Morgunblaðið - 09.09.2011, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Eftirtaldar kvikmyndir verða frum-
sýndar í kvikmyndahúsum hér á
landi í dag.
Algjör Sveppi og töfraskápurinn
Þriðja myndin um Sveppa og vini
hans. Sjá umfjöllun á bls. 40.
Fright Night
Endurgerð á vampírumyndinni
Fright Night frá árinu 1985. Í mynd-
inni segir af ungum manni, Charlie
Brewster, sem býr með móður sinni.
Dag einn flytur inn í næsta hús
náungi að nafni Jerry sem virðist
hinn viðkunnanlegasti. Vinur Char-
lie, Ed, telur hins vegar að Jerry sé
vampíra og gæði sér á fólki í skjóli
nætur. Charlie hefur enga trú á því í
fyrstu en þegar hann fer að njósna
um nágrannann kemur í ljós að Ed
hafði rétt fyrir sér. Leikstjóri mynd-
arinnar er Craig Gillespie en með
aðalhlutverk fara Anton Yelchin,
Colin Farrell og David Tennant.
Metacritic: 64/100
Mótvægi
Heimildarmynd eftir Guðberg Dav-
íðsson sem fjallar um Bryndísi Pét-
ursdóttur, jarðfræðilega streitu,
rafsegulbylgjur og áhrif þessara
fyrirbæra á líðan fólks. Bryndís
finnur þessar bylgjur og gerir þær
óskaðlegar með Mótvægiskubbnum
sem hún hannaði.
Melancholia
Nýjasta kvikmynd danska leikstjór-
ans Lars von Trier. Myndin segir af
Justine sem mun brátt ganga að
eiga unnusta sinn en glímir við
streitu og alvarlegt þunglyndi. En
allt breytist þegar í ljós kemur að
reikistjarna stefnir í átt að Jörðu og
að heimsendir er í nánd. Gagnrýni
um myndina má finna á bls. 38 í
blaðinu í dag. Í aðalhlutverkum eru
Kirsten Dunst, Alexander Skars-
gård, Charlotte Gainsbourg og Kie-
fer Sutherland.
Knuckle
Heimildarmynd eftir Ian Palmer um
þrjár írskar fjölskyldur og átök milli
þeirra. Palmer fylgdist með blóð-
ugum bardögum þeirra í ein tólf ár,
hnefaleikabardögum þar sem engir
hanskar voru notaðir heldur barist
með berum höndum.
Rotten Tomatoes: 100% Ge9n
Heimildarmynd eftir Hauk Má
Helgason um níu þátttakendur í
pólitískri aðgerð á pöllum Alþingis
8. desember 2008. Ári eftir aðgerð-
ina voru þessi níu ákærð fyrir árás á
Alþingi. Í myndinni er grennslast
fyrir um sýn þeirra á íslenskt sam-
félag o g samtíma okkar, hvað þeim
gekk til sem gengu lengra en flestir
40 dögum fyrir búsáhaldabylt-
inguna svokölluðu, eins og því er
lýst á vef Bíó Paradísar.
Colombiana
Hasarmynd með leikkonunni Zoe
Saldana í aðalhlutverki. Hún leikur
konu sem hefur frá æsku búið sig
undir að verða launmorðingi eftir
að hafa horft upp á foreldra sína
myrta og leitar nú hefnda. Leik-
stjóri er Olivier Megaton og í öðrum
helstu hlutverkum Jordi Molla og
Michael Vartan.
Metacritic: 45/100
Bíófrumsýningar
Íslenskar og
erlendar í bland
Óttanótt Úr vampírumyndinni Fright Night, endurgerð kvikmyndar frá
árinu 1985. Colin Farrell í hlutverki blóðsugunnar Jerry.
Tískuhönnuðurinn John Galliano var sakfelldur af dómstóli í París í
dag fyrir gyðingahatur og dæmdur til að greiða jafnvirði tæplega
einnar milljónar króna í sekt. Svívirti hann gesti á veitingastað í París
en Galliano var ölvaður þegar atvikið átti sér stað. Hann átti yfir höfði
sér sex mánaða fangelsisvist en slapp með skrekkinn. Hinn fimmtugi
Breti, sem var rekinn frá tískurisanum Dior í kjölfar hneykslisins,
var ekki viðstaddur þegar dómurinn var kveðinn upp. Var Galliano
yfirhönnuður fyrirtækisins í fimmtán ár auk þess að reka eigið vöru-
merki. Galliano hefur haldið því fram að hann hafi ekki fordóma gegn
gyðingum en viðurkennir að muna ekki eftir kvöldunum sem atvikið
átti sér stað. Þar væri áfengis-, svefntöflu- og verkjatöflufíkn um að
kenna. Bar hann að hann hefði síðan farið í tveggja mánaða langa
meðferð í Arizona-ríki í Bandaríkjunum og í Sviss.
Galliano sakfelldur
Sekur John Galliano.
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ
BORGARBÍÓ
5%NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
COLOMBIANA KL. 8 - 10.10 16
30 MINUTES OR LESS KL. 6 14
Á ANNAN VEG KL. 6 10
THE CHANGE-UP KL. 8 - 10 14
OUR IDIOT BROTHER KL. 5.50 - 8 - 10.10 7
OUR IDIOT BROTHER LÚXUS KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 7
KNUCKLE KL. 8 - 10 16
30 MINUTES OR LESS KL. 6 - 8 - 10 14
SPY KIDS 4 4D KL. 3.20 - 5.50 - 8 L
STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 L
STRUMPARNIR 2D ÍSL. TAL KL. 3.20 L
ONE DAY KL. 3.30 - 10.10 12
COLOMBIANA KL. 8 - 10.10 16
MELANCHOLIA KL. 6 - 9 12
Á ANNAN VEG KL. 6 - 8 10
30 MINUTES OR LESS KL. 10 14
SPY KIDS 4D KL. 5.50 L
ÞAÐ EIGA ALLIR EINN SVOLEIÐIS
-K.H.K., MBL
-E.E., DV
- H.V.A. - FRÉTTABLAÐIÐ
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
COLOMBIANA Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15 (Power)
THE DEVILS DOUBLE Sýnd kl. 8 - 10:15
THE CHANGE-UP Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15
SPY KIDS 4 4-D Sýnd kl. 4
STRUMPARNIR 3-D ÍSL TAL Sýnd kl. 4 - 6
STRUMPARNIR ÍSL TAL Sýnd kl. 4
HEFURÐU EINHVERN TÍMANN
VILJAÐ VERA EINHVER ANNAR?
FRÁ LEIKSTJÓRA
WEDDING CRASHERS
OG HANDRITSHÖFUNDUM
THE HANGOVER
Í FYRSTA SINN
Á ÍSLANDI!
BÍÓMYND
Í FJÓRVÍDD!
BYGGÐ Á SANNRI SÖGU!
ÞRÆLMÖGNUÐ MYND UM SON
SADDAM HUSSEIN
HÖRKU SPENNUMYND FRÁ ÞEIM
SÖMU OG FÆRÐU OKKUR „TAKEN“
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:15
Hvar í strumpanum
erum við ?
Sýnd í 3D með
íslensku tali
–– Meira fyrir lesendur
Morgunblaðið gefur út glæsi-
legt sérblað um Heimili og
hönnun föstudaginn 16. sept.
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 12. sept.
MEÐAL EFNIS:
Ný og spennandi hönnunInnlit á heimili
Lýsing
Skipulag á heimilinu
Stofan
Eldhúsið
Baðið
Svefnherbergið
Barnaherbergið
Málning og litir
Gardínur, púðar, teppi og mottur
Blóm, vasar og kerti
Innanhússhönnun
Þjófavarnir
Ásamt fullt af öðru spennandi efni
um heimili, hönnun og lífsstíl
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569 1105
Í blaðinu verða kynntir geysimargir
möguleikar sem í boði eru fyrir þá sem eru
að huga að breytingar á heimilum sínum.
Skoðuð verða húsgögn í stofu, eldhús,
svefnherbergi og bað, litir og lýsing ásamt
mörgu öðru sem er huggulegt fyrir veturinn.
Heimili & hönnun
SÉRBLAÐSÉRBLAÐ