verkefni.
Myndlist
Rósa Sigrún sýn-
ir í Mosfellsbæ
Rósa Sigrún
Jónsdóttir
Sýningin „Reynsla er Þekk-
ing“ verður opnuð í verksmiðj-
unni á Hjalteyri á laugardag kl.
14.00. Sýningin er margþætt
og er samstarfsverkefni
Sharka Mrnakova, George
Hollanders og Birgit
Ehrhardt. Á sýngunni beina
þau sjónum að eko- og úti-
kennslu í leikskólum, nátt-
úrulegum leikgörðum og áhrif-
um þeirra á þroska fólks –
bæði andlegan og líkamlegan.
Meðal þess sem verður sýnt er afrakstur af þró-
unarverkefni um útikennslu sem var unnið í sum-
ar í samstarfi við leikskólann Iðavelli á Akureyri.
Myndlist
Reynsla er Þekk-
ing á Hjalteyri
Frá vinnu
barnanna.
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Tíbrártónleikaröð Salarins hefst á
laugardag með tónleikum þeirra
Selmu Guðmundsdóttur og Sigrún-
ar Eðvaldsdóttur, en þær stöllur
halda einmitt upp á 25 ára sam-
starfsafmæli um þessar mundir.
Efnisskrá tónleikanna spannar verk
frá Reykjavík til Kína, sem samin
eru á um 120 ára tímabili, en þau
eiga flest það sameiginlegt að vera
sprottin upp úr eða leita fyr-
irmynda í tónlistararfi nokkurra
landa.
Flutt verður rapsódía eftir Bela
Bartok og Ungverskt þjóðlag nr. 1
eftir Johannes Brahms, sem bæði
eiga rætur í ungverskri sígauna-
tónlist, Íslensk svíta Jórunnar Við-
ar sem sækir í íslenskan þjóðlaga-
arf, Sólarupprás yfir Tashikuergan
eftir tónskáldið Chen Gang sem ber
sterk kínversk einkenni, Tambourin
Chinois eftir Fritz Kreisler sem er,
eins og nafnið ber með sér, evr-
ópskur endurómur frá fjarlægu
landi, 5 ljúflingslög eftir Atla Heimi
Sveinsson, en í þeim leitar Atli
Heimir í sjóð íslenskra sönglaga
eldri tónskálda og útsetur fyrir
Selmu og Sigrúnu, og Svíta í göml-
um stíl eftir Alfred Schnittke sem
samin er í anda klassísku meist-
aranna.
Eins og getið er verða þetta
fyrstu Tíbrártónleikar vetrarins í
Salnum, en alls verða átta tónleikar
í Tíbrárröðinni, þeir næstu 22.
október þegar Albert Mamriev
minnist 200 ára fæðingarafmælis
Franz Lisz, en tónleikar verða í
hverjum mánuði fram í maí.
Frá Reykjavík til Kína
Fyrstu Tíbrár-
tónleikar vetr-
arins í Salnum
Morgunblaðið/RAX
Samhentar Selma Guðmundsdóttir píanóleikari og Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari fagna 25 ára samstarfsafmæli
á árinu og opna Tíbrártónleikaröð vetrarins í Salnum á laugardag.