Morgunblaðið - 09.09.2011, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 2011
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Þriðja kvikmyndin um grall-
araspóann Sveppa, þ.e. Sverri Þór
Sverrisson og vini hans Góa (Guðjón
Karlsson) og Villa (Vilhelm Anton
Jónsson) verður frumsýnd í Sambíó-
unum í dag og heitir sú Algjör Sveppi
og töfraskápurinn. Leikstjóri mynd-
arinnar er sá sami og leikstýrði hin-
um, Bragi Þór Hinriksson en hand-
ritið skrifuðu Bragi og Sveppi í
sameiningu. Sem fyrr segir af stór-
kostlegum ævintýrum Sveppa, þ.e.
þess Sveppa sem skemmt hefur
börnum á helgarmorgnum á Stöð 2
til fjölda ára. Blaðamaður sló á þráð-
inn til Sveppa í gærmorgun og ræddi
við hann um myndina.
„Í gegnum tíðina, í sjónvarpsþátt-
unum sem ég hef verið með á Stöð 2,
barnaþáttunum, hefur fylgt mér
skápur sem er töfrum gæddur. Okk-
ur langaði alltaf að gera eitthvað
meira úr honum, hann er stór og veg-
legur. Þannig að þessi bíómynd
fjallar um það, byrjar á því að ég er
að flytja í Eyjabakka 9 í Breiðholt-
inu. Það þarf að ferja skápinn á milli
og það er einhver vondur kall, sem
heitir bara vondi kall, þjófur, má
segja að hann sér verktaki, sem ætl-
ar að stela skápnum og koma til út-
landa en þar er maður sem er búinn
að borga fullt af peningum fyrir
hann. Á svipuðum tíma kemst ég að
því að töfraskápurinn er mjög mikl-
um töfrum gæddur og meðal annars
getur hann gleypt manneskjur. Og
það er það sem hann gerir, Ilmur
(Kristjánsdóttir) týnist inni í skápn-
um og maðurinn stelur honum og
ætlar að koma honum úr landi. Þá
þurfum við þremenningarnir að taka
á honum stóra okkar,“ segir Sveppi
um söguþráð myndarinnar.
Ekki nýr heimur
– Eruð þið að vísa í sögu C.S. Lew-
is, The Lion, the Witch and the War-
drobe, að einhverju leyti?
„Já, það hafa margir spurt hvort
þetta sé Narníu-fílingurinn. Upp-
haflega ætluðum við að vera með
þannig pælingu, að þegar þú ferð inn
í skápinn komir þú út í öðrum heimi.
Við byrjuðum að pæla dálítið í því,
hvernig það gæti verið. Svo þegar við
vorum að velta fyrir okkur sögunni
þá var svo mikið vesen að skrifa það,
við nenntum ekki að skrifa það þann-
ig. Hvernig heimur er það sem tekur
við manni? Þannig að við ákváðum að
fara algjörlega aðra leið, ef þú festist
inni í skápnum þá ertu bara þar.“
– Það hefði líka verið dýrt að búa
til alveg nýjan heim, ekki satt?
Sveppi hlær og tekur undir það.
„Ég sá bara fyrir mér að þurfa að
flytja lögheimili mitt upp í Lata-
bæjar-stúdíóið.“
– Er þessi mynd svipuð hinum eða
er þetta enn umfangsmeiri fram-
leiðsla?
„Ég myndi segja að þetta væri
stærsta myndin en ef hún líkist ein-
hverju myndi hún kannski líkjast
frekar fyrstu myndinni. Þessi mynd
gerist öll í Reykjavík og á svona stöð-
um sem er gaman að kíkja inn á, eins
og Þjóðminjasafnið, Skjalasafn Ís-
lands, fornbókabúð niðri í miðbæ,“
segir Sveppi en tökur á myndinni
fóru fram í sumar, hófust í lok maí og
lauk í enda júní.
Einfaldur og asnalegur
-Hver leikur vonda kallinn?
„Við vorum nú með ýmsar pæl-
ingar um það hver ætti að leika hann.
Við fundum nefnilega fyrir því, þó
svo að okkur hafi ekki fundist mynd-
irnar hræðilegar eða rosalega spenn-
andi, að þegar krakkar sjá þær verða
þeir alveg svakalega hræddir þannig
að við ákváðum að reyna að finna
vondan kall sem væri svolítið einfald-
ur en samt asnalegur. Og það var
Hallur Ingólfsson,“ segir Sveppi og
hlær og á bak við hann heyrist leik-
stjórinn hlæja með.
– Hvernig er það, éta börn þig ekki
lifandi þegar þú ferð út í búð?
„Ja, það er nú misjafnt. Jú, jú,
þetta er náttúrlega eitthvað sem
maður er búinn að kalla yfir sig. Jú,
krakkar taka nú eftir mér og heilsa
mér og svona og ef ég er í sundi er nú
svolítið verið að kíkja á kallinn.“
Veglegur skápur töfrum gæddur
Ævintýri Villi, Ilmur Kristjánsdóttir og Sveppi í Algjörum Sveppa og töfraskápnum.
Þriðja myndin um Sveppa og vini hans, Algjör Sveppi og töfraskápurinn, verður frumsýnd í dag í
Sambíóunum Vinkona hans Ilmur lokast inni í skápnum og félagarnir þurfa að kljást við illmenni
Vondur Hallur Ingólfsson skuggalegur í hlutverki vonda karlsins.
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
LARRY
CROWNE
FRÁBÆR
RÓMANTÍSK
GRÍNMYND
COLIN FARRELL ER FRÁBÆR Í ÞESSUM MAGNAÐA THRILLER
HHHH
- K.S. ENTERTAINMENT WEEKLY
- S.B. USA TODAY
HHHH
- P.H. SAN FRANCISCO
HHHH
SÝND Í ÞRÍVÍDD
ALGJÖR SVEPPI kl. 4 - 4:30 - 6 - 6:30 - 8:30 2D L LARRY CROWNE kl. 5:50 - 8 2D 7
FRIGHT NIGHT kl. 8 - 10:20 3D 16 HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:20 2D 12
FRIGHT NIGHT kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 2D VIP GREEN LANTERN kl. 3:30 - 10:20 3D 12
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 2D 7 BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 3 - 5:30 2D L
FINAL DESTINATION 5 kl. 10:30 2D 16
ALGJÖR SVEPPI kl. 2:30 - 3 - 5 - 5:30 2D L COWBOYS & ALIENS kl. 8 2D 14
FRIGHT NIGHT kl. 8 - 10:30 3D 16 HORRIBLE BOSSES kl. 10:40 2D 12
CRAZY, STUPID, LOVE kl. 8 - 10:40 2D 7 BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 2:30 3D - 5 2D L
FINAL DESTINATION 5 kl. 8 - 10:20 3D 16 HARRYPOTTER7 kl. 2:30 - 5 3D 12
/ EGILSHÖLL/ ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA
FRÁ HÖFUNDUM
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr.
SÝ Í LF B , E ILS LL, AKUREYRI, KEFLAVÍ OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLLI, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI