Húsfreyjan - 01.07.1961, Blaðsíða 7
Elsa E. Guðjónsson og
börn hennar.
slíkra ritsmíða og ganga frá þeim. Þar er
m. a. skylt að gera tíu ritgerðir, þar á
meðal safna til stuttra æviágripa tíu
kunnra manna í þeirri grein, sem maður
velur sér sem aðalverkefni. Einnig eru
nemendur þá látnir lesa ritgerðir til
magisters- og doktorsprófs, gagnrýna þær
á skipulegan hátt, jafnframt því að draga
saman efni þeirra í stutt mál. Allt þetta
var mér mjög góð æfing áður en ég sneri
mér að því að vinna endanlega úr efninu,
sem aðalritgerð mín fjallar um.
Af öðru námsefni tók ég t. d. byzant-
íska sögu og miðaldarsögu, og framhalds-
nám í vefjarefnafræði, sem kennd er í
heimilishagfræðideildinni, þar sem ég tók
mitt aðal próf. Auk þess vann ég að sér-
stökum verkefnum í búningasögu og við
rannsókn á indverskum útsaumi í eigu
deildarinnar.
Tókst þú ekki þitt fyrsta háskólapróf
við þenna sama háskóla?
Jú, það var 1945, sem ég lauk þar
„Bachelor of Arts“ prófi. Flestir nema svo
eitt og hálft til tvö ár til viðbótar undir
magisterspróf og ég komst því aðeins af
með eitt ár, að ég fékk að nota í aðalrit-
gerð hluta af efni, sem ég var búin að
vinna að hér heima undanfarin ár.
f hverju hafa þær rannsóknir aðallega
verið fólgnar?
Ég hef rannsakað efnislega það, sem
til er af íslenzkum miðaldaútsaumi hér
á þjóðminjasafninu, einnig það sem geymt
er af íslenzkum útsaumi í dönskum söfn-
um, og svo hef ég athugað muni í nokkr-
um öðrum söfnum og myndir af útsaumi
frá sama tíma. Þá hef ég farið í gegn um
máldaga kirkna á Þjóðskjalasafninu til
að rekja aldur þeirra gripa, sem varðveizt
hafa, athugað heimildir í fslendingasögum
og öðrum rituðum heimildum o. s. frv. Ég
vissi ekki fyrirfram hvort mér yrði leyft
að nota þetta efni í ritgerð, en það vakti
ánægju háskólakennaranna, því staðreynd
er, að ekkert hefur fyrr verið tekið saman
í heild um íslenzkan refilsaum. Eins
og þú sérð á niðurstöðum mínum í
ritgerðinni, þá tel ég, að þessi útsaum-
ur sé mjög sérstæður fyrir ísland, þó að
tæknin hafi þekkzt víðar og útlendra
áhrifa gæti þar að nokkru í munsturgerð,
Húsfrcyjan
7